Þjóðviljinn - 10.04.1964, Blaðsíða 7
Föstudagur 10. apríl 1964 -------------- ................................... ’■ '• — ÞTOÐVILnNN ----------------—----------• • '----—-------------- ------- - STÐA
□ Hannibal Valdimarsson, íorseti Alþýðusambands íslands, ’flytur á
Alþingi frumvarp til laga um vinnuvernd, greiðslu vinnulauna, uppsagn-
arfresti og önnur atriði sem snerta vinnutilhögun. Bendir hann á það í
greinargerð að engin almenn vinnuverndarlöggjöf er til hér á landi, en
með sívaxandi fjölbreytni atvinnuhátta er orðið bráðnauðsynlegt, að slík
löggjöf verði se'tt. Frumvarp Hannibals er því að mestu frumsmíð í ís-
lenzkri löggjöf, en við samningu þess var hÖfð allnáin hliðsjón af al-
mennri vinnuverndarlöggjöf nágrannalandanna. Segist flutningsmaður
játa það fúslega að margt geti orkað tvímeelis í slíkri löggjöf og sé hann
að sjálfsögðu til viðræðu um hugsanlegar breytingar á sérhverju því í
frumvarpinu sem betur mætti fara.
□ Þjóðviljinn birtir hér á eftir frumvarpið í heild og hvetur allt
verkafólk til að kynna sér efni þess sem bezt og taka það 'til umræðu
á vinnustöðum og í stéttarfélögum sínum.
VINNUVERND
HANNIBAL YALDIMARSSON FLYTUR
FRUMVARP UM MÖRG NÝMÆLI OG
RÉTTARBÆTUR TIL VERKAFÓLKS
Unniö að smíði stálgrindahúss. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
I. KAFLI
HoII og góð vinnu-
skilyrði
1. grein.
Húsakynnum vinnustaðar
skal ávallt haldið vel hrein-
um. Atvinnurekanda ber skylda
til að sjá ura, að hita- og
rakastig andrúmslofts sé hæfi-
legt og loft án ryks, óþefs,
reyks, svo og án óheilnæmra
lofttegunda eða gufu.
Umferð um v.innustað sé
hindrunarlaus og örugg. Lýs-
ing skal -vera góð og nægilegt
loftrými á vinnustað, hvort
tveggja þannig, að heilbrigðis-
kröfum sé örugglega fullnægt.:
Á vinnustað eða i námunda1
við hann skal ávallt vera heil-
næmt og gott drykkjarvatn,
einnig nægilegt þvottavatn, svo
og hæfileg tala salerna.
Upphituð og vistleg kaffi-
stofa (matstofa) af hæfilegri
stærð skal jafnan vera á vinnu-
stað.
tímabilinu kl. 8 til kl. 17.
Vinna milli kl. 17 og 20 telst
eftirvinna, nema öðruvísi sé á-
kveðið í stéttarfélagasamningi,
og vinna milli kl. 20 og kl.
8 árdegis telst næturvinna, og
má þá ekki vinna nema með
leyfi viðkomandi stéttarfélags.
3. grein
Maður, sem lokið hefur 8
stunda vinnudegi, er ekki
skyldur til að vinna aukavinnu.
Samfelldur hvíldartími verka-
manns má aldrei vera skemmri
en 9 klst. á sólarhring, og
íjöldi yfirvinnu- og- nætur-
vinnutíma má aldrei fara fram
úr 24 á viku. Sé um ákvæðis-
vinnu að ræða, má fjöldi yf-
irvinnu- og næturvinnustunda,
eða aukavinnu, ef um vakta-
vinnu er að ræða, ekki fara
fram úr 2 á dag og eigi fram
úr 6 á viku. Með samþykki
viðkomandi stéttarfélags má
þó vinna í ákvæðisvinnu allt
að 24 klst. í yfir-og nætur-
vinnu á viku, ef um er að
dag, laugardaginn fyrir páska
og laugardaginn fyrir hvita-
sunnu skal vinnuhvíld vera frá
kl. 15 til kl. 22 daginn fyrir
næsta rúmhelgan dag.
6. grein
Um bráðnauðsynlega vinnu
á sunnu- og helgidögum skal
gera samning eða afla undan-
þágu viðkomandi stéttarfélags.
7. grein
Vikulegur frídagur skal jafn-
an, ef því verður við komið,
vera á sunnudegi.
Starfsmaður, sem unnið hef-
ur sunnu- eða helgidagavinnu,
skal jafnan eiga frí næsta
sunnu- eða helgidagssólar-
hring.
8. grein
Almennur vinnutími starfs-
manna má ekki vera lengri en
8 stundir á sólarhring og ekki
lengri en 48 stundir á viku.
9. grein
Á næstu 5 árum skal al-
mennur vinnutimi á viku stytt-
ast árlega um eina klukku-
Þa skal a vinnustað hverj-
um vera aðstaða til að veita
„hjálp í viðlögum", þegar slys
eða sjúkdóma ber að höndum.
Nú fullnægir vinnustaður
eigi skilyrðum laga um holl-
ustuhætti og öryggisútbúnað og
er heilbrigðisyfirvöldum og ör-
yggiseftirliti þá heimilt að láta
loka vinnustaðnum, ef ekki
fæst úr bætt. Starfsmenn skulu
í hvívetna gæta reglusemi og
vandaðs og góðs hátternis á
vinnustað.
II KAFLI
Vinnutími og vinnu-
tilhögun
2 grein
Almennur vinnutími er á
ræða bjorgun verðmæta frá
skemmdum eða störf, sem al-
mannaheill krefst, að unnin
séu.
4. grein
Stéttarfélag getur þó gert
kjarasamning um, að unnið
skuli að nóttu til, og einnig
má í slikum samningum á-
kveða vaktaskipan og setja
önnur ákvæði um skiptingu
vinnutimans í samræmi við
eðli starfs og aðstæður.
5. grein
Vinnuhvíld skal vera frá kl.
18 daginn fyrir sunnu- eða
helgidag og til kl. 22 daginn
fyrir næsta rúmhelgan dag.
Á aðfangadag jóla, gamlárs-
stund an skerðingar heildar-
tekna, þannig, að almenn
vinnuvika sé eigi lengri en
43 stundir að þessum 5 árum
liðnum.
10. grein
Almennt deilist vinnutíminn
á 6 daga í viku, en leyfilegt
skal vera að gera samning við
stéttarfélag um skiptingu á
færri daga.
11. grein
Við vinnu, sem unnin er að
nóttu til og á sunnu- og helgi-
dögum, skal hin almenna
vinnuvika eigi vera lengri en
45 stundir.
12. grein
Nú er unnið samfellt i námu-
eða jarðgöngum, og má vinnu-
vika þá ekki Iengri vera en
40 stundir. Til vinnutíma telst
einnig ferðatími í námu eða
jarðgöngum.
III. KAFLI
Sérstök ákvæði um
vinnu kvenna
13. grein
Konu skal vera heimilt að
vera fjarverandi frá vinnu
fyrstu 6 vikur, eftir að hún
hefur alið barn. Hún getur og
krafizt að mega vera fjarver-
andi allt að sex vikum i við-
bót og þannig, að fjarvera sé
að öllu leyti eða að hluta fyr-
ir eða eftir fæðingu.
14. grein
Krefjast má . vottorðs frá
lækni eða ’jósmóður um, hve-
nær fæðing sé væntanleg. Til-
kynna verður atvinnurekanda
um fjarveru fyrir fæðingu
með eigi skemmri en þriggja
daga fyrirvara.
- 15. grein
Ef kona sýnir með læknis-
vottorði, að hún þjáist af sjúk-
dómi, sem er afleiðing af
þungun eða fæðingu, getur hún
krafizt að mega vera fjarver-
andi frá vinnu umfram það.
sem áðúr segir, allt að sex
vikum fyrir eða eftir fæðingu.
16. grein
Konu, sem er fjarverandi
frá vinnu samkv. ákvæðum 13.
til 15. greinar, má ekkí segja
upp starfi, þegar atvinnurek-
anda er Ijóst, að fjarvera
hennar er af þessum ástæðum,
eða hún tilkynnir honum án
tafar, að þessi er ástæðan fyr-
ir fjarveru hennar. Hafi henni
þegar verið sagt upp miðað
við dag, er fellur innan ramma
þess tímabils, sem getið er um
í 13. grein, er uppsögnin gild,
en uppsagnarfrestur lengist
sem tímabilinu nemur.
Hafi vinnuráðning átt sér
stað fyrir ákveðna. tíma-
bundna vinnu. skal ákvæði
þessarar greinar ekki beitt.
þegar vinnunni er lokið, áð-
ur en konan mætir aftur til
vinnu.
17. grein
Kona, sem hefur bam sitt
á brjósti, getur krafizt frí-
tima, sem hún þarf vegna þess.
og eigi skemur en hálfa stund
tvisvar sinnum á dag.
IV KAFLI
Sérstök ákvæði um
vinnuvemrí harna og
unglinga
18. grein
a. Barn °r samkvæmt lögum
þessum sérhver sá, sem er
ekki fullra 14 ára að aldri.
b. Unglingur er samkvæmt
lögum þessum sérhver sá, sem
er á aldrinum 14—16 ára.
19. grein
Börn má ekki ráða til inni-
vinnu í vinnustofum, verk-
stæðum né verksmiðjum, og
eigi heldur til vinnu við út-
skipun eða uppskipun á vðr-
um.
20. grein
Alger hámarksvinnutími barna
er hálfur ævialdur þeirra, þ.
e. 6—7 stundir á dag.
Átta stunda vinnutímabil
skulu jafnan annast tveir
vinnuhópar barna, þ.e. 4 stund-
ir hvor hópur, og 10 stunda
vinnutímabil fullorðinna tveir
vinnuhópar barna, þ.e. 5 stund-
ir hvor þeirra.
21. grein
Unglingar mega ekki annast
gæzlu gufukatla eða véla, sém
útheimtir sérstaka varúð éða
gæzlu.
22. grein
Börn eða unglinga má ekki
ráða til neinnar þéirrar vinnu,
sem að dómi skólayfirlæknis
eða héraðslæknis er á nokk-
urn hátt hættuleg heilsu þeirra
éða þroska.
Nýlega voru stofn-
aðar 3 félagsdeildir á Austur-
Iandi í Norræna félaginu: á
Egilsstöðum, yrir Egilstaði og
Fljótsdalshérað, á Seyðisfirði
og á Eskifirði.
Magnús Gíslason, framkvstj.
N.F. flutti erindi á stofnfund-
unum um Norrænu félögin.
skipulag þeirra og markmið
og sýndi litkvikmynd frá Dan-
mörku. Stofnendur hverrar fé-
lagsdeildar voru rösklega 30.
f stjórn Norræna félagsins á
Egilsstöðum eru : Þórður
Benédiktsson, skólastjóri á Eg-
ilsstöðum formaður og með-
stjómendur Ármann Halldórs-
son, kennari Eiðum, Gissur Er-
lingsson, stöðvarstjóri Eiðum,
Þórarinn Þórarinsson skólastj.
Eiðum og Þorsteinn Sigurðs-
son, héraðslæknir, Egilsstöðum.
Á Seyðisfirði var Steinn
Stefánsson, skólastjóri, kjörinn
formaður deildarinnar en með-
stjórnendur eru: Ástvaldur
Kristófersson, framkvæmda-
stjóri, Guðmundur Þórðarson
kennari. Guðlaugur Jónsson.
ræðismaður, Hörður Hjartar-
23. grein
Hámarksvinnutími unglinga
skal vera 8 klst á dag án und-
antekninga. Öll vinna bama
og unglinga, frá því að þau
hefja skólagöngu að hausti og
þar til skólagöngu lýkur að
vori er óheimil. Til vinnu í
þessu sambandi telst blað-
burður, sala blaða og tíma-
rita og sendisveinastörf.
24. grein
Atvinnurekandi skal halda
sérstaka skrá um tegund vinnu
og vinnutíma þeirra bama og
unglinga, sem hann hefur í
vinnu, og er skylt að afhenda
viðkomandi verkalýðsfélagi,
svo og heilbrigðis- og skóla'yf-
irvöldum, slíka skrá, ef kraf-
izt er.
V KAFLI
Um srmðslH vinnu-
launa o.fl.
25. grein
Vinnulaun skal ávallt greiða
í gjaldgengu reiðufé, nema
samið hafi verið um greiðsiu
með tékka, bankaávísun eða
„giró“. Greiðsla vinnulauna
skal fara fram á eða við
vinnustað i vinnutímanum.
Framhald á síðU 9.
son símavarðstjóri.
Arnþór Jensen, kaupmaður,
var kjörinn formaður Norræna
félagsins á Eskifirði, en með-
stjórnendur eru : Guðmundur
Auðbjörnsson, málarameistari,
Kristján Ingólfsson, skólastjóri,
Kristján Sigurðsson, kaupfé-
lagsstjóri og Óli Guðbrands-
son fyrrum skólastjóri.
Félagsdeildír Norræna fé-
lagsins eru nú alls 26, þar af
4 á Austurlandi. Auk þeirra
þriggja, sem áður eru néfnd-
ar, er félagsdeild starfandi í
Neskaupstað, en þar var délld
stofnuð vorið 1958, og er Gunn-
ar Ólafsson, skólastjóri, fór-
maður hennar. Vinabæir Nés-
kaupstaðar eru Esbjerg f Dan-
mörku, Stavanger í Nóirégi,
Jyváskylaa í Finnlandi og Esk.
ilstuna í Svíþjóð.
Framkvæmdastjóri Norræna
félagsins heimsótti einnig Nes-
kaupstað og sat stjórnarfund
félagsdeildarinnar, þar sem m.
a var rætt um væntanlega
vinabæjarferð til Norðurlanda
í sumar.
Þrjár nýjar deildir
í Norrænafélaginu