Þjóðviljinn - 07.03.1964, Page 6

Þjóðviljinn - 07.03.1964, Page 6
g SlÐA ÞJðÐVILJINN Laugardagur 7. marz 1964 Það gerðist nær samtímis, að tvær kúb- anskar verzlunarsendinefndir komu til Spán- ar og ameríska birgðaskipið PROTEUS varpaði akkerum undan Rota á suðurströnd Spánar, en þar er nú verið að byggja gríð- armikla flotastöð fyrir kjarnorkukafbáta. Þessi tilviljun undirstrikar á- kvörðun Francos. einræðisherra Spánar, að gefa skít í hin bandarísku fyrirmæli um verzl- unarbann á Kúbu, um leið og Barátta gegn fólksfjölgun Ríkisstjórnin í Túnis hefur hefur hafið mikla herferð gegn fólksfjölguninni og notar óspart hátalarabila til að koma á- róðri sínum gegn bameignum á framfæri. Stærðfræðingar hafa reiknað út, að með ó- breyttu ástandi mundi fbúa- tala Túnis tvöfaldast á 30 ár- um. Heilbrigðisyfirvöldin þar í landi hafa nýlega tilkynnt, að þau muni útbýta getnaðar- vamalyfjum ókeypis meðal al- mennings, en þó sérstaklega til þeirra, sem ekki hafa efni á að kaupa slíka hluti, og mun það vera meiri hluti íbúa lands- ins. Þegar hefur verið varið 17 milljónum íslenzkra króna í undirbúning að þvi, sem nefnt er „áaetlun um skikkanlega fjölskyldustærð". hann stóreykur hemaðarsam- vinnu sína við Bandaríkin. Á blaðamannafundi fyrir nokkrum dögum lýsti ráðu- neytisstjómin í spánska verzl- unarmálaráðuneytinu yfir því, að Spánn myndi verzla við þær þjóðir, sem hagkvæmt væri að skipta við. Hann sagði að nú væru Kúbanir búnir að selja alla sykurframleiðslu sína fram til 1967, og Kúba hefði ekki upp á annað að bjóða en tóbak og ávexti. Kafbátastöðin í Rota Hemaðarmikilvægi Spánar tók heldur en ekki stórt stökk upp á við, þegar risaskipið Proteus, sem er móðurskip Polariskafbátanna, kom tíl herstöðvarinnar í Rota, skammt írá Cadiz. Þetta 20 þúsund tonna herskip á að ganga 8 kjamorkukafbátum í móður stað og verða þeir á ferðinni í Atlanzhafi, og .Miðjarðarhafi. Herstöðin í Rota er bæði flug- og flotastöð og þar er lengsta flugbraut Evrópu, tæp- ir fjórir kílórfietrar á lengd. Helztu mannvirki þar eru: 1. Skemmtistaðir og hvíldar- heimili fyrir sjóliða í sjötta Franco bandaríska flotanum, Miðjarð- arhafsflotanum. 2. Gríðarmiklir benzin- og olíugeymar í tengslum við margar aðrar amerískar flug- stöðvar á Spáni. 3. Bækistöðvar fyrir fjarritun og yfirstjóm bandaríska hers- ins á þessum slóðum, en þessi miðstöð yar áður staðsett við Port Lyautey í Marokko. 4. Vopnageymslur fyrir allar þær tegundir morðtóla. sem flotinn notar. Þessi mikla herstöð hefur nú enn verið styrkt með komu Ung stúlka var vinningurinn í happdrætti kvöldsins Lögreglan í Benevento hand- tók fyrir nokkrum dögum tvo menn á fertugsaldri. sem sak- aðir eru um að hafa staðið fyrir ólöglegu happdrætti, sem í var dregið svo til daglega, en vinningurinn var hvorki meira né minni en ijóshærð og lag- leg unglingsstelpa. Mennimir eru sakaðir um, að hafa á samvizkulausan hátt notað sér fáfræði og gáfnaskort seytján ára stúlku, sem nefnd er Lucina F„ til að raka að sér fé. Dregið var í happdrætt- inu flest kvöld vikunnar og vinningnum úthlutað fyrir nóttina, en venjulega seldust um 90 happdrættismiðar á dag fyrir 100 lírur hver miði. Stjómendur happdrættisins segjast hafa fengið hugmynd- ina, eftir að þeir sáu kvik- myndina „Boccaccio 70”, en aðalhlutverkið í þeirri mynd er leikið af Soffíu Loren. Pardusdýr í fjöllum Kirgisíu í Kirgisíu, sem er eitt lýðvcldanna innan Sovét- ríkjanna, eru gríðarlega há fjöll með snæviþöktum tindum. Þarna er mikið af pardusdýrum og Iifa þau í 3000—5000 metra hæð yfir sjávarborði. Viði- mcnn hafa náð nokkrum slíkum dýrum og spóka þau sig nú í dýragörðum. Hér á myndinni eru f!'>tl«tin<*amir, þar sem dýrin hafa hreiðrað um sig og nærmynd af einu þeirra. ÞRÆLUtm Ofneyzla lýsis er hættuleg börnum En teskeið af lýsi eða sanasol þurfa öll lítil börn að fá Fjórir sænskir vísindamenn hafa uppgötvað, að koma- börn, sem gefið er of mikið lýsi, geta veikzt alvarlega 1 heila og höfuðkúpan getur skaðazt stórlega. Yngri börn en sex mánaða gömul eru í sérstakri hættu af ofneyzlu lýsis, og hættan er ekki hjá liðin, fyrr en bamið er orð- ið þriggja ára gamalt. birgðaskipsins Proteus, sem flytur með sér mikið magn af Polariseldflaugum. •>......................... Aflaskýrsls leiðrétt Sl. þriðjudag birtist hér í blaðinu skýrsla um afla Ölafs- víkurbáta í febrúarmánuði. Því miður tókst svo illa til að hjá sumum bátunum vantaði í róðra ■ og var afli þeirra því sagður | minni en hann raunverulega var. i Birtum við því skýrsluna aftur leiðrétta. I Heildarafli 11 Ólafsvíkurbáta í febrúar sl. var 1112 tonn 205 kg og skiptist hann þannig: i Stapafell 227.710 kg. í 22 róðrum. Jón Jónsson 193.290 kg. í 22 róðrum. Steinunn 167.460 kg. í 23 róðrum. Valafell 154.080 i kg. j 22 róðrum. Jökull 139.050 í kg. í 15 róðrum. Hrönn 93.005 i kg. í 20 róðrum. Bárður Snæ- í fellsás 81.915 kg. í 17 róðrum. ! Baldur 19.610 kg. í 12 róðrum. Freyr 18.280 kg. í 4 róðrum. Gullskór 9.695 kg. í 10 róðrum. Víkingur 8.110 kg. í 3 róðrum. Heildaraflinn í febrúar 1963 var hins vegar 636 tonn 345 kg. í 111 róðrum. Nýti Víkingsblað Sjómannablaðið Víkingur Janúar — febrúarhefti er kom- ið út. efnismikið og mynd- skreytt. öm Steinsson ritar greinina: Hvert stefnir. Framhald er hin fræðandi og sögulega kafla: Upphafsár vélvæðingar í Vestmannaeyjum. Greinin: Frækileg björgun: Um björg- un þýzka togarans TRAVER fyr- ir réttu ári. Greinar um Skipstjóra- og stýrimannafé- lagið ÖLDUNA 70 ára, Félag íslenzkra loftskeytamanna 40 ára og, Skipstjóra- og stýri- mannafélagið VERÐANDI í Vestmannaeyjum 25 ára. Frá- sögn er af heimsókn þingfull- trúa 21. þings í Kassagerð Reykjavíkur. Viðtöl við Guð- finn Þorbjömsson vélfræðing vegna breytinga á b/v ISBORG í flutningaskip og hinn kunna skipasmið Peter Vigelúnd um innlenda skipasmíði o.fl. Minn- ing Ásgeirs Sigurðssonar heiðr- uð. Sagan: Bræla eftir Jón frá Bergi. Frívaktin og m. fl. Forsíðumyndin er tekin úr einu atriði hinnar frækilegu björgunar þýzka togarans TRAVER. — (Ljósm. Sigurgeir Jónasson Vestmannaeyjum). Þessi uppgötvun var gerð ár- ið 1960, þegar smábam var lagt inn á sjúkrahús, og í Ijós kom, að höfuðkúpan hafði breytzt verulega. Barnið hafði líka of mikinn heilavökva, sem þrýsti á heilann, og þ.jáðist það af höfuðverk og miklum svima. I nokkurn tíma var hætt að gefa baminu A og D vítamín, og fáeinum vikum síðar voru sjúkdómseinkennin horfin, barnið albata og gat farið heim ' til sín. Víðtæk rannsókn Læknarnir ákváðu að rann- saka málið, og árið eftir komu mörg sams konar tilfelli í ljós. Börnin höfðu öll fengið of mik- ið af fiskilifurolíu. I desember síðast liðnum gerðu læknarnir heilbrigðis- yfirvöldunum aðvart, svo og öllum sænskum lyfjaframleið- endum, og i næsta hefti af al- þjóðlega bamalæknablaðinu, Acta Pediatrica, mun birtast skýrsla um þessar rannsóknir. Seinustu vikumar eru sænsk- ar lyfjabúðir famar að selja fiskilifurolíur útþynntari en áður var. í viðtali við norska blaðið DAGBLADET segir dó- sent Seip við bamadeild Rík- issjúkrahússins norska, að hættan af fiskilifurolíu sé minni í Noregi en Svíþjóð, þar sem Norðmenn noti aðallega lýsi og Sanasol, en í Svíþjóð sé algengt að nota mjög sterka fiskilifurolíu úr túnfiski og bæta við öðrum vítamínum. I Noregi, segir dósentinn, er ekki vitað um nema eitt bam, sem fengið hefur of mikiö af A og D vítamínum, og þá stóð svo á, að fyrir misgáning fékk bam- ið bæði lýsi og vitamíntöflur. Sömu áhrif á kjúklinga. • Það er alkunna, segir Seip dósent, að ofneyzla þessara fjörefna getur verið mjög hættuleg, og auðvitað vérða mæður að gæta þess að vera ekki svo góðar við bömin sín, að þær gefi þeim háskalega mikið af lýsi eða bætiefnum. Hins vegar þarf að vera um verulega ofneyzlu að ræða til að hætta sé á ferðum. I þessu sambandi hafa yfir- menn norsku Neyzlulíffræði- stofnunarinnar lýst því yfir, að lýsiseitrun hjá kálfum eða kjúklingum sé alls ekki óvana- leg. Fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar á dýrum, og nið- urstaðan er alltaf sú sama: ofneyzla A og D vítamína léið- ir til misvaxtar og veikinda í heila. Hins vegar er talið, að neyzla E-bætiefna hafi gagn- verkandi áhrif. Þá þarf einnig mjög mikið magn af E víta- mínum, til þess að þau hafi einhver áhrif. Og hvað sem allri ofneyzlu líður er áreiðan- legt, að smábörn eiga að fá eina teskeið á dag af lýsi, segja þessir norsku sérfræðingar í neyzlulíffræði. LÍFEYRISSJÓÐVR VERK- STJÓRA STOFNAÐUR Frá því Verkstjórasamband Islands var stofnað hinn 10. apríl 1938, hefur það verið við- urkenndur samningsaðili Verk- stjóra við flest atvinnurek- endasamtök landsins, og hefur fyrir störf þess tekizt að ná fram ýmsum áhugamálum stéttarinnar svo sem i sam- bandi við kjaramál og fræðslu- mál. Er þess skemmst að minnast að veturinn 1962—1963 tók til starfa Verkstjóraskóli samkv. lögum frá Alþingi, en skóla fyrir verkstjóra höfðu samtök- in rekið í mörg ár áður en lög þau öðluðust gildi. Fleiri áhugamál stéttarinnar hafa náð fram að ganga. Og nú um síðustu áramót tók til starfa „lífeyrissjóður verkstjóra”, en baráttan fyrir lífeyrissjóði fyrir verkstjóra hefur staðið í fjölmörg ár og telja samtökin að með samn- ingum um sjóðinn, hafi verið stigið stórt spor fram á við í kjarabaráttunni. Verkstjónum sem félags- bundnir eru í félögum innan Verkstjórasambands Islands, er bent á að láta ekki dragast að hafa samband við félagsstjórn- irnar á sínu svæði og ganga frá inngöngu sinni í sjóðinn þann- ig að beir verði með frá upp- hafi. Stjórn sjóðsins er þannig skipuð: Jón G. Halldórsson viðskiptafræðingur. sem jafn- framt er formaður sjóðsstjórn- arinnar, Hjálmar Finnsson framkv.stj., Adolf Petersen verkstj. Vilhjálmajr Ingvarsson framkv.stj. og Gunnar Sig”v- jónsson verkstjóri.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.