Þjóðviljinn - 07.11.1964, Page 2
SÍÐA
ÞJ6ÐVILJINN
Laugardagur 7. nóvember 1964
Brýn þörf víðtækra ráðstafana til
eflingar atvinnulífinu norðanlands
Kjördæmisþing Alþýðubanda-
lagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra gerði á nýloknu þingi
sínu þessa ályktun um at-
vinnumál:
Kjördæmisþing Alþýðubanda-
lagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra, haldið á Akureyri 1
nóvember 1964, telur mjög
brýnt að unnið verði ötullega
að þvi að efla og treysta at-
vinnuvegi íbúanna í kjördæm-
inu og að atvinna verði svo
mikil og samfelld, að hún full-
nægi þörfum almennings svo
vel, sem nútímasamfélag hlýt-
ur að krefjast.
Hins mikla góðæris, sem
gengið hefur yfir landið síð-
ustu ár — vegna óvenjulega
mikils fiskafla og hækkandi
verðs sjávarafurðanna — hefur
ekki gætt á Norðurlandi, þar
sem afli hefur farið minnk-
andi undanfarin ár úti fyrir
öllu Norðurlandi, á það við
bæði síldveiðar og aðrar fisk-
veiðar. Flest hinna stóru fiski-
skipa frá Norðurlandi hafa því
stundað veiðar við Suðurland
yfir vetrartímann og lagt þar
upp afla sinn, og ennfremur
lagt upp mikinn hluta síldar-
aflans að sumrinu á Austfjörð-
um. Af framangreindum á-
stæðum hafa vinnslustöðvarn-
ar, bæði fyrir síldarvinnslu og
aðra fiskvinnslu, flestar búið
við stöðugan skort á hráefni
til starfsemi sinnar, og því
samfara verið stopul og ófull-
nægjandi atvinna verkafólks á
þessu svæði. Á hinni miklu
síldveiðivertíð sl. sumar, sem
stóð nærri 5 mánuði, fengu
, þggr 5 síldarverksmiðjur sem
stariræktar eru í kjördæminu,
aðeins síldarafla, sem svarar
til 22ja til 23ja sólarhringg
vinnu miðað við full viftnslu-
afköst þeirra samanlagt. Hinar
2o síldarsöltunarstöðvar á
svæðinu fengu þó hlutfallslega
miklu minni verkefni á sumr-
inu, og sumar fengu enga síld
til verkunar. Þetta úrræðaleysi,
að möguleikamir til að salta
meira af síld á Norðurlandi
voru látnir ónotaðir, leiddi til
þess, að skorta mun um 80 til
90 þúsund tunnur saltsíldar til
að staðið verði við fyrirfram
gerða sölusamninga um salt-
síldarafla sumarsins.
Þorskveiðiútvegurinn, sem
stundaður er á um það bil 50
þilfarsbátum (flestum litlum)
auk fjölda opinna vélbáta, á
í stöðugt vaxandi erfiðleikum
og liggur nú við stöðvun vegna
minnkandi afla, sérstaklega
tvö sl. ár. Á afla þessa báta-
flota hefur nær öll fiskvinnsla
í kjördæminu byggzt, og er
því einn mikilvægasti þáttur
atvinnulífsins í sjóplássunum
í mikilli hættu staddur, ef ekki
verða gerðar nú þegar sérstak-
ar ráðstafanir til stuðnings
bátaútveginum, sem fiskveiðar
stundar við Norðurland.
Hvað snertir verksmiðjuiðn-
aðinn, sem vaxið hefur upp —
sérstaklega á Akureyri — á
síðari érum, hefur nú gert
vart við sig verulegur sam-
dráttur í einstökum greinum
hans, sem er afleiðing hins al-
frjálsa innflutnings á þeim
vörum. sem þessar verksmiðj-
ur hafa verið byggðar upp til
að framleiða. Er hér óhyggi-
lega og í flestu tilliti ómak-
lega vegið að hinum unga iðn-
aði.
Þingið telur eftirgreindar
aðgerðir mest aðkallandi nú til
að treysta og efla atvinnulífið
í Norðurlandskjördæmi eystra:
1. — Að gerðar verði nú
þegar ráðstafanir til að hag-
nýttar verði svo vel, sem kost-^.
ur er, þær síldarvinnslustöðv-
ar, sem fyrir eru nú. Verði
útveguð svo mörg hentug flutn-
ingaskip til flutninga á sild
frá aðalsíldveiðisvæðunum til
vinnslustöðvanna, sem til eru I
og of fjarri liggja fyrir veiði-
skipin að sigla til þeirra með j
afla sinn. Verði nú hafizt
handa um stofnun félags með
þátttöku ríkisins, bæja- og
sveitafélaga og annarra þeirra
aðila sem mikilla hagsmuna
eiga að gæta í þessu efni, til
kaupa' og reksturs skípastóls
til flutninganna. Komið verði
því skipulagi á löndun bræðslu-
síldar, að hún fari fram und-
ir stjórn einnar miðstöðvar,
sem hafi samband við veiði-
skipin og hagi störfum þann-
ig, að afkastageta veiðiskip-
anna og vinnslustöðvanna nýt-
ist sem bezt.
Um leið og afkastageta síld-
arvinnslustöðvanna verði með
framangreindum hætti nýtt,
svo sem kostut er á, telur
þingið að draga mætti úr hinni
gífurlegu fjárfestingu í síldar-
verksmiðjum, sem óhjákvæmi-
lega hlýtur, ef henni er fram
haldið til lengdar, að lækka
stórlega síldarverð og rýra
þannig hlut útvegsmanna og
sjómanna. Þó telur þingið bygg-
ingu síldarverksmiðja á Þórs-
höfn, þegar á næsta ári, óhjá-
kvæfnilega vegna atvinnuá-
standsins þar.
2) — Vei’ttur verði nauð-
synlegur stuðningur við fiski-
bátaútveginn í Norðurlandi,
svo hann ekki stöðvist og vand-
ræði hljótist af í mörgum sjó-
plássum. Verði í því sambandi
athugaðir vel möguleikar á
því, að Aflatryggingasjóður
verði efldur með auknu fram-
lagi ríkissjóðs og regl'um um
starfsemi hans breytt með það
fyrir augum, að hann geti
þjónað þessu hlutverki svo vel,
að nægt geti bátaútveginum
meðan aflatregðan varir. Enn-
fremur verði gerðar ráðstafan-
ir til að fiskverð hækki svo
sem efni frekast standa til,
og sé við verðlagninguna tek-
ið fullt tillit til þarfa útgerð-
arinnar. Jafnframt verði stór-
minnkaður verðmunur á stór-
um fiski og smáum frá því,
sem nú er.
3. — Unnið verði að því með
hagkvæmum lánum að koma
upp verksmiðjum til að leggja
og sjóða niður síld í stórum
stíl. Enda verði með aðstoð
þess opinbera unnið kappsam-
lega að sölu þeirrar vöru á
erlendum mörkuðum.
4. — Aukin verði til mik-
illa muna fjárframlög til hafn-
arframkvæmda í kjördæminu
svo að þær hafnir, sem hafin
er bygging á, verði á næstu
árum sæmilega öruggar fyrir
báta og skip til að athafna sig.
5. — Stofnað verði til ríkis-
útgerðar nokkurra togara eða
annarra hentugra fiskiskipa í
þeim tilgangi að veita þeim
hraðfrystihúsum, sem búa við
tímabundinn hráefnisskort
vinnuskilyrði í samræmi við
atvinnuþarfir viðkomandi sjáv-
arþorpa.
6. — Iðnaði þeim, sem reynzt
hefur vel, hvað vörugæði og
verð snertir, verði gert fært
að starfa áfram og eflast, m.
a. með því að létta tollum af
innfluttum hráefnum til fram-
leiðslunnar og með nauðsyn-
legum lánum með hagkvæmum
lánskjörum. Verði þess gætt, að
slíkum iðnaði verði ekki of-
boðið með hömlulausum inn-
flutningi samskonar iðnaðar-
vara.
SFX NÝJAR BÆK-
UR FRÁ ÍSAFOtD
□ Greinasafn eftir Snæbjörn Jónsson, ný
skáldsaga eftir Jakob Jónasson, önnur útgáfa á
Ilmi daganna eftir Guðmund Daníelsson, þýddar
skáldsögur eftir Anitru og Jack London og tvær
íslenzkar unglingabækur, þetta eru nýjustu út-
gáfubækur ísafoldar.
Misvindi kalltif Snæbjörn
Jónsson greinasafn sitt. Segir
hann í formála að bókin flytji
nokkur dæmi ádeilugreina
sinna — í sumum greinanna
sé engu orði haggað, en aðr-
ar séu með nýjum viðaukum
Rannsóknarkona (Laborant)
Rannsóknarkona óskast til staría í rann-
sóknarstofu Borgarspítalans í Reykjavík.
Umsóknir um starf þetta sendist í skrif-
stofu Sjúkrahúsnefndar Reykjavíkur Heilsu-
verndarstöðinni Barónsstíg 47.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember n.k.
Reykjavík, 6. nóvember 1964.
Sjúkrahúsnefitd Reykjavíkur.
Trésmiöur
óskast til vinnu á verkstæði voru.
Upplýsingar í síma 22150 frá kl. 9—5,
daglega, nema laugardaga kl. 10—12.
Vinnuheimilið að Reykjalundi
Guðmundur Danielsson.
og stundum nokkrum úrfell-
ingum.
Víða komið við
Snæbjöm Jónsson hefur sem
kunnugt er skrifað æði marg-
ar blaðagreinar um sína daga
og um hin margvíslegustu
efni. Elzta greinin í þessu nýja
greinasafni hans er frá árinu
1927, sú jmgsta frá þessu ári.
Nokkur greinaheiti gefa hug-
mynd um efnisval: Undur dul-
arheima. Um miðilsstarfsemi.
Bókasöfn látinna rithöfunda.
fslenzk blaðamennska. Rödd
kristinnar kirkju. Allmargar
minningargreinar og afmælis-
greinar eru og birtar í safn-
inu, sem er um 240 blaðsíðna
bók, með nokkrum myndasíð-
um.
Þess má geta í sambandi við
útgáfu bókarinnar, að ísafold
hefur tekið upp þá nýbreytni
að prenta á innaverða hlífðar-
kápu bókarinnar skrá yfir all-
margar forlagsbækur útgáfu-
fyrirtækisins.
Segir frá fyrstu rithöfundar-
árum sínum
Skáldsaga Guðmundar Daní-
elssonar Ilmur daganna kemur
nú sem fyrr var sagt í 2. út-
gáfu. Er þetta önnur bókin
sem út kemur hjá Isafold í rit-
safni Guðmundar; í fyrra kom
fyrsta skáldsaga höfundar,.
Bræðurnir í Grashaga, út sem
fyrsta hefti ritsafnsins.
Hmur daganna kom fyrst út
fyrir 28 árum, haustið 1936.
í ýtarlegum eftirmála þessar-
ar nýju útgáfu bókarinnar rek-
ur höfundurinn ritferil sinn
og þroskasögu frá því fyrsta
bók hans, ljóðabókin Ég heilsa
þér, kom út 1933, og þar til
Ilmur daganna er komin á
prent. Guðmundur segir frá
því hvernig fyrstu skáldsög-
umar hans tvær urðu til,
hvaða menn, innlendir og er-
lendir, og bókmenntaverk
höfðu mest áhrif á hann um
þær mundir sem hann vann
að fyrstu verkum sínum og
frá ’ margháttuðum ytri að-
stæðum sem hann bjó þá við.
Ennfremur segir f eftirmálan-
um frá þeim viðtökum, sem
þessar bækur hlutu hjá ál-
menningi og ritdómurum.
Bókin er 187 blaðsíður.
Fjórða skáldsagan
Hin nýja skáldsaga Jakobs
Jónassonar nefnist Myllusteinn-
inn og er fjórða saga höfund-
arins, 223 blaðsíðna bók. Und-
irtitill bókarinnar er: Dagbók
Sverris Jónssonar Helgustöðum
— Blásandi.
Á kápusíðu bókarinnar segir
Framhald á 9. síðu.
Takiðeftir - Takiðeftir
Það er ódýrt að leigja bíl.
Vetrarverð — Lækkað verð
Bílaleiga Magnúsar
Skipholti 21 — Sími 21190 — 21190.
PIANO SERVICE Píanóstillingar
TUNING ^ OTTO RYEL
REPAIRING Sími 19354.
SOLUBORN ATHUGIÐ:
Merkjasala
Blindrafélagsins
er á morgun. — Góð sölulaun. — Merkin
verða afgreidd frá kl. 10 f.h. á sunnudag á
eftirtoldum stöðum:
Reykjavík: Blindrafélaginu, Hamrahlíð
17. Holts Ápóteki. Barnaskólum Reykja-
• víkur..'**•" .i
Kópavogur: Barnaskólum Kópavogs.
Hafnarfjörður: Barnaskóla Hafnarfjarðar.
Bamaskólanum Öldutúni.
Silfurtún: Barnaskóla Garðahrepps* Silfurt.
Seld verða tvennskonar merki í tilefni af 25 ára
afmæli félagsins. Borðamerki á 25 kr. og borðalaus
á kr. 10.
HOLMEGAARDS-GLASVÆRK
G. B. Silfurbúðin
Laugavegi 55. — Sími 11066.
S
>