Þjóðviljinn - 04.04.1965, Side 2

Þjóðviljinn - 04.04.1965, Side 2
ÞIÖDVILIINN Surmudagur 4. apríl 1969 2 SlÐA ------------- Aldarlangt samstarfí fjarskiptum Tölurnar á kringlu talsíma- tækis á Islandi hefjast á 1 og enda á 0 eins og í Argentínu, Danmörku og fleiri löndum. Á sænskum talsimum hefjast þær hins vegar á 0 og enda á 9, og á Nýja Sjálandi er því þveröfugt farið. Sama kerfi og á íslandi er notað í nokkram löndum Vestur-Asíu, þó erfilt sé að lesa úr tölunum. Það eru myndir af öllum þessum ólíku talnakringlum í bæklingi sem Alþjóðafjar- skiptasambandið (ITU) hefur gefið út undir enska heitinu „A Hundred Yers of Intemat- ional Cooperation”. ITU vinnur nú að því að fá tekið upp samræmt alþjóðakerfi fyrir tölur á talsíma. Óneitanlega virðist vera full þörf á því. 1 bæklingnum er sagt frá þvi í orðum og myndum, hvað þessi sérstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur gert á þeim 100 árum, sem liðin eru síðan hún var stofnuð — afmælið er 17. maí í ár — og hvílíkar feiki- legar framfarir hafa orðið á sviði fjarskipta. — (Frá S.Þ.). STOKKHÓLMI 2/4 — Helj- armikil pappírsbrúða, sem átti að tákna Franco hers- höfðingja, einræðisherra á Spáni, var í gærkvöid brennd fyrir ntan spánska sendiráS- ið í Stokkhólmi. Daglangt ftflfðu" verið haldnir mót- mæláfnndir í tilefni þess að þá voru 26 ár liðin frá því Franco komst til valda á Spáni. Lögreglan dreifði hópnum, sem safnazt hafði saman fyrir ntan sendiráðið. JÓHANNESARBORG 2/4 — Tólf menn voru í dag sekir fundnir um að vera félagar í hinum ólöglega kommún- istaflokki Suður-Afríku , en fjórtán voru ákærðir af sömu sökum. Einn hinna á- kærðu, Hymie Baryel, var sýknaður, en dómur fellur ekki í máli hinna fyrr en 12. apríl. LONDON 2/4 — Michael Chaplin, átján ára sonur kvikmyndaleikarans fræga, . skýrði svo frá í gær, að hann hefði síðustu þrjár vik- ur lifað af sveitarst—k. Pann skýrði blaðamönnum, sem heimsóttu hann í eins her- bergis íbúð hans í hrörlegri byggingu í London, svo frá, að hann væri „svarti sauður- inn" í fjölskyldunni — sem hann kvaðst ekki hafa séð í tvö ár. Chaplin jr. býr með konu sinni Pat og syni þeirra hjóna, Christian að nafni. Hann vonast nú til að fá hlutverk í franskri kvik- mynd. Kona hans er sjö ár- um eldri en hann og hjóna- bandið var Charlie Chapiin mjög á móti skapi. WASHINGTON 2/4 —Leyni- þjónusta Bandaríkjanna hef- ur nú samið Iista yfir 130. 000 menn sem hugsazt geti að sækist eftir lífi Johnsons Bandaríkjaforseta. þetta var tilkynnt opinberlega í Was- hington í gær. Vitni sem komið hafa fyr- ir sérstaka þingnefnd skýra svo frá, að um það bil 800 þeirra manna, sem hættuleg- astir séu taldir, standi á sér- stökum lista. Þessi sérstaki Usti taldi fyrir einu ári að- eins um 200 nöfn. Standi loftvogin lágt er meiri hætta á bflslysum! 6. alþjóðlega sjö- stangaveiðimótið Það verður nú að teljast staðfest, að ákveðin veðra- brigði, sem eru mannslíkaman- um óhagstæð, auka fjölda 'oíl- slysa, segir í nýútkominni skýrslu um áhrif loftslagsins á manninn. Lágþrýstingur gctur t. d. verið bílstjóra miklu hættu- legri en þoka eða hálka. Án þess að bílstjórinn gefi því gaum, dregur úr einbeitingar- hæfni hans og viðbragðsflýti. Afleiðingarnar geta orðið ör- lagaríkar. Það eru framar öllu tilraunir og rannsóknir í Vestur-Þýzka- landi síðustu 15 árin, sem hafa leitt til þess, að nú er hægt að segja með vissu, að þessu sé þannig farið. Einn könnuður rakti og rannsakaði 67.000 bil- slys í Hamborg og komst að þeirri niðurstöðu að 85—90 af hverjum hundrað bílslysum urðu við veðurskilyrði, sem voru mannslíkamanum mót- dræg. Því næst rannsakaði hann slysaskýrslur í 50 stór- borgum Evrópu og gat fært sönnur á, hvernig umferðar- slys urðu á svæðum þar sem lágþrýstingur færðist yfir. Á einu könnunarskeiði í Hamborg var hálkan einungis völd að 6,4 hverra hundrað slysa, sem voru fram yfir það venjulega, og þoka völd að 5.2 hverra hundrað slysa, en á sama tíma kom f ljós, að 40 af hverjum hundrað slysum áttu rætur að rekja til veður- truflana, sem höfðu bein á- hrif á mannslíkamann. Skýrslan sem hér um ræðir, „A Survey of Human Biomet- eorology", er tilraun til að ganga úr skugga um, hvar vís- indin eru stödd í nútímanum með tilliti til sambandsins á milli mannsins og andrúms- loftsins sem hann lifir í. Hún er gefin út af Alþjóðaveður- fræðistofnuninni (WMO). Skýrslan tekur einnig til meðferðar efni eins og t.d. á- hrif veðurfars á heilbrigt fólk, á sjúkdóma og á verkun lyfj.i í mannslíkamanum, skipulagn- ingu borga og áhrif bygginga á andrúmsloft mannsins. Einnig er fjallað um loftslagslækning- ar. — (Frá S.Þ.). Um hvítasunnuna verður efnt til 6. alþjóða sjóstanga- veiðimótsins hér á landi. Fer það að þessu sinni fram frá Keflavík, dagana 4.—7. júní n.K. Aður hafa slík mót verið hald- in í Vestmannaeyjum og Rvík og hafa jafnan verið vel sótt. Mótið verður sett að kvöldi þess 4. júní af formanni Sjóstanga- veiðifélags Reykjavikur, Birgi J. Jóhannssyni, tannlækni, cn, mótið er haldið að tilhlutan þess í samvinnu við Stangaveiðifélag Keflavíkurflugvallar. Veiðikeppnin hefst svo að morgni 5. júní og stendur yfir i þrjá daga. Verður siglt á mið- in frá Keflavík kl. 10 á hverjum morgni, en bátar eiga að vera komnir aftur í höfn kl. 6 að kvöldi. Að mótinu loknu, á annan í hvítasunnu, verður haldið kveöjuhóf á Keflavíkur- flugvélli, þar sem úrslit verða tilkynnt og verðlaun afhent. Keppt verður um mörg og glæsi- leg verðlaun, m.a, Flugfélags- bikarinn, Roff-styttuna, gull og silfurverðlaun gefin af Alþjóða- sambandi sjóstangaveiðifélaga Framhald á 9. síðu. SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. ELZTA os nyasta ’rprzlun okkar! Mtíunm Sömu góðu vörurnar Sama lága verðið Meira úrval Betri búðir Meiri hraði Meiri vinnugleði Sífelld þjónusta Betri þjónusta

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.