Þjóðviljinn - 08.02.1964, Síða 4
I
4 SlÐA -------------------------------------------
Gtgcfandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaílokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kiartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavðrðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 80 á mánuði.
Viðreisnarsiðgæði
íslendingar eru mjög önnum kafnir um þessar
A mundir og vinnutíminn langur, en enginn starfs-
hópur mun þó horfasf í augu við jafn óyfirstígan-
leg verkefni og embættismenn ákæruvaldsíns.
Naumast líður svo dagur að ekki sé skipaður nýr
rannsóknardómari, yfirheyrsluplöggin hrannast
upp á skrifstofum þeirra, og ekki er fyrr tekið til
við eitt verkefnið en önnur kalla að úr öllum átt-
um. Dómstólamir eru svo önnum kafnir, að þeir
kveða aðeins upp dóma um lögbrot sem framin voru
fyrir 'fjölmörgum árum, þannig að þeir sem brjóta
lögin í dag verða naumast dæmdir í hæstarétti
fyrr en einhvern Tíma undir aldamót. Og það eru
engin úrhrök þjóðfélagsins sem mæta fyrir rann-
sóknardómurunum, í þeim hópi má sjá svokall-
aðar máttarstoðir þjóðfélagsins, háttsetta emb-
ættismenn, virðulega forstjóra, framkvæmdastjóra
og trúnaðarmenn hemámsflokkanna.
'jVTýjasfa rét'farrannsóknin a'f þessu tagi er tengd
hernámsliðinu á Keflavíkurflugvelli, eins: og
mörg önnur hliðstæð dæmi. Nokkrir íslendingar
hafa að undanfömu setið í gæzluvarðha,ldi, grun-
aðir um f járdrátt sem nemur óföldum miljónafúlg-
um, ávísanasvik, skjalafalsanir og hverskyns mis-
ferli annað. Svikin beindust ekki sízf gegn her-
námsliðnu, enda tóku yfirmenn á Keflavíkurflug-
velli þátt í þessum fjárdrætti ekki síður en lög-
brotum Olíufélagsins h.f. á sínum tíma. En ís-
lenzkar fjármálastofnanir koma einnig við þessa
sögu, allt frá Framkvæmdabankanum til útibús-
ins á Egilsstöðum. Er það raunar athyglisvert
hversu greiðan aðgang allskyns misferlismenn
virðast eiga að lánastofnunum þjóðarinnar, á sama
tíma og aðrir þegnar þjóðfélagsins fá að kenna á
hinum fræga lánsfjárskorfi.
jl/fönnum verður að vonum tíðrætí um þessá stór-
felldu grózku í svikamálum hjá þjóð sem til
skamms 'tíma hefur verið talin flestum öðrum
grandvarari. Ástæðunnar þarf ekki langt að leita.
Sú kenning hefur nú verið boðuð af ofurkappi um
sinn að gróðinn sé hreyfiafl þjóðfélagsins, fjár-
munirnir hið eina eftirsóknarverða markmið, þeir
menn fremstir sem safnað hafa mestum auði með
öllum tiltækum ráðum; jafnvel landsréttindin
hafa um skeið fyrst og fremst verið metin til
fjár. Margskyns hömlur sem áður höfðu verið
seftar af siðgæðissjónarmiðum hafa verið brotnar
niður; bankarnir taka nú vexti sem kostuðu 'tukt-
húsvist fyrir nokkrum árum; kaupsýslumönnum
er nú frjálst að aðhafast ýmislegt það sem fyrir
skemmstu var talið til freklegra lögbrota. Það
er sannarlega ekki að undra þótt hinir áköfustu
fjáraflamenn líti á lögin öll sem ósæmilegar höml-
ur á frelsi einstaklingsins fil að sækja að hinu
eina eftirsóknarverða markmiði, fjármununum.
Hér birtist enn pinn sinni samhengið milli þjóð-
félagsaflanna og siðgæðisins; þótt viðreisnin
ha'fi brugðizt sem hagfræðilegt kerfi stendur sið
gæði hennar sannarlega í fullum blóma. — m.
btrtiW’.WNN
Laugardagur 8 feb.
r JSE3T -J /SS35P 4
Um henzíneyðslu og fleira
□ Nú í kuldunum og þegar benzínið er ný-
hækkað í verði, kæmi okkur vel að vélin í
bílnum eyddi ekki meiru af bessum dýrmæta
vökva en nauðsynlegt er. Ef við viljum fá
sem bezta nýtingu förum við á stillistöð og fá-
um vélina yfirfarna með öllum stöðvarinnar
mælitækjum, en við getum líka reynt eitthvað
sjálfir.
Það er ráðlegt að láta
stilla vélina eftir hér um bil
7.500 til 10.000 kílómetra
keyrslu, með því móti fæst
bezta benzínnýtingin og jafn-
framt mesta orkan út úr vél-
inni. Nú verður talið upp
það sem átt er við þe?ar tal-
að er um að stilla vélina
eða gang hennar.
Fyrst og fremst er stilling
kveikju og hreinsun á plat-
inum og stilling á þeim eða
ef til vill skipti á olatínum
og kveikjuþétti.
Næst skulum við athuga
kertin. Ef til vill eru þau
orðin gömul og farin að
slitna, en þá er bezt að fá
sér strax ný kerti og setja
þau í bíiinn. Afgreiðslumað-
urinn í verzlunlnni getur flett
upp hjá sér og sagt bér hvað
bilið milli oddanna á kertinu
á að vera mikið o ; auðvitað
velur hann réttu kertin í
bílinn fyrir þig. Allir fram-
leiðendur bifreiðakerta senda
sölustöðunum skrá um fram-
leiðslu sína og hvaða númer
og gerð er hagkvæmust í
viðeigandi vélartegund og ár-
gerð.
Ef þú skiptir sjálfur um
kertin, þarftu að muna að
hreinsa vel öll óhreinindi,
sand og annað þessháttar,
sem kann að vera umhverf-
is kertið bg þar sp'm 'það sit-
ur í vélinni. Öll óhreinindi
sem komast inn í strokkana
geta. gtpr.skemmt og, iifið. bá
að innan, þess vegna er þetta
mjöe mikilvægt, og þegar þú
ert búinn að brninsa i krin".
þá er bezt að blása með loft-
slöngu, eða loftpumpunni sem
þú hefur i bílnum, vel og
vandlega yfir kertastæðin.
Þegar nýju kertin eru sett
í, þá verðum við að muna
eftir pakkningunni og varast
að hún týnist þó erfitt og
vont kunni að vera að kom-
ast að isetningu kertanna.
Það er sjálfsagt að athuga
kertin sem tekin voru úr, ef
til vill. eru þau e’-ki svo
slæm að ekki megi hreinsa
þau upp og nota þau i neyð-
artilfellum, og auðvitað eru
varakerti eitt af því sem þarf
að vera í bílnum að stað-
aldri.
Um finstillingu á blönd-
ungi er réttast að láta still-
ingastöð annast ef svoleiðis
fyrirtæki er í kallfæri, en
bó getum við gert sitthvað
fyrir hann. Umfram allt er
nauðsynlegt að benzínið sem
berst að blöndungnum sé
sem hreinast. Við bensíndæl-
una er i flestum tilfellum
sigti sem tekqr við ryðflög-
um og öðrum óhrelnlndum
sem koma frá tanknum. Þetta
sigti er eðlilegt að hreinsa
sem oftast, þar safnast oft
fyrir vatn úr bénzíninu, og
ef eitthvað frystir að ráði,
myndast benzínstifla og ef
til vill springur gruggkúlan
af frosti. Við sjálfan blönd-
unginn eða í benzíninntak-
inu er oftast einhverskonar
sigti og er í mörgum tilfell-
um hægt að hreinsa óhrein-
indi úr því án þess' að rífa
BlLAÞATTUR
sjálfan blöndunginn í sundur,
en ef gera skal fullkomna
hreingerningu á blöndung,
þarf að taka hann úr biln-
um og rífa hann sundur
stykki fyrir stykki.
Við fáum mest út úr hverj-
um benzínlítra með því að
aka á meðalhraða. Benzín-
inngjöf í rykkjum og hemlun
á milli, vegna umferðarinnar
eykur eyðsluna ótrúlega mik-
ið og orsakar óþarfa slit á
vél og bremsuborðum, vélin
hitnar óþarflega mikið, og við
spörum lítinn sem engan
tíjjia með þessu móti. Ef at-
hygli ökumannsins er vak-
andi á umferðinni getur hann
Þessi léttbyggði bíll er framleiddur af EMP verksmiðjun-
um í Kaliforníu. Fiestir hiutar undirvagnsins eru frá Volks-
wagenverksmiðjunum í Þýzkalandi, en bíllinn á mynd-
inni er þó með Corvair-vél. Bíllinn er seldur í Bandarikj-
unum á 1500 dollara og hámarkshraði með Corvair-vélinni
er nm 170 km á klukkustund.
hagað hraða bifreiðarinnar
eftir aðstæðum og þarf ekki
að nota hemla nema örsjald-
an. Það ætti enginn að venja
sig á það að gefa benzínið
í botn þegar tekið er af stað
eða umferðin gerir það mögu-
legt, slíkt ber vott.um tauga-
veiklun og óhemjuskap, og
það getur orðið verra að
venja sig af þesskonar öku-
máta þegar einu sinni er bú-
ið að temja sér hann.
Akstur í lágu gírunum
eykur benzínnotkun mikið.
Undanfama daga hefur snjó-
þæfingurinn á götunum hér
í bænum fært mönnum heim
sanninn um þetta. Auðvitað
er sjálf.sagt að nota lægri
hraðastillingu i ófærðinni,
annars er hætta á því að
við ofreynum vélina og kom-
umst ekki leiðar okkar, en
þegar færð og aðstæður leyfa
notum við haerri hraðastig
í akstrinum og. spörum ,þá
benzínið um leið, en munum
þó, að pína ekki vélina með
hægum akstri i háum gír.
Áuðvitað er nauðsynlegt að
bíllinn sé í góðu lagi. Benzín-
eyðslan eykst töluvert þegar
vél og bifreið er ekki vel við
haldið. Það er þess vegna
nauðsynlegt að fylgjast vel
með öllu því, sem orsakað
getur aukna eyðslu og slitur
dekkjunum, of mikill þrýst-
ingur fer einnig mjög illa
með dekkin og bíllinn verður
óeðlilega hastur og leiðinleg-
!
ur i akstri. Það er rangt að
mæla loftþrýstinginn í dekkj-
unum þegar komið er úr
langferð, þá eru þau heit af |.
núningnum og þrýstingurinn B
töluvert hár. Rétt er að mæla -
og rétta af þrýstinginn áður
en farið er af stað eða við
fyrstu benzínstöðina á leið-
inni. Ég hef einu sinni séð
í einn virðulegan borgara
standa yfir tryllitæki sinu á
köldum haustmorgni, bíllinn . -
stóð þvi sem næst á felgun- I
um. Hann hafði komið aust- J
an úr sveitum daginn aður I
og ekið nokkuð greitt, og ^
þegar hann kom heim á göt-
una sína fannst honum bíll-
inn hastur og datt í hug að
það var orðið langt síðan
hanp hafði beðið benzínaf-
greiðslumanninn að mæla í
dekkjunum. Þegar hann steig
út, sá hann þó að ekkert
dekk var sprungið, en tók þð
fram loftmæli og mældi í
dekkjunum, og sjá, það var ^
allt of mikið í þeim öllum. B
Hann hleypti úr lo.fti og '
mældi þar til allt stóð sam-
kvæmt forskriftinni og hugs-
aði afgreiðslumanninum þegj-
andi þörfina, en morguninn
eftir rann upp fyrir honum
ljós þegar hann sá afleiðing-
ar verka sinna og mundi þá
allt í einu eftir því sem
hann hafði lært í barnaskól- . -
anum um útþensluverkun af I
völdum hita og samdrátt af |
kulda.
!
I
!
!
Botnlag fiskiskipa og sjéslysin
(vegna greinar í Þjóðviljanum 4. febr. 1964)
1 blaði yðar 4. febrúar ritar
„skipstjóri” grein er hann
nefnir „Er vfsindaleg bygging
fiskiskipa aðeins blekking”?
1 grein sinni telur hann hina
svoefndu sérfræðinga okkar
„skipaverkfræðinga tvístíga á
óhappabraut og sé um að
kenna hugmyndaskorti, fram-
taksleysi við tæknilegar og
raunhæfar prófanir á nýjum
gerðum skipa (módelum) og
ekki síst að fara ekki rétt
með hinn bóklega lærdóm”
sem þeir hafa numið. Greinar-
höfundur telur aðallega botn-
lag skipanna þurfa breytinga
við, en hann getur þess hins-
vegar ekki nánar að hverju
leyti botnlag íslenzkra skipa
sé ónothæft.
Nú er það svo, að langflest
þau íslenzk fiskiskip, sem
byggð eru erlendis i dag, eru
teiknuð af erlendum skipa-
verkfræðingum, en ekki ís-
lenzkum, og fæ ég ekki séð
að neinn reginmunur sé á botn-
lagi þessara skipa, þegar fi
heildina er litið.
Það er mikill og virðist enn
almehnur misskilningur að
st.öðugleiki og sjóhæfni skipa
sé prófaður á módelum f til-
raunastöðvum.
Þetta er mjög sjaldan gert,
og er enn á algeru byrjunar-
stigi. Danir hafa nú á annað
ár unnið að prófun á einu
sinna skipa í módeltanka eins
og kunnugt er, og þeim próf-
unum er enn ekki loktð.
Það er enn sem komið er
örðugleikum háð að framkalla
í tilraunastöð þann óreglulega
sjó, sem fyrir kemur á hafi úti.
Hægt er að framkalla bylgju-
kerfi með sömu stefnu, en
brotsjóa og óreglulegan sjó er
hinsvegar illkleift enn að eft-
irlíkja.
Tilraunastöðvar þessar fyrir
skip eru fyrst og fremst byggð-
ar til að reyna ganghraða skipa
og orkuþörf. og finna bezta
ganglag.
Stöðugleiki skipa er hins-
vegar reiknaður út fyrir skip-
in. Þó hefir betta yfirleitt ekki
verið gert fyrir fiskiskip til
skamms tíma. Ný falenzk
fiskiskip smíðuð erlendis hata
verið reiknuð út samkvæmt
kröfu í umburðarbréfi skipa-
skoðunar ríkisins frá 5. des.
1962, og var Island fyrst Norð-
urlandanna að gera slíkar
kröfur.
Greinarhöfundur segir að
ýmsar merkar ábendingar og
tillögur um gerð og hæfni
skipa hafi borizt skipaskoðun-
arstjóra frá reyndum sjómönn-
um og öðrum, sem um þessi
mál hafa hugsað, en honum
hafi ekki þótt henta að láta
rannsaka þær nánar, jafnvel
hafi hann rangfært þær við
yfírboðara sína af ótta við að
viðurkenna að einhverju væri
ábótavant i þessum efnum,
sem öllum muni þó vera Ijóst.
Ég verð að játa að mér er
ekki ljóst hvað við er átt hér
Til mín koma margir skipstjór-
ar, sjómenn og útgerðarmenn,
og ég veit ekki annað en að
þeim hafi öllum verið tékið
vel. Ég tel náið samst'arf við
sjómenn og útgerðarmenn
nauðsyn fyrir skipaskoðunina.
og margar beirra ráðstafana
skipaskoðunarinnar, sem gréin-
arhöfundurinn telur fljótfæm-
ishjal til að draga athyglina
frá aðalorsökinni, eru einmitt
ráðstafanir og ráðleggingar sem
til eru orðnar vegna samræðna
og álits mikilsmet-'nna starf-
andi skipstjóra og sjómanna.
Eina tillagan um breytt lag
skipa, sem komið hefur til um-
sagnar m'nnar. var sú hug-
mynd að smíða fiskiskip sem
tvíburaskip, þannig að tveir
skipsskrokkar venjulegir væm
samfestir hlið við hlið til að
auka stöðugleikann. Væri skip-
ið þá með tvo kili og tvær
vélar.
Hér er raunverulega um það
að ræða að auka breidd skips-
ins, og það er að sjálfsögðu al-
kunna, að aukin breidd eykur
stöðugleika, en breidd má vel
auka á skipi án þess að byggja
tvo skipsboli saman.
Mjög mikil breidd hefur
hinsvegar önnur neikvæð áhrif,
sem of langt mál yrði að fara
út í hér.
Framhald á 8. síðu.
Eftir Hjálmar R. Bárðarson,
skipaskoðunarstjóra
á