Þjóðviljinn - 30.12.1964, Side 4
$ SIÐA
ÞÍÖÐVILTINN
Þriðjudagur 29. desember 1964
Otgelandi: Samemingarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. -
Fréttaritstjóri: SigurðuT V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur) Askriftarverð kl 90.00 á mánuði
Kjarabætur
Y^art er hægt að ganga lengra í ósvífni en þegar
íhaldsblöð svara nú samningsuppsögn og verk-
fallsboðun sjómanna á bátaflotanum með gamla
’falinu um erfiðleika útvegsins og framleiðsluat-
vinnuveganna. Flokkar ríkisstjórnarinnar eru ný-
staðnir upp frá því verki að leggja stórauknar
byrðar á sjávarútveginn og allan þorra lands-
manna með hinni gífurlegu söluskattshækkun sem
nú dynur yfir. Skyldi sú ráðstöfun hafa verið gerð
til þess að auðvelda sjómannasamninga núna um
áramótin? Sjómenn ættu að spyrja íhaldsþing-
manninn Pétur Sigurðsson, einn þeirra sem sam-
þykkti söluskattsbyrðarnar, og kannski þó sérstak-
lega ráðherra og þingmenn Alþýðuflokksins.
rjrl
J umræðunum á Alþingi um söluskattinn var rík-
isstjórninni og flokkum hennar hvað eftir ann-
að bent á afleiðingar þeirrar skattlagningar. Rík-
isstjórn íhalds og Alþýðuflokksins var sannarlega
vöruð við því, að halda áfram á braut kjararýrn-
#
unar og stríðs við verkalýðssamtökin. Nú hlýtur
að verða stefnt á kjarabæ'tur. Þegar i fyrstú ræðu
sinni um söluskattinn í efri deild lagði Björn Jóns-
son þunga áherzlu á, að „lengi hafi vgrið vitað
með fullri vissu að verkalýðshreyfingin muni ékki
sætta sig við óbreytt kaupgjald lengur en fram á
næsta vor, eftir allt það sem á undan er gengið".
„Það var m.a. einróma álit þings Alþýðusambands
íslands11, sagði Björn Jónsson, sem var forseti þess
þings, „ekki einungis Alþýðubandalagsmanna og
Framsóknarmanna, stjómarandstæðinga, heldur
bókstaflega allra sem það þing sátu sem fulltrúar
verkalýðshreyfingarinnar í landinu, líka þeirra
sem fylgdu núverandi stjórnarflokkum, að útilok-
að væri annað en á næsta vori yrðu að koma til
verulegar kauphækkanir, eftir þá stöðvun raun-
verulegrar kauphækkunar sem staðið hefur í sex
ár, og meira að segja verulega rýrnun kaupgjalds
fyrir hverja tímaeiningu á þessu tímabili“. Og
Björn varaði við því hver áhrif það gæti haft á
kjarasamninga í sjávarútvegi og fiskiðnaði að ráð-
sfafanir eins og söluskattshækkunin væri gerð ein-
mitt nú og hve afdrifarík't það gæti orðið almennt
fyrir næstu samninga verkalýðshreyfingarinnar, að
ríkisstiórnin sökkti þjóðinni í söluskattsvitleysuna
og setti með því verðbólguhjólið á ferð.
gjómenn í útgerðarbæjum Suðvesturlandsins
hafa ekki talið viðunandi að bíða lengur með
leiðréttingu samninga sinna. Og einkamálgagn
LÍÚ, Morgunblaðið. er þegar tekið að fræða les-
endur á því hversu gífurlegur hásetahluturinn hafi
verið undanfarið. Þar er einungis um villandi 'töl-
ur að ræða eins og fyrri daginn. Allur þorri sjó-
manna er sannarlega ekki ofhaldinn af kaupi sínu
og raunar engir þeirra, svo er atvinna þeirra sér-
stæð, erfið og mikilvæg fyrir þjóðarheildina.
Skiptakiör beirra hafa verið skert á undanfömum
árum. Það er til skammar og þau verða að batna.
Annað værj ^kkj sæmilegt. ef höfð eru í huga hin
gífurleéu vpr^mæti sem sjómenn skófla á land
þessi árin. — s.
RœSa Stefáns Ögmundssonar prentara á
borgarafundinum sem Sósialistafélag Reyk]a■
vikur efndi til í Austurbœjarbiói fyrir jólin
Það hefur löngum verið sið-
ur góðra húsbaenda á íslandi
að sjá til þess, að fólkið, sem
undir þaki þeirra býr fari ekki
í jólaköttinn, eins og það er
kaliað, — það er: að öllum
hlotnizf' einhver gjöf á jólum,
til notkunnar og gleði' — en
umfram allt til gleði.
Þegar sjá mátti þess vott,
að húsbændurnir á þjóðarheim-
ilinu ætluðu að fara að rækja
þessa gömlu dyggð var ekkert
eðlilegra en gera ráð fyrir því
að hún yrði því rausnarlegri
í framkvæmd sem þeir hafa
yfir fleira fólki að segja, og
jafnframt þv-í meiru úr að
•spila, sem býlið er stærra en
nokkurra annarra sem við bú-
skap hafa fengizt hér að fomu
og nýju.
Þa£u«r* orðið alltítt hin síð-
ari -árin að rikisstjóm og' Al-
þingi hafi með höndum barátt-
una við jólaköttinn. En svo
undarlega bregður við að þessi
foma hefð tekur þar á sig allt
annan svip og ómýkri en hjá
öðrum húsbændum í landinu.
Hún hefur sem sé alveg snú-
izt við í framkvæmd. f stað
þéss að víkja einhverri gjöf,
smárri eða stórri að hverjum
búþegn, leggur landsstjómin
fram á Alþingi frumvörp
skömmu fyrir jól, sem ákveða
að fólkið í landinu, hver og
einn skuli færa landstjómar-
mönnum og stétt þeirra gjafir
og taka á sig auknar byrðar
þeirra vegna, hvernig sem ann-
ars er ástatt hjá okkur hverju
og einu.
f fyrra vora það kaupbind-
ingarlögin f ár eru það lög
um hækkaðan söluskatt Bæði
eru þessi lög bein árás á okk-
ur launafólkið og hvorutveggja
beinast þau að því að skerða
réttindi vinnandi fólks, eignir
þess og tekjur.
Kaupþvingunarlögin í fyrra
áttu að vera einskonar loka-
högg í langri baráttu ríkis-
stjómarinnar gegn verkalýðs-
hreyfingunni í landinu Það
högg átti að tryggja eigna-
stéttinni marga langa og frið-
sæla gróðadaga Þetta högg bar
verkalýðurinn af sér með svo
snöggum hætti. að ríkisstióm-
in stóð ailt í einu óttaslegin
oe einangruð með frumvarps-
blöðin ( höndlinum. Prentara-
verkfali stóð yfir og Dags-
brúnarverkamennimir frá höfn-
inni heimsóttu Alþingi. Víð-
tæk samstaða tókst hjá verka-
lýðshreyfingunni og þvingunar-
lögin voru dregin til baka
Verkfallsfrestur var gefinn. en
loforðin um að nota hann til
samninsa voru svikin af rík-
isstjórninni Eftir að samning-
ar höfðu loksins tekizt voru
skipulega framkvæmdar verð-
hækkani-r á vörum og þiónustu
til þess að ná sem fyrst til
baka því sem á vannst í hækk-
uðu kaupi Þarna mátt.i siá a*
verki menn í hefndarhug.
Með júní samkomulaginu var
gerð tilraun til að semja við
og sýna traust ríkisstjórn
eignastéttarinnar, sem í önd-
verðu var stofnuð til að kné-
setja verkalýðshreyfinguna og
gerði til þess úrslitatilraun
með kaupbindingarfrumvarp-
inu.
Öll munum við á einu máli
um það, að júnísamkomulagið
færði verkalýðnum allt of lít-
ið, enda þótt þar næðist viður-
kenning fyrir mjög jákvæðum
hlutum. Júnísamkomulagið var
ekki í samræmi við þann styrk,
sem verkalýðshreyfingin sýndi
að hún bjó yfir í desember.
Þetta hefur ríkisstjórnin líka
skoðað sem veikleikamerki.
Þess vegna vogaði hún sér út
í skattaránið í sumar. Og vegna
þess að þeirri árás hefur enn
ekki verið svarað með hörðum
höndum, þá vogar hún nú
að ögra alþýðunni með sölu-
skattsfrumvarpinu. Það á enn
að kanna viðbrögðin og þessi
könnun á að marka baráttuað-
ferð ríkisstjómar og atvinnu-
rekenda til samninganna á
næsta vori.
Höfuðástæða fyrir því að
gengið var til samninga við
þessa ríkisstjóm — þessa ríkis-
stjórn fjandskapar og heiftar
gagnvart launafólki — höfuð-
ástæðan var að freista þess að
stöðva verðbólguna, sem hún
beitti skefjalausar gegn launa-
stéttunum en nokkur önnur
ríkisstjóm hefur áður gert.
Vísitölumælirinn fékkst aft-<g>
ur viðurkenndur með júní-sam-
komulaginu og( telja má það
mikilvægasta árangurinn í þeim
samningum; þessi vísitölumælir
átti í senn að vera nokkur
trygging fyrir launafólk gegn
árásum og jafnfrajnt aðhald
fyrir ríkisstjómina 1 að halda
dýrtíðinni í skefjum.
Nú er það hins vcgar kom-
ið á daginn að ríkisstjórnin
hefur ekki vilja til þess að
stöðva verðbólguna. Hún ætl-
ar sér ekki að gera það. Hún
ætlar sér að láta að vilja
hinna raunverulegu húsbænda
sinna, verðbólgubraskaranna,
og Iáta þá hafa sömu aðstöðu
og þeir hafa áður haft. Vand-
inn er aðeins sá, hvemig kom-
izt verðj framhjá þvi að það
verði launafólki til hagsbóta
að vísitalan var samningsfest.
Og ráðið er fundið Það er að
láta launafólkið sjálft eins og
áður standa undir verðbólgunni.
Töfrabra?ðið er vöruskattur til
að lækka vöruverð! Gróði
braskaranna skal einn friðhelg-
ur.
Og þarna er káppið svo mik-
ið að varnaðarorð helztu sér-
fræðinganna gleymast.' Jóhann-
es Nórdal, sem til þessa hefur
reynzt mjög dulur á tilhneig-
ingar sínar til að efla hag
launafólks, segir um söluskatt-
inn i grein um skattamál í síó-
ast aheft.i Fiármálatíðinda:
„Á hinn bóginn er það við-
urkennt í öllum löndum, sem
reynslu hafa í þessu efni, að
mikil hætta sé á undanbrögð-
um frá söluskattsgreiðslu, ef
skatturinn hækkar nokkuð
verulega. Mikið af söluskatts-
skyldri starfsemi er þess eðlis,
að nákvæmt opinbert eftirlit
er vandkvæðum bundið, svo að
freistingin til skattsvika er þar
af leiðandi veruleg. Eftir að
söluskatturinn hér á landi hef-
ur verið hækkaður í 5,5%, er
full ástæða að fara varlega,
svo ekki skapist einnig á þessu
sviði sama vandamálið og nú
er við að glíma varðandi inn-
heimtu hinna beinu tekju-
skatta. Niðurstaða þessara hug-
leiðinga er því sú, að hækkun
tolla og söluskatts sé ekki
heppileg leið til að afla þeirra
tekna, sem nauðsynlegar eru ..“
— Þetta voru orð ráðgjafans.
Því var yfirlýst af stjórn Al-
þýðusambandsins, þegar skatta-
ránið mikla dundi yfir, að hún
teldi að með því væri raskað
grundvelli júnísamkomulagsins.
Og nú, þegar söluskattsfrum-
varpið kom sagði hún „að
skattahækkun nú, ofaná skatta-
rán sumarsins, verki sem eit-
ur í ógróin sár“ og „með slík-
um aðgerðum til stórfelldra
nýrra verðhækkana, sé rift
þeim grandvelli, sem lagður
var með samkomulagi ríkis-
stjórnar. verkalýðssamtaka og
atvinnurekenda 5. jún; s.í.“
Það er orð að sönnu, að söiu-
skattshækkunin ofan á skatta-
ránið er ótrúleg ósvífni frekra
valdhafa — dæmigerður pen-
ingahrokinn, seih þykist eiga
í öllu tré við okkur. En þess-
um valdhöfum er iíka lagið
iátbragð hundingjans. Þeir á-
kváðu að leggja 2Í4% til við-
bótar við 514% á vöruverðið
tii þess að halda vöruverðinu
niðri. Þetta eigum við svo að
fá bætt með 3% launahækkun
að tveim mánuðum liðnúm. Og
lengra er sú saga ekki sögð af
þeim. Við hinsvegar vitum að
kauphækkunin á að fara strax
út í verðlagið, hún á að hækka
alla vöru og þjónustu og svo
koll af kolli; við fáum allar
kauphækkanir hinsvegar 3
mánuðum síðar, svo uppbótin
fyrir söluskattinn mun aldrei
standa við í okkar vösum.
Fyrir utan alla aukaþjófn-
aði, sem þessari svikamyllu eru
samfara og meira að segja Jó-
hannes bankastjóri bendir á,
er eitt alveg víst að takast mun
að stela hreinlega og í björtu
allri söluskattshækkuninni af
launafólki. Kaupgjaldið nær
henni aldrei í kapphlaupinu.
Að lokum kemur svo aðal-
snillingurinn og lýsir þvi yfir
í heyranda hljóði með raddblæ
mannvinar og sáttamanns, að
hann hafi orðið þess var að
um einhvern misskilning væri
að ræða og þessi misskilningur
muni nema svo sem eins og
Framhald á 9. sfðu-
* BILLINN
Rent an Icecar
Sími 1 8 8 3 3