Þjóðviljinn - 23.03.1963, Qupperneq 8
Islenzka liðið vann
en tapaði fyrir Dönum í Hamar
Norðmenn ||jQ
Laugardagur 23. marz 1963 — 28. árgangur — 69 tölublað.
íslenzka unglingalandsliðið í handknattleik lék
fvo leiki á Norðurlandameistaramótinu í Hamar
í gær. Úrslitin urðu: ísland—Noregur 16:14 og
Danmörk—ísland 21:15. — Frímann Helgason,
íþróttafréttaritari Þjóðviljans, er staddur í Ham-
ar, og fer hér á eftir lýsing hans á leikjunum:
Mótið hófst með því að for-
maður norska handknattleiks-
samband^ins, frú Nilsen, setti
mótið méð ávarpi og bauð kepp-
endur og gesti velkomna. Lið Is-
Lands og Noregs, sem léku fyrsta
leikinn á mótinu, stóðu á vell-
inum á meðan. Síðan voru leikn-
ir þjóðsöngvar landanna áður en
keppni hófst.
Island — Noregur 16:14
Leikurinn byrjaði heldur illa
fyrir Islendingum, því að Norð-
menn skora tvö mörk á 2. og 4.
mínútu. Viðar Símonarson skorar
fyrsta mark íslendinga, og það
lyfti líka undir okkar menn að
Brynjar i markinu varði víti.
Enn hallar á landann, því að
Norðmenn skora mark og Tóm-
as „brennir af“ vítakasti. Norð-
menn hæta marki við og stað-
an er 4:1.
Þegar hér er komið, kom Sig-
urður Dagsson í leikinn, en
hann hafði ekki verið með áð-
ur. Fyrr en varir skorar hann
glaesilegt mark með einu af sín-
um háu uppstökkum, og skömmu
eíðar bætir hann öðru við þannig
að leikar standa 4:3.
Eftir þetta hallar heldur á ó-
gæfuhliðina og er eins og að
leikur okkar manna fari allur
úr skorðum. Norðmenn gera nú
hvert áhlaupið á fætur öðru, og
áður en hálfleik lýkur hafa þeir
bætt 5 mörkum við án þess
á landamir fái rönd við reist.
Fyrri hálfleik lýkur því með
9:3 fyrir Norðmenn. 1 þessum
hálfleik áttu íslendingar fimm
stangarskot. Rétt fyrir hlé eyði-
lagðist annað vítakast þegar skot-
ið var í stöng.
Lokasigur.
I hléinu var útlitið því ekki
glæsilegt fyrir islenzka liðið.
Seinni hálfleikur byrjaði held-
ur ekki vel, því að Sigurður
Hauksson „brenndi af“ vítakast.
Þótt nú horfi illa fyrir land-
anum, þá fer heldur betur að
lifna yfir drengjunum: Stefán
skorar og Viðar bætir við. Norð-
menn skora enn, en Viðar skor-
ar aftur og leikar standa 10:6
fyrir Norðmenn, og er þá liðið
á 11. mínútu síðari hálfleiks.
Auðunn bætir við marki, en
Norðmenn eru ekki af baki
dottnir og skora: 11:7.
Aftur er það Viðar sem skor-
ar og Stefán bætir við, þannig
að leikar standa 11:9. Norðmenn
koma enn og skora tvisvar: 13:9.
Strax á eftir fá landarnir á sig
vítakast, og leikar standa 14:9.
Þegar hér er komið sögu, er
sem landar vorir lifni við, og
Norðmenn komast ekki að meira!
Jón Karlsson — 10:14. Sigurður
Hauksson 11:14. Síðan upphefst
Sigurðar-þáttur Dagssonar. Hann
gerist einráður og „átti hús-
ið“, eins og sagt er á hand-
knattleiksmáli, — skorar fjögur
mörk í röð, og ísland fær yfir-
höndina — 15:14. Síðan kemst
Tómas á línu í dauðafæri, en
er óheppinn og skaut í stöng-
ina. Síðasta markið skoraði svo
Jón Karlsson, og leiknum lauk
með sigri ~Islands — f§:14.
Góður árangur
Mörk íslenzka liðsins í þess-
um leik skoruðu: Sig. Dagsson
6, Viðar Símonarsson 11, Jón
Karlsson 2, Stefán 2, Auðunn
Óskarsson og Sigurður Hauksson
1 hvor.
Dómari í leiknum var dansk-
ur, Ib Lund að nafni, og má
segja að hann hafi verið nokkuð
góður. Þó fannst okkur íslend-
ingunum að hann tæki ekki eins
hart á brotum og gert er héma.
1 upphafi virtist sem íslenzku
piltamir áttuðu sig ekki á stærð
hússins. Þeir voru seinni til og
virkuðu heldur þungir í fyrri
hálfleik. Norðmenn voru við-
bragðsfljótari og hraðari allan
fyrri hálfleikinn. Þá virtist
vöm okkar manna líka opin í
fyrri hálfleik. Þeir áttuðu sig
ekki á því hvað línuboginn var
stór og höfðu því ekki nægilega
gott lag á að þétta vömina, en
allt er þetta skiljanlegt miðað
við þær aðstæður sem eru til
handknattleiks heima .
1 seinni hálfltík snerist þetta
alveg við. Islenzka liðið virtist
hafa tileinkað sér aðstæðumar
og réði lögum og lofum á vell-
inum. MikiU fögnuður ríkti með-
al landanna á staðnum eftir
leikinn. Ásbjöm, fararstjóri og
formaður HSI, fagnaði ákaft
og faðmaði leikmenn að sér,
enda ærin ástæða til.
Svíþjóð — Finnland
Síðan hófst leikur milli Sví-
þjóðar og Finnlands. Fyrri hálf-
leikur var afar jafn, og lauk
honum með 8:8. Sviar áttu I
miklum erfiðleikum með Finna,
sem voru miklu harðari og hrað-
ari en Svíar bjuggust við. 1
síðari hálfleik yfirtóku Svíar
hinsvegar alveg leikinn, og
leiknum lauk með sigri Svía
- 20:12.
Algert öngþveiti í París í
gær vegna rafmagnsskorts
PARÍS 22/3 — Algert öngþveiti var ríkjandi í Par-
ís í dag vegna rafmagnsskor't's, þegar starfsmenn
raforkuvera lögðu niður vinnu fjórar stundir í
annað sinn í þessari viku til að fylgja eftir kröf-
um um kauphækkanir og í samúðarskyni við kola-
námumenn sem hófu í dag f;jórðu verkfallsviku
sína.
Ekki virðast enn horfur á að
deila þeirra leysist skjótlega.
Þriggja manna nefnd sú sem
falið hefur verið að finna lausn
á vinnudeilunum í fyrirtækjum
rikisins mun á morgun leggja
gkýrslu um athuganir sínar fyr-
ir ríkisstjómina. Búizt er við
•ó nefndin leggi til að fallizt
Verði á kauphækkanir í hinum
þjóðnýttu iðngreinum. Ríkis-
Stjómin mun gera tillögur á
grundvelli þessarar skýrslu og
hún er sögð vona að hún geti
hafið samningaviðræður við
verklýðsfélögin snemma í næstu
viku.
Bílaumferð stöðvaðist viða í
París í morgun, þegar umferða-
ljósin slokknuðu og neðanjarð-
arbrautin var að sjálfsögðu
Fleiri franskar
kiirnatilraunir
LYON 22/3 — Pierre Messmer,
landvarnaráðherra Frakklands,
sagði í dag i Lyon að Frakkar
myndu halda áfram kjaraa-
^Sruntð^r SÍð' W -- ««" “ ^ ^
að koma upp tjlraunastöð fyrir lelða-
kjarnasprengingar á Tahiti
stöðvuð. Menn áttu í erfiðleikum
að komast til vinnu og vinna
lá niðri víðast hvar, vegna þess
að rafmagnið vantaði.
Það er einnig mikill skortur
á gasi og hann mun verða enn
meiri ef gasverkamenn hætta
ekki verkfalli sinu.
Njóta stuðníngs mikils
mcirihluta þjóðarinnar
Niðurstöður skoðanakönnunar
sem birtar voru í dag sýna að
yfirgnæfandi meirihluti þjóðar-
innar styður verkfallsmenn í
baráttu þeirra fyrir bættum kjör-
um. 79 af hundraði aðspurðra
lýstu sig samþykka þeirri kröfu
námumanna að kaup þeirra skuli
hækka um 11 prósent.
Sáttaboði hafnað
Starfsmenn við hinar mikil-
vægu jarðgasstöðvar í Lacq í
Suðvestur-Frakklandi höfnuðu í
dag sáttaboði frá vinnuveitend-
um og ákváðu að halda áfram
verkfalli sínu sem þegar hefur
staðið í rúman hálfan mánuð.
Þeir hafa þó hætt við þá fyrir-
ætlun sína að loka alveg fyrir
jarðgasið frá Lacq. en þaðan
kemur nú pðcin.s helr'i""’ir þess
ans lagði niður vinnu í dag.
Var það eitt af mörgum boðuð-
um verkföllum í póst- og síma-
þjónustu Frakklands.
Danmörk — Island 21:15
Islenzka unglingaliðið lék ann-
an leik í gærkvöldi eftir aðeins
klukkustundarhlé, og í þetta sinn
gegn unglingalandsliði Dana.
1 upphafi var leikurinn mjög
jafn. Danir skora fyrsta markið.
Viðar jafnar, en Danir komast
í 3:1. Þá eru það þeir Sigurð-
ur Hauksson og Jón Karlsson
sem rétta hlut Islands: en Danir
bæta við tveimur mörkum og
ná yfirhöndinni: 5:3.
Sigurður Dagsson bætir hlut
okkar manna: 4:5, en Danir
auka haUann enn: 6:4. Viðar
bætir við marki, og hinn snjalli
línuleikmaður Tómas Tómasson
jafnar metin: 6:6. Danir komast
í 7:6, en Sigurður Hauksson
jafnar: 7:7. Danir skora næsta
mark, en Auðunn jafnar og
skömmu síðar ná Danir aftur
yfirhöndinni: 9:8. Brynjar var í
markinu, og þegar hér er komið
sögu ver hann vítakast frá
Dönum. — Var það til að
kóróna ágæta markvörzlu hans.
Sigurður Hauksson kemur nú
til sögunnar og jafnar: 9:9. Danir
skora enn, en rétt fyrir lok hálf-
leiks jafnar Auðunn: 10:10.
Þegar síðari hálfleikur hefst
er Auðunn aftur að verki og
nær forystunni fyrir Island:
11:10. Danir jafna en Auðunn
skorar aftur: 12:11. Nú skora
Danir þrjú mörk í röð: 14:12, og
gerast dönsku leikmennimir nú
harðir og ruddalegir í leiknum.
Jafnframt fara að sjást þreytu-
merki á íslenzku leikmönnunum.
Danir komast í 15:12, en Viðar
réttir enn okkar hlut: 15:13 fyT-
ir Dani. Danir kasta enn í netið:
16:13, en næstu tvö mörk skora
Viðar og Tómas, þannig að leikar
standa 16:15 fyrir Dani.
Eftir þetta var úthald pilt-
anna okkar á þrotum, og þeir
skoruðu ekki fleirl mörk. Danir
bæta hinsvegar við 5 mörkum,
þannig að leiknum lauk 21:15.
1 heild var leikurinn ekki ójafn
Danir eru harðir og óvægir leik-
menn, en okkar menn höfðu
skömmu áður leikið erfiðan leik,
og áttu því við erfiðari aðstæð-
ur að búa en Danir. Við þurf-
um því ekki að una illa við ár-
angur dagsins.
Mörk Islands í leiknum við
Dani skoruðu: Viðar 4, Auðunn
4, Sigurður Hauksson 3, Tómas
2, Jón Karlsson og Sigurður
Dagsson eitt hvor.
Myndin er tekin á fyrri fundinum sem prentarar í Newv York
héldu um sáttatillöguna, en þá fclldu þeir hana Nú munu þeir
greiða aftur atkvæöi um hana og þá í Madison Squarc Garden.
Verkfatö prentara í
Ne w York að Ijúka?
NEW YORK 22/3 — Nú virðast
loks horfur á því að takast muni
að Ieysa verkfall prentara við
dagblöðin í New York sem staðið
hefur í hálfan fjórða mánuð.
Allan þann tíma hafa cngin dag-
blöð komið út í stórborginni,
fyrir utan eitt. NEW YORK
POST, sem samdi við prentara
fyrir nokkrum dögum.
Ákveðið hefur verið að leggja
sáttatillögu Roberts Wagners
borgarstjóra aftur undir atkvæði
prentara, en þeir hafa þegar
hafnað henni með litlum at-
kvæðamun.
Að þessu sinni verður fundur
þeirra haldinn í stærsta sam-
komuhúsi borgarinnar, Madison
Square Garden, sem rúmar
18.000 manns eða hæglega alla
verkfallsmenn. Fundurinn sem
Brezkur raðherra á í vðk að
verjast út af kvennamálum
LONDON 22/3 — Einn af ráðherrum Macmillans, John
Profumo hermálaráðherra, ar í vanda staddur vegna
kvennamála og reyndi að verja sig með ræðu á brezka
þinginu í dag. Stúlkan sem hann er kenndur við er 21
árs gömul sýningarstúlka og ekki hefur það auðveldað
aðstöðu ráðherrans að hún hvarf í síðustu viku.
Kyrr;i1'"<'i og á hún að sögn að
V‘ m;i í ,taö þeirra í Sahara.
Verkf
Kona Profumos. kvikmynda-
leikkonan Valerie Hobson, var
ejn í áheyrendastúku þjngsins
þegar hann hélt varnarræðu
sína í dag. Profumo neitaði með
öllu að hafa verið í tygjum
við stúlkuna og sagði að enda
þótt hann þekkti hana, hefði
aldrej neitt ósæmilegt farið
fram þeirra á milli. Hann kvaðst
mundu höfða mál gegn hverjum
þejm sem því héldi fram.
Undanfarna daga hefur geng-
ið þrálátur orðrómur um sam-
band Profumos við þessa stúiku,
Christine Keeler. Hún hóf fer-
il sjnn sem þjónustustúlka á
næturklúbbum, en varð síðar
sýningarstúlka og komst í kynni
við marga fyrirmenn og var
tíður gestur í samkvæmum
,,fina fólksins“ í London.
f siðustu viku varð hún mik-
Starfsfólk franska iandssím-úl blaðamatur, þegar elskhugi
hennar. Vestur-Indíumaður var
dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir
morðtilraun í húsi einu í
Wimpole Street. Christine átti
að mæta fyrir rétti sem höfuð-
vitni saksóknarans, en kom ekki
og síðan hefur ekkert til henn-
ar spurzt.
„Ég velt ekkert hvar
hún cr“
Profumo neyddist til að gera
grein fyrir sambandi sínu við 1
Christine þegar sá kvittur kom
upp í þinginu, að hún hefði ver-
ið í tygjum við hann.
— Ég sá ungfrú Keeler síð-
ast í desember 1961 og ég hef
ekki hugmynd um hvar hún er
nú niður komin. sagði hann.
Það er ekki minnsti fótur fyrir
því að óg hafi átt hluf að
því að hún mætti ekki fyrir
réttt
Hann sagðist hafa hitt stúlk.
una fyrst í samkvæmi í Clive-
den-höU sem Astor lávarður á,
en þar er gamall samkomustað-
ur foringja brezkra íhaldsmanna.
— 1 þessu samkvæmi voru
einnig dr. Stephen Ward sem ég
kannaðist við og Évgéní fvan-
off höfuðsmaður, einn af fulUrú-
um so.vézka sendiráðsins í
London, sagði Profumo enn-
fremur.
— Ég og kona mín höfðum
lengi átt boð að heimsæikja dr.
Ward og á tímabilinu júlí-des-
ember hitti ég ungfrú Keeler
sex sinnum í ibúð hans. sagði
ráðherrann
Ward læknir stundar ein-
göngu sjúklinga meðal fyrirfólks
London. Hann hefur íbúð í
Wimpole Street. en einnig fast
herbergi í Cliveden-höll þar
sem hann dvelst gjaman um
helgar.
Hann hefur skýrt frá því í
blaðaviðtali, að brezka gagn-
njósnaþjónustan hafi spurt sig í
þaula um kunningsskap sinn við
ungfrú Keeler og ívanoff höf-
uðsmann og talið svör sín al-
gerlega fullnægjandi.
sáttaboðið var fellt á var hald-
inn í litlum húsakynnum og
komust ekki nær allir verkfalls-
menn að.
Það þykir benda til þess að
sáttaboðið verði nú samþykkt að
formaður prentarafélagsins í New
York, Bertram Powers, leggur
það nú til, en hann var áður
andvígur því.
Enn tapar brezki
íhaldsflokkurinn
LONDON 22/3 — Verkamanna-
flokkurinn hélt þingsæti sínu í
aukakosningum í gær í kjördæm-
inu Golne Valley með svipuðu
hlutfalli atkvæða og í síðustu
þingkosningum. Fylgið hrundi
hins vegar af Ihaldsflokknum
sem fékk nú aðeins helming
þeirra atkvæða sem hann fékk
í þingkosningunum. Hins vegar
bættu Frjálslyndir enn við sig
fylgi. Frambjóðandi Verkamanna-
flokksins fékk 18.633 atkvæði.
Frjálslynda 15.994 og íhalds-
flokksins 6.038. Fjórði frambjóð-
andinn, sem hafði það eitt bar-
áttumál að nektardans skyldi
leyfður á skemmtistöðum fékk
266 atkvæði.
Miðræður hefjast
aftnr um Berlín
WASHINGTON 2273 — Rusk ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna og
Dobrynin sendiherra Sovétríkj-
anna munu á þriðjudag hefja
aftur í Washington viðrseður um
Berlínarmálið. Viðræðum stjóma
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
um þetta mál var slitið í októ-
ber sl. þegar Kúbudeilan kom á
dagskrá, en eru nú teknar upp
aftur að frumkvæði sovétstjóm-
arinnar.
BresnéffogSjn
til Kambodja
BELGRAD 22/3 — Júgó-
slavneska fréttastofan Tan-
jug skýrði frá því í dag að
á næstunnj myndu þeir
Bresnéff forseti Sovétríkj-
anna, Líu Sjaosi forseti
og Sjú Enlæ forsætisráð-
herra Kína fara til Kam-
bodjft,
■I'