Þjóðviljinn - 05.05.1963, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 05.05.1963, Blaðsíða 8
g SIBA MÓÐVILJINN Sunnudagur 5. maí 1963 r; V {■', rjz'i WMM J fe: J í.' ■ • •. .. : .:::.. . ? »//í. ' C ? . ■ . /.' :: 3 : • • ■ : i ;í' íí&JxS&ííjj ■-; I«® : Í ■■'■,: vortízku í Mannfólkið er, eins og nðr- ar s'kepnur jarðarinnar, háð duttlungum náttúrunnar. Þeg- ar sól hækkar á lofti, grasið grænkar og allt sem lifir fær- ist í nýjan búning fer það að langa til að fá nýjan svip líka. Einkum er kvemfólkið næmara fyrir þessari tilfinn- ingu — það bókstaflega verð- ur að fá sér eitthvað nýtt — og fer þá náttúrlega eftir efn- um og ástæðum hvað þetta nýja verður, hvort það verður hattur, blússa, kjóll, skór eða. jafnvel dragt eða kápa. Þetta vita þeir mætavel, sem verzla með kvenfatnað og hafa vit á að koma alltaf með eitthvað alveg nýtt á vorin — e'kki bara erlendis þar sem þörf er á að breyta klæðnaði sínum á sumrin vegna hit- anna, heldur Mka hér uppá Is- landi þar sem minni munar gætir í veðurfari sumar og vetur. Við viljum kasta vetr- arhamnum ekki síður en aðr- ir. Vorsýningar Þessvegna mun kvenfólkið óefað flykkjast á sýninigarnar á voi-tízkunni sem nú eru hafnar hér í Reykjavík. Fyr- irtækin Eygló Laugavegi 116 og Feldur Austurstræti 10 kynntu framleiðsluna í Klúbbnum sl. föstudagskvöld og gera það aftur í kvöld og næsta föstudags- og sunnu- dagskvöld. Indælis sýnimgar- stúlkur, laglegar og eðlilegar í framkomu, menntaðar í Tízkuskóla Andreu, gnnga í fötunum um salarkynni Klúbbsins. Mest eru það dragtir og kápur sem aýndar eru að þessu sinni, svo og sportfatnaður. Frauðefni Helzta nýjungin er efnið í kápunum svokallað foam-efni, sem mætti kannski þýða með frauð á íslenzku. Þessi efni eru þannig unnin að á röng- unni er frauðsvampur, léttur og lipur, sem veldur því að flíkin ber sig helmingi betur en ella. Þar að auki er sagt að svona efni hafi reynzt mjög auðveld í hreinsun — jafnvel svo að sé t d. um að ræða jersey með frauði geti maður þvegið það sjálfur með góðum árangri Fatnaðurinn sem Eygló og Feldur sýna er yfirleitt inn- lend framleiðsla og er á- mægjulegt að sjá að hún gef- ur í engu eftir þeirri erlendu, hvorki hvað snertir efni, snið né frágang og þar að auki er sérstaklega miðað við þarfir okkar og íslenzkt veðurlag. Hér á síðunni birtast nokkr- ar svipmyndir af sýningunni, em sjón er sögu ríkari og ef þið viljið sjá fleira og sjá það betur getið þið sjálf brugðið ykkur í Klúbbinn kvöldstund og hresst upp á skapið meðan vorið er enn svona grátt með að skoða fallegar íslenzkar fllkur á fallegum íslenzkum stúlkum. /Etti að verða ánægjulegl bæði fyrir konuna og eigin- manninm! Þorbjörg Bernharð » blárrl blússu við hvíta dragt. Efnið er tcrelyne og stórir biviir hnappar bæði á blússu og pilsi ljá búningnum sérkennil ‘gan svip. Þessi búningur er einkum fyrir ungu stúlkurnar, en tii hægri er svo Vildís Garðarsdóttir í dömulegri flík, svartri ullardragt með silkipífum. Guðrún Dóra Ellertsdóttir sýnlr Brynju Ingimundardóttur káp- una sína, sem hægt er að snúa við og hafa hvort sem maður vill einlita með köílóttum kraga og uppslögum eða köflótta með einlitu Kjóll ú: köfiótta efninu er náttúrulega alveg til- valinn við kápuna. Bryn.ia er í fötum sem allar skólastúlkur eru vitlausar i: piisi og vesti úr nappa. r r í gær var opnuð í Hafn- arstræti 8 ný tízkuverzlun, Parísartízkan, eign Rúnu Guðmundsdóttur Hvann- berg og Gyðu Árnadóttur, sem báðar hafa starfað um árabil hjá Markaðnum, Rúna sem verzlunarsfjóri og Gyða forstöðukona saumastofu. í Parísartízkunni eru seldjr kjólar, undirfatnaður, skart- gripir og snyrtivörur. en aetl- unin er að háfa þar einnig dragtir á boðstólum. Hélming- ur kjólánna er jnnlend frám- leiðsla og er saumastófa í tengslum við búðina. Efnin í kjólana hafa þær Gyða og Rúna keypt frá Frakklandi, ftalíu. Bandaríkjunum og Sviss og kjólana sem ekki eru frárn- leiddir hér, frá Englándi og Frakklandi. Undirfatriaður ér franskur. svo og skartgripir og snyrtivarningur og hefur vérzl- unin umboð fyrir franíka snyrtivörufyrirtækið Rouge Baiser. Blaðamönnum var boðið að skoða verzlunina sl. föstudag og sýndi þá Ragna Ragnará nokkra kjóla. Innrétting verfel- unarjnnar er létt og skemráti- leg, gerð af Manfred Vi’ihjalms. syni arkitekt. Myndir birtéáf í næsta heimilisþætti. Andrés önd kynm krakkamyndir Góðan daginn! Það lítur út fyrir að i dag eigi að lata okkur hlæja því að það er svo mikið af gaman- myndum í bióunum. Það eru ýmsir skrítnir karlar sem hægt er að sjá í dag, beirra fremst- ur og frægastur — og skemmti- legastur — er þó Chaplin gamli sem er í Tónabíó í myndasyrpunni Gamli tíminn. Gög og Gokke eru í Bæjarbíó í Gög og Gokke í lífshættu og Abbott og Ck'stello i Kópavogs- bíó í myndinni í útlendingaher- sveitinni. Svo eru þeir Dean Martin og Jerry Lewis í Aldrei of ungur í Háskólabíó og Jerry karlinn er líka í Ævintýri í Japan í Laugarás- bíó. 1 Tjarnarbæ er enn ein gam- anmyndin. Sá hlær bezt . . . , svo þið sjáið að þnð er satt sem ég segi, það á að láta okkur hlæja. Því miður éru flestar þessar myndir gamlar. svo hætt er við að mörg vkk- ar hafi begar séð þær. Myndin í Nyja bíó er til- tölulega nýleg, hefur verið sýnd tvisvar til þrisvar. og er l.iórn- andi skemmtileg. Hún heitir Ævintýri Indíánadrengs og ger- ist í frumskógum Ameríku. í hinum bíóunum eru gamlár myndir, en nokkuð góðar, ég hef sagt ykkur frá beim áður: Órabelgir í Hafnarfjarðarbíó óg Þiísund og ein nótt í Stjörttþ- bíó. Verið þið svo sæl að sinni' Andréfc Eygló og Þær eru á leið i Klúbbinn í kápum úr frauðefnum. Frá vinstri: Margrét Gi,nn 1 augsdó11ir, Guðrún Dóra Ellertsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Þorbjörg Bernharð, Brynja Ingimundardóttir og Vlldís Garðarsdóttir. Verðið á kápunum er frá 2485 uppx 36Ö0 — þær dýrustu eru með skinni, Hattarnir? Nei, þvi miður, þeir eru ekki til sölu. Það vildi bara svo vel til að fi-ú Andrea átti sjálf frarska hatta sem pössuðu við allar kápurn- ar. Á efrii eindálka myndinni hér fyrir neðan er Þorbjörg í kápu úr nappa mcð !oðk»aga og á þeirri neðri VildíS í köfl- óttum jalkakjól úr jersey. (Ljósm. vh). ( \ (

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.