Þjóðviljinn - 27.02.1965, Síða 4

Þjóðviljinn - 27.02.1965, Síða 4
4 SÍÐA Dtgefandi: Sarneiningarflokfcur alþýdu — Sósialistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastjóri: ÞorvalduT Jóhannesson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19. Simi 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 á mánuði. Einfalt mó/ ^llt er gert að deilumálum á íslandi með hseíi- legum fúkyrðum og brigzlum, meira að segja hegðun ísamyndana og aurframburðar í Þjórsá í námunda við Búrfell. Hefur Morgunblaðið kom- izt að þeirri niðurstöðu að tilteknar skoðanir á þessum náttúrufyrirbærum séu kommúnismi og nánar tiltekið það afbrigði sem kenn't er við Peking. j^aumast verður þó fundið nokkurt efni sem sé fjær því að vera tiléfni deiluskrifa en einmitt þetta. Það er staðreynd sem allir viðurkenna að rannsóknir á hegðun ísamyndana og aurframburð- ur á Búrfellssvæði Þjórsár eru svo skammt á veg komnar að örugg vitneskja er ekki tiltæk. Getgát- ur hinna fróðustu manna um hugsanlegar truflan- ir á raforkuframleiðslu af þeim sökum sveiflast frá hálfum öðrum degi upp í jafn margar vikur eða mánuði. Hér er um að ræða atriði sem ræð- ur úrslitum um rekstur hugsanlegs orkuvers, því 1 varastöðvar þær sem rætt er um eyða á sólarhring olíu fyrir eina miljón króna, auk þess sem lang- varandi truflanir myndu óhjákvæmilega hafa í för með sér rafmagnsskort og skömmtun suðvest- anlands. ,,,:. rmn^" , ; yandamál af þessu tagi verður ekki útkljáð með neinum háværum blaðadeilum. Úr því verður ekki skorið með valdi stjórnmálaflokka eða neins- konar atkvæðagreiðslum, hvorki lærðra manna eða leikra. Hið rétta svar fæst eingöngu með vís- indarannsóknum sem binda endi á deilurnar með því að leiða allar staðreyndir örugglega í ljós. Ein- hver mjög annarleg sjónarmið hljófa að vaka fyr- ir þeim mönnum sem vilja að ákvörðun sé tekin áður en rannsóknum á grundvallaratriðum er lok- ið. Mættu þeir menn þó minnast þess að Búrfells- virkjun er risafyrirtæki á íslenzkan mælikvarða; þar mega hvorki glersteypuævintýrið né hrakfalla- sagan um Faxaverksmiðjuna endurtaka sig. Htevninm Laugardagur 27. febrúar 1965 IslandsmótiS 1. deild Ný vísitala j^tjómarvöldin hafa tilkynnt að hafin sé ný könn- un á neyzlusiðum almennings og sé tilgangur- inn sá að endurskoða grundvöll vísitölunnar. Er þetta þarflegt viðfangsefni, ef skynsamlega verð- ur að því unnið. Sérstaklega ber að vænta þess að nýjum grundvelli verði þannig hagað að stjórn- arvöldin hafi ekki tök á neinskonar fölsunum, til að mynda með niðurgreiðslum sem hafi þann einn tilgang að láta vísitöluna gefa ranga mynd af verðlaginu. Ennfremur ber'að vsénta þess að í nýjum vísitölugrundvelli verði húsnæðisliðurinn hafður raunverulegur, en ekki rammfölsuð og lítt hreyfanleg tala eins og nú er. Húsnæðiskostnað- ur er ákaflega stór liður í útgjöldum hverrar fjöl- skyldu. og vísitala sem ekki tekur fullt tillit til hans hefur takmarkað gildi. En því aðeins getur vísitölutrygging á kaup stuðlað að auknu öryggi að sjálfur mælikvarðinn sé réttur. — m. FH SANNAÐIÁGÆTISITT ENN EINU SINNI - VANN KR 25:19 □ Margir munu hafa litið á þennan leik sem svolítinn úrslitaleik um það hvort FH myndi tapa stigum áður en sjálfur úrslitaleikurinn við Fram færi fram í lok mótsins. KR-ingar hafa sýnt að þeir geta átt margt til og fá út úr liði sínu eigin- lega meira en maður býst við, og lengi vel virtist manni það endurtaka sig í þessum leik. Manni fannst hver einstakur maður í liði FH mun betri, að þeim Karli og Gísla fráskildum, en samt sem áður áttu FH-ingarnir um skeið fullt í fangi með KR og munaði um skeið, er langt var liðið á leikinn, aðeins 2 mörkum; 15:13. FH byrjaði vel og komst f 4:0 áður en KR skoraði fyrsta mark sitt, og þegar þeir byrj- uðu fylgdu þeir því eftir og komust í 4:6. En staðan breytt- ist brátt í :4 og 10:5. En þá tóku KR-ingar að saxa á þessa innistæðu FH-inga, og í hálf- leik stóðu leikar þá 14:9. En þegar liðnar voru 6 mín. af síðari hálfleik stóðu leikar 15:13. En þá náðu FH-ingar góð- um leikkafla og komust í 20:14, en eftir það jafnaðist leikur- inn aftur, og leiknum lauk með 25:19. FH-ingar sýndu oft góð til- þrif ,með miklum hraða og léttum samleik, og meðan KR-ingar fóru útí sama hraða Hjalti Einarsson varði mark FH-inga af mikilii prýði. hafði FH alltaf mun betur. Þegar KR tók upp þá leikað- ferð að „svæfa“ gekk þeim betur og hraði FH naut sín ekki. Annars er FH liðið skemmti- lega leikandi og ekki vafaund- irorpið að í augnablikinu er það bezta liðið og jafnasta, og verður naumast stöðvað héð- anaf í sigurgöngu sinní f Is- landsmótinu. Beztu menn liðsins voru þeir örn, Hjalti og Birgir. Ungu mennimir Geir, Páll og Krist- ján, lofa ákaflega miklu. Ragn- ar vann oft vel fyrir liðið i bessum leik, og er alltaf ógn- vekjandi hverri vörn sem hann sækir mót. KR-liðið fellur undravel saman miðað við það að í þv< eru ekki margar svokallaðar „stjörnur", og það er list útaf fyrir sig að fá einstaklingana bó þeir séu ekki toppmenn. til að ná svo vel saman að þeir nái toppleik eða því .bezta mögulega sem í þeim býr, og þetta tekst KR svo undra oft. Og það gerðist enn í leiknum við hina ágætu FH-inga. Eins og fyrri daginn voru Karl og Gísli beztu menn liðs- ins og Hilmar er þar ekki langt frá. Heinz fær aldrei út það sem maður álítur að í honum búi, en getur verið mjög skæður sækjandi og sterkur í vörn. Johnny var stutt í markinu, og við tóK Sveinn, og varði hvað eftir annað af mikilli prýði. Þeir sem skoruðu flest mörk fyrir FH voru: öm 10, Birgir og Auðunn 4 hvor, og Krist- ján 3. Fyrir KR skoruðu flest: Gísii 8, Heinz 4 og Karl 3. Dómari var Magnús Péturs- son, og dæmdi vel í fyrri hálfleik, en þar var eins og hann missti leikfnn meira og min.na útúr höndum sínum í síðari hálfleik og varð þá oft lítt skiljanlegur. /”!if'‘!v Frímann. Birgir er ágengur við mark KR-inga — engu líkara en að gefa vamarmanninum einn áann en, svo mun þó ekki (Ljósmyndari Bjarnieifur Bjarnleifsson). Fram lék sér í 19 mín. en svo veitti Víkingi betur □ Það mun nær einsdæmi að lið í fyrstu deúd hafi leikið saman og annað skorað 12 mörk á 19 mínútum án þess að hitt kæmi á marki, en þetta skeði í leik Víkings og Fram á fimmtudagskvöld- ið var. Það mun og sennilega jafn fátítt að leik- um sem svona byrjar breytist svo skyndilega að eftir það verði hann jafn og meira að segja ef þessar 19 mínútur eru frá dregnar kemur Vík- ingur með eins marks betri útkomu úr þeirri 41 mín., sem eftir var. Fram byrjaði sem sagt vel, með töluverðum hraða, og má segja að allt hafi heppnazt, sem reynt var. Víkingar virt- ust illa fyrir kallaðir og ekki treysta sér í neinu. Má vera að minnimáttarkenndin hafi stafað af því að þá vantaði tvo beztu menn sína, þá Þór- arin og Rósmund, og má segja að það muni um minna. Þeir gátu alls ekki sameinazt um að loka vöminni þannig, að^ hún væri skotheld fyrir Fram. Þó vöm Fram væri þéttar: tókst Víkingum að koma skot- um f gegn, og áttu þeir 3 stangarskot á þessu tímabili. En Adam var ekki lengi f Paradís. Á 19. rnínútu tekst Víkingi að skora fyrsta mark sitt, og vakti það hrifningar- óp sem aldrei ætlaði að linna; bað var eins og við manninn maelt: Víkingar fengu trúna á sig og tóku að skora, og að sama skapi var sem af Fram drægi, og eftir þetta var þetta jöfn barátta í heldur tilþrifa- litlum leik. Það var þó vel af sér vikið hjá Víkingum að hrista af sér slenið, og ná jöfnum leik eftir þessa slöppu byrjun. Fyrir Fram var þetta frem- ur slakur leikur, þegar sleppt er byrjun leiksins, og alvarlegt fyrir svo gott lið að detta svo niður sem það gerði er á leið. Þetta byrjaði þegar þeir fóru allir þrír útaf: Guðjón, Gunn- laugur og Hilmar, og það merkilega skeði að þegar þeir komu inn á aftur breyttist leikurinn ekkert fyrir Fram. Fram var með allt sitt venju- lega lið, og vom þeir skárst- ir: Guðjón, Gunnlaugur, og Gylfi Jóhannsson. Sigurður Einarsson gerði margt laglega en var óvenjulega óheppinn með skotin. Af Víkingum voru beztir þeir Sigurður Hauksson, Gunn- ar Gunnarsson og Björn Bjarnason. Pétur er alltaf mik- ils virði fyrir liðið, þótt hann sé af léttasta skeiði. Þeir sem skoruðu flest mörk- in fyrfr Fram voru: Gunnlaug- ur 9, Guðjón 5, Hilmar og Gylfi Jóhannsson 4 hvor og Tómas 3. Fyrir Víking skoruðu fle;t mörk: Pétur, Sigurður Hauks og Bjöm Bjarnason 4 hvor og Gunnar Gunnarsson 3. Dómari var Valur Benedikts- son og dæmdi yfirleitt vel. Frímann. FRÆOSLUFUNDUR KF. ÞRÓTTAR Á MORGUN ýmsu flokka. Þá verður hald- ið stutt erindi um knattspyrnu almennt, þjálfun o.fl. og sýnd- ar knattspyrnukvikmyndir. Þess er vænzt, að sem flest- ir félagsmönn noti þetta tæki- færi og mæti á fundinum, og eru félagarnir hvattir tii þess að taka með sér gesti. Fundurinn er haldinn á veg- um knattspyrnudeildar ÞRÓTT- AR. (Frá Þrótti). Á morgun, sunnudag efnir Knattspyrnufélagið ÞRÖTTUR til fræðslu- og skemmtifundar fyrir knattspymumenn félags- ins. Fundurinn verður hald- inn í Breiðfirðingabúð (uppi) og hefst kl. 2 síðdegis. Á fundinum verður sagt frá sumaráætlun félagsins, ýmsar upplýsingar veittar um utan- ferðir knattspyrnuflokkanna og rætt verður um þjálfun hinna * I i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.