Þjóðviljinn - 09.02.1965, Side 12
Þessi mynd er tekin út á flugvellinum, þegar Armstrong var nýstiginn út úr loftfari sínu. Hann
heldur á blómvendi, sem litla stúlkan á myndinni afhendir honum en til hliðar við hann eru flug-
freyjur Loftleiða — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Þarna er hópurinn kominn inn í afgreiðslu Loftleiða á Keflavíkurflugvelli. Stúlkan á myndinni er
söngkonan Jewel Brown og ásamt henni einn úr föruneyti Louis en að baki þeirra bópur for-
vitinna frcttamanna.
<$>-----------------------------------------------------------------------
Mikið um að vera við komuU
Armstrongs á sunnudaginn
■ Það var uppi fótur og fit á Keflavíkurflugvelli
á sunnudagsmorgun. Þangað var kominn hópur
blaðamanna og ljósmyndara, kvikmyndatöku-
manna og áhugamanna. Ástæða: Louis Arm-
strong var að koma.
KI. liðlega 11 lenti Rolls Royce
þota Loftleiða Leifur Eiríksson
á vellinum. Starfsmenn flug-
vallarins komu með stiga til að
leggja að flugvélinni, dyr þot-
unnar opnuðust og nú var úr
vöndu að ráða fyrir hinn eftir-
vœntingarfulla hóp, skyldi Louis
koma um fremri eða aftari
dyrnar. Forustumaður knatt-
spyrnudeildar Víkings sagði
okkur að bíða við aftari dyrnar
hvað gert var. Ljósmyndarar
brugðu maskínum sínum að
auga. Blaðamenn leituðu að
pennanum sínum en áhugamenn
urðu allir ein eftirvænting í
framan. Fyrst skoppuðu í land
digrir blökkumenn; var þetta
hann, nei, þetta var ekki hann.
En þarna kom hann lítill og
kubbslegur, brosandi og allra
augu beindust að þessari einu
mannveru. Myndatökumenn
smelltu af í gríð og erg, þegar
jazzkonungurinn gekk niður
stigann. Lítil stúlka gekk fram
með blómvönd, sem hún af-
henti Louis er hann steig nið-
ur á fast land.
Síðan var gengið inn í flug-
stöðvarbygginguna og mann-
þyrpingin umlukti Louis. öðru
hverju stanzaði listamaðurinn til
að gefa myndajökumönnum tæki-
Úheppnm eltir
Eyrarbakkabáta
■ Illir draugar ofsækja Eyrbekkinga um þessar mundir
eða að minnsta kosti útgerð þeirra. Fimm bátar þeirra af
sex hafa orðið fyrir ýmsum skakkaföllum, mismunandi
alvarlegum, sumir reyndar gjörónýtir og hefur miklum ó-
hug slegið á menn i plássinu af þessum sökum.
Skammt er síðan nýkeyptur
bátur, Jón Helgason, fór upp í
kletta og gjöreyðilagðist. Á
Laugardagsmorgun var annar
bátur, sem einnig hafði verið
í slipp, settur niður og fórhann
Bömu leið og Jón Helgason.
Seinnipart laugardags var hann
enn lítið skemmdur og voru
þegar gerðar ráðstafanir til að
ná honum út á kvöldflóði. Bát-
ur þessi heitir Guðbjörg, eign
Sigurðar Jónatans Guðmunds-
sonar, ágætt skip fimmtíu tonn
keypt á staðinn fyrir 3—4 ár
um.
Fyrri mánudagsnótt kom eldur
upp í öðrum bát, er einnig var
í slipp, og skemmdist ham svo
Framhald á 9. síðu.
færi til að ná bærilegum mynd-
um og þau voru óspart nýtt.
Með Armstrong var hljóm-
sveit hans All Stars, sömuleið-
is læknir, þjónn, og tveir fram-
kvaemdastjórar. 1 hljómsveitinni
eru ýmsir mjög ágaetir jazzleik-
arar en þeir gleymdust alveg í
látunum í kringum forystumann
sinn.
Síðan steig hljómsveitin,
blaðamenn og fleiri upp í lang-
ferðabíl frá Guðmundi Jónas-
syni og haldið var til Reykja-
víkur.
Til Reykjavíkur var komið
um tólfleytið. Louis fór strax
að sofa, þreyttur eftir langa
reisu í flugvél frá Kanada og
síðan rútubílferð til Reykjavík-
ur.
Fyrstu tónleika sfna hélt hann
kl. 7,15 á sunnudagskvöldið. Þá
voru tónleikar kl. 11,15 sama
kvöld og tvennir á sama tíma
í gærkvöld. Allir fóru þeir
fram í Háskólabíói fyrir fullu
húsi áhorfgnda, sem fögnuðu
ákaft.
Þriðjudagur 9. febrúar 1965 — 30. árgangur — 32. tölublað.
11
ákveðinn fyrirfram!
Iðnaðarmálaráðherra skýrir frá því hvers vegna
hann braut lýðræðisreglur við skipan alúminíum-
nefndar.
''í>jöðviljánum barst í gær fréttatilkynning frá Jóhannl
Hafstein iðnaðarmálaráðherra um skipun nefndar til þess
að fjalla. um þær óskir svissnesks auðhrings að koma hér
upp alúminíumbræðslu. Þar er sú aðferð ríkisstjórnarinn-
ar að brjóta lýðræðisreglur með því að ganga fram hjá
Albýðubandalaginu rökstudd á þennan hátt: „Iðnaðarmála-
ráðherra telur þátttöku Alþýðubandalagsins í slíkri nefnd
sem hér um ræðir, 'ekki til þess fallna að greiða fyrir fram-
gangi mdlsins“. Þannig er niðurstaðan af störfum nefndar-
innar ákveðin fyrirfram; ríkisst'jórnin hefur ákveðið „fram-
gang málsins“‘ áður en nefndin hefur hafið hina svoköll-
uðu rannsókn sína.
Fréttatilkynning ráðherrans er birt í heild á 8. síðu.
Frá Alþingi
Vörubilreiðastjérar jturfa
ekki a& greiða iaunaskatt
Skákkeppni gagn-
fræðaskólanena
S. L. LATJGARDAG hófst í
fyrsta sinn skákkeppni milli
gagnfræðaskólanna í Reykja-
vík og Kópavogi.
bk- ELLEFU gagnfræðaskólar
mættu til leiks að þessu sinni,
hver með 6 manna sveit.
Keppnin var sveitakeppni og j
útsláttarkeppnj, og eftir 3 |
umferðir féllu 7 skólar úr,;
en 4 eftirtaldir skólar keppa
til úrslita n. k. Iaugardag 13.
febrúar. Gagnfr.sk. Austur-
bæjar, Réttarholtsskóli, Haga-
skóli og Gagnfræðask. Kópa-
vogs.
-* SKAKSAMBAND tSLANDS
og Æskulýðsráð Reykjavíkur
standa að þessari keppni, cn
hún er háð í hinum nýju
húsakynnum Æskulýðsráðs
að Fríkirkjuvegi 11.
Fundir voru í báðum deildum
Alþingis í gær.
I efri deild mælti Bjami
Benediktsson fyrir frumvarpi um
samkomudag Alþingis, sem var
þar til fyrstu umræðu en hef-
ur farið í gegnum neðri deild.
Þá mælti Gunnar Thoroddsen
fyrir tveim frumvörpum, sem
voru samþykkt til annarrar um-
ræðu og nefnda. Annað þeirra
fjallaði um breytinþ á lögum
um tollskrá og fleira en í því
er lagt til að tollur af flökun-
ar- og hausskurðarvélum verði
lækkaður úr 35 í 10 af hundraði.
Er betta gert að beiðni Sam-
laes íslenzkra fiskframleiðenda.
Síðara frumvarpið fjailar um
'-étt'ndi oe «kyldur opinberra
-•■ji-fimanna har sem lagt er
ovi„f=nreiðslur hækki !
v’’6 'únfsamkomulagið.
Em:' 'ónsson, félagsmálaráð-
’prra fók til máls við 3. um-
ræðu í neðri deild um launa-
skattsfrumvarpið, sem flutt er
af ríkisstjórninni samkvæmt
j ún í s amkomul agi nu.
Talsverður ágreiningur hefur
komið upp um túlkunina á til-
teknu ákvæði reglugerðarinnar
um innheimtu þessa skatts,
hvað snertir sjálfseignarvörubif-
reiðastjóra. Félagsmálaráðuneyt-
ið úrskurðaði á sínum tíma að
bílstjórar þessir skyldu greiða
launaskattinn en Landssamband
vörubifreiðastjóra mótmælti því
harðlega.
Hannibal Valdimarsson sagði
við fyrri umræður um málið, að
ekki væri réttmætt að taka
skattinn af bílstjórunum þar
sem þeir væru aðeins launþegar,
sem seldu vinnu sína. Lagði
hann til að ráðuneytið endur-
skoðaði afstöðu sína til málsins
og tók Emil Jónsson það til
greina. Við umræðurnar í gær
lýsti ráðherrann því síðan yfir
að ráðuneytið hefði breýtt úr-
skurði sínum og mundu vöru-
bifreiðastjórar, sem aka eigin
bílum ekki þurfa að greiða
skattinn.
Þórarinn Þórarinsson (F) tók
til máls og sagði m.a. að leigu-
b'freiðastjórar ættu ekkert frek-
ar að greiða þennan skatt en
vörubifreiðastjórar.
Frumvarpið var síðan sam-
þykkt og því vísað til efri
deildar.
Drukknir
hestamenn
Núna um helgina fékk lögregl-
an tvær eða þrjár tilkynningar
um hestamenn, sem höfðu fengið
sér heldur mikið í staupinu. Á
laugardaginn voru tveir drukkn-
ir menn að þvælast inn í Blesu-
gróf og tók lögreglan hestana af
þeim og kom í vörzlu hjá
gæzlumanni bæjarins. Hesta-
mennimir urðu að komast leið-
ar sinnar á tveim jafnfljótum. Á
sunnudag barzt lögreglunni önn-
ur kvörtun og þá ofan úr sveit
um ofurölvaða hestamenn sem
bar voru að þvælist um þjóð-
veginn, stórhættulegir í umferð-
inni.