Þjóðviljinn - 16.06.1963, Blaðsíða 1
f&9
ÞjóBviljinn óskar lesendum sínum
og landsmönnum öllum
gleBilegrar hátíðar
ÞEGAR BLÁHVÍTI FÁNINN
VAR TEKINN MED HERVALDI
Á miðvilcudaginn í síðustu viku, 1 2. júní
voru liðin rétt fimmtíu ár síðan sá atburður
gerðist á ytri höfninni hér í Reykjavík, að
skipherrann á danska varðskipinu Islands
1913
1963
Falk, Rudolph RotKe, lét taka Keimatilbúið
flagg, blátt með Kvítum krossi, af skemmti-
báti, sem var á sveimi þar umhverfis varð-
skipið. Héldu Danir því fram, að ætlun Is-
lendinganna á bátnum Kafi verið sú að sýna
danska fánanum lítilsvirðingu.
Framkoma danska varðskipsforingjans
vakti mikla ólgu meðal íslendinga. Efnt var
meðal annars til útifundar í garðinum framan
við stjórnarráðshúsið í mótmælaskyni og þar
var fánatökunni lýst sem móðgun við íslend-
inga^
Gremjan út af tiltæki þessa danska sjóliðs-
foringja hjaðnaði áður en langir tímar liðu,
en atburðurinn mun samt Kafa orðið til þess
að ýta á eftir því, að birtur var konungsúr-
skurður 22. nóvember þá um Kaustið um ís-
lenzKan sérfána og skipun nefndar sem gera
skyldi tillögur um gerð og lit þessa væntan-
lega fána.
Frásögn af atKurðinum á ReykjavíKurhöfn
1 2. júní 1913, eins og hann er skráður á bæk-
ur, er birtur á 5,: síðu blaðsins í dag.