Þjóðviljinn - 07.07.1964, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 07.07.1964, Blaðsíða 12
TVÆR DÆTUR KRÚSTJOFFS Á ÍSLANDI Elena Krúsjova veiddi sinn fyrsta fisk í Elliðaám Tvær dætur Krúst'joffs, forsaritisráðherra Sovétríkj- anna, komu til Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. Á sunnudag fóru þær austur um sveitir í boði mennta- málaráðherra. Og í gær veiddi yngri dóttirin lax í Elliðaánum ásamt mági sínum, Gontar óperustjóra. Sólfaxi lenti skömmu fyrir eitt um nóttina og stigu dæt- urnar, Júlía, kona Gontars óperuhússtjóra og Elena, 27 ára gömul, lögfræðingur og blaðakona, út úr vélinni fyrstar farþega og voru báð- ar ljósklæddar. Gontar og sovézki söndiherrann heils- uðu þeim og kynntu þær fyr- ir menntamálaráðherra, þjóð- leikhússtjóra_ og stjórnar- mönnum MÍR. Fólkið gerði stuttan stanz á flugvellinum enda voru dætur Krústjoffs þreyttar eftir strangt ferða- lag. Hrifning við Gullfoss Á tólfta tímanum á sunnu- dag var lagt af stað í ferða- lag austur í sveitir ; boði menntamálaráðherra og var hann sjálfur með í förinni svo og soyézki sendiherrann, Halldór Laxness og Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri og Þær Krústjoffsdætur hafa sannarlega átt erilssama daga síðustu þrjár vikurnar er þær fylgdu föður sínum um Norð- urlönd, en þær kváðu vera mjög ánægðar með þá á- kvörðun að þiggja ágætt boð menntamálaráðherra og þjóð- leikhússtjóra að koma hing- að. Þær höfðu áður haft nokkrar spurnir af landinu, ekki sízt af skáldverkum Laxness sem þýdd hafa verið á rússnesku. Og ferðalagið á sunnudaginn varð þeim mjög ánægjulegt þótt veður væri ekki sem bezt; náttúra þessa lands þótti þeim sérkennileg og skemmtileg. Laxar Elena Krúsjova er sögð hafa mikla ánægju af blóm- um og hestamennsku. Blóm sá hún í Hveragerði, sem fyrr segir, <j>g má vera að henni gefist timi til að bregða A Lögbergi — Júlía Krúsjova, Gylfi Þ. og Auður Laxncss. frúr þeirra. Fyrst var haldið til Hveragerðis og skoðuð þar gróðurhús. Paul Michelsen garðyrkjumaður færði dætr- unum púða gerðan úr islenzk- um skinnum og bað þær færa möður sinni, Nínu Petr- ovnu að gjöf. Þaðan var haldið til Geys- is sem lét að vísu lítið á sér bera, en hinsvegar gaus Strokkur mjög myndarlega, gestunum til ágætrar skemmt- unar. Þama var snæddur há- degisverður. Þaðan var að sjálfsögðu haldið til Gullfoss sem reyndist gestum meira hrifningarefni en allt annað sem fyrir augu bar í ferðinni og mundaði Gontar Ijós. myndavél óspart og kom blautur frá því að ná sem beztum myndum af fossinum. Vel heppnuð ferð Á heimleiðinni var komið við á Þingvöllum og sagði Gylfi Þ Gíslason frá sögu staðarins og gaf greinargóð svör við þeim spurningum sem fram voru bomar. Að lokum var svo komið við á Gljúfrasteini. En daginn áð- ur hafði dansfólk Kiefball- ettsins heimsótt Halxdór Lax- ness, og skáldið hafði rætt um það sólskin sem sovézk* listafólk hefur komið með t’’ þessa lands þar sem þok"- ~ rigningar eru helzt 1il t'*' gestir. sér á hestbak — og mun frú Auður Laxness reyndar hafa fullan þug á að af því verði. Elena, túlkurinn Jakúp og Gontar, sem heldur á laxinum sem mágkona hans veiddi. — (Ljósm. Þjóðv. J. Th. H-). En í gærmorgun varð þessi yngsta dóttir Krústjoffs fyrir nýrri lífsreynslu, en þá fór hún ásamt mági sínum, Vikt- ori Gontar, að veiða lax í Elliðaám. Veiðiveður var ágætt og eftir skamma stund hafði El- enu Níkítítsjnu tekizt að veiða ágætan lax, 3—4 kíló að þyngd og mun þetta vera fyrstd fiskurinn sem hún hef- ur dregið. Reyndir veiðimenn sögðu að hún myndi „fljótt koma til“. Eftir nokkra hríð hafði Elena sett í annan lax og var sá sýnu meiri en hinn fyrri. En nú urðu þau tið- indí að laxinn losnaði af önglínum og bylti hann sér síðan hálfdasaður stundar- kom rétt við árbakkann. Þar stóð Ijósmyndari, reyndar byrjandi í faginu, og stökk hann út í ána er hann hafði áttað sig á því sem fram fór og reyndi að grípa fiskirin, en hann smó úr höndum hans og flúði sem skjótast niður ána. Þannig varð Elena Krúsjova fyrir því strax í sinni fyrstu veiðiför „að missa stærsta fiskinn“. Viktor Gontar, mágur henn- ar, veiddi einn lax og einn sjóbirting. Hann hefur reynd- ar meiri reynslu af veiðiskap, því hann býr á sumrin á bökkum Dnébrfljóts og veiðir þar töluvert í net. En ekki hefur hann glímt við laxa fyrr. Spurði hann margs um lifnaðarháttu þessara fiska. Hann talaði einnig um, að það væri góð tilbreytirig fyrir þær systur að koma hingað í íslenzka friðsæld eftir eril og blaðamannahersveitir í öðr- um No:rðurlöndum. En lax sinn ætlar Elena að geyma í kæliskáp og færa Nínu Petrovnu í soðið. Kl. 17 í gær sátu gestirnir boð forseta íslands á Bessa- stöðum og um kvöldið boð Gylfa Þ. Gíslasonar mennta- málaráðherra. , . . vism ..z . . * íl! j M (A > mIí Elcna Krúsjova og Bivgir Thcirlacins við Elliðaír. — (Ljósm. Þjóðv. J. Th. H.). Þriðjudagur 7. júlí 1964 — 29. árgangur — 149. tölublað. LONDUNARBIÐ i NESKAUPSTAÐ Neskaupatað í gær — Talsverð löndunarbið hefur verið hér að undanfömu. Síðan á föstudag hafa efíirtalin skip komið hingað með síld: Fákur GK 300 mál, Þráinn NK 900, Sæfari BA 550, Engey RE 1350, Mánatindur SU 750, Þórsnes SH 550, Framnes ÍS 80, Þorbjöm GK 400, Pétur Sig- urðsson RE 1300, Jón á Stapa 1200, Mummi IS 500, Þorgrímur IS 600, Björg NK 750, Sæfell SH 900, Hvanney SF 150, Andvari KE 350, Vonin KE 700, Sigur- fari SF 250. Síðast var landað hér úr Mána- tindi í morgun, og er þá lönd- unarbið til kvölds, en þá losnar tankur og þró fyrir hádegi á morgun. 88 þúsund mál hafa nú borizt til bræ-ðslunnar hér, en á sama tíma í fyrra „aðeins“ 55 þúsund mál. Eins og sagt er annars staðar í blaðinu barst fyrsta söltunar- síldin hingað til Neskaupstaðar í gærmorgun. Það var söltunar- stöðin Ás sem tók síld til söl-t- unar úr Rán frá Hnífsdal og vom saltaðar 155 tunnur. Fitu- magn síldarinnar var 22.5% en úrkast var um 50%*. Nú er unnið við uppskipun á 900 tonnum af salti úr Bakka- fossi. — H. G. KIEFBALLETT- INN KVADDUR Kom, sá og sigraði, sagði Guðlaugur Rósinkranz um Kiefballettinn á hátíðlegri kveðjustund í Þjóðleikhúsinu á sunnudagskvöld. Leikhúsgestir ttóku hressilega undir þakkarorð Þjóðleikhússtjóra og fögnuðu einnig vel orðum Gontars óperustjóra, sem lýsti einlægri ánægju dansflokks- ins vegna einkar hlýlegrar móttöku á þessu „unaðslega ævintýralandi“. Að lokinni sýningu Kíefball- ettsins á sunnudagskvöld var hópurinn kvaddur með viðhöfn. Komu þeir fram á sviðið Guð- laugur Rósinkranz Þjóðleikhús- stjóri og Viktor Gontar óperu- stjóri ásamt túlkum sínum. Þjóð- leikhússtjóri þakkaði fyrir þá dá- samlegu list, sem ballettflokk- urinn hefði fært okkur og taldi sýningar hans mesta listavið- burð til þessa á sviði Þjóðleik- hússins. Ekki kvaðst hann geta tjáð tilfinningar sínar orðum ein- um og sæmdi flokkinn miklum lárviðarkransi. Gontar þakkaði fyrir sig og sína. Kvað hann hópnum vera sérstak ánægjuefni að hafa kom- ið hingað og þakkaði mennta- málaráðherra, sovézka sendiherr- anum, Menningartengslum Is- lands og Ráðstjómarríkjanna og þá sérstaklega forseta þess Hall- dór Laxness fyrir framgang þeirra í málinu. Hann sagði að á þessu unaðslega ævintýralandi liði þeim öllum eins og heima, ekki væri það vegna undirtekta éhorfenda, sem hefðu sízt verið lakari á hinum Norðurlöndunum, heldur vegna þess hlýja viðmóts sem þau hefðu hvarvetna fundið hér yfirleitt hvar sem þau hefðu komið. Hann þakkaði einnig sér- staklega hljómsveitinni, og bað áhorfendur að hylla þá menn, sem störfuðu að tjaldabaki, án þeirra gætu engar sýningar far- ið fram. Lauk þessari athöfn með því að hver klappaði sem betur mátti, áhorfendur og dansarar. Á sýningunni eru meðal annarra gesta forseti Islands, mennta- málaráðherra, Halldór Laxness og þær Krústjoffsdætur. Staðan í keppni deilda og héraða Eins og skýrt er frá á öðrum sta3 í blaðinu þá drógum við í 2. fl. Happdrættis Þjóðviljans í gærmorgun og verða vinnings- númcrin ekki birt fyrr en síðar í vikunni, þar sem enn eiga eftir að berast skil utan af landi og enhfremur frá nokkrum hér í Reykjavík, sem ekki hefur náðst til vegna fjarvista úr bænum. Það eru vinsamleg tilmæli til alira þeirra scm ekki hafa enn gert skil fyrir senda miða að hafa samband við okkur strax svo að ekki dragist að birta númerin. Skrifstofan að Týsgötu 3 er opin daglega frá kl. 9—12 °g 1—6 og í kvöld frá kl. 8—10. Við birtum nú röð deildanna í næstsíðasta skipti, því enn liggja ekki eins og fyrr segir heildar- niðurstöður fyrir. Síðustu dag- ana fyrir dráttinn voru ágæt skil og tóku margar deildir og by.íjgðahverfi vel á þannig að í dag eru 9 komin í 100% og þar yfir og mjög margar nálgast 100%. Við þökkum ö’.lum þeim sem lögðu þar hönd á plóginn fyrir gott starf og einnig þeim er sendu okkur skil fjrrir senda miða. Röðin er nú þannig: 1. 4.a deild, Þingholtin 125% 2. 2. deild, Skjólin 125% 3. Siglufjörður 120% 4. 13. deild, Herskólahv. 110% 5 V estmannaey jar 109% 6. lO.b deild, Vogar 104% 7. 1. deild, Vesturbær 101% 8. 5. deild, Norðurmýri 100% 9. Norðfjörður 100% 10. 6. deild, Hlíðar 80% 11. 11. deild, Háaleiti 80% 12. 4,b deild, Skuggahverfi 79% 1S. 12. deild, Sogamýri 77% 14. 15. dcild 73% 15. Suðurland 72% 16. 7. deild, Rauðarárholt 70% 17. 3. deild, Skerjafjörður 64% 18. 8.a deild, Teigar 60% 19. 10,a deild, Heimar 50% 20. 8.b deild, Lækir 48% 21. Hafnarfjörður 47% 22. Kópavogur 46% 23. 9. deild, Kleppsholt 45% 24. Reykjanes 43% 25. Vestfirðir 34% 26. Austfírðir 30% 27. 14 deild, Blesugróf 25% 28. Vesturland 16% 29. Norðurland eystra 13% 30. Norðurland vestra 13% J 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.