Þjóðviljinn - 21.08.1964, Síða 5
Föstudagur 21. ágúst 1964
HOÐVILIINN
StÐA
Keflvíkingar
keppa í Eyium
l_ • gk m um helgina
íslandsmeistarar ÍBV í 4. flokki
bessir drengir frá Vestmannaeyjum sigruðu með miklum yfirburðum í 4. fl. á fslandsmótinu í
knattspyrnu, sigruðu i öllum Ieikjum og skoruðu 40 mörk gegn 3, þar af skoraði fyrirliði liðsins,
Geir Sigurlásson, 24 mörk. Aftari röð f.v.: Þorvaldur Kristleifsson, Einar Friðþjófsson, Geir Sig- j
urlásson, Gísli Sighvatsson, Ingólfur Grétarsson, Friðfinnur Finnbogason, Georg Kristjánsson, '
Öskar Ölafsson, Guðmundur Guðlaugsson, Fremri röð f.v.: Óskar Valtýsson, Kristján Sigurgeirs-
son, Hafsteinn Guðfinnsson, Ölafur Pálsson. — (Ljósm. Eggert Sigurlásson).
Norðmenn unnu Rnna
í Þrándheims með 2:
íslenzkir knattspyrnu^nnendur hafa sjálfsagí
haft töluverðan áhuga á landskeppni þeirri í
knattspyrnu sem fram fór í Þrándheimi í gær
milli Noregs og Finnlands, en finnska landsliðið
er einmitt væntanlegt hingað beint frá Noregi
og keppir við það íslenzka á sunnudaginn kemur
á Laugardalsvellinum. Leikar fóru þannig að
Norðmenn sigruðu 2:0 og norska B-liðið vann
einnig það finnska í Kuopio í Finnlandi með sömu
úrslitum.
Norska fréttastofan NTB seg-
ir að Norðmenn hafi verið vel
að sigrinum komnir og sýnt
fyrsta flokks leiktækni — eig-
inlega hafi sigurinn getað orð-
ið glæsilegri að markatölu.
Finnar áttu fá góð tækifæri,
einkum í fyrri hálfleik en
Norðmenn héldu uppi nokkurn
veginn stöðugri sókn. Gátu
Finnar aðeins varizt því að
fleiri mörk en tvö voru skoruð
í þessum hálfleik, að Norðmenn
voru full ákafir í sókninni. og
Finnar áttu allgoða varnarleik-
menn og beittu óspart þriggja
bakvarða leik. Ennfremur sýndi
-----------------------------------<í>
★ Valeri Buliséff frá Lenin-
grad setti i fyrradag á móti
í Kiev nýtt sovézkt met í
800 m hlaupi 1:46,9. Fyrra
metið var 1: 47,4 mín.
finnski markmaðurinn Matti
Halme, af sér ágæta frammi-
stöðu.
Norðmenn áttu gott tæki-
færi á fjórtándu mínútu, er
Finn Seemann skaut í mark-
slá úr góðu færi. Fyrsta mark-
ið kom svo sjö mínútum síðar.
er Harald Berg, sem staddur
var innan vítateigs, fékk góða
sendingu frá Harald Sunde og
skoraði mjög snarlega. Seinna
markið skoraði svo Finn See-
mann úr glæsilegu, löngu skoti.
Eftir hlé var leikurinn jafn-
ari og Finnar gerðu nokkur
sæmileg upphlaup, en tókst
ekki að skora, þótt vörn Norð-
manna væri ekki alltaf upp á
hið bezta, en markmaður
þeirra, Kjell Kaspersen, var
ákafiega öruggur og hreinsaði
glæsilega frá, þótt bakverðir
brygðust.
Engin sérstök tíðindi urðu í
seinni hálfleik við finnska
markið, enda gættu Finnar þess
jafnvel enn betur en í hinum
fyrra.
Mest lfcf af hinum finnsku
keppendum fá markvörðurinn,
hægri bakvörðurinn, Perti Mak-
ipaa (einkum í seinni hálfleik)
og miðframvörðurinn Arno
Rinne lék eins iog engill allan
tímann. Sóknin fær hinsvegar
ekki eins góða dóma, en þó
sýndu útherjamir allgóð til-
þrif
Rigning var er leikurinn fór
fram og völlurinn ákaflega
blautur. en þó lögðu 16800 á-
horfendur leið sína inn í Læ-
virkjadal þar sem keppnin fór
fram.
Það vakti og nokkra athygli,
að Finnar lögðu til hliðar hin-
ar bláu treyjur sínar eftir
fyrri hálfleik og léku í al-
hvítum búningi upp frá því.
Framhald á 9 síðu
KODACHROMEII
KODACHROMEX
(19 din )
LITFILMUR
Þér■
getið treyst
Kodak filmum
— mest seldu filmum i heimi —
KODAK litfilmur
skila réttari litum
og skarpar' myndum
en nokkrar aðrar litfilmur.
Knattspymumenn í Vest-
mannaeyjum búa sig nú af
kappí undir úrslitaleikinn í 2.
deild, sem væntanlega verður
við Akureyringa, þótt það sé
ekki endanlega ljóst.
Um síðustu helgi léku þeir
við B-lið Akurnesinga í bik-
arkeppnjnni, og lauk þeim leik
með naumum sigri Vestmanna-
eyinga eftir mesta markaregn,
sem um getur í knattspyrnu-
leik hér. 9 mörk gegn 8. Þórð-
ur Þórðarson skoraði flest
mörk Akumesinga, en Aðal-
steinn Sigurjónsson var drýgst-
ur ap skora fyrir Vestmanna-
eyinga.
ISfú um helgina koma Kefl-
víkingar til Eyja og leika
gestaleik við Tý, en flestir úr
liði IBV eru í Tý. Einnig verða
Víkingar þar á ferð um helg-
ina og keppa við hina nýbök-
uðu íslandsmeistára IBV í 4.
fl.
Bnyrrw!i
★ Norræna Olympíunefnd-
in ákvað á fundi sínum á
miðvikudag að fyrsti hópur
keppendanna á OL í Tókíó
fari af stað 30. sept.. en
annar hópur leggi af stað 2.
okt. Olympíuleikarnir byrja
sem kunnugt er 10. okt. Farið
verður með flugvél frá SAS,
og keppendur leggia svo fljótt
af stað, til að þeir geti aðlag-
azt þeim tímamismun, sem er
í Japan og á Norðurlöndum,
en hann er 9 klst. Reiknað
er með að 320—360 þátttak-
endur verði frá Norðurlönd-
um. Flogið verður frá Stokk-
hólmi um Alaska til Tokio
og tekur íerðin um. 17 kl&þ,
Heimleiðis verður farin hin
svonefnda syðrileið SAS, þ.
e. um um Tailand, og er
áætlað að stanza nokkra daga
í Bankok.
★ Á föstudaginn var flaug
japönsk DC-6B-flugvél frá
Tokio til Aþenu, og flytiir
Olympíueldinn þaðan um 16
þús km veg til Okinawa.
Flugvélin fer frá Aþenu 23. þ.
m. og flýgur yfir 11 lönd á
leiðiHnj til Okinawa, en þar
tekur önnur flugvél við.
utan úr heimi
Bandarískur þjálfari í
körfubolta á vegum KKI
Körfuknattleíkssamband 1»-
lands mun halda námskeið fyr-
ir ' áhugakörfuknattleiksþjálf-
ara dagana 4. 5. og 6. sept-
embcr n.k.
Aðalkennari á námskeiðinu
verður Mr. Gudger, körfu-
knattleiksþjálfari frá Banda-
ríkjunum, sem kemur hingað
á vegum Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna.
Mr. Gudger hefir í sumar
starfað í Svíþjóð og í Finn-
landi á vegum körfuknattleiks-
sambandanna þar og hefir KKl
fregnað frá þessum aðilum að
Mr. Gudger væri alveg frá-
bær kennari. Væntir samband-
ið að körfuknattleiksmenn nóti
þetta tækifæri. en mikill skort-
ur er á þjálfurum hjá félög-
unum.
Auk þess að halda þetta
briggja daga námskeið fyrir á-
hugaþjálfara, mun Mr. Gud-
ger kenna körfuknattleik á
námskeiði fyrir íþróttakennara,
sem haldið er á vegum
Fræðslumálastjórnarinnar í 1.
viku september.
Körfuknattleiksmenn, sem
sækja vilja þjálfaranámskeiðið.
eru beðnir að senda þátttöku-
tilkynningar til stjómar KKl,
pósthólf 864, Reykjavík, fyrir
1. september.
A-þýzkar stúlkur ó OL
—áWíkís;:,..
í hinu sameiginlega þýzka Iiði i flokkaleikfimi kvenna á Olympíu-
leikunum í Tokío í haust verða eingöngu stúlkur frá austur-
þýzka alþýðulýðveldinu. Eftir úrtökukeppnina við Vestur-Þýzka-
Iand voru v#ildar þessar átta, sem sjást hér á myndinni.
Handknattleiksmótið
Valur varð Islandsmeistari
í báðum kvennaflokkum
Islandsmótinu í handknatt-
leik utanhúss, sem haldið var
á Hörðuvöllum í Hafnarfirði,
Iauk í fyrrakvöld með úrslita-
leik í mfl. kvenna milli Vals
og Fram. Valsstúlkurnar sigr-V
uðu með 8 mörkum gegn 7 (í
hálfleik stóð 5:3.) Þetta er í
fyrsta sinn sem Valur verður
íslandsmeistari í mfl. kvenna
utanhúss.
Valur varð einnig Islands-
meistari í 2. fl. kvenna með
því að vinna Ármann í úrslita-
leik með 8:1. Valsstúlkumar.
sem einnig voru fslandsmeist-
arar í fyrra, voru vel að sigr-
inum komnar skonuðu alls 36
mörk gegn 9. Þjálfari Vals í
kVennaflokknum er Þórarinn
Eyþórsson.
Næsta mánudag leggja þess-
ar ágætu handknattleiksstúlkur
1 Vals af stað í keppnisferð um
Norðurlönd. Þær fara fyrst til
Noregs og keppa þar við 4 lið,
þar af 2 beztu kvennalið í
Noregi. Síðan halda þær til
Svíþjóðar og leika þar 3 leiki
og loks 1 leik í Danmörku. Alls
verða 17 stúlkur með í förinni
og auk þeirra þjálfarinn. Þór-
arinn Eyþórsson. og fararstjóri
Róbert Jónsson.
Félagsheimili ÆFR
□ Æskufólki skal bent á félagsheimili Æsku-
lýðsfylkingfarinnar, Tjarnargötu 20, uppi.
□ Það er opið mánudaga, þriðjudaga, fimmtu-
daga og föstudaga frá kl. 20.30 til 23.30.
□ í félagsheimilinu er hægt að fá keyptar
veitingar á vægu verði. Ennfremur er hægt
að stytta sér þar stundir við tafl, spil og
lestur góðra bóka.
□ Komið og reynið viðskiptin.
I
«
I
i
i