Þjóðviljinn - 27.05.1964, Page 5
Miðvikudagur 27. maí 1964
ÞJðÐVlLIINN
3fÐA 5
þýzka Iiðinu var Horst Szym-
anik, sem leikur sem atvinnu-
maður með Inter á ltalíu.
★ Skotar og Vestur-Þjóðverj-
ar gerðu jafntefli í knatt-
spyrnulandsleik fyrir skömmu.
Leikurinn fór fram í Hann-
over og Iauk honum 2:2. Þctta
er 5. landsleikur þessara aðila.
og hefur Þjóðverjum aldrci
tekist að sigra. I þessum Icilc
skoruðu Þjóðverjar 2 fyrstu
mörkin, og var Uwe Seeler
að verki í bæði skiptin. Síðan
kvittaði Gilzean (Dundce) fyr-
ir Skotland. Þjóðverjar máttu
sín meira í fyrri hálflcik, en
í þeim seinni tóku Skotrr
leikinn í sínar hendur undir
forystu Dennis Law. Beztur í
★ Pólverjar unnu Ira í lands-
lcik fyrir nokkrum dögum —
3.1 (1:1). Leikurinn fór fram
í Krakov. Fyrir Pólland skor-
uðu Faber, Wilim og Szolty-
sik, en fyrir írland Ambrose.
★ Háð er Evrópubikarkeppni
fyrir unglinga í handknattlcik.
Þetta er óopinbert mót, en
þátttaka er frá nær öllum
Evrópulöndum, m.a. frá öllum
Norðurlöndunum nema Is-
landi og Færeyjum. Þctta cr
félagskeppni. Frá Noregi
keppir unglingalið „RAPP“,
en þetta er sagt mjög gott
Iið. m.a. hefur það tvíyegis
sigrað Noregsmeistarana —•
„NJARD“.
★ Norska stúlkan Bcrit Töien
sctti nýlega Norðurlandamet í
langstökki kvenna — 6,32 m.
Hún átti sjálf gamla mctið —
6,23 m, en það setti hún á
„for-oIympíuleikunum“ í Tók-
íó sl. haust. Hún varð þar
í þriðja sæti, og cr nú talin
eiga möguleika á verðlaunum
i þessari grcin á olympiuleik-
unum í ár.
utan úr heimi
Sundmeistaramótið
á Akureyri í júní
Sundmeistaramót íslands 1964 verður háð á
Akureyri dagana 20. og 21. júní n.k. Keppt verð-
Fyrri dag keppninnar,
laugardaginn 20. júní, verður
keppt í eftirtöldum sundgrein-
ur í 24 sundgreinum. Iþróttabandalag Akureyr-
ar sér um undirbúning og framkvæmd mótsins
að þessu sinni.
um:
100 m skriðsund karla. 50 m
bringusund telpna. 100 m
bringusund karla,. 50 m bak-
sund telpna. 100 m baksund
kvenna. 200 m baksund karla.
100 m skriðsund drengja.
200 m bringusund kvenna.
200 m einstaklingsfjórsund
karla. 3x50 m þrísund drengja.
3x50 m þrísund telpna. 4x100
metra fjórsund karla.
Seinni dagur:
Sunnudaginn 21. júní verður
keppt í þessum greinum:
100 m flugsund karla. 100 m
bringusund kvenna. 100 m
bringusund drengja. 400 m
skriðsund karla. 100 m skrið-
sund kvenna. 100 m baksund
karla. 50 m skriðsund telpna.
200 m bringusund karla.
200 m einstaklingsfjórsund kv
100 m baksund kvenna. 3x50
metra þrísund kvenna. 4x200
metra skriðsund karla.
Þátt' jkutilkynningum bcr að
skila til ísaks J. Guðmanns,
formanns IBA. Akurcyri,
sími 2021, fyrir 1. júní n.k.
Sunnudaginn 31. maí verður
keppt í 1500 m skriðsundi
karla. og fer sú keppni fram
í Sundhöll Reykjavíkur.
Ársþing SSÍ.
Að venju verður ársþing
Sundsambands Islands haldið
í sambandi við meistaramótið.
Þ'ngið verður því á Akureyri,
í ár, og fer það fram, 20 júní.
OLYMPIUFRETTIR
’jf Marokkómenn munu
keppa í aðalkeppni olympíu-
leikanna í knattspyrnu. Þeir
unnu nýlega úrslitaleik við
Etíópíumenn um réttinn til
Tókíóferðar. Leikurinn fór
fram í Casablanca oa úr-
slitin voru 1:0.
ir Mikil harka er í for-
keppni olympíuknattspyrnu-
keppninnar í Suður-Ameríku.
Ekki ■ - enn ljóst hvaða land
í þeim heimshluta hlýtur
rétt til þátttöku í aðalkeppni
OL í Tókíó. Fyrir skömmu
gerðu Brasilíumenn og Kol-
umbíumenn jafntefli í for-
keppninni — 1:1. Síðasti leik-
urinn fór fram í Lima milli
Perúmanna og Arger.tínu-
manna. og endaði með hin-
um mestu hörmungum. eins
og öllum er í fersku minni.
ir Orðrómur er á kreiki um
að Fiedel Castro, forsætis-
ráðherra Kúbu, muni koma í
heimsókn t:l Japan meðan á
olympíuleikunum stendur.
Segja sumar fréttir að Castro
muni verða fyrirliði í íþrótta-
flokki Kúbumanna, sem þátt
tekur í olympítileikunum.
ir 54 % aðg'öngumiða að
hinum ýnisu greinum olymp-
íuleikanna höfðu verið seld
til 34 landa hinn 4. maí s.l.,
segir i tilkynningu frá skipu-
lagsnefndinni í Tokíó. I til-
kynningunni segir að útlend-
ingar hafi mestan áhuga fyr-
ir frjálsíþrótium og' sundi.
auk opnunar- og lokunarhá-
tlðanna. Nýsjálendingar hafa
beöiö urn 3.500 aðgöngumiðn
til viðbótar til söiu : iancli
sínu. Sviss, Vesturbýzkalánd.
Suðurafríka, Frakkland og
Svíþjóð hafa einnig beðið um
fleiri aðgöngumiða samtals
7000 að tölu.
★ Olympíunefnd Bandaríkj-
anna hefur lagt fram áætlun
í samvinnp við 1*500 banda-
ríska verzlunarbanka um að
hefja söfnunarherferð í því
skyni að safna 1—2 miljón-
um dollara, sem nefndina
vantar til að kosta olympíu-
þátttöku Bandaríkjanna í
Tokíó. Bankarnir ætla að
senda öllum viðskiptavinum
sínum þréf með beiðni um að
láta fé af hendi rakna til ol-
ympíusjóðs Bandarikjanna.
Kjörorð þessarar söfnunar-
herferðar er: Látið Rússa
ekki fara fram úr okkur.
Mun þetta talið vænlegasta
slagorðið til að afla fjár í
sjóðinn. Bandaríska olymp-
íunefndin hefur yfir að ráða
1,4 miljónum dollara. en þarf
mun meira fé til að mæta ó-
hjákvæmilegum útgjöldúm.
ir Sjö úrvalsþjálfarar eiga
að sjá um að sovézkir hlaup-
arar og kastarar nái sem
beztuni árangri á OL í Tok-
íó. Þrír þjálfaranna annast
hlauparana og fjórir kastar-
ana. Leonid Bartenjev, sem
sjálfur átti eitt sinn sovézkt
met í 100 m. (10,3 sek.) er
aðalbjálfari hlauparanna. Á-
litur hann að í ár muni koma
íram ýmsir nýjir afburða-
menn f spretthlaupum í ýms-
um löndum. Bezti sovézki
spretthlauparinn er Ozoiin
með 10,2 sek. á 100 m og 19.9
sek í 200 m. hlaupi í ár.
Juri Litujev. sem eitt sinn'
átti heimsmet í 400 m
grindahlanpi, er nú aðaíb.jálf-
ari í 400 m og 400 m grinda-
hlaupi. í ár hefur Vadim
Arkiptsjúk náði beztum tima
Sovétmanna í 400 m hlaupi
— 46,3 sek. í 110 m grinda-
hlaupi er Anatoli Mikailov
beztur með 13,7 og í 400 m.
grindahlaupi Vassili Anissi-
mov með 50.6 sek. I lang-
hlaupum er það Grigori Niki-
forov, sem hefur aðalþjálfun-
ina meö höndum, en hann
þjálfaði Vladimir Kutz á sín-
um tíma. Fræknustu lang-
hlauparar Sovétríkjanna eru
nú Juri Tiurin og olympíu-
meistarinn í 10 km Pjotr
Bolotn kov. og ennfremur Le-
on 'd Ivanov sem hlaupið
hefur 5 km. á 13,49,3 mín og
10 km á 28,48,6 mín.
★ Bandaríski maraþon-
hlauparinn Buddy Edelen
hefur tryggt sér rétt til að
taka þátt í maraþonhlaupinu
á olympíuleikunum í haust
fyrir hönd lands síns. Um
síðustu helgi sigraði hann í
Yonkers-maraþonhlaupinu á
2,24.25,5 klst. Keppni þess
er háð skammt frrir utan
N.V og var hún geysierfið
að þessu sinni vegna hitans.
sem var um 33 gráður á Cel-
síus. Adólf Grubner varð
annar en þriðji varð John
Kelly.
Knattspyrnumaður kveður
Það er stundum viðhafnarlcgt augnablik og trcgablandið, þegar
knattspyrnumaður kveður lið sem hann hefur lengi leikið með.
Myndin er tekin af cinum slíkum atburði austur í Kiev fyrir
skömmu. 60 þús. manns voru viðstaddir þegar Oleg Makarov,
markmaður „DYNAMO KIEV“, kvaddi lið sitt og knattspyrnuna
sem keppandi. Hér eftir mun hann starfa sem unglingaþjálfari.
Hann hafði árum saman leikið með Dynamo Kicv og einnig ver-
ið markvörður Iandsliðsins. Það cr formaður félagsins, Ivanov,
scm er að veita Makarov viðurkenningu á kveðjustundinni. Marg-
ir knattspurnuunnendur hér á landi munu minnast Makarovs, því
hann kom hingað til Islands með Dinamo Kiev 1957 í boði Vals.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja dælustöðvarhús við Grensás-
veg fyrir Hitaveitu Reykjavíkur.
Útboðsgagna skal vitja í skrifstofu vora, gegn 3.000
króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Þeir félagsmenn FÍB sem mætt geta með
bifreiðir sínar n.k. laugardag kl. 1.30 í
skemmtiferð með vistmenn á elliheimilinu,
eru beðnir að láta skrifstofuna vita sem
fyrst.
F í B - skrifstofan
Bolholti 4 sími 33614.
Sýning í Bogasainum
ÍSLAND VIÐ ALDAHVÖRF
Allar hinar frægu myndir frá leiðangri Paul
Gaimard til íslands 1836 (201 mynd) verða til
sýnis og sölu dagana 27.—31. maí.
Opið daglega frá kl. 2—10 e.h.
Prentarar
Okkur vantar
handsetjara
Og
PRESSUMANN.
Ti! félagsmanna FÍB
iii
Simi 17-500.
1
i
_