Þjóðviljinn - 19.02.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.02.1964, Blaðsíða 1
I Bandaríkjastjórn sviptir bandamenn hernaðaraðstoð Sjá síðu Q íslendingar fái full umráð yfir landgr. []] Fiskiþing 1964 sem staðið hefur yfir hér í Reykjavík að undanförnu hefur gert tvær ályktanir varðandi land- helgismál íslands. í annarri ályktuninni er skorað á Al- þingi og ríkisstjórn að vinna að því að íslendingar öðlist full umráð yfir öllum fiskveiðum á landgrunninu en í hinni ályktuninni er skorað á sömu aðila að láta fara fram athugun á því að fækka grunnlínupunktunum þannig að hún verði sem beinust miðuð við yztu annes. X. — „27. Fiskiþing haldið í Reykjavík í febrúar 1964 lýsir ánægju yfir því að í næsta mán- uði öðlast íslendingar fulla lög- sögu yfir 12 míl” fiskveiði- svæði umhverfis landið. Jafn- framt vill Fiskiþing lýsa yfir því, að það telur tólf ,úna fisk- veiðilögsögu aðeins áfanga að því takmarki að íslendingar öðl- ist full umráð yfir öllum fisk- veiðum á öllu landgrunninu. Því vill Fiskiþing skora á Alþingi og ríkisstjórn að láta ekkert tækifæri ónotað til að hrinda því máli áleiðis." II. — „Fiskiþing beinir þeirri eindregnu áskorun til ' Alþingis og ríkisstjórnar, að nú þegar fari fram athugun á því að fækkað verði grunnlínupunkt- um, frá því sem nú er, með það fyrir augum, að grunnlínan verði sem beinust miðað við ystu annes og sker.“ FJÖLSKYLDUBÓTA- HÆKKL’NIN FELLD ★ Frumvarpið um hækkun á bótum almannatrygginga var af- greitt sem lög frá Alþingi í gær að lokinni 3. umræðu í efri deild. ★ Frumvarpið gerði ráð fyrir hækkun á öllum bótum almanna- trygginga nema fjölskyldubótum. Alfreð Gíslason bar fram breyt- ingartillögu um að frá 1. janúar skyldu bætur greiddar með 32,25% álagi í stað þeirra 15% hækkunar scm ákveðin var í lögum 1963 að fjölskyldubætur skyldu frá sama tíma hækka um 15%. Þessi breytingartillaga Alfreðs var felld af stjórnarliðinu og er þetta I fjórða skipti á nokkrum árum sem fjölskyldubætur verða afskiptar við hækkun á öðrum bótum álmannatrygginga. ★ Þá var einnig felld svohljóðandi breytingartillaga frá Alfreð við Bráðabirgða ákvæði frumvarpsins. Tryggingarstofnuninni er heimilt að greiða þá 15% bótahækkun, sem felst í lögum þessum, í einu lagi fyrir tímabilið 1. janúar 1964 til 31. marz 1964 með bóta- greiðslum fyrir aprflmánuð 1964. ★ Bótaþegar verða því að gera sér að góðu að bíða fram á mitt sumar eftir því að fá þessa hækkun greidda. Kristján Guðlaugsson, fonnaður Loftleiða, og Arne Wickborg, stðstoða’fcrsíjórí SAP, ræðást við á Reykjavíkurflugvelli við komu BAS sembmfiul; >.pa> liingað í gær. — (Ljósm. Þjóðviljinn A. K.). Nýtt landnám alþýðusamtakanna ....- —- Þetta er fyrsta myndin sem ; birt er af sumarhúsum al- þýðusamtakanna í orlofs- heimilislandinu undir Reykja- felli í Ölfusi. Ari Kárason Ijósmyndari Þjóðviljans tók myndina í sl. viku. Greinar um byggingu orlofsheimilis- ins og fleiri myndir þaðan eru á 7. siðu í dag og f blaðinu á morgun. Bílslys við Grindavík Alvarlegt bílslys varð á Grinda- víkurveginum síðastliðið laugar- dagskvöld; þegar Vólkswagenbif- reið ók á mikilli ferð á vegar- beygjunni út að Grindavíkurstöð hemámsliðsins. Tveir karlmenn og tvær stúlkur frá Reykjavík voru í bifreiðinni og fótbrotnáði annar karlmann- anna. sem var Bandaríkjamaður en Islendinginn sákaði ekki. Stúlkumar slösuðust hinsvegar illa. . . Hinum slösuðu var ekið á Sjúkra hús Keflavíkur og þar gert að sárum þeirra. í gær kl. 17.30 varð 10 ára drengur, .Tón Sjgurðsson, Kara- mel 33, fyrir ' bífreið á Hofs- vallagötu á móts við Melabúð- ina. Meiddist drensurinn tals- vert í andliti og á höfði □ Tveir bankastjórar frá ÚtVegsbánkanum í Reykjavík flug'u í ofboði til Akureyrar fyrir helgi og dvöldu þar síðastliðinn laugardag og sunnudag við rannsókn á viðskiptum Brynjólfs Brynjólfssonar, veitingamanns á Akureyri við Útvegsbankann þar. Eru það bankastjórarnir Jó- hannes Elíasson og Jónas Rafnar. Fyrir nokkrum árum nam hafnfirzkur sjómaður land í höf- uðstað Norðurlands og gerðist á skömmum tíma einn umsvifa- mesti véitingamaður á Norður- lándi og hefur þannig rekið tvö stærstu hótelin á Akureyri og anda- og hæiisnabú' í nágrenni Akureyrar. Nýlega var Brynjólfur Brynj- ólfsson sviptur leigu ,á Hótel KEA vegna vanskila og hafði Brynjólfur þriggja mánaða kred- it hjá verzlunum KEA á Akur- eyri og skuldar KEA um tvær milljónir króna. Útvegsbankinn á Akureyri hefur lánað hinum umsvifamikla veitingamanni um sex milljónir króna síðustu árin og munu bankastjórarnir hafa verið að kanna á þessum síðustu og verstu tímum, hvort allt væri með felldu í þessum viðskipt- um. Stendur þannig yfir rannsókn á fjárreiðum og rekstri veit- ingamannsins. Nokkur bókhalds- Samninganefnd frá SAS kom til Reykjavíkur í gær □ Fimm manna sendinefnd frá skandinav- íska flugfélaginu SAS kom hingað til Reykja- víkur síðdegis í gær með flugvél Flugfélags ís- lands. Koma SAS-mennirnir hingað til að halda áfram viðræðum þeim er frestað var á Stokk- hólmsfundinum í síðustu viku. Formaður sendinefndarinnar Herra Wickborg varðist . allra er Ame Wickborg, aðstoðarfor- frétta þarna á flugvellinum og stjóri SAS, og með honum bar einnig forstöðumenn Loftleiða, mikið á sérfræðingum SAS í sem þarna voru komnir til þess fargj aldamálum. að taka á móti viðræðunefnd- inni. Talið er víst að fargjöld- in yfir Atlanzhafið verði til umræðu fyrir utan ýms vanda- mál í sambandi við samkeppni Loftleiða og SAS að undanförnu. Þannig munu þetta verða framhaldsumræður frá fundi flugmálastjóra í Stokkhólmi á dögunum, en þann fund sat Agnar Kofoed Hansen. Flugmálastjóri var með þess- ari sömu flugvél á heimleið. óreiða mun vera fyrir hendi með rekstur beggja hótelanna, Hótel KEA og Hótel i ’.ureyri, en þess ber að gæta, að þetta er einn daufasti tími ársins til hótelreksturs. Þegar við höfð- um samband við bæjarfógeta- embættið í gærdag hafði engin kæra borizt embættinu um mis- ferli í rekstri. Bróðir Jósafats viðriðinn málið? Talið er að einn angi af fjársvikamálinu á Vellinum snerti skrifstofu nokkra á vegum bandaríska flotans og gengur hún undir nafn- inu .,Navy Exchange“. For- ráðamaður á þessari skrif- stofu heitir Jón Arngríms- son og er hann bróðir Jósafats Arngrímssonar, höfuðpaurs i fjársvikamál- inu. Óreiða mun vera á resktri þessarar skrifstofu og hafa meðal annars tveir menn frá Skattstofunni hér í Reykjavík gert umfangs- miklar rannsóknir á launa- greiðslum skrifstofunnar að því er Halldór Sigfússon, skattstjóri hefur staðfest. Yfirheyrslur standa nú yfir dag hvern í Hegning- arhúsinu við Skólavörðu- stíg. En sama leyndin er viðhöfð yfir málinu. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.