Þjóðviljinn - 04.04.1965, Side 4

Þjóðviljinn - 04.04.1965, Side 4
4 SIÐA Ctgcfandi: SameLningarflokkur alþýöu — Sósialistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Sigurdur Guðmundsson. Rltstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19. Simi 17-500 (5 línur). Askrlftarverð kr. 90.00 á mánuði. Skaðsemdartök verzlunar- og fjármálaauð va/dsins j júnísamkomulaginu í fyrra var íslenzkum at- vinnurekendum gefinn ársfrestur til að gera ýmsar þær ráðstafanir með atvinnurekstur sinn, að þeir væru betur undir það búnir að taka á sig hina almennu kauphækkun og styttingu vinnu- dagsins sem orðin er óhjákvæmileg nauðsyn. í forystugrein í nýútkomnu hefti 'tímaritsins ,.Rétt- ar“ deilir Einar Olgeirsson, formaður Sósíalista- flokksins, fast á atvinnurekendur fyrir að hafa notað illa eða ekki þennan frest og hljóti það að koma þeim í koll, nú sé ekkert undanfæri, það verði að stórhækka dagkaup verkafólks og stytta vinnutímann nú í vor. þetta á fyrst og fremst að gerast á kostnað alls brasksins í þjóðfélaginu og á kostnað óreiðunn- ar og skipulagsleysisins, segir Einar. Það er yfir- stéttarinnar að skipuleggja atvinnurekstur sinn af viti, ef hún vill vera að fást við hann, svo óhæf sem hún hefur sýnt sig til þess. Og ef atvinnurek- endur í sjávarútvegi og iðnaði þekktu sinn vitjun- artíma, myndu þeir taka höndum saman við verka- lýðs- og starfsmannastéttina og bændur, til þess að framkvæma þær þjóðfélagslegu breytingar, sem síytting vinnutímans og hækkun dagkaupsins krefst', fyrst og fremst á kostnað verzlunarauð- valdsins. ginar telur allar deildir yfirstéttarinnar eiga sök á því hvernig komið er, en verzlunar- og f jár- málaauðvaldið þó mest. Útgerðarmenn og fisk- iðnrekendur hafi vanrækt hróplega skipulagningu í atvinnugreininni sjálfri og alveg sérstaklega látið undir höfuð leggjast að koma á sem mestri full- vinnslu í síldinni, en til þess þurfi breytta verzl- unarpólitík. Iðnrekendur horfi á það aðgerðarlaus- ir að hverri verksmiðjunni af annarri sé lokað. Sjálfir bregðist þeir skyldu sinni að skipuleggja hina íslenzku framleiðslu í stórum stíl og með ný- tízku aðferðum. íslenzkum iðnaði sé nú í æ rík- ara mæli fórnað á altari skorðgoðsins verzlunar- „frelsisins“, sem ætti að lesa verzlunarauðvalds- ins. „Verzlunar- og fjármálavaldið í Reykjavík er sá aðili, sem ráðið hefur stefnunni undanfarin ár, og raunar lengst af undanfarna áratugi“, segir Einar. „Til þessa valds hefur gróðinn safnazt, hvort sem fyrirtækin heita olíufélög, vátryggingafélög, skipafélög, bílaheildsalar eða önnur stór innflutn- ingsfyrirtæki. Fjárfesting þessara aðila hefur verið hin óhagsýna eyðsla þjóðfélagsins. Þetta vald sogar til sín lánsfé, vinnuafl og húsnæði, og gefur ekkert í staðinn. Og þessir aðilar eru um leið aðalagentar erlends auðvalds á íslandi.“ ■yatnaskilin í íslenzkum stjórnmálum eru um þetta: með eða móti verzlunar- og fjármála- auðvaldinu,“ segir Einar Olgeirsson í þessari Rétt- argrein, „með eða móti samstarfi við verkalýðs- hreyfinguna“. ÞIÓÐVILJINN Sunnudagur 4. apríl 1965 Eins og aðrar brýr í Búdapest var þessi eyðilögð í striðinu og endurbyggð síðar. Hún er nákvæm eftirliking fyrirrennara síns, er var fyrsta brúin i borginni, smiðuð 1846. Ungverska alþfðu- lýðveldið 20 ára 1 dag, 4. apríl, halda Ung- verjar 20 ára afmæli frelsunar lands síns úr klóm nazistaherj- anna þýzku, sem sendir voru til landsins snemma á árinu 1944 til þess að stöðva fram- sókn ráðstjómarherjanna að austan. Styrjöldin um Ung- verjaland stóð um það bil hálft ár, og lauk með síðasta sigri ráðstjórnarhersins við vestur- landamærin 4. apríl 1945. Fyr- ir forgöngu Kommúnistaflokks- ins var í desember 1944 stofn- uð svonefnd Sjálfstæðisfylking, með þátttöku sóíaldemókrata, borgaralegra flokka og fulltrú- um frá samtökum verkalýðs- ins. Þessi samtök sömdu vopnahlé við Ráðstjómarríkin, og settu á fót bráöabirgðaþing og bráðabirgðastjórn. Þann 15. marz 1945 voru sett lög um 6kiptingu stórjarða í aðalseign milli fátækra bænda og land- búnaðarverkamanna. Flokkur- inn og samtök verkalýðsins hófust þegar handa um v‘ð- reisn atvinnuveganna og að róta í rústum styrjaldarátak- anna. í byrjun var við óskap- lega erfiðleika að etja. Kosn- ingar til þings fóru fram í nóvember 1945. Flókkur smá- bænda, studdur af borgurum og afturhaldsöflum, hlaut hreinan meirihluta, 56% at- kvæðanna. •Kommunistaflokk- urinn og Sósíaldemókratar sín 17% hvor, og þjóðlegur bænda- flokkur 8°/f,. 1 skjóli þessara kosningaúrslita gerðu aftur- haldsöflin harða hríð að lýð- ræðislegum aðgeröum bráða- birgðastjómarinnar, fyrst og fremst að skiptingu stórjarð- anna. Vegna mótmælaaðgerða verkalýðsins, og harðrar and- stöðu í þinginu, var þó ráðizt í að kollvarpa umbótunum. Tveimur árum seinna voru aftur háðar þingkosningar. Þá jók Kommúnistaflokkurinn at- kvæðamagn sitt um 40%. At- kvæðum sósíaldemókrata fækkaði um 10%* og Smá- bændaflokksins um 71%. I kosningabaráttunni lagði Kommúnistaflokkurinn áherzlu á nauðsyn þess, að verkamenn og bændur og smáatvinnurek- endur tækju höndum saman, og að verkalýðsflokkamir tveir sameinuðust í einn flokk. Eftir þessar kosningar tóku verka- menn að streyma til Komm- únistaflokksins frá Sósíaldemó- krötum. Á þingum beggja flokkanna, 12. júní 1948, var sameining þeirra í einn flokk samþykkt. Hinn sameinaði flokkur hlaut nafnið: „Verka- lýðsflokkur Ungverjalands". Með stofnun þessa flokks var bundinn endir á tvískiptingu verkaiýðsins, sem ríkt hafði í landinu um áratugi. Með sam- einuðu átaki gat nú flokkur- irm, og verklýðsstéttin hafizt handa um uppbyggingu sósíal- ismans. Með nýjum grundvall- arlögum, var svo „Alþýðulýð- veldið Ungverjaland" sett á stofn í ágústmánuði 1949. Með tæknilegri aðstoð, og fjárhagsJegum stuðningi, Ráð- stjómarríkjanna tókst að ljúka áætlun áranna 1947—1949 sjó mánuðum fyrr en áætlað var. Ný 5 ára áættun hljóp af stokkunum. Aðalviðfangsefnin voru efling iðnaðarins og fé- lagslegar framfarir landbúnað- arins. Rösklega var hafizt handa. Verksmiðjur og iöju- ver risu upp í tugatali, ný stáliðjuborg reis af gru.ini, samyrkjubúskapur hafinn, rík- isbú sett á stofn víðsvegar um landið, stórátök hafin í námu- iðnaði og framleiðslu landbún- aðarvéla, og víðtækar umbæt- ur gerðar í félagsmálum og uppeldismálurru Ekki leið þó á löngu, að bóla tæki á ýmis- konar erfiðleikum, sem fyrst og fremst áttu rót sína að rekja til ófullnægjandi athug- ana á fjármálaþoli, hráefna- aðdráttum og framleiðslumögu- leikum þjóðarinnar. Á árunum 1951—1953 náðust ekki þær umhætur á lífskjörum, sem vonir höfðu verið vaktar um. Á sumum sviðum var jafnvel um rýrnun lífskjara að ræðau Þar við bættist svo andrúms- loft persónudýrkunar, mis- beiting valds og alvarleg mis- ferli af hálfu foringjans, Máty- ás Rákosi. Leiðandi menn á sviði stjórnmála og athafna- lífs, flestir þrautreyndir flokks- menn, voru handteknir að á- stæðulausu, og sumir dæmdir til dauða eftir fölskum ákær- um. Að sjálfsögðu stóðu þessi alvarlegu misferli í engu sam- bandi við sósíalistiska upp- byggingu. Þau stöfuðu ein- vörðungu af því, að fámenn- ur hópur fótumtróð lýðræðis- lega afgreiðslu mála í flokkn- um, og bældi með valdi nið- ur réttmætar aðfinnslur. Strax 1953 samþykkti flokkurinn ráð- stafanir til að ráða bót á mis- ferlunum. En framkvæmd þeirra ráðstafana fór í handa- skolum, og leiddi stundum til nýrra mistaka. Sumarið 1956 samþykkti flokkurinn að binda endi á þetta ófremdará- stand, og skipti um stjóm. En þá var svo komið, að innlend- Þinghúsbyggingin í Búdapest Eftir Steinþór Guðmundsson um afturhaldsöflum, í samráði við erlenda heimsvaldasinna, hafði tekizt að hagnýta sár réttmæta óánægju fjöldans, til þess að undirbúa vopnaða and- byltingu. Forusta þessarar and- byltingar beitti óspart sósíalist- iskum slagorðum, til þess að rugla almenning, sem i raun og veru óskaði einskis annars en leiðréttingar á misferlum og valdníðslu. Þess £ stað kom það brátt í Ijós, að uppreisn- inni var beint að því msrki, að kollvarpa hinni nýju stjóm- arstefnu. Uppreisnin kostaði þjóðarbúið 22 þúsund miljóna forintur. Nýrri byltingarstjóm, undir forystu Janosar Kadar, tókst, með aðstoð Ráðstjómar- ríkjanna, að brjóta andbylt- inguna á bak aftur, og hefja að nýju sósíalistiska stjómar- háttu. Á nokkrum mánuðum tókst að verulegu leyti að græða sár andbyltingarinnar. 1 árslok 1957 var iðnaðarfram- leiðslan orðin 5%, meiri en í árslok 1955, og almenn lífskjör höfðu þá batnað um 32%. Hófst nú ný framsókn, byggð á nákvæmlega athugaðri fjár- hagsgetu og framleiðslumögu- leikum landsins. 1 almennum þingkosningum 16. nóvember 1958, vottaði þjóðin hinni nýju stjórn einróma viðurkenningu. Fjárhagsafkoman gerði brátt fært að bæta lífsskilyrði al- mennings, svo um munaði. Byrjað var á að fækka vinnu- stundum við heilsuspillandi störf, hækka laun þeirra lægst- launuðu, og sömuleiðis eftir- og ellilaun. Á árunum 1958—’60 var framkvæmd fyrsta þriggja ára áætlun hinnar nýju stjórn- ar. Iðnaðarframleiðslan jókst um 40%i, landbúnaðarfram- leiðslan um 12%, heildartekjur launamanna hækkuðu um 9,5% og heildartekjur bænda um 6—7%. Árið 1961, fyrsta ár nýrrar fimm ára ætlunar, jókst iðnaðarframleiðslan enn um 12%. Á því ári má líka segja, að rekstur landbúnaðarins kæmist til fulls í sósíalistiskt horf. Síðan er svo að sjá, að jöfn og eðlileg þróun eigi sér stað á öllum sviðum. Gildir það jafnt um efnahag, fram- íeiðslu, aukin lífsþægindi, og um umbætur á sviði menn- ingarlífs. Á öllum sviðum er unnið af kappi að allskon«J undirbúningi nýrra framtið».r- áætlana. Segir mér t.d. svo hugur um, að þeir, sem hér á landi bera mest fyrir brjósti aðgerðir til varðveizlu hjafn- vægis í byggð landsins“s gætu sitthvað lært af ungverskum vinnubrögðum í þeim málum. Á ég þar að sjálfsögðu ekki við sjálft val viðfangsefnanna. Eins og gefur að skilja, eru atvinnuhættir okkar lands og þeirra svo ólíkir, sem verið getur. En meginlínurnar í fé- lagslegri undirbyggingu rót- tækra framtíðaráætlana eins lands ættu að geta verið öðr- um þjóðum frjósamt umhugs- unarefni, hvort sem stefnt er að framleiðslu gaffalbita eða niðursoðinna Jónathansepla. $>---------------------------- fslandsmót í tví- menningskeppni í gær hófst í Lídó íslands- meistaramót í tvímennings- keppni og er spilað í tveimur flokkum, meistaraflokki og 1. flokk, 28 pör í hvorum. Bridgemenn víðsvegar að af landinu eru mættir til keppni og má nefna pör frá Akureyri, Hafnarfirði, Húsavík, Borgarnesi, Selfossi, Keflavík, Vestmanna- eyjum, Kópavogi auk Reykvík- inganna. Núverandi Islandsmeistarar í tvímenning eru Símom Símonar- son og Þorgeir Sigurðsson frá Bridgefélagi Reykjavíkur og hyggjast þeir verja titil sinn. Um næstu helgi hefst sveita- keppnin og verður hún spiluð | á Hótel Sögu. Bridgetafla Hjalta Elíassonar mun auðvelda áhorf- 1 endum að fylgjast með gangi | leiksins og er ekki að efa að I margir mypu leggja leið sína þangað i páskavikunni.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.