Þjóðviljinn - 08.02.1964, Blaðsíða 1
Laugardagur 8. febrúar 1964 — 29. árgangur — 32. tölublað.
Nýr ósigur Bandaríkjanna
/ viiureigninni vii Kúbu
Sjá grein MTÓ á 7. síðu
A 18. hundrai lóia-
umsóknir óafgreidd-
ar hér í Reykjavík
|~1 Geir Hallgrímsson borgarstjóri upplýsti á fundi
borgarstjórnar Reykjavíkur í fyrrakvöld, að enn lægju
óafgeiddar umsóknir hjá borgaryfirvöldum um byggingar-
lóðir fyrir 1706 íbúðir.
Borgarstjóri gaf þessar upp-
lýsingar, er hann svaraði fyr-
irspurnum Framsóknarmanna
um lóðamálin í borginni. Sagði
hann að þær tölur er hann
nefndi og hér fara á eftir vaeru
miðaðar við árin 1962 og 1963,
þ.e þá sem sótt hefðu um
byggingalóðir árið 1962 og end-
urnýjað þær svo á þessu ári
og þá sem sent hefðu nýjar
umsóknir á síðasta ári.
Lóðir undir íbúðahús
Umsóknir um lóðir undir ein-
býlishús frá 1962 eru 183 og
frá 1963 fram á þennan dag
482, þar af hafa 227 sótt um
lóðir í Fossvogi.
Tvíbýlishús: ijrá 1962 84 í-
búðir, frá liðnu ári 123 (í Foss-
vogi umsóknir um lóðir fyrir
54 hús).
1 fjölbýlishúsum er um að
ræða samtals 522 íbúðir.
Raðhúsalóðaumsóknir (einbýl-
ishús): Frá 1962 um 20, frá
1963 — 85.
Doriankvint-
ettinn ieikur
á mánudaginn
HINN KUNNI bandariski blásara-
kvintett, Doriankvintettinn sem
undanfarna mánuði hefur verið
á tónleikaferðalagi um Afríku
og Evrópu er væntanlegur
hingað til lands og mun halda
hér eina tónleika. Verða þeir
í súlnasal Hótel Sögu n. k.
mánudag. 10. febrúar kl. 21.00.
Hefur kvintettinn hvarvetna
vakið mikla hrifningu með
leik sínum og hlotið ágæta
dóma. Aðgöngumiðar að tón-
Icikunum verða seldir í Hljóð-
færaverzlun Sigriðar Helga-
dóttur, Vesturveri og Mokka-
kaffi á Skólavörðustíg.
MYNDIN ER AF kvintettinum,
talið frá vinstri: John Perras,
Charles Kuskjn, William Bronvn,
Jene Taylor, William Lcwis.
mm
Lóðir iðnaðarfyrirtækja
Spurt var: Hve margar lóða-
umsóknir til annarra nota (en
íbúðarhúsa), og þá hverra?
Borgarstjóri svaraði, að í
Grensás- og Ármúlahverfi lægju
fyrir 42 umsóknir undir bygg-
ingar iðnaðarfyrirtækja allskon-
ar Umsóknir um lóðir á nýja
hafnarsvæðinu væru 11 talsins,
en þar er gert ráð fyrir að
rísi vörugeymslur og húsa-
kynni heildsölufyrirtækja. 42
umsóknir væru yrp lóðir í Ár-
túnshöfða, aðallega fyrir vél-
smiðjur og skyld fyrirtæki, 7
umsó.knir um lóðir á Eiðsgranda.
Enn fleiri umsóknir til við-
bótar.
Framhald á 2. síðu.
FJARSVIKAMALIN ERU
TENGD HV0RT 0ÐRU
—\ Nú er komið í ljós, að tengsl eru á milli Ken,aYikur' hefur hann haft
tveggja stortelldra tjarsvikamala, sem 1 ljos
hafa komið að undanförnu. Er þar annars-
vegar fjársvikamálið á Keflavíkurflugvelli og
hinsvegar ávísanasvik Sigurbjörns Eiríksson-
ar, veitingamanns í Glaumbæ.
Einn af höfuðpaurunum í fjár-
svikamálinu á Keflavíkurflug-
velli er Jósafat Amgrímsson,
sem lengi hefur verið innkaupa-
stjóri og bókhaldari klúbbanna
á Keflavíkurflugvelli.
Umsv.ifamaður i Keflavík.
Jósafat hefur undanfarin ár
haft mikil umsvif í atvinnu-
rekstri í Keflavík og er til dæm-
is fróðlegt að fletta upp í Síma-
skránni 1964 en þar eru talin
nokkur fyrirtæki hans.
Þar eru t.d. skráðar þrjár
verzlanir undir nafninu Kyndill
h.f. Þá er það bókaútgáfan Ása-
Verndun fískimíða fyrir
veiði með þorskanetjum
□
ing
um
í gær barst Þ'jóðviljanum eftirfarandi fréttatilkynn-
reglugerð um vemdum fiskimiða fyrir veiði með
þorskanetum, sem sett var af sjávarútvegsmálaráðu-
neytinu 5. þ.m.
„Hinn 5. febrúar 1963 setti
ráðuneytið svofellda reglugerð
um vemdun fiskimiða fyrir
veiði með þorskanetjum.
1. gr.
Skipum með tíu manna áhöfn
skal óheimilt að eiga fleiri net
í sjó en 90.
Sé áhöfn 11 menn, skulu net
ekki vera fleiri en 105.
2. gr.
Frá upphafi vetrarvertiðar til
20. marz ár hvert, skal óheimilt
að leggja þorskanet á svæði, sem
takmarkast af eftirgreindum lin-
um:
1. Að suðaustan af línu, sem
hugsast dregin misvísandi
suðvestur að vestri frá
Reykjavík.
2. Að norðaustan af lfnu,
sem hugsast dregin misvís-
andi norðvestur að norðri
frá Reykjanesvita.
3. Að norðvestan af linu, sem
hugsast dregin misvísandi
vestur að suðri frá Garð-
skagavita.
4. Til hafs takmarkast svæðið
sjálfkrafa af 12 mílna
fiskveiðimörkunum.
3. gr.
Brot gegn ákvæðum reglugerð-
ar þessarar varða sektum.
Reglugerð þessi er sett sam-
kvæmt heimild í 1. gr. laga nr.
44 5. apríl 1948, um vísinda-
lega vemdun fiskimiða land-
grunnsins. og birtist til eftir-
breytni öllum, sem hlut eiga að
máli.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið,
6. febrúar 1964“.
þór, Fasteignasala Suðumesja,
Kassagerð Suðumesja, Prent-
smiðja Suðurnesja og Isfélag
verksmiðju og rekur heildsölu.
Þá er Jósafat frægur fyrir að
kaupa lóðir í Keflavík og er
hann talinn eiga lopann af
Hafnargötunni.
Allt eru þetta fyrirtæki. sem
Jósafat hefur rekið sem auka-
getu fyrir utan aðalstarf sitt á
Keflavíkurflugvelli.
Síðastliðið vor keypti hann til
dæmis Isfélag Keflavíkur í harðri
6amkeppni við Kaupfélag Suður-
nesja og síðustu mánuði hafa
farið fram kaup á fullkomnum
frystitækjum.
Ókunn fjáruppspretta.
Jósafat Amgrimsson hefur
borizt mikið á undanfarin ár,
virzt hafa mikla peninga með
höndum og kemur þó flestum
saman um, að afrakstur hans
af þessum fyrirtækjum hafi ekki
Framhald á 2. síðu
Verziunarbankinn
kaupir Bankastr. 5
Dagblaðið Vísir skýrir frá því
í gær að Verzlunarbankinn hafi
fest kaup á húseigninni Banka-
stræti 5 þar sem Skóverzlun
Lárusar Lúðvíkssonar hefur ver-
ið til húsa en verzlunin er nú
að hætta starfsemi á þessum
stað.
Eins og kunnugt er tók Verzl-
unarbankinn á leigu hluta af hús-
inu Bankastræti 5 fyrir nokkr-
um árum og hefur rekið þar
starfsemi sína síðan. Ætlun
bankans mun vera að taka alla
götuhæð hússins fyrir af-
( gær varð
mikið mannfall
í Suður-Víetnam
hið mesta sem
orðið hefur í
langan tíma
Sjá frétt
á 3. síðu
greiðslustarfsemi
ir hússins tekur
arra nota.
en efri
hann til
hæð-
Nýr bátur
tii Dalvíkur
Myndin er af nýju stálskipi,
Bjarma H., EA-110 Dalvík og
er hún tekin við komu skips-
ins til Dalvíkur 3. þ.m. Sjá
nánar frétt á 12. síðu. — (Ljósm.
Heimir Kristinsson).
ÍBIÍÐ r- TILLEIGU
I.TU leigu á förgum stað rétt við Ægisslðu hjá Háskólabló 2 he
1 með húsgögnum. Sér baðl og sér inngangi. TUboð er greíni hú
j sendist Vísi fyrir i. febr. merkt „Valúta“;
IbOð öskast
ÓFREMDARÁSTANDIÐ
í HÚSNÆÐISMÁLUM
Auðlýsingadálkar blaðanna
✓ bera það með sér að ófremd-
arástandið í húsnæðismálum
fer versnandi dag frá degi.
Þetta ástand hefur fleiri
hliðar en þá sem snýr að hús-
næðislausu fólki; það ýtir
undir óheyrilegt okur í húsa-
leigu, gerir bamafólki nær
ókleift að leigja sér viðun-
andi íbúðir og fjöldi leigj-
enda er eins og mýs undir
fjalaketti; háðir skapbrestum
og duttlungum húsráðenda,
sem oft á tíðum leggja á þá
hvers kyns kvaðir og setja
þeim afarkosti eigi þeir að
halda húsnæðinu.
Úr þessari auglýsingu, sem
birtist í Vísi fyrir skömmu,
má lesa tvennt. f fyrsta lagi
vill húsráðandi fá leigutilboð,
en tiltekur ekki lágmarks-
leigu. Slikar auglýsingar eftir
tilboðum eru ekki aðeins brot
á húsaleigulöggjöfinni heldur
hafa þær frekar öðru orðið
til þess að hækka húsaleigu
í Reykjavík upp úr öllu valdi
á undanförnum mánuðum. í
öðru lagi gefur svo orðið
„valúta“ sem tilboðið á að
auðkennast með til kynna,
að þeim sem ekki hefur betra
að bjóða, en hinn fallvalta
gjaldmiðil íslands, sé tilgangs-
laust að falast eftir þessari
íbúð.