Þjóðviljinn - 14.07.1964, Page 12

Þjóðviljinn - 14.07.1964, Page 12
SÍLDARAFLINN VAR EIN MIUÓN MÁL OG TUNNUR ÚM S.L. HELGI ■ Á miðnætti sl. laugar-' dag var htildarsíldaraflinn orðinn 1.022.371 mál og tunn- ur en var á sama tíma í fyrra 435.944 mál og tunnur og er hann því meira en tvö- falt meiri nú en þá. Þrátjt fyrir óhagstætt veiðiveður nam vikuaflinn 156.256 málum og tunnum. Var veiðisvæðið á svipuðum slóðum og áður eða frá Glettinganesgrunni suður að Gerpisflaki. Eftir hagnýtingu og löndunar- stöðvum skiptist aflinn svo sam- kvæmt skýrslu Fiskifélags Is- lands um síldveiðarnar: Aflinn hefur verið hagnýttur þannig: 1 salt 30578 upps.tu., í fyrra 11.528. f fryst. 16.879 uppm. tu., í fyrra 13.820. I bræðsl. 974.914 mál, í fyrra 310.646. Bræðslusíldaraflínn skiptist þannig í Iöndunarstöðum: Siglufjörður 185.970, Ólafsfjörð- ur 11.292, Hjalteyri 36.042. Krossanes 76.188, Húsavík 20.003, Raufarhöfn 169.934, Vopnafjörð- ur 112.694, Borgarfjörður eystri 8607, Bakkafjörður 12.135, Seyð- isfjörður 81.249. Neskaupstaður 102.258, Eskifjörður 52,112, Reyð- p~c-* iörður 54.202, Fáskrúðsfjörð- ur 39.258, Bre'ðdalsvík 12.965. Árekstur Harkalegur árekstur varð síð- astliðið laugardagskvöld hjá Norður-Reykjum í Reykholtsdal. Þar lentu saman á blindhæð bíll frá Akranesi og úr Keflávík.' 1 Akranesbílnum voru auk öku- manns. Haraldur Böðvarsson út- gerðarmaður, kona hans og einn starfsmaður úr fyrirtæki Har- aldar. í Keflavíkurbílnum voru hjón og slasaðist konan mikið, skarst m.a. mikið á hálsi. Hún var flutt á sjúkrahúsið á Akranesi. Haraldur Böðvarsson skaddað- ist á andliti og marðist nokkuð. Báðir bílarnir skemmdust mik- ið, en þó var Keflavikurbíllinn allmiklu ver útleikinn. Þriðjudagur 14. júlí 1964 — 29. árgangur 155. tölublað. Úrkastið úr síld- inni er enn 50 % Neskaupstað, 13/7 — Þótt mikið hafi veiðst af síld undanfama daga virðist hún heldur rýr til söltunar og fara síldarsaltendur sér því að engu óðslega. Orkastið er ennþá um 50%. Síðan á hádegi á laugardag hefur verið saltað hér í um 900 uppmældar tunnur hjá þremur söltunarstöðvum. Or Tjaldi SH 166 tunnur, Stapafelli 268, Kópi KE 114 og Jóni á Stapa 337. Hjá síldarverksmiðjunni var á sama tíma landað rúmlega 11 þúsund málum úr 13 bátum en þeir eru: Ámi Geir KE 750 mál, Faxaborg GK 800. Ársæll Sig- urðsson II. GK 1000, Pétur Jóns- son ÞH 450, Þórsnes SH 600, Gnýfari SH 800, Skagaröst KE OLSARAR Á SÍLD ★ Þcir eru léttir á brúnina ★ þessir hásetar á Steinunni ★ frá Ólafsvík enda frískir og ★ ungir strákar í blóma lífsins. ★ Þeir komu á miðin um 12. ★ júní og höfðu aflað fjögur ★ þúsund mál er fréttamaður ★ hitti þá að máli á Raufar- ★ höfn fyrir nokkrum dögum. ★ Þú getur skilað til útgerðar- ★ mannsins að við séum í vax- ★ andi stuði og léttist þá brún- ★ in á honum líka sögðu þeir. ★ Sitjandi fremst: Sigurgeir ★ Helgason og Víkingur Hall- ★ dórsson, báðir frá Ólafsvík. ★ Standandi: Kristm. Hall- ★ dórsson, Finnbogi Alexand- ★ ersson og Gunnar Gunnars- ★ son, allir frá Ólafsvík, Við- ★ ar Halldórsson frá Reykjavík ★ og Stefán Pétursson frá R- ■j( vík. Myndin er tekin á síld- ★ arplaninu Björg h.f. á Rauf- ★ arhöfn. — (Ljósm. Þjóðv. ★ G. M.). Síldaraflinn um helgina 156.780 mál og tunnur ■ Um helgina var mesta aflahrota síldveiðanna á þessu sumri og veiddust á tveim sólarhringum, frá laugardagsmorgni til mánu- dagsmorguns, samitals 156.780 mál og tunnur. Fyrra sólar- hringinn fengu 120 skip sam- tals 110.480 mál og tunnur en þann síðara fengu 52 skip alls 46.300 mál og tunnur. „(Jt í bláinn" Æskulýðsfylkingin í Reykjavrk efnir til ferðar út í „bláinn” á morgun. Lagt verður af stað frá Tjamargötu 20 kl. 20. Ekið verður um nágrenni Reykjavík- ur að venju. ÆFR skorar á alla félaga að taka þátt i ferð- inni og hafa gesti með sér. Þátttökutilkynningar í síma 17513 fyrir hádegi og í síma ferðaskrifstofunnar Landsýnar 22890 allan dag'nn. Skráið vkkur til ferðarinnar í tíma. Ágæt frammistaða íslenzka sundfólksins DANIR-ÍSLAND 39 SUND-LANDSKEPPNINNI 38 í Hefur þessi mikla aflahrota þegar skapað löndunarbið á Austfjarðahöfnum. Síldin veiddist aðallega á Reyðar- ’jarðardýpi, Gerpisflaki og ■iiúpt á Héraðsflóa. Fyrir helgina var orðið nægi- legt þróarpláss hjá verksmiðj- unum austanlands. Mikið af síldinni sem veiddist um helgina fór hins vegar í söltun og var þegar komin löndunarbið eystra á sunnudag og voru því færri skip að veiðum á sunnudag en á laugardag og ve'ðin minni af þeim sökum. Aflahæstu skipin í þessari hrotu eru talið i málum og tunn- um: Ólafur Fr'ðbertsson IS 2000, Bjarmi II, EA l&OO. Margrét SI 1800, Jón Kjartansson SU 1700. Isleifur IV. VE 1700. Sigurpáll GK 1600, Akurey RE 1600. Haf- rún IS, 1600, Höfrungur III. AK 1600, Sólfari AK 1500, Ólafur Bekkur ÓF 1500. Helga RE 1500, Snæfugl SU 1500, Jörundur III. RE 1500. Danir unnu nauman sigur í sund-landskeppninni við ís- lendinga, sem lauk í Hilleröd í gærkvöld. Munaði að- eins einu stigi í lokin. Set,t voru fjögur íslandsmet, og auk þess synti Davíð Valgarðsson 100 m. flugsundssprett- inn í boðsundinu á 1.02,9 mín, sem er undir íslandsmeti. Eftir bringusundskeppnina á sunnudag höfðu Danir fjögurra stiga forskot — 10 stig gegn 6. (Sjá íþróttasíðu). Fyrsta keppnisgreinin í gær, en þá var keppt í 25 m. laug, var 100 m. flugsund kvenna, Þar keppti Kirsten Strange fyrir Danmörku en Hrafnhildur Guð- mundsdóttir af fslands hálfu. Þetta var jöfn keppni og hörð, og hafði Hrafnhildur ; fullu tré við þá dönsku nema á 10 síð- us'tu metrunum, er hún dróst örlítið afturúr. Strange var ó- heppin og ógilti sund sitt með því að .koma rangt að marki (snertj aðeins annarri hendi í bakkann). Hrafnhildur hlaut þv; sigurinn og setti nýtt glæsilegt fslandsmet — 1.13,9 mín. Fyrra met Hrafnhildar var 1.17,0 mín., svo hér er um miklar framfar- ir að ræða Tími Strange í hinu ógilda sundi var 1.13,0 min. Eftir þessa grein stóðu stigin 11:10 íslandi í vil. Þá var keppt í 100 m. bak- sundi kvenna. Sigurvegari varð Kirsten Michelsen, Danmörku, á 1.11,2 mín Var aldrei neinn vafi um sigur hennar, enda er hún Norðurlandamethafi, og við átt- um enga stúlku sem gat ógnað henni. Ásta Ágústsdóttir synti fyrir ísland og hlaut tímann Fiskverðið óbreytt Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar- útvegsins náði samkomulagi á fundi sínum um lágmarksverð á ferskfiski tímabilið 1. júní til 31. desember 1964 og birtist auglýsing um verðið í Þjóðvilj- anum í dag. Fiskverð með upp- bót verður hið sama og verið hefur, fiskverðið sjálft hækkor um 2% frá dómsorðinu um sl. áramót en uppbólin lækkar að sama skapi. 1.25,3 min., sem er góður tími hjá svo ungri stúlku sem Ástu, en hún hefur ekki áður keppt á stórmóti erlendis. Eftir þessa grein voru stigin orðin 15:14 Dönum i vil. Næst var keppt í 100 m. skrið- sundi karla. Guðmundur Gísla- son sigraði örugglega á 57,0 sek. (2.6,4 á 5ft m.). Daninn Jens Kraus Larsen synti á 58,3 sek., sem er bezti tími er hann hefur náð. Þá voru stigin orðin 19:18 fyr- ir ísland. 200 m. baksund karla var næsta grein, en sigur Dana í þeirri grein var fyrirfram aug- ljós. Lars Kraus Jensen sigr- Framhald á 2. síðu. 900, Björg NK 700, Sigurpáll GK 1600, Fagriklettur GK 1200, Haf- rún NK 700, Gunnvör IS 400 og Þorlákur Ingimundarson ÍS 1300. Löndunar bíða nú níu bátar með um sjö þúsund mál. Þeir eru: Sigurður SI 800, Mímir ÍS 900, Sigrún AK 1100, Víðir SU 1000, Jón á Stapa 550. Húni HU 650, Páll Pálsson IS 900, Tjaldur SH 300 og Andvari KE 750 mál. Kemst Andvari ekki að að landa fyrr en aðfaranótt miðvikudags. Gengu af Unescoþingi GENF 13/7 — Fulltrúar Banda- ríkjanna, Vestur-Evrópu og S- Ameríku gengu af fundi á Kennslumálaþinginu i Genf í gær vegna þess að fulltrúar Asíu- og Afríkuríkja kröfðust atkvæða- greiðslu um ályktunartillögu sína, þess efnis að Pontúgal verði vik- ið af þinginu. UNESCO efhdi til þings þessa og sitja það fulltrúar 85 landa. Fulltrúar alþýðulýðveldanna og u.þ.b. 35 fulltrúar Asíu- og Afríkuríkja sátu kyrrir á sínum stað til þess að greiða atkvæði um þessa umdeildu tillögu. 43 fulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni, en 40 voru fjarverandi. Um leið og úrslit voru kunn tók fulltrúi UNESCO Gabriel Betan- cur til máls og sagði að samtök- in, sem hann væri fulltrúi fyrir gætu ekki lengur haldið þetta þing og mundu þegar í stað hverfa frá því. Að öðrum kosti mætti skilja sem svo að UNESCO væri samþykkt því sem gerst hefði á fundinum. Búsióðin látin rigna úti, gatan eina athvarfið Þjóðvíljinn skýrði frá því á föstudaginn, að útburður hefði átt sér stað á Hverfisgötu 76 b. Margt af fólkin, sem borið var út er enn athvarfslaust. Ein konan, sem bjó í húsinu með unga dóttur sína sneri málum sínum til blaðsins í gær. Skýrði hún svo frá að hún hefði vegna ..velvildar” húseigandans feng- ið inni í einni herbergiskytru i húsinu. Þar inni mátti hún auk Slæmt veður ou slæmur mmm f Skóparhélum I ausandi rigningu um síð- ustu helgi fóru fram kappre'ð- ar í Skógarhólum. Lítill árangur náðist 1 flestum greinum móts- ins vegna veðurs. Fjölmenni var mikið á mótinu. Keppt var í fimm gre:num á mótinu 800 metra stökki, 300 m. tölti 600 m. brokki, 250 m. skeiði og 300 m. stökki. Hrollur. eign Sigurðar Ólafs- sonar sigraði í skeiðinu á 26,6 sek. 1 brokki varð fyrst Stelpa Kristjáns Þorgeirssonar Tími hennar var 106,3 sek. Töltið vann Ægir eign Elínar Ingvars- dóttur og var hann eini hest- u”inn sem lá alla le'ðina. Tími Ægis var 50,8 sek. Kolbrún Kristjánsd. var knabi í tveim greinum, 800 m. stökki og 300 m. stökki. — Sigr- aði fákur hennar í bæði skiptin, I þrjú hundruð metrunum sat hún Grámann Sigurður Sigurð- arsonar og rann hann á 23,1 sek., en í átta hundruð metrun- um bar Logi Sigurðar S gurðar- sonar úr Rvík sigur af hólmi. Tíminn var 70 sek. sléttar. Vegna veðursins náði enginn hastur tilskildum tíma til að hljóta verðlaun og voru því eng'n veitt. Þau sex hestamannafélög, sem tóku þátt i keppninni, efndu til hópreiðar Hestamannafélagið á Selfossi, Sleipnir, var álitið glæsilegast í hópreiðinni. þess hafa einn stól og dýnu til að liggja á. Hins vegar liggnr búslóð hennar enn úti og er ekki sýnt að úr rætist um skjól fyrir hana. Hiti er nú enginn í húsinu og veiktist dóttirin í fyrrinótt. Vár líðan hennar orðin svo slæm í fyrrinótt að móðir hennar hringdi í næturlækni sem kom og krafðist þess að hún yrði flutt á brott samstundis þar sem hún hafði 40 stiga hita. Lofaði móðirin því að koma henni á betri stað strax og unnt vær'. En þegar hún hafði samband við blaðið í gær var allt í sama horfinu og ekkert útlit fyrir nokkra úrlausn. Konan tjáði blaðinu einnig að hún hefði gert ítrekaðar til- raunir til að ná í þann aðila hjá bænum er hefur með slíka hluti að gera en sá hefur ann- aðhvort sagt henni að hann gæti ekkert gert fyrir hana eða þá að hann hefur hreinlega vísað henni á dyr. Staðreyndirnar í málinu eru sem sé þær að veik kona er með 14 ára gamla dóttur sína í hita- lausu og húsgagnalausu i-,ovherr, cvvjr ntan herbergis- dugpr- ''-t aci líta búslóð Framhald á 9. síðu 4 t

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.