Þjóðviljinn - 10.04.1964, Síða 5

Þjóðviljinn - 10.04.1964, Síða 5
Föstudagur 10. apríl 1961 - HÖÐVIUINN StÐA 'g ,,Spartakiadan“ í Tékkóslóvakíu er einstæður íþróttaviðburður. Myndin er tekin á hinum risastóra Strahovleikvangi í Prag þar seni þessi íþróttahátíð fer fram. Þar rúmast 200.000 áhorfendur, og þar geta 30.000 manns sýnt íþróttir í einu. Á síðustu „Spartaködu” voru rúmlega 721.000 þátttakendur, og áhorfendur yfir tvær miij ónir. Frímann Helgason skrifar um íþróttir í Tékkóslóvakíu Hvernig er hægt að gera íþróttir að eign allra? rÁ sunnudaginn var sagði ég nokkuð frá því hvernig íþróttahreyfingin í Tékkóslóvakíu er byggð upp og þeirri breytingu sem á henni var gerð. er horfið var að því fyrirkomulagi að fela sjálfu fólkinu og áhuga þess að annast fram- kvæmd íþróttamálanna í landinu. — Þá var og lýst hvernig þessi áhugamannahreyfing aflar sér fjár til framkvæmda og stuðnings hinum al- mennu áhugamannafélögum sem eru tæp 8 þús- und. Virðist þar svo vel að verki staðið, að sam- bandið hefur mikla fjármuni handa á milli fil að miðia hinum ýmsu íþróttagreinum, eftir því sem þörf krefur og áhugi stefnir til. Eftir að hafa kynnzt þessum þáttum sarfseminnar. lék mér forvitni á að kynnast því hvernig eða hvaða leiðir Tékk- ar fseru í því að vekia hinn almenna áhuga í landinu. Ég sourði því: Hvert er í raun oe veru aðalverkefni ykkar til eflingar íþróttum í landinu? Aðalverkefnið sem gengur eins og rauður þráður í gegn- um starfsemi íþróttasambands- ins er að vinna að því og skipuleggja að allir unglingar f landinu fái aðstöðu til þess að geta æft íþróttir f einhverri mynd. minnst eina klukku- stund á dag. Til bess að ná bessu takmarki verðum við að hafa mikla samvinnu við fleiri aðila en þá sem standa að í- bróttasamtökunum beinlínis, — sögðu forvstumennimir. Koma bar til skóiar. sem eru afar nvðingarmiklir f þessu sam- bandi. Fagfélögin eru virk í þessu verkefni og fleiri fé- lagasamtök vinna með okkur að þessu starfi. Að siálf- sögðu er starf íþróttafélag- anna sjálfra þýðingarmest. Þau leggja til þjálfara og leiðbein- endur, velli og ýmsa aðra aðstöðu. Íhróttír alla da&ra — Með hvaða aðferðum hygg- izt þið ná þessu marki? — Fyrst og fremst með því að skipuleggja keppni í sam- bandi við æfingarnar og bað fyrir börn og unglinga á öllum aldri. og láta keppnina henta hver.iu aldurskeiði. bannig að ekki sé í of mikið erfiði ráð- izt. en að einstaklingurinn finni að hann sé með, hafi keppt, fái fyrir það einhverja viður- kcnningu. sem hann hefur til minja. Með því binzt hann í- þróttunum fastari böndum, og fær aukna löngun til að reyna í næstu keppni. á næsta aldurs- skeiði fyrir ofan. Á þennan hátt leitum við til unglinganna. Okkur er ljóst að þetta næði litlum árangri ef við nytum ekki áhuga hins vaxna áhugamanns, sem alltaf er reiðu- búinn til að koma og hjálpa í þessari starfsemi, og þá líka manna, sem ef til vill eru ekki lengur bundnir neinu sérstöku félagi. 1 sjálfum félögunum eru fjölmargir sem koma og hjálpa til með þjálfun og leiðbeining- ar og gildir það sama fyrir hin svokölluðu stóru félög og hin smærri. Satt að segja væri ekki hægt að koma á fjöldamótum sem við gerum, árlega eða með nokkurra ára millibili, ef á- hugamennimir væru ekki reiðu- búnir um allt landið þvert og endilangt, og legðu fram vinnu sína og frítíma sinn. Þeir yngstu H já þeim yngstu má nú ef til vill kalla þetta meira leik en keppni og algengt er að sjá á sléttum brautum 4-5 ára snáða keppa á hlaupahjólum, og er þá algengt að feðumir taki tíma, ræsi og skrifi niður ár- angurinn. Þetta eru stuttir sprettir, en það er nóg: þeir eru byrjaðir, þeir eru með og hafa fengið einhvem minja- grip. mynd eða skjal til minja. Svona staðbundin keppni fyrir böm er oftast aðeins framtak áhugamannanna, og er af þeim sem á horfa talin mjög skemmtileg, og veldur ekki síður umræðum en keppni sem meira fer .fyrir! . Æskulýðsleikir Við efnum til æskulýðsleikja árlega um allt landið og 1963 tóku um 4 miljónir ungra pilta og stúlkna þátt í mótinu. Á þessu er keppt í stutt- um hlaupum og tóku þátt i þeim um 7-800.000 ungl- ingar. Við teljum mjög þýð- ingarmikið að æskufólk fái sem flest tækifæri til þess að kom- ast úti náttúruna, en hlaupin fara fram sem víðavangs- hlaup. Er ótrúlegur áhugi fyr- Einn hópurinn í víðavangshlaupinu á Æskulýðsleikjunum 1963, sem 2-4 miljónir æskufólks tóku þátt í. ir þeim. Keppt er einnig í há- stökki. langstökki og 25 metra sundi. Fyrir þessa þátttöku fá margir þátttakendur sérstakt merki, Þama vinna allir aðilar sem áhuga hafa fyrir í- þróttum og er hlutverk skól- anna því mikilvægt hér, svo og áhugamannanna sem vinna að skipulagi mótanna og sjá oft um mestan hluta framkvæmd- anna. Á þessum unglingamótum er það algengt að fram koma efni sem veitt er athygli og síðar koma fram sem beztu íþrótta- menn þjóðarinnar og má þar nefna Stanislav Jungwirth. millivegahlauparann fræga. Þessir æskulýðsleikir eru á- kaflega þýðingarmiklir fyrir hin n almenna áhuga meðal fólksins í landinu og einn sterk- asti þátturinn í því að unga fólkið njóti æfinga minnst einn klukkutíma á dag. , ,Spartakiadan“ Enn einn þátturinn í því að viðhalda og efla áhugann fyrir íþróttum og líkamsæfingum, eru hinir svonefndu „Spörtu- leikir", sem fara fram fimmta hvert ár. og voru í fyrsta sinn haldnir 1955 f tilefni af því að það ár voru liðin 10 ár frá þvf að Rússar frelsuðu Tékkóslóv- akíu undan hersetu Þjóðverja. Hafa leikir þessir orðið ákaf- lega vinsælir, en þar fara fram leikfimissýningar — hópsýning- ar — sem eiga vart sinn líka í vfðri veröld. Fyrstu leikimir fóru fram á Strahov-leikvang- inum í Prag. en þar geta sýnt um 30.000 manns í einu en siálfur leikvangurinn er 300x 200 metrar, og tekur hann um 200.000 áhorfendur. Um 70.000 manns geta komizt fyrir í búningsklefum vallarins. (Ég skoðaði leikvang þennan og er það furðulegt hve það er mik- ið mannvirki sinnar tegundar.) Á fyrstu leikjunum komu fram um 560.000 manns í sýn- ingum á öllum aldri. eða frá 5-70 ára. Standa sýningamar f nokkra daga. Áhorfendur á fyrstu leikjunum voru 1.800.000 mans geta komizt fyrir í þátttakendur um 721.000 og á- horfendur um 2.023.000, og nú er þegar fyrir nokkru byrjað að æfa undir leikina 1965. Þess má geta að gestir frá 50 lönd- um korhu beinlínis til að sjá þessa Spörtu-leiki. Af»-ek verðlaunuð Við vinnum að því í ýmsum greinum að verðlauna unga fólkið ef það bætir árangur sinn ár frá ári. _ Sem dæmi varðandi frjálsar íþróttir. höfum við tekið það upp eftir að ungir menn hafa farið að sýna frjálsum fþrótt- um verulegan áhuga, að hvetja þá til þess að vinna sér smátt og smátt olympisku hringina. Þetta skeður þannig, að þegar ungur drengur eða stúlka hef- ur ákveðið að leggja fyrir sig frjálsar íþróttir. fá þau einn hring, og táknar það að fvrir þennan árangur hefur aðilinn fengið fyrsta hringinn af hin- um fimm olympísku hringjum. Næsta ár fær hann svo næsta hring, þó þvf aðeins að hann hafi bætt árangur sinn. Þetta heldur svo áfram, þar til fimm árin eru liðin og viðkomandi hefur bætt. árangur sinn árlega. Þetta er vinsælt, og þegar þetta er byrjað. er oft sem viss spenn- ingur vakni fyrir því að ná öllum fimm hringjunum og menn leitast við að æfa og revna að fullkomna olympiu- merkið og fá það í safn sitt. Eru þessir hringir svo afhentir við hátfðlegt tækifæri. í lok keppnistímabilsins, og verkar sem hvatning til að halda á- fram. Varðandi sundið, höfum við tekið það upp um nokkurt skeið. að efna til sérstakra sundmóta fyrir böm, og þegar þau hafa getað svnt 25 metra fá þau sérstakt sundmerki, sem í er saumuð bylgjótt lína. Þegar þau geta synt 50 m fá þau merki með tveim lín- um og þegar þau hafa synt 100 m fá þau merki með þrem línum sem þau festa í sundbol sinn og þykir þeim að því mikill heiður að hafa slíkt merki í sundbol sínum. Annars er það markmið okk- ar að allir æskumenn læri að synda. 1 Prag munu um 75% íbúanna kunna að synda. I öðrum greinum, hefur verið komið á svipuðum verðlaunum. Okkar rejmsla er það. að fyrir æskumanninn sé það mikilvægt að fá eitthvað áþreifanlegt í hendumar fyrir afrek sitt. — eitthvað sem hann getur sýnt öðrum, og haft sjálfur til minja. 100.000 þjálfarar Við höfum sem naest 100.000 þjálfara og leiðbeinendur 1 í- þróttafélögunum og skólunum, en það er allt of lítið. Okkar vandamál er að fá fleiri þjáíf- ara sem geta kennt, svo að verulegur árangur náist, og það er okkar stóra verkefni að leysa það mál. En eins og fyrr segir eru það áhugaþjálfaranir sem koma til hjálpar með mikl- um árangri. Við vinnum að því að geta haft einn þjálfara fyrir hvem 12-16 manna hóp. Þá getur orðið um verulega kennslu að ræða. Maður, sem hefur 25 nemendur. nær naum- ast til hvers einstaklings, og því síður ef hann hefur 50-70 manns að kenna. Eins og við höfum áður margsagt. kemur þetta allt undir hinum almenna áhuga fólksins hvað það vill gera fyrir íþróttirnar, hvert viðhorf þess er til þessara mála, — hvort það vill koma í frístundvm sín- um og vinna með okkur og gera eitthvað fyrir íþróttimar. Við höfum hingað til verið heppnir hvað þetta snertir. Að sjálfsögðu eru svo alls- konar mót, eins og tfðkast í öðrum löndum, fyrir alla ald- ursflokka sem skráðir eru í í þróttafélög, og er ákaflega mikill áhugi fyrir þeim og mik- il bátttaka. I næsta þætti verður aðeins vikið að viðhorfi Tékka til atvinnumennsku í íþróttum, æf- ingum afreksmanna þeirra og heimsóknum til íþróttafélga of1- — Frímann. CIRKUSKABARETTINN / HÁSKÓLAB;*1 SÝNING íDAG KL 5,7. og 11rK

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.