Þjóðviljinn - 07.03.1964, Side 3

Þjóðviljinn - 07.03.1964, Side 3
Laugardagur 7. marz 1964 Leiðrétting Meinleg línubregl uröu í grein Ófeigs >,Hver á sér fegra föðurland“. . . á 7. síðu blaðsins í gær. Réttar eru umræddar málsgreinar svona: „Slíkt gæti verið í samræmi við það, að fram hafa komið á síðustu tímum þeir íslenzkir rithöfundar, sem talið hafa framherjana í sjálfstæðisbaráttu íslenzku þjóðarinnar í byrjun nítjándu aldarinnar óþurftarmenn eða jafnvel misendismenn. Eða er hugsanlegt að þetta sé vott- ur um óhreina og órólega pólitíska samvizku?" Auglýsið í Þjóðviijanum a WASHINGTON 6/3 — Dean Rusk utanríkisráðherra USA skýrði frá því á blaðamannafundi í dag, að Bandaríkin líti svo á, að hugmynd de Gaulle um hlutleysi Víetnam og Suðaustur-Asíu í heild, sé eingöngu til þess að grafa undan starfi Bandaríkjanna í þágu Suður-Víetnam. Bertrand Russell: Stefna USA í Víetnam er óhæfa WASHINGTON 6/3 — Washington Post birti í dag bréf frá brezka heimspekingnum Bertrand Russell, þar sem hann segir, að stefna Bandaríkjamanna í Suðaustur-Asíu sé alröng og geti haft ægilegar afleiðingar. Segir Russell, að eina friðsamlega lausnin sé, að þessi lönd séu hlut- laus í hernaði. Sagði ráðherrann, að Banda- ríkin muni „halda áfram að styðja víetnömsku þjóðina með ráðum og dáð og láta henni í té allt sem hún þarf til þess að halda sjálfstæði sínu og öryggi“. Þagað um Norður-Víetnam Ekki fékkst ráðherrann til þess að tala um orðróminn, sem uppi er, að Bandaríkin hyggist fara með ófriði á hendur Norð- ur-Víetnam. Sagði hann, að Norður-Víet- nam hefði flutt inn mikið af vopnum til skæruliða í Suður- Víetnam undanfarið og kæmu þau frá Peking. Fyrsta skilyrðið fyrir því, að hægt væri að tala um hlutleysi í Suðaustur-Asiu væri, að Kína og Norður-Víetnam létu Laos og Suður-Víetnam í friði. Nýja Rapacki-tillagan Rusk var að lokum spurður um álit sitt á nýju tillögunni, sem Pólverjar báru fram varð- andi belti án kjarnavopna í Mið- Evrópu. Sagði hann, að áætlun- en bandaríska stjórnin hefði rætt hana við stjórnir annarra landa. Dean Rusk. Páll Grikkja- konungur er látinn AÞENU 6/3 Páll konungur Grikklands lézt kl. 17,12 í dag samkvæmt íslenzk- um tíma. Nokkrum tím- um seinna sór sonur hans Konstatín konungseiðinn og tók sér nafnið Kon- stantín 13. Páll konungur var 62 ára gamall og hefur hann átt við alvarleg veikindi að stríða undanfamar vikur. Hann hefur legið á sjúkrahúsi síðan 21. febrú- ar er hann var skorinn upp við afleiðingum maga- sárs. Ráðstefna hlutlausra ríkja BELGRAD 6/3 1 dag ræddu þeir Ben Bella og Tító möguleikana á því að halda nýja ráðstefnu með hlutlausum ríkjum. Ben Bella er sem kunnugt er í heim- sókn í Júgóslavíu um þessar mundir. Russell er ekki fyrstur til þess að benda á, að Suðaustur-Asía eigi að gerast hlutlaust svæði De Gaulle Frakklandsforseti benti á það fyrir skömmu. að þetta væri eina lausnin til þess að koma í veg fyrir að allt færi í bál og brand í álfunni. Stefna Bandaríkjanna alröng Tilefni bréfsins var sá orð- rómur, sem nú gerist enn hávær- ari, þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir Bandaríkjastj. að kveða þær niður, um að Bandaríkin undir- búi vopnaða árás á Norður-Viet- nam. Segir Russell, að öll stefna Bandaríkjanna í Suðaustur-Asíu sé röng og geti ekki leitt til neins nema hörmunga, bæði fyr- ir Asíu og allan heiminn. Vill hann, að þetta svæði verði gert hlutlaust, þ.e.a.s. tilheyri hvor- ugri hernaðarblökkinni. Þar að auki eigi bandarísk í- hlutun í Víetnam engan rétt á sér og auki aðeins þá óvild, sem Bandaríkjamenn séu þegar búnir að skapa sér í Asíu. Bertrand Russell segist álíta. að meirihluti skæruliðanna í Ví- etkong, séu ekki kommúnistar, og því sé fáránlegt að hamra eilíflega á hinni göfugu baráttu gegn kommúnismanum. Að lokum segir í bréfinu, að Bandaríkjamenn geti ekki gengið fram hjá því, að forsætisráð- herra Norður-Víetnam, Ho Chi Minh, hafi lýst því yfir, að hann sé því mjög hlynntur, að báðir hlutar Víetnam gerist hlutlausir og bindist hvorki Sovétríkjunum, Kína né Bandaríkjunum. De Gaulle. in væri nokkrum erfiðleikum bundin, og gæti hann ekkert sagt um álit sitt á henni fyrr Bretar senda lið- þjálfa til Kenya LONDON og NAIROBI 6/3 — Bretar ætla að aðstoða Kenya við að koma sér upp öflugum her o.g senda því hóp þjálfara þangað á næstunni. Stjómin í Nairobi hefur einnig farið þess á leit við brezku stjórnina, að hún hjálpi þeim til þess að eignast smáflota til þess að ann- ast strandvarnir. Auschwits-réttarhöldin: Fangarnir óttuðust sprauturnar mest Fyrrverandi fangi í fangabúðum nazista í Auschwitz, Langbein að nafni, var í dag aðalvitni réttarhaldanna í Frankfurt, sem haldin eru yfir 23 stríðsglæpamönnum. Sagði hann m.a., að flestir fanganna hefðu heldur kosið að halda áfram að þræla þótt þeir væru dauðveikir, en segja frá veikindum sínum, af ótta við að fá banvæna sprautu. Er það sprengjan, sem þessu veldur? Kynsjúkdómafarald- ur herjar á Evrópu GENF og LONDON 6/3 — Alþjóðlega heilbrigðisstofnun- in birti í dag tilkynningu, þar sem varað er við örri út- breiðslu kyns'júkdóma í Evrópu. Einnig lagði brezk nefnd sem skipuð var til þess að rannsaka kynferðislíf unglinga í Bretlandi, fram skýrslu sína í dag. Segir þar, að brýn nauðsyn sé á því að efla sóknina gegn kynsjúkdómafar- arldri, sem geysi meðal brezkra unglinga. Langbein var sendur til Ausch- witz árið 1942. Skýrði hann frá því, að fangamir hafi flestir óttazt sjúkradeildina mest aí öllu, og fremur kosið að halda áfram að vinna, þótt þeir væru hálfdauðir, en þurfa að leggjast inn á sjúkradeildina. Óttinn við Joseph Klohr Joseph Klohr. sem er einn hinna ákærðu í Frankfurt, hef- ur viðurkennt fyrir réttinuum, að hann hafi gefið 300 föngum banvænar sprautur. Þennan mann, ásamt hinum illræmda fangabúðalækni Endress, óttuð- ust fangamir eins og pestina. Mörg hundruð á elnni nóttu Langbein skýrði frá því, að eitt kvöldið hafi mörg hundruð sjúklingum úr sjúkradeildinni verið raðað upp úti í garðinum. Endress læknir stóð álengdar og skráði fangana, en Klohr sat og gætti þess að enginn slyppi. Morguninn eftir rakst Langbein á einn þeirra dauðan. Pólskur fangi bættti því síðan við frá- sögnina, að hinir hafi verið drepnir með gasi um nóttina. Alþjóðlega heilbrigðisnefndin segir, að kynsjúkdómar séu nú komnir á svipað stig og þegar mest bar á þeim, en það var rétt eftir stríðið. Þá var eins- konar kynsjúkdómafaraldur í Evrópu. Mest aukning í Evrópu Nýlega fór fram nákvæm rannsókn á ástandinu á vegum heilbrigðisstofnunarinnar. Hún leiddi í ljós, að aukningin hef- ur verið mest í Evrópu og með- al unglinga, sjómanna og út- lendinga, sem koma í leit að vinnu. Sagði í skýrslu stofnunarinn- ar, að lyfin væru hin sömu nú og eftir stríð, er faraldurinn var stöðvaður, svo að það ætti ekki að vera erfiðara þess vegna að koma í veg fyrir sjúkdóminn. Hins vegar væri nýtt vanda- mál á döfinni, þar sem þau sjúkrahús og læknastofur, sem þá hefðu rekið herferð gegn sjúkdómunum, hefðu verið lagð- ar niður, þegar álitið var að búið væri að ráða niðurlögum faraldursins. Er það kjarnorkusprengjan? Sérstök nefnd var stofnuð fyrir nokkru f Bretlandi til þess að grennslast fyrir um kynferð- islff unglinga þar í landi. Nefnd- in hefur nú skilað áliti sínu, og kom í ljós, að ástandið virðist engu betra þar. I skýrslunni segir m.a. frá ungling.’m, sem eiga kynmök sfn á milli til þess að vera ekki kallaðir kjúklingar. T.d. komust nokkrir 14 ára unglingar undir læknis hendur eftir að þeir höfðu tekið þátt i leik, þar sem krafizt er, að allir þátttakendur „sofi saman“. Kennari f brezkum gagn- fræðiskóla spurði nemanda sinn hvað hann mundi gera, ef kjam- orkustyrjöld brytist út. Nemand- inn svaraði stutt og laggott: „Sofa hjá Brendu". Nefndin sagði, að erfitt væri að segja hvort kjamorkusprengj- an ylli þessu ástandi, en hins vegar hefði hún komizt að þeirri niðurstöðu, að það sé mjög al- gengt, að ungt fólk hafi átt kyn- mök áður en það giftist og að vissu marki sé „ósiðsemi" kom- in f tízku. Tvö af þremur böm- um, sem konur innan við tvítugt fæða í heiminn, séu óskilget- in. Á ámnum 1957—1961 hafi fjöldi bamsfæðinga hjú stúlk- um á aldrinum 11—16 ára þre- faldazt. Segir nefndin, að eina ráðið við þessu sé að ala böm upp við kristilega siðsemi. Kambodsja fær her- gögn frá Sovét PNOM PENH 6/3 — Skýrt var frá því í dag i höfuðborg Kam- bodsju, Pnom Penh, að Sovét- rikin hyggist senda Kambodsju allverulegan hernaðarstyrk bráð- lega. Það var æðsti maður Kam- bodsju, Norodom Sihanouk prins, sem skýrði frá þessu. Faðir í 12. sinn 83ja ára STOKKHÓLMI 6/3 Emil Blixt er orðinn 83 ára og kominn á eft- irlaun. Hann býr í smábænum Vingáker f Svíþjóð. 1 dag varð hann þeirrar lukku aðnjótandi að verða faðir í 12. sinn. Blixt gifti sig þó ekki fyrr en hann var orðinn sextugur, en kona hans var 17 ámm yngri. Þau eiga öll þessi 12 börn sam- an. Kleópatra er skilin PUERTO VALLARTA, Mexíkó 6/3 — í dag veitti mexikanskur dómstóll þeim Elisabetu Tayior og Eddie Fisher löglegan skiln- að. Er nú ekkert því til fyrir- stöðu, að ungfrú Taylor gangi að eiga brezka leikarann Richard Burton. Vilja ekki meira hveiti MOSKVU 6/3 Fyrsti varafor- sætisráðherra Sovétríkjanna, Al- exis Kossigin, sat í dag á rök- stólum með bandarískri við- skiptanefnd í Moskvu. Skýrði hann nefndinni frá þvf, að Sov- étríkin séu á engan hátt skuld- bundin til að kaupa meira hveiti af Bandaríkjunum og muni sennilega ekki gera það. Skozkt heimsmet í tvisti DUNDEE, Skotlandi 6/3 James Mcensi er 21 árs gamall Skoti. Hann setti f dag heimsmet f tvisti, dansaði látlaust í 99 tíma og 27 mínútur, en það er þremur mtnútum lengur en gamla héimsmetið. Mcensi hafði’ ætlað að dansa í 100 tíma, en læknar hans ráðlögðu honum að leggjast í rúmið, hvað hann gerði. HÓÐVIHINN -----— Dean Rusk: McNamara til Saigon WASHINTON 6/3 Vamarmála- ráðherra Bandaríkjanna. Robert McNámarra, lagði af stað til Saigon frá Washington 1 dag. Yfirlýstur tilgangur ferðarinnar er að ráðherrann ætli að kynna sér stjómmála- og hemaðará- standið í Suður-Víetnam. Maxwel Taylor, yfirmaður várnamáladeildarinnar fer með vamarmálaráðherranum í ferð- ina. Hugmynd De Gaulle grefur undan starfi USA í Víetnam

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.