Þjóðviljinn - 16.01.1964, Qupperneq 4
4 SfÐA
Útgefandi: Saxneiningarflokkur albýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Bitstjórar: Ivar H. Jónsson. Magnúa Kjartansson (áb.i.
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórar: Jón Bjarnason. Sigurður V. Friðþjóísson.
Ritstjórn. afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavðrðust 19.
Slmi 17-500 (5 línurl. Askriftarverð kr. 80 á mánuði.
Tekjur íslendinga
A Iþýðublaðið hefur að undanfömu verið að birta
tölur sem eiga að sýna að hér á íslandi sé fyr-
irmyndarþjóðfélag, þar sem jöfnuður og rétílæti
ríki samkvæmt stefnuskrá Alþýðuflokksins. Meðal
annars segir blaðið að rannsókn á skattaframtöl-
um leiði í Ijós að tekjur manna séu furðulega
jafnar, þær séu yfirleitt 100-—200 þúsundir króna
á ári og bilið lítið milli verkamanná og atvinnu-
rekenda, milli verkakvenna og hinna æðstu emb-
ættismanna.
F’n tölur af þessu tagi þurfa ekki að vera sönnun-
argagn um veruleikann; þær geta einnig verið
'til marks um hitt að beitt hafi verið röngum
reikningsaðferðum. Og framtöl á íslandi eru ein-
hver hæpnasti mælikvarði sem hægt er að hugsa
sér. Almennir launþegar telja að vísu rétt fram,
en hitt vita allir að skattsvik eru auðveldasta
íþrótt a'fvinnurekenda, fjárplógsmanna og hvers-
kyns forréttindamanna í þjóðfélaginu. Þeir eiga
auðvelt með að fela raunverulegar tekjur sínar,
m.a. í reikningamyrkyiði |yrirtækja,sinna, og hag-
nýta þá aðstöðu óspart. Þegar skattaskráin er lögð
fram árlega eiga menn kost á því að sannreyna
hvernig ýmsir þeir sem vaða í peningum þykjast
aðeins hafa knappar þurftartekjur og gjalda þjóð-
'félaginu skatf í samræmi við það. Mjög athygl-
isvert dæmi um þessa iðju kom í Ijós fyrir nokkr-
um árum. Einn kunnasti atvinnurekandi landsins,
Einar Sigurðsson, hafði sannað það með fram-
tölum að hann væri sífellt að tapa. Þegar stór-
eignaskattur var lagður á kom engu að síður í
Ijós að hann var orðinn langauðugasti maður
landsins þannig að botnlaus taprekstur reyndist
vera gróðavænlegasta atvinnugreinin á íslandi.
Og hinir ábyrgustu, valdamestu og mikilvirtus'tu
embættismenn þjóðarinnar hafa ekki heldur ver-
ið neinir skussar á þessu sviði; þannig sannaði
Vilhjálmur Þór núverandi seðlabankastjóri árum
saman með framtölum sínum að hann hefði ekki
efni á að greiða einn eyri í ópinber gjöld.
Tölur Alþýðublaðsins eru harðvítug sönnun fyr-
ir því að skattsvik á íslandi eru óviðunandi
hneyksli, og það er í senn þjóðfélagsleg nauðsjm
og réttlætismál að binda endi á þann stórþjófnað.
En þrátt fyrir ranglæti og spillingu mun að vísu
mega halda því fram með rökum að launakjör
hérlendis séu jafnari en í ýmsum nálægum lönd-
um. Þar koma þó sannarlega ekki til verðleikar
stjómarflokkanna sem hafa lagt á það o'furkapp
að misskipta þjóðartekjunum með viðreisn sinni.
Sá árangur sem náðst hefur er afleiðing af harð-
snúinni kjarabaráttu hinnar róttæku verklýðs-
hreyfingar, þeirri baráttu sem ævinlega er a'f-
flutt með rógi og fáryrðum í stjórnarblöðunum.
Tölur Alþýðublaðsins eru fyrsf og fremst sönnun
um hin stórfelldustu skattsvik, en að því leyti
sem ályktanir blaðsins eiga rétt á sér eru þær
dæmi um hitt, hversu mjög leiðtogum st'jórnar-
flokkanna hefur mistekizt að ná því marki sem
þeir settu sér með viðreisn sinni. — m.
HÖÐVILIIMN
iii.
Árið 1946 fékk Olíufélagið
h.f. uxnhoð fyrir olíuyöru-
fraxnleiðslu bandaríska fyrir-
tækisins Esso Standard Oil.
Var saxniúngTirinn gerður til
10 ára og að þeim tíma liðn-
um framlengdur. Útflutnings-
fyrirtæki Esso Standard Oil,
EJsso Export Corporation,
New York, hefur séð um við-
skiptin við Olíufélagið h.f.
Hið íslenzka st.einolíuhlutafé-
lag hefir síðan á árinu 1949
annazt sölu á olíuvörum til
þeirra erlendu aðila, sem
haft hafa aðsetur á Kefla-
víkurflugvelli, fyrst fyrir-
tækjanna Loclkhead Aircraft
Overseas Corporafion og Met-
calfe Hamiiton Kansas City
Bridge Companies, og síðar
til vamarliðsins og erlendra
verktaka á vegum þess, en
vamarliðið kom til landsins
1951. Samkvæmt 9. tl, 8. gr.
viðbætisins um réttarstöðu
liðs Bandaríkjanna og eignir
þeirra við vamarsamninginn
frá 15. maí 1951, sbr. 1. nr.
110/1951, á vamarliðið að fá
tollfrjálst eldsneyti, olíu og
smumingsolíu til afnota fyrir
opinber ökutæki, flugvélar og
skip liðs Bandaríkjanna og
verktaka þeirra sem eigi em
íslenzkir þegnar.
Bandaríkjastjóm (Inn-
kaupastofnun Bandaríkja-
hers fyrir olíuvönir) hafði
þann hátt á, að leita tilboða
um sölu á olíuvöram til liðs-
sveita Bandaríkjanna víðs-
vegar um heiminn. Esso Ex-
port Corporation hefir náð
samningum að því er til liðs-
sveitanna á Islandi tekur all-
an þann tíma, sem varnarlið-
ið hefir verið hér, nema eitt
árið, er Shell sá um söluna
á smumingsolíu. Esso Export
Corporation framseldi Hinu
íslenzka steinolíuhlutafélagi
samninginn. Að sjálfsögðu
voru varnarliðinu aðeins seld-
ar Esso olíuvörur. Hið ís-
lenzka steinolíuhlutafélag hef-
ir einnig annazt sölu elds-
neytís og annarra olíuvara
til flugvéla, sem um Kefla-
vikurflugvöll fara.
IV.
Eins og fyrr greinir hefir
verið náið samband milli Oliu-
félagsins h.f. og Hins íslenzka
steinolíuhlutafélags um allan
rekstur. Áður hefur verið
greint frá því, að Oliufélagið
h.f. eigi Hið íslenzka stein-
olíuhlutafélag. Félögin verzla
með samskonar vörur. Sömu
menn skipa stjóm beggja fé-
laganna. Framkvæmdastjór-
amir, ákærðir Haukur Hvann-
berg og Jóhann Gunnar hafa
hvor um sig prókúra fyrir
bæði félögin. Eftir að ákærð-
ur Haukur hvarf frá félögun-
um var skipaður aðalfram-
kvæmdastjóri fyrir bæði fé-
lögin. Starfsfólk er að miklu
leyti hið sama. Þannig er t.d.
yfirbókari sá sami fyrir bæði
félögin. Forstöðumaður sölu-
deildar Olíufélagsins h.f. hélt
bókhaldið yfir dollaravið-
skipti Hins íslenzka steinolíu-
hlutafélags og jafnframt
gerði hann gjaldeyrisskil - til
gjaldeyriseftirlitsins fyrir
bæði félögin. Voru skil þessi
sameiginleg fyrir bæði félög-
in án þe»s að sundurgreint
væri sérstaklega, hvað væru
tekjur Hins íslenzka steinoliu-
hlutafélags og hvað tekjur
Olíufélagsins h.f. Voru í gjald-
eyristekjum þessum ár hvert
öllum dollaratekjum félag-
anna steypt saman undir einn
lið, er bar heitið Sala á
Keflavíkurflugvelli 1/1—
31/12. 19....
Starfsmenn félaganna virð-
ast á stundum a.m.k. hafa
Keflavíkurflugvelli, en Esso
Export Corporation sá um
þessa innheimtu. Þá kom á
reikning þeima tekjumegin
það, sem kom inn fyrir seld-
ar olíuvörur til erlendra flug-
véla, auk ýmissa annarra
tekna, sem óþarft er að rekja
nánar.
Fylgiskjöl yfír reikninginn
vora fyrir hendi yfir tímabil-
ið 1952—1958. Athugaði end-
urskoðandinn þau og bar
saman við afrit reikningsins.
Árið 1952 var fært til
Áfam með smjörið — og olíumálið. Dóm-
endur halda áfram að rekja málavöxtu. í
dag er fyrst sagt frá samskiptum Olíufé-
lagsins h.f. og bandaríska olíuhringsins Esso
Standard Oil, síðan greinir frá sambandi
Olíufélagsins og Hins íslenzka steinolíuhltrta-
félags og loks er gerð grein fyrir einstökum
viðskiptareikningum fyrrgreindra félaga er-
lendis.
ritað undir bréf, umsóknir og
þess háttar, sitt á hvað í
nafni Olíufélagsins h.f. eða
Hins íslenzka steinolíuhluta-
félags, sbr. t.d. það, sem síð-
ar greinir frá í innflutnings-
kafla máls þessa, VH. kafla,
lið nr. 14 og 21 til 24.
1 reyndinni virðist samstarf
þessara tveggja félaga hafa
verið slikt að hér hafi verið <$>
um að ræða eitt og hið sama
fyrirtæk' sem rekið væri í
tveim de im. en að formi til
tvö félög. í stóram
dráttum voru dregnar upp
eftirfarandi línur um skipt-
ingu starfsins milli félaganna:
1. Olíufélagið h.f. annast inn-
flutning á öllmn olíuvör-
um, sem félögin selja hér
á landi, bæði innlendum
aðiljum og erlendum.
2. Olíufélagið h.f. annast
bókhald Hins íslenzka
steinolíuhlutafélags og
f járgreiðslur fyrir það, eft-
ir fyrirmælum fram-
kvæmdastjóra þess og læt-
ur þvi í té starfslið, eftir
því sem við verður komið.
3. Hið íslenúka steinolíu-
hlutafélag annast að öllu
leyti um viðskiptin á
Keflavíkurflugvelli.
4. Hið íslenzka steinolíu-
hlutafélag annast sölu á
olíuvörum til erlendra
skipa, íslenzkra togara og
stærri eriendra skipa, hvort
sem viðskiptin fara fram
hér á landi eða erlendis.
5. Hið íslenzka steinolíu-
hlutafélag annast eldsneyt-
isolíusölu í Reykjavik og
Hafnarfirði, rekstur benzín-
og smurningsstöðva í
Reykjavík.
6. Hið íslenzka steinolíu-
hlutafélag sér sjálft um
innheimtu á reifcningum
vegna sölu á oMuvörum á
Keflavikurflugvelli.
V.
Til glöggvunar á því, sem
rakið verður síðar í sam-
bandi við hina einstöku þætti
ákærunnar, þykir rétt að gera
hér nokkra grein fyrir við-
skiptareikningum Hins ís-
lenzka steinolíuhlutafélags og
Oiíufélagsins h.f. í Ameríku
og Englandi, svo og við-
skiptareikningum á nafni á-
kærðs Hauks Hvannbergs, sem
rannsóknin leiddi í ljós, að
hann hefði átt í Ameríku.
Viðskiptareikningur nr.
4137.
Hið íslenzka Steinolíuhluta-
félag hefir viðskiptareikning
hjá Esso Export Corporation,
sem merktur er 4137. Á
tekjuhiið reikningsins var
fyrst og fremst fært það, sem
innheimt var hjá varnarliðinu
fyrir seldar olíuvörur á
tekna á reikningi þessum
samtals $ 2.501.556.13, árið
1953 $ 3.664.534.78, árið
1954 $ 5.589.625.56, árið
1955 $ 4.215.421.67, árið
1956 $ 2.488.842.45, árið
1957 $ 1.886.146.15 og árið
1958 $ 1.788.818.01.
Gjaldamegin var fært það,
sem látið var renna inn á
Fimmtudagur 16. janúar 1964
aðra reikninga á naaii OMufé-
lagsins h.f. og Hins íslenzka
steinolíuhlutafélags hjá Esso
Export Corporation. Einnig
rann fé inn á reikning Hins
íslenzka steinoMuhlutafélags
hjá skrifstofu Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga í New
York. Þá var nokkra fé var-
ið til vörakaupa og til
greiðslu umboðslauna og ann-
ars kostnaðar til Esso Export
Corporation.
Að dómi starfsmanna Hins
íslenzka steinoMuhlutafélags
var reikningur þessi, nr.
4137, innheimtureikningur eða
„samansöfnunar-rei'kningur”.
Gjaideyriseftirlitið vissi um
reikning þenna, en hafði ekki
séð yfiriit yfi'r haxrn, enda
virðist það ekki hafa gert til-
raun til að fá að sjá yfiriit
um irm- og útborganir á
hann. Var því sagt, er það
spurðist fyrir um reikninginn,
að hann væri aðeins inn-
heimtureikningur og um hver
mánaðamót væri reikningur-
inn tæmdur og innstæðam
færð yfir á reikninga OMufé-
lagsins h.f. Það var mjög
þýðingarmikið atriði að koma
í veg fyrir, að gjaldeyriseftir-
litið fengi að sjá yfiriit yfir
reikning nr. 4137, þar sem þá
hefði það getað fengið upp-
lýsingar um reikning nr.
4138. sbr. nánar hér á eftir,
og þar með að engu gert það
kerfí. sem upp var komið í
sambandi við reikning 4138.
Reikningi 4137 var lokað í
maí 1959.
laugavegx 26
simi 20 9 70
Nokkur göfíuð
BADKER
Stærðir: 155x75 cm. og 170x75 cm. verða
seld með miklum afslætti.
MARS TRADING COMPANY h.f.
Vöruskemman v/Kleppsveg gegnt Laugarásbíói.
Sími 17373.
Eftirfíts og
pökkunurstúlkur
vantar strax.
staðnum.
FROST h/f -
Sími 50165.
Fæði og húsnæði á
Hafnarfirði.
I