Þjóðviljinn - 08.02.1964, Qupperneq 3
Laugardagur 8. febróar 1964
ÞJÖÐVIUINN
SÍÐA 3
Barizt í Suður-Víetnam:
Khan misstí 115 hermenn
VIÐ STYÐJUM PANAMA!
SAIGON 7/2 — Eins og skýrt var frá í gær varð mjög
harður bardagi í gærmorgun í Suður-Víetnam, einhver
sá harðasti sem orðið hefur í lengri tíma. 115 manns úr
liði stjómarinnar munu hafa fallið og minnst 30 særzt.
Skothríðin stóð látlaust í 7 klukkustundir. Bandaríkja-
menn eru óánægðir með árangurinn af þessum kostnaðar-
sama bardaga.
I gærmorgun hófet einhver
harðasta skothríð, sem orðið
hefur lengi í Suður-Vétnam.
Voru það skæruliðar og her-
menn suður-vétnömsku stjómar-
innar. sem áttust við. Var bar-
izt í nokkrum þorpum rétt hjá
landamærum Kambodsja í sjö
tíma samfleytt. Um 115 manns
féllu úr liði stjómarinnar og
Guantanamo:
Goldwater
vill hefnd
WASHINGTON 7/2 — Stjómin á Kúbu tók þá ákvörðun
í gær að loka fyrir vatnið til herstöðvarinnar á Guantan-
amo þangað til Bandríkjamenn herfðu látið lausa 36 sjó-
menn, sem voru handteknir fyrir að vera að ólöglegum
veiðum innan bandarískrar lögsögu. í dag var deilt um
það í þinginu hvað Bandaríkjunum bæri að gera og mæltu
ýmsir með því, þar á meðal Barry Goldwater, að Kúbu
yrði refsað harðlega, en aðrir drógu úr því. Johnson var
í dag á tveggja tíma fundi með ráðgjöfum sínum.
minnst 30 særðust. Ekki er vit-
að hversu mikið mannfaU varð
í röðum skæru'liða, en óstaðfesl-
ar fréttir herma að 100 manns
hafi verið handteknir.
Bandaríkjamenn telja sig illa
svikna eftir þessi átök og segja
að bardaginn hafi borið litinn
árangnr miðað við það fé sem
til hans var kostað. Samið hef-
ur verið um vopnahlé yfir ný-
árið, sem gengur í garð þar
um slóðir þann 13. febrúar
Talsmaður herforingjaklikunn-
ar, sem nú er við völd, sagði
frá því í dag, að nýja stjórnin
yiði opinberlega útnefnd á
morgun Khan herforingi verð-
ur forsætisráðherra og sendi-
herra Suöur-Vétnam í London
Vú Van Mau verður að sögji
utanTíkisráðherra.
Fídel Kastró hefur skipað svo
fyrir, að opnað verði fyrir vatn-
ið til herstöðvarinnar einn
klukkutíma á dag, „svo að
Bandaríkjamenn þurfi ekki að
drekka kók allan daginn“.
Réttarhöldin yfir sjómönnun-
um, sem eru í haldi í Banda-
ríkjunum, standa nú yfir. Raul
Roa, utanríkisráðherra Kúbú,
sneri sér í dag til U Þant og
skoraði á Sameinuðu þjóðimar
að blanda sér í málið og fá
Bandaríkin til þess að láta sjó-
mennina lausa og afhenda þeim
skip sín og veiðarfæri.
Miklar deilur hafa risið í
Bandaríkjunum um það, hvernig
beri að bregðast við aðgerðum
Kúbu. Ýmsir þingmenn vilja að
gerðar verði róttækar gagnað-
gerðir og fer Barry Goldwater
þar fremstur í flokki. Aðrir
draga úr því, og segja að eng-
in ástæða sé til þess að gera
úlfalda úr mýflugu.
LOGTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengn-
um úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari
fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að
átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
fyrir eftirtöldum gjöldum:
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi,
gjöldum af innlendum tollvörutegundum, matvælaeft-
irlitsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipulags-
gjaldi af nýbyggingum, lestagjaldi, vitagjaldi og skoð-
unargjaldi af skipum, söluskatti 4. ársfjórðungs 1963
og hækkunum á söluskatti eldri tímabila, útflutnings-
og aflatryggingarsjóðsgjaldi, svo og tryggingaiðgjöldum
af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum.
Yfirborgardómarinn í Reykjavík, 7. febrúar 1964.
KR. KRISTJÁNSSON.
Færeyjaflug Fí
hefst á ný
í maí
Flngfélag íslands undirbýr nú
flug til Færeyja í sumar og
hefur þegar sótt um tilskilin
Ieyfi til viðkomandi yfirvalda.
Áætlað er að Færeyjaflugið
hefjist 19. mai og nær áætl-
unin til septemberloka. Sam-
kvæmt henni mun verða flogið
einu sinni í viku frá íslandi til
Færeyja og þaðan áfram til
Norðurlanda. Á heimleið leggur
flugvélin lykkju á leið sína og
kemur við í Skotlandi og teng-
ir Færeyjar þannig fslandi,
Norðurlöndum og Bretlandi.
Flugferðir Flugfélags íslands til
Færeyja hófust í fyrrasumar, þó
seinna en upphaflega var á-
formað, vegna framkvæmda við
flugvöllinn á Vogey. Á þeim
rúmlega tveim mánuðum sem
flogið var voru fluttir um 600
farþegar.
Flugfélag Færeyja mun svo
sem í fyrrasumar annast af-
greiðslu flugvéia Flugfélags fs-
lands í Færeýjum.
Flugáætlun Færeyjaflugsins er
þannig, að á þriðjudögum verð-
ur flogið frá Reykjavík til Fær-
eyja og þaðan áfram til Björg-
vinjar og Kaupmannahafnar. Á
fimmtudögum frá Kau.jmanna-
'höfn til Björgvinjar og Færeyja
og samdægurs til Glasgow. Á
föstudögum frá Glasgow til Fær-
eyja og þaðan til Reykjavíkur.
Allmargar farpantanir hífa nú
þegar borist vegna Færeyja-
flugsins, sérstaklega milli Bret-
lands og Færeyja og einnig á
leiðinni milli Færeyja og Kaup-
mannahafnar.
Alls staðar í Suður-Ameriku vottar fólkið Panama samúð sína og streymir út á göturnar me2
spjöld sín. — Konurnar í Santiago de Chile mótmæla herbækistiiðvum Bandaríkjamanna í Pan-
ama: „Jankí, hypjaðu þig frá Panama!“
Bandaríski
Dorlankvintettinn
Tónleikar í Hótel Sögu næstkomandi mánudagskvöld
kl. 21.
Viðfangsefni m.a. eftir:
ELLIOTT CARTER
VILLA LOBOS
GUNTER CHULLER
INGOLF DAHL
W FORTNER
Kvintettinn hefur verið á tónleikaferðalagi undanfama
mánuði um Evrópu og Afriku, og hvarvetna hlotið frá-
bærar viðtökur og blaðadóma. Að þessu sinni gefcur
hann aðeins haldið eina tónleika hér á landi.
Aðgöngumiðar verða seldir í hljóðfæraverzlun Sigríðar
Helgadóttur Vesturveri og Mokkakaffi Skólavörðustíg.
<££?=>
Bandaríkin eru ákveðin í að semja ekki við Panama um nýjan sáttmála í stað þess, sem þröngv-
að var upp á Panamamenn árið 1903 og á að gilda að eilífu eða þangað tii Bandarikin segja
bonum sjálf upp. Allststaðar í heiminum eru farnar mótmælagöngur, þar sem lýst er yfir and-
úð á stefnu Bandaríkjamanna. — Á myndinni sér yfir hópinn, sem safnaðist framan við banda-
riska sendiráðið í Djakarta í Indónesíu.
Símavændi
MINEOLA 5/2 — Lögreglan í
bænum Mineloa í New york-ríki
tilkynnti það í gærkvöld, að
upprættur hefði verið mikill
símavændishringur í bænum. 72
leynilögreglumenn hafa unnið
að rannsókn málsins nærri tvö
ár, og hafa hlustað skipulega
á hótelsíma bæjarins.
Saksóknari ríkisins skýrir svo
frá, að þegar hafi þrettán döm-
ur verið handteknar fyrir „virka
þátttöku" í starfseminni, og bú-
izt sé við fleiri handtökum
bráðlega. Saksóknarinn lét enn-
fremur svo um mælt, að hinar
þrettán væru „venjulegar hús-
mæður“, sem illa hefði haldizt
á heimilispeningum sínum og
þvi kosið að drýgja þá á þenn-
an hátt.
rr
Krafa Sovétríkjanna:
Kýpurbúar eiga
að vera sjáHráðir
MOSKVA 7/2 — Krúst'joff sendi vesturveldunum í dag
mótmælaorðsendingu, þar sem hann ásakar þau fyrir að
standa í vegi fyrir því, að Makaríos forseti fái öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna til þess að stilla til friðar á Kýpur.
//
1 orðsendmgunni, sem hann
sendi Bandaríkjunum, Bret-
landi. Frakklandi, Grikklandi og
Tyrklandi segir, að ástandið sem
skapazt hefur á Kýpur geti vald-
Frœðsluerindi Sósíalistaflokksins
EINAR OLGEIRSSON talar um: Baráttuna fyrir þjóðfrelsi og
framförum — og fyrir verkalýðshreyfingu og sósíalisma á ís-
landi 1879 — 1918. Fyrra erindi sunnudaginn 9. febrúar í
Tjamargötu 20, kl. 2 síðdegis.
Félagar f jölmennið.
Fræðsluráð sósíalistaflokksins
ið alvarlegum átökum, sem nái
lengra en til Kýpur. Engum dylj-
ist að vesturveldin ætli að reyna
að blanda sér inn í Kýpurmálið
og senda þangað her.
Sovétríkin geti ekki látið sig
einu gilda hvemig málum sé
háttað við austurhluta Miðjarð-
arhafsins, svo skammt frá landa-
mærum sínum.
Ennfremur segir í orðsending-
unni að ætlunin sé að þviiiga
þeirri lausn málsins upp á íbúa
Kýpurs, sem þeir geta ekki sætt
sig við, í þeim tilgangi að láta
Atlanzhafsbandalagið fá ítök á
eynni.
Gerízt
áskrífendur
DIDDVIUINN