Þjóðviljinn - 21.08.1964, Side 4
J
/
4 SIÐa
HÖÐVILIINN
Föstudagur 21. ágúst 1954
Hundraí þúsund manns á útifundi
Otgelandi: Sameimngarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokk-
urínn. —
Ritstjórar: tvar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavöröust 19,
Simi 17-500 (5 linur). Áskriftarverð kl 90,00 á mánuði.
HVENÆR?
j dag hefjast viðræður um skatta- og útsvarsmál-
in milli ríkisstjórnarinnar og fulltrúa frá Al-
þýðusambandinu og Bandalagi starfsmanna rík-
is og bæja. Launþegar allir munu fagna þessum
viðræðum í trausti þess, að ríkisstjórnin hafi
fallizt á þær með það fyrir augum að leitað verði
úrræða til þess að létta á hinni gífurlegu skatt-
píningu. Jafnt einstakir ráðherrar sem málgögn
ríkisstjórnarinnar hafa nú játað það opinberlega,
að skattaálögunar í ár séu mun meiri en til var
ætlazt, þegar skattstigunum var breytt á þingi
s.l. vetur. Og einnig er viðurkennt af stjórnar-
flokkunum að þessi stóraukna skattheimta á al-
menniiigi komi nú ranglátar niður en nokkru
sinni fyrr, vegna þess að skattsvik þeirra aðila,
sem aðstöðu hafa til að fela tekjur sínar á ein-
hvern hátt og skjóta þeim undan skatti, eru nú
stórfelldari en áður hafa þekkzt dæmi til. Ríkis-
stjórnin hefur einnig opinberlega lýst því yfir, að
í undirbúningi séu ráðstafanir til þess að breyta
skattalögunum og koma í veg fyrir að það rang-
læti, sem nú blasir við allra áugúm endurtaki sig
við skattlagningu á næsta ári. En Alþýðusamband
íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
ásamt stjórnarandstöðuflokkunum báðum, hafa
hins vegar bent á það með gildum rökum, að hin-
ar opinberu álögur ofbjóða gjaldþoli alls þorra
launafólks. Endurmat skatta og útsvara á þessu
ári, eða aðrar ráðstafanir til þess að létta skatta-
byrðarnar eru því nauðsynlegar, beinlínis til þess
að forða fjölmörgum heimilum frá neyðar-
ástandi.
jjanglæti skattheimfunnar og-ofurþungi byrðanna
er þegar viðurkenndur af öllum, en ágreining-
urinn virðist hinsvegar vera um það, hvenær þetta
ranglæti eigi að leiðrétta. í hverju siðuðu þjóðfé-
lagi munu ábyrgar ríkisstjórnir telja það frum-
skyldu sína að koma í veg fyrir augljóst og opin-
berlega viðurkennt ranglæti. Til þessa hefur þó
íslenzka ríkisstjórnin virzt telja það sjálfsagt og
eðlileg'f, að það ranglæti sem viðurkennt er af
ráðherrunum og staðfest af málgögnum stjórnar-
innar, verði látið dynja yfir íslenzka skattþegna
án allrar miskunnar fram á næsta ár. Stjórnar-
andstöðuflokkarnir og helztu hagsmunasamtök
launþega, ASÍ og BSRB, leggja hins vegar á það
höfuðáherzlu að þetta ranglæti verði að leiðrétta
án tafar.
^lþýðusambandið benti réftilega á það, þegar það
óskaði eftir viðræðunum við ríkisstjórnina, að
skattaálögurnar væru andstæðar griðasáttmálan-
um, sem verkalýðsfélögin gerðu við ríkisstjórnina
í vor. Því verður naumast trúað að óreyndu að
ríkisstjómin vilji rjúfa þann griðasáttmála til
þess að geta „praktiserað" ranglæti í sfað þeirra
réttlátu leiðréttinga, sem aímenningur á fyllstu
kröfu á í skattamálunum. — b.
Skólamót
í Arósum
100.000 manns sóttu útifund sem haldinn var í Peking, höfuðborg Kína, hinn 9. ágúst sl., til að
mótmæla árásum Bandaríkjanna á Norður-Vietnam. A myndinni sést aðalræðupiaður fundarins
í ræðustól, Liao Sjeng-sí. A stórum kröfuborðum er valdstefna Bandaríkjanna fordæmd og þjóð-
ir heims hvattar til að snúast gegn hcnni sameinaðar.
Eiming saltvatns er mikil-
væg fyrir vanþróuð lönd
þar sem nota þarf mikið magn
af ódýni vatni. .
Skorturinn á ferskvatni er
■ í nýbirtri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum
er látin í ljós varkár bjartsýni varðandi hlutverk-
ið' sem eiming saltvatns kann að eiga eftir að helzta hindrun efnahagsiegrar
þróunar á svæðunum sem
gegna 1 sambandi við vatnslitil svæði vanþro- rannsökuð vorU, segir í skýrsi-
unni. Þess vegna er eiming.
þar sem hún ér fjárhagsJega
og tæknilega framkvæmanleg,
orðin mikilsverður þáttur í
bættum efnahagsaðstæðum og
möguleikum.
En eimað saltvatn er samt
eins Og stendur alimiklu dýr-
ara en venjulegt ferskvatn. A
svæðunum1 sem 1 könnuð voru,
var safnað upplýsingum um 61
eimingarstöð, en þessar stöðvar
framleiða samtals 77.000 rúm-
metra á dag. Verðið á hinu
eimaða sáltvatni er frá 16 kr.
á rúmmetra í Kúwait upp í 130
krónur í Máretaníu.
(Frá S.Þ.)
uðu landanna. Skýrslan styðst við rannsóknir í
43 löndum og þar er bent á, að síauknar tilraun-
ir í iðnaði og vísindum til að framleiða betri og
ódýrari eimingartæki veiti fyrirheit um fjöl-
breytilegra úrval tækja á samkeppnishæfu verði
og bendi til áframhaldandi lækkunar á kostnaði
við uppsetningu. eimingartækja.
Væntanleg hækkun á ejn-
staklingstekjum á vanþróuðu
svæðunum ætti að auka mögu-
leika á að gera hið tiltölulega
dýra eimaða saltvatn aðgengi-
legt venjulegum neytendum,
segir í skýrslunni. Að því er^
varðar svæði, þar sem vatns-
skortur er hugsanlegur. felur
eimingin í sér ákveðna trygg-
jngu fyrir því, að ósalt vatn
verði fyrir hendi í framtíð-
inni, að því tilskildu að það
verði fjárhagslega gerlegt og
að umrædd svæði liggi í hæfi-
legri fjarlægð frá hafjnu eða
stöðuvötnum með hálfsöltu
vatni.
1 Skýrslu Sameinuðu þjóð-
anna segir, að í löndunum sem
könnuð voru virðist vera a.m.
k. 50 vatnslítil svæði, þar sem
æskilegt væri að rannsaka
tæknilega og fjárhagslega mögu-
leika á að nota eimað vatn.
Er þar fyrst og fremst um að
ræða ósalt vatn /til annarra
þarfa en landbúnaðar, þar
sem eimað saltvatn hefur ekki
ennþá reynzt vera nægilega ó-
dýrt til vökvunar og áveitu,
Dagana 6. — 8. ágúst sl. var
haldið skólamót í Árósum í
Danmörku og þess minnzt sér-
staklega, að á þessu ári, eða
nánar til tekið hinn 29. júlí,
eru liðin 150 ár frá því að
fyrst var sett almenn skólatil-
skipun í Da«-
kennarasambandið hafði veg
og vanda af móti þessu í sam-
ráði við menntamálaráðuneyt-
i(5 og nokkurri f járhagslegri
aðstoð úr ríkissjóði Dana.
Mjög var vandað til móts
þessa. Konungshjónin voru við-
stödd opnun mótsins ásamt
tveimur dætrum sínum, en rík-
isarfinn var við fornleifagröft
einhversstaðar í Danaveldi.
Menntamálaráðherrann, Helveg
Petersen og Stinus Nielsen, for-
maður kennarasambandsins,
fluttu ræður við opnunina.
Barnakór Qg blandaður kór
kennara sungu allmörg ljóð og
lög, er notuð höfðu verið í
skplum á þeim 150 árum, sem
liðin eru síðan skólatilskipun-
in var sett og vakti sá flutn-
ingur mikla athygli.
Flutt voru nokkur erindi á
skólamótinu og þá fyrst óg
fremst um aðdraganda að setn-
ingu skólatilskipunarinnar og
þá þróun, er orðið hefur í
fræðslumálum þjóðarinnar í
hálfa aðra öld Gestir móts-
ins sátu fagnað hjá mennta-
málaráðherra og formanni
danska kennarasambandsins og
borgarstjóm Árósa bauð öllum
þátttakendum, sem voru um
1100, til kaffidrykkju í ráðhús-
inu.
Helgi Elíasson, fræðslumála-
stjóri og Skúli Þorsteinsson,
form. sambands íslenzkra
bamakennara voru boðnir sem
fulltrúar fslands. Dagana fyrir
mótið sátu þeir einnig full-
trúaþing danska kennarasam-
bandsins.
■ Haldin var athyglisverð sýn-
ing á ýmiss konar kennslu-
tækjum í sambandi við mót-
ið. í lokaræðu sinni á skóla-
mótinu gat Stinus Nielsen,
formaður danska kennarasam-
bandsins þess, að á næsta
sumri yrði í fyrsta sinn hald-
ið norrænt skólamót á íslandi
og hvatti hann áheyrendur
sína til þess að sækja það mót.
60 þúsund frá V-Þýzkalandi
austur yfír á þremur árum
■ Á þeim þremur ár-
um sem liðin eru síðan
mörkum Austur- og
Vestur-Berlínar var
lokað og múrinn frægi
Pélverjar hyggjast
stórauka fískveiS-
ar á næstu árum
Pólverjar hafa uppi áform um að stórauka —
meira en þrefalda — fiskveiðar sínar á næsta
hálfum öðrum áratug, segir í frétt í brezka fisk-
veiðitímaritinu Fishing' News.
Pólverjar gera ráð fyrir að
eignast 56 nýja frystitogara á
þessu tímibili. 47 verksmiðju-
togara og 102 vélskip, togvelði-
skip sem búin verða tækjum
til frystingar aflans. Ennfrem-
ur er ætlun Pólverjanna að
smíða 30 skip til túnfisksveiða.
I áætlun þessari er gert ráð
fyrir að auka aflamagnið, sem
pólsk skip flytja til lands, úr
270 þúsundum lesta á næsta
ári í 900 þúsund lestir árið
1980. Er miðað við, að alfinn
af miðunum á Norður-Atlanz-
hafi aukizt um 480 þúsund
lestir. en 210 þús. lestir af
miðum Suður-Atlanzhafsins.
reistur hafa 5ð.756 Vest-
ur-Þjóðverjar og Aust-
ur-Þjóðverjar, sem bú-
ið hafa um skeið í Vest-
ur-Þýzkalandi snúið til
Þýzka alþýðulýðveldis-
ins og beðizí landvistar
þar.
Frá þessu var nýlega sagt í
Neues Deutschland, aðalmál-
gagni sósíalska einingarflokks-
ins í Austur-Þýzkalandi, og
blaðið bættj við að meðal
þeirra sem austur á bóginn
hefðu snúið væri mikill fjöldi
ungmenna sem fyrr á árum S>
hefðu horfið ólöglega frá Þýzka
alþýðulýðveldinu yfjr til Vest-
ur-Þýzkalands með foreldrum
sínum.
Miljónjr hcimsækja ÞAL
Blaðið segir að áhugi Vestur-
Þjóðverja og fleiri þjóða ó
þróun og framvindu má'la i
Austur-Þýzkalandi og höfuð-
borg þess fari greinilega vax-
andi ár frá óri og nefnjr því
til sönnunar nokkrar tölur.
Frá 13 ágúst 1961 til þessa
dags í ár hafa 5.859.873 vestur-
þýzkir borgarar heimsótt
Þýzka alþýðulýóveldið. Gestir
frá liðlega 100 þjóðlöndum
voni á sama tíma 1.905.290
talsins 1.318.519 Vestur-Berlín-
arbúar notfærðu sér samkomu-
lagið milli yfjrvalda Þýzka al-
þýðulýðveldisins og Vestur-
Berlínar og heimsóttu ættingja
sína og vini í Austur-Berlín á
tímabilinu frá 17. desember
1963 til 5. janúar 1964.
Á þeim þrem árum sem liðin
eru síðan Berlínarmúrinn var
reistur hafa á fjórða þúsund
sendinefndir frá um það bil
100 löndum skoðað borgar-
mörkin og múrinn við Brand-
enborgarhliðið. Flestar voru
þessar sendinefndir frá Frakk-'
landi, en einnig margar frá
Danmörku og Englandi, Belgiu,
Austurríki, Finnlandi, Svíþjóð
og Vestur-Þýzkalandi, svo fá*
ein lönd séu nefnd.
Formalismi
Norski bókmenntafræðingur-
inn Martin Nag skrifar grein
í „Dagbladet” þar sem hann
telur, að í Sovétríkjunum fari
nú fram endurreisn á bók-
menntafræðistefnu sem kölluð
hefur verið „formalismi” og
mátti sín mikils um 1920.
Frömuðir þessarar stefnu lögðu
höfuðáherzlu á það. að bók-
menntaverk væru fyrst og
fremst gagnrýnd sem sjálf-
stæður veruleiki,, en minni
gaumur gefinn almennum sögu-
- legum skilyrðum, sem bók-
menntir. skapast í.
t
i