Þjóðviljinn - 17.01.1963, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 17.01.1963, Blaðsíða 12
20 millj. fjár- hafgsáætlun í Vestmannaeyjum VESTMANNAEYJUM 16/1 — Fjárhagsáætlun Vestmanna-, eyjabæjar var lögð fyrir bæjarstjórnarfund 11. jan. sl. til fyrri umræðu. Niðurstöðutölur fjárhagsáætlunarinnar eru 20 millj. 230 þús. krónur. Útsvör og aðstöðugjöld hækka samkvæmt henni um rösklega 2 millj. króna frá fyrra ári. Aðstöðugjöld eru áætluð 3,5 millj. króna, en útsvör 12 millj. 330 þús krónur. Álögð og innheimt útsvör hafa undanfarin ár verið mun hærri en gert hefur verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun, þar eð alltaf hefur verið lagt á fyrir vanhöldum, en þau hafa lítil orðið undanfarin ár. Þannig voru útsvör og aðstöðu- gjöld í síðustu fjárhagsáætlun 13,4 millj. króna, en inn- heimtar voru 14,6 millj. króna. P H. Jöfn keppni á Skák- þingi Reykjavíkur Skákþing Reykjavíkur hófst s.l. sunnudag, og var þá tefld fyrsta 44 brýr smíðaðar a sl. ari Byggðar voru á .sl. ári alls 44 brýr, sem eru samtals 878 m að lengd. Af þessum brúm voru 23 smábrýr, þ.e. brýr 4—10 m langar, en 21 brú stærri en 10 m. Af þessum 44 brúm voru 9 brýr samtals 333 m að lengd endurbygging gamalla brúa. Stærstu brýrnar, sem byggðar voru eru Fjallsá á Breiðamerk- ursandi 138 m löng, Klifandi í Mýrdal 104 m löng, Gljúfurá i Borgarfirði 63 m löng og brú á Blöndu hjá Blönduósi 69 m löng. Sú síðastnefnda er ekki fullgerð, þar sem aðeins hefur verið lokið við byggingu ann- arrar akbrautar af tveimur. Á- ætlaður kostnaður við þessar brúaframkvæmdir eru 28,5 millj. kr. Af þessari upphæð er 13.5 millj. kr. framlag brúasjóðs, sem hefur 19 aura tekjur af hverj- una lítra af benzínskatti, en u;n 15 millj. kr. eru fjárveitingar 1 fjárlögum og lánsfé sem lagt befur verið fram af einstökum hreppsfélögum til bráðabirgða. Óbrúuðum ám á þjóðvegum fer nú óðum fækkandi, en þörf- m á að endurbyggja gamlar brýr vex ört með aukinni um- Eerð, og sérstaklega vegna stækk- onar ökutækja. umferð, en á þriðjudagskvöld önnur umferðin. Eftir þessar tvær umferðir er staðan á mótinu þessi: Meistaraflokkur: A-riðili. 1. Sigurður Jónsson m. 2 vinn- inga 2—3. Björn Þorsteinsson og Jó- hann Sigurjónsson með 1 v. og biðskák sín á milli. B-riðill. 1. Magnús Sólmundsson l1/, v. 2. Júlíus Loftsson 1 v. og biðskák 3. Gísli Pétursson Vi v. og biðsk. C-riðiil. 1.—2. Bjarni Magnússon og Jón Hálfdánarson 2 v. 3. Jónas Þorvaldsson IV2 v. I. FJokkur. 1. Haukur Hlöðvir 2 v. 2. Sævar Einarsson lVa v. 3. Björgvin Víglundsson 1 v. og biðskák. II. Flokkur A. 1.—4. Stefán Guðmundsson, Gísli Sigurhansson, Baldur Björns- son og Helgi Hauksson með 1 vinning og eina biðskák hver. II. Flokkur B. 1.—2. Björgvin Guðmundsson og Holger Clausen með 1 vinning og biðskák. Biðskákir verða tefldar á föstu- dagskvöld í Snorrasalnum á Laugavegi 18. en þar fer allt skákþingið fram. III. og IV. umferð verða á sunnudaginn. Á fundi borgarráðs í fyrradag var samþykkt tillaga stjómar Innkaupastofnunar Reykjavíkur um að tæknileg athugun fari fram á reynslu og notagildi nú- verandi vagnakosts Slrætisvagna Reykjavíkur. Sjómenn! kjósið B-Hstann Sjómenn eru minntir á að nú fer að verða hver síðastur . kosningunni í Sjómannaíélagi Reykjavíkur. Munið að hæg err heimatökm fyrir landliðsstjórnina að ná til sinna manna með því að stunda smölun af kappi. Starfandi sjómenn eiga fáar stundir til að sinna félagsskyldum sín- um en þeir mega ekki láta það lenda í undandrætti að taka þátt í kosningunum. Kosið er hvem virkan dag kl. 10—12 f.h. og kl 3—6 e.h. í skrifstofu félagsins. Lis'i st.arfundi sjómanna er B-Iistl OG ÚTSÖLUR Nú er útsölutímlnn hafinn og að venju þyrpist fólk á útsölurnar til þess að gcra góð kaup. Að sjálfsögðu tr kvenfólkið duglcgast við inn- kaupin, enda eru konur sagö- ar mliklu hagsýnari við ?ð kaupa til búsins heldur en karlmenn eru yfirleitt. Það er sagt að karlmönnum hætti íil þess að kaupa það fyrsta sem þeim er sýnt í fyrstu verzl- un sem þeir álpast inn í. Af því Ieiðir svo, að það er ekki alltaf sem bezt við hæfi sem þeir kaupa, buxurnar kannske vel við vöxt, sbr. meðfylgj- andi mynd, og annað eftir því. En hvaða máli skipta svoleiðis smámunir? Aðalat- riðið er aö ljúka þessum inn- kaupum sem fyrst sem kon- an var að ragast í. Hún sendir mann þá ekki aftur, ef hún verður óánægð! — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Fimmtudagur 17. janúar 1963 28. árgangur — 13. tölublað. Línuýsa fyrir þá vandlátustu Fisksali nokkur í Hull hefur undirritað samn^ ing um kaup á nokkur hundruð tonnum af hraðfrystum ýsuflökum frá íslandi. Fiskur þessi á að vera fyrsta flokks línufiskur. og samningur- inn hljóðar upp á 50.000 sterlingspund, eða 5—6 milljónir króna. Fisksalinn, W. A. Crockford sagði í viðtali við Fishing News að samningamir hefðu farið fram í Reykjavík og ekki væri ólíklegt að fleiri pantanir yrðu gerðar. Crockford sagði enfremur að tilkoma þessa úrvals fisks á brezka markaðinum myndi ör- ugglega draga dilk á eftir sér. Hann var spurður að þv£ hvort nokkrir erfiðleikar yrðu á að losna við fiskinn og svaraði því til, að pöntun þessi væri gerð fyrir vandlátustu kaupenduma, í West Riding og hingað til hefði hann ekki getað útvegað þeim það magn af úrvals ýsu, sem þeir vildu fá. Crockford bætti því við að kaupendumir í West Riding væru án efa hinir allra vandlátustu í Bretlandi og gerðu mjög háar kröfur um gæði og stærð ýsunnar. Fjölbreytt starf Æskulýðsráðs Akureyrar Flestir ungfínganna völdu þjóðdansana AKUREYRI 15/1. — Æskulýðs- ráð Akureyrar, sem stofnað var seint á síðastliðnu ári, hefur uú á prjónunum eða er þegar tek- ið, að framkvæma marghátt- aða tómstunda- og skemmtistarf- semii fyrir æskufólk bæjarins. Nýlega lét Æskulýðsráðið fram fara skoðanakönnun meðal ungl- ir.ga í skólum og á vinnustöð- vm um tómstundastörf þeirra cg 1 hvaða félögum þeir starfa. Einnig var um það spurt, hvaða greinum tómstundaiðju þeir ósk- uðu eftir, að helzt yrði komið á fót. Úrslitin eru athyglisverð. Af 200 unglingum, sem svöruðu, óskuðu 57 eftir Þjóðdönsum, r.ð- j allega stúlkur. 1 öðru sæti varð svo samkvæmisdans (50), þá 'st um a annu 62 í yfirliti sem Þjóðviljanum hefur borizt frá vegamálastjóra um vega- og brúargerð á sl. ári segir að alls hafi verið unnið við 105 vegi á ár- inu. Akfærir vegir lengdust um 80,8 km, endur- byggðir voru 137,4 km af áður ruddum vegum og 93,7 voru undirbyggðir en eru enn ómalbornir. í skýrslu vegamálastjóra am vega- og brúagerðina segir ,n.a. svo: Vcgaframkvæmdir Af merkustu áföngunum sem r.áðst hafa á árinu má te.ja, að akfært var nú í ögur við Isafjarðardjúp, lokið vegagerð milli Hofsóss og Haganesvíkur og akfært varð milli Stöðvar- fjarðar og Breiðdalsvíkur. Ak- íær ruðningsvegur var gerður írá Þingvöllum um Gjábakka í Laugardal og er nú akfært þá leið að Geysi. Þá náðist sá á- fangi, að fyrsti hlutinn af Aust- urvegi um Þrengsli varð akL'ær fvrir vetrarumferð, og hefur sá vegarkafli þegar komið að góð- um notum. Síðast en ekki sízt er þess að geta, að unnið var óslitið að undirbyggingu hins rýja Kefia- víkurvegar á árinu. og steypt slitlag á 3,7 km kafla ofan við Hafnarfjörð og var sá kafli tekinn í notkun í byrjun desem- ber. Um síðastliðin áramót var iokið undirbyggingu á 8,3 km. sem tilbúnir eru undir steypt slitlag og unnið að undirbygg- ir.gu á 9 km til viðbótar, sem tilbúnir verða undir steypt sl,t- lag í sumar. Með opnun fyrsta steypta veg- aikaflans á Reykjsnesbraut, er •' fyrsta skipti síðan árið 1940 tekinn í notkun kafli á þjóð- vegi með varanlegu slitlagi, cg má segja að tími hafi verið til bess kominn þegar hugleitt er, eð frá 1940 til 1962 hefur bíla- ’rostur landsmanna tífaldazt. Til nýbygginga þjóðvega bef- ur á árinu alls verið varið um 66 millj. kr. og þar af um 31 rnillj. kr. í framkvæmdir við Reykjanesbraut. Framboð af lánsfé til vegargerðar frá hreppa- og sýslufélögum varð um 7 rnillj. kr. meira á sL ári en undanfarin ár, og hefur það átt mikinn þátt í að auka fram- kvæmdir á árinu. hjálp í viðlögum, fjórða Ieiklist, fimmta Ijósmyndagerð. 1 samræoni við þessi úrslit hefur Æskulýðsráðið ákveðið að koma á fót þremur námskeið- um: 1 þjóðdönsum, samkvæmis- dönsum og hjálp í viðlögum. Margrét Rögnvaldsdóttir mun annast danskennsluna, en skátar og félagar úr Flugbjörgunar- sveitinni kennslu í því síðast- nefnda. Þess má geta, að Borgarbíó, sem er annað tveggja kvik- myndahúsa í bænum, hefur haf- ið sýningar á laugardögum fyrir skólaæskuna í samráði við Æsku- lýðsráð. Myndimar eru fengnar hjá Æskulýðsráði Reykjvíkur. Æskulýðsráð Akureyrar hefur fengið hið nýlega íþróttavallar- hús undir starfsemi sína. Þar verður skrifstofa sameiginlegs 'starfsmanns Æskulýðsráðs og íþróttaráðs, en til þess starfs hefur verið ráðinn Hermann Sigtryggson íþróttakennari. Einn- ig hefur fengizt loforð fyrir Landsbankasalnum og Lóni, fé- lagsheimili Geysis, til afnota í æskulýsstarfinu. Fullyrða mic að mjög mikill og almennur áhugi er fyrir starf- semi Æskulýðsráðs Akureyrar, enda ekki síður þörf á slíkum jákvæðum aðgerðum en að loka sjoppum bæiarins. — KfD Söfnun RKl vegna brnnanna utn jól- m framiengd 5. janúar sl. hóf Rauði kross- inn söfnun til hjálpar fjórum fjölskyldum á Isafirði og Hólma- vík sem urðu fyrir mjög til- finnanlegu eignatjóni af völdum eldsvoða nú um jólin. Söfnun þessari átti að ljúka 15. janúar, en þar sem lítið hafði borizt þá af fé hefur hún nú verið fram- lengd til 21. þ.m. Heitir Rauði krossinn á fólk að leggja eitt- hvað af mörkum til þessarar söfnunar. Tekið er á móti gjöf- um til söfnunarinnar á skrif- stofu Rauða krossins l 4 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.