Þjóðviljinn - 23.03.1963, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.03.1963, Blaðsíða 2
Laugardagur 23, marz 1963 SKRÍTLUR Guðrún: — Hvað notar þú til að hreinsa með gólftepp- ið þitt? Sigríður: — Ég hef nú reynt sitt af hverju, en'bezt hefur mér reynst að nota manninn minn til þess. —■ ★ — Móðir: — Ég sendi son minn eftir tveimur kílóum af app- elsínum, en þér hafið aðeins sent mér eitt og hálft kíló. Kaupm.: — Vigtin mín er rétt, þér aettuð að reyna að vigta son yðar. Bóndinn: — Hvað ertu að gera þarna uppi í trénu. drengur? Orengurinn: — Eitt • eplið datt niður og ég er að reyna að festa það upp affur, — ★ — Mamma: — Hvað ertu að gera þarna inni í stofunni, Gunna mín? Gunna: — Ekkert. Mamma: — En hvað er hún Setta að gera? Gunna: — Hún er að hjálpa mér. — ★ — Presturinn; — Hefurðu lesið bréf Páls postula til Korintu- manna? Drengurinn: — Nei, ég hnýs- ist aldrei í annarra manna bréf. — ★ — Eæknirinn: — Hvar finnið þér til í fætinum, prófessor? Prófessorinn, (kenn. í landa. fræði); — Lítið eitt norður af stórutánni. — ★ — Maður nokkur vaknar um miðja nótt og heyrist eitt- hvað þrusk vera í herberg- inu. — Er nokkur þarna? spyr hann. — Nei, er svarað. — Það er ágætt, þá get ég sofið rólegur. ÓTRÚLEGT Vegna þess hvað dimmt var úti, villtist blindi maðurinn af réttri leið. Gamla konan var að lesa bók. Hún hafði bundið klút fyrir augun og sett gleraug- un sín ofan á bókina. Rauða blaðran 1. — Næsta morgun, áður en Pasoal fór í skólann, opn- aði hann gluggann og lét rauðu blöðruna út fyrir, og sagði hennj að koma strax þegar hann kallaði. 2. — Þegar hann var kom- inn út á götuna kallaði hann: — Blaðra, blaðra, og þá kom blaðran undir eins svífandi niður til hans. Síðan elti hún Pascal þó hann héldi hvergi í hana. rétt eins og hund- ur eltir húsbónda sinn. 3. — En eins og sumii hundar vildi blaðran ekkj alltaf gera eins og henni var sagt. Til dæmis að fara yfir götuna eftir settum reglum. því vildj hún ekki hlýða. hvað sem Pascal sagði. Hann lét þá sem hann sæi hana- ekki og faldi sig fyrir hennj bak við hús. En þú varð hún hrædd og leitaði hann uppi 4. — Þegar á strætisvagna stöðina kom, sagði Pascal: Eltu strætisvagninn og gættu þess vel að missa ekki sjón- ar á honum. Og nú sáu Parisarbúar skrítna sjón: Stóra. rauða blöðru. sem fylgdi strætisvagninum eftir götúm borgarinnar. (Framhald). ! I I ! SÍÐA HOSVIUINN I ! Ritstjóri: tJNNUR EIRÍKSDÖTTIR i í I svörtu stemamir Eftir Eric P. Kelly (Framhald úr næst- síðasta blaði). — Mér þykir vænt um þig, litli vinur. Einhverntíma segi ég þér leyndarmálið, en ekki núna. Ef þú lendir í miklum vandræðum og hefur engin ráð til þess að afla þér pen- inga, mun ég segja þér það Nú skulum við bíða og sjá ti! hvort fólkinu þínu tekst að útvega tvöhundruð dollara. Ef það heppnast ekki, skaltu koma til mín. Hvernig lízt þér á það? Þakka þér fyrir Natanis. — svaraði drengurinn. Svo sneri hann heim á leið. í áttina til þorpsins, og þegar hann smeygði sér léttilega milli steina og trjáa minnti hann ef til vill ofurlítið á moldvörpu. Hann gekk eftjr aðalgötu þorpsins. alla leið þangað til nann kom í úthverfið. þar sem hann áttj heima. Það stóð hópur af fólki fyrir framan húsjð þegar hann wm, og var allt í háværum samræðum Þarna voru for- eldrar hans, frænkur og bræð- ur og systur. Þau voru að tala við hvíta manninn sem átti húsið. Hann vjldi að þau borguðu húsjð undjr eins, ann- ars yrði hann að seija það öðrum. — En ég hef enga peninga. heyrði Almonska föður sinn segja á slæmrj ensku, — Það þykir mér leiðjn- íegt að heyra, sagði hvíti maðurinn. •— En peningana verð ég að fá, ég gaf ykkur frest í heilt ár tí] þess að afla peninga og það hefði átt að vera nægur tími. — Skinnin eru í lágu verði núna. og hvítu mennirnir vilja ekki kaupa tágakörf- urnar okkar sögðu Indíán- irnir. — Mér þykir þetta mjög ieiðinlegt, en fólkið, sem vill kaupa húsið og jörðina, er búið að bíða lengi eftir -vari, ég get ekki beðið það að bi.ða lengur. Ef þið aðeins gætuð borgað mér tvö hundr- uð dollara væri málið út- kljáð, og húsið ykkar eign. Faðir Almonska sagði: — En allt landið tilheyrir Indiánunum. við áttum það löngu áður en hvítu i.iénn- imir komu hingað. Hvíti maðurinn kinkaði kolli og sagði fremur vin- gjamlega: — Þetta er reynd- ar rétt, sem þú segir, og ef ég ætti sjálfur peninga af- gangs skyldj ég hjálpa ykk- ur, en því miður hef ég enga Geturðu ekki fengið lánaða bessa upphæð? Indíáninn hristi höfuðið: — Indiánar eru fátækir. sagði hann. Sabbatis -gekk til hvíta mannsíns. — Mér kemur ráð í hug, sagði hann. — Þú gef- ur okkur freSt í einn mánuð i viðbót, og ég reyni að afla penjnga. Kata systir mín og ég förum á veiðár, siðan selj- um við skinn . . . — Ég fer með ykkur, greip Almonska fram í, — mig langar að hjálpa til. Systkjnin störðu steinhissa á Almonska og vissu ekki hvað þau áttu að segja við uppástungu hans Svo skelli- hlógu þau. — Hvað heldurðu svo sem að þú getir? spurði Sabbatis. — Ég get lagt gildrur og kannski get ég líka skotið dýr. Þau brostu bara og tóku ekkert mark á orðum Alm- onska. Þau vissu að hann hafði aldrej getað grandað nokkru dýrl. — Farðu heldur til hans Sabbatis gamla fáðu hjá honum nokkra svarta steina, sagði Sabbatis. Við þessi orð fór allur hópurinn að skelli- hlæja. Svörtu steinarnir hans Natanis höfðu lengi verið helzta hlátursefni þorpsbúa. Almonska var mjög viðkvæm- ur, og hann hljóp i burtu gráti nær. — Ég skal sýna þeim að ég get hjálpað til, ég skal, sagði hann við sjálfan sig. (Framhald.) Leirkrukkan til þess að halda á þeim“. ,,Ó. að ég væri ekki svona grunn“, sagði skélin með ímalastúlku myndinni. ,,Það væri þó gaman að fá að halda á afmælisrósunum hennar“. „Ætii það verði ekki ég" sagði sú fjólubláa. ,,Ég er bæði falleg- í -1-aginu -og 'falleg? - lit“. „Ekkert. ykkar kann að bera blóm,“ sagði vasinn ,Þið ættuð að læra að þekkja til hvers þið eruð ætluð. í eina skiptið. sem sú fjólu- bláa áttj að halda á blómum, missti hún þau niður og varð sér til skammar. Það væri eins gott fyrir Svövu að velja til þess litlu .ljótu og leiðin- legu leirkrukkuna þarna úti í hominu. Enginn svaraði. því dyrnar opnuðust og litla leirkrukk- an sá nú í fyrsta sinn litla stúlku með gullbjart hárið og svo ljómandi fallega. að hún hafði aldrei gert sér hugmynd um neitt þvílikt Hún brosti enn fallegar en ^malastúlkan og augun voru blá eins og berglind. Hún hélt á öllum rósunum og renndi augunum um allan skápinn. eins og hún væri að leita að ein- hverju. Hún snerti á rósóttu skálinni sem snöggvast, en hvarf svo frá henni. Litla leirkrukkan skalf öli gí gleði, pví að Svava leit beint á hana og kallaði svo upp: „Ój. mamjna. hér er svo elskuleg lejrkrukka Hún er alveg mátuleg fyrir blómin mín! Hún er svq djúp, og hún er svo sterk. og svo þung, að hún fer ekki um koll. En að ég skyldi ekki sjá þig fyrr, blessuð litla fallega leir- krukka. Þú skalt geyma blóm- in min í allt sumar“ Löngu seinna bar svo við, að litla leirkrukkan stóð á borðinu, hún var íull af fal- tegum blómum eins og vant var. Þá kom skálin með smalastúlkunnj og var sett rétt hjá henni. „Góða, fallega skál“, sagði krukkan. „Mér þykir svo vænt um þig, af því að þú varst svo góð við mig, þegar ég átti bágt“. Og skálin hvíslaði hljóðlega að hennj; „Þetta sagði ég alltaf, að það er betra að hafa gott að geyma. en að vera fallegur að utan“. Og smalastúlkan hló enn þá meira en nokkru sinni fyrr. Myndir frá Stafholti Kæra Óskastund. Ég les þig alltaf og hef sent þér myndir áður. — Mynd númer X er mynd af mömmu. — Nr. 2 er af regnboga. — Nr. 3 er af mér, Imbu og Rönku, sem er á rugguhesti. Áslaug Rögnvaldsdóttir, 7 ára, Stafholti, Borgarfirði. r.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.