Þjóðviljinn - 04.04.1965, Síða 6

Þjóðviljinn - 04.04.1965, Síða 6
0 SfÐA HðÐV' BANDARIKJAMCNN ISJÁLFHCLDU Bandarískt sprengiefni í höndum tveggja manna skemmdarverkasveitar lék bandaríska sendiráðið illa, en ónýtt hús og áverkar tuga sendiráðsmanna eru þó smá- munir hjá útreiðinni sem ný hemaðaráaetlun Johnsons for- seta seetti. Sprengingin úti fyr- ir sendiráðinu reif rökstuðn- inginn fyrir stefnu Bandaríkja- stjómar í Suður-Víetnam í tætlur. Samfleytt í átta vikur hafa ‘Bandarfskar sprengju- flugvélar haldið uppi árásum á Norður-Víetnam í því skyni að rétta hlut Bandaríkjamanna og skjólstæðinga þeirra í suð- urhluta landsins. Árásaraðgerð- imar réttlsétir Bandaríkja- stjórn með því að ófriðurinn í Suður-Víetnam sé í raun réttri innrásarstríð sem Norður-Víet- nam heyi en ekki borgara- .c^’-íöld. Sprengingin við dyr Taylor, fyrrverandi yfirhers- höfðingi Bandaríkjamanna, átti brýnt erindi til Washíngton. Að ráði hans og McNamara landvarnarráðherra fyrirskip- aði Johnson loftárásirnar á N- Víetnam. Með þeim átti að vinna þann sigur sem banda- ríska herstjórnin var orðin vonlaus um að vinna á vígvell- inum í Suður-Víetnam. Þar með var horfið frá stefnunrii sem Kennedy heitinn túlkaði á þessa leið fyrir tæpum tveim árum: „Þetta er stríð Víet- nambúa. Þeir sigra í því eða tapa, við getum aðeins aðstoð- að, sent þeim herbúnað og ráðunauta. En fólkið í Víetnám verður sjálft að hafa forustu í þessum átökum við kommún- ista og vinna sigurinn”. Síðan þessi orð voru töluð hafa Bandaríkjamenn og málaliðar þeirra beðið hvern ósigurinn á fætur öðrum í Suður-Víetnam. Fangaráð Taylors, að færa stríðið út með árásum á Norð- ur-Víetnam, hefur engan ár- angur borið. Johnson kallaði því sendiherra sinn til Wash- ington að ráðgast við hann um hvað til bragðs skyldi taka. Flkið í Suður-Víetnam sem jr----„1-'... lil p" leiðingum að 42 böm brunnu til bana í þorpsskólanum. Slí*- ir atburðir hafa verið daglegt brauð árum saman f sveiturn Suður Víetnam, þar sem þorri landsfólksins býr. Bandaríkja- menn kunna engin ráð til aO greina Þjóðfrelsisfylgingar- menn frá öðrum Víetnambúum og drepa því allt sem fyrir verður á svæðum þar sem þeir vænta skæruliða. Árangurinn er sá að Þjóðfrelsishreyfingin ræður nú algerlega yfir helm- ingi Suður-Víetnam. Um ríkisstjórn er ekki lengur að ræða í Saigon. Þar hefur átta stjórnamefnum ve-- ið velt á rúmu ári. Ríkiskerf- ið sem Diem var búinn a tjasla saman er í upplausn. Eina stofnunin sem enn er við lýði og nokkuð kveður að er herinn, en Bandaríkjamenn geta ekki einu sinni reitt sig á hann í baráttunni við skæru- liða. Hálf miljón manna er i hernum, en einungis lítill hluti hans berst gegn skæru- liðum. Hlutverk mestalls her- aflans er að tryggja völd og áhrif hershöfðingjanna, sem liggja í sffelldum deilum og steypa hver öðrum af vald-i- c;4''1 > fíl FTnr Skærulióar berjast í sínum eigin heimkynn,um, þekkja akrana, skógana og fenin. hjarta höfuðborgar Suður-Víet- nam hrekur allar fullyrðingar bandaríska utanríkísráðuneytis- ins um þetta efni. Hún sýnir að Þjóðfrelsishreyfing Súður- Víetnam getur farið allra sinna ferða og gert þær úrásir sem henni sýnist i sjálfu höfuðvígi andstæðingsins. Öll hernaðar- reynsla staðfestir að slikt get- ur einungis átt sér stað þar sem almenningur er á bandi skæruhers sem á í höggi við margfalt fjölmennari og óend- anlega öflugri vopnum búna féndur. Húsbóndinn í sendiráðinu var ekki heima þegar ráðizt var á bygginguna. Maxvel búið að fá nóg af blóðsúthell- ingunum. I tuttugu ár hefur ófríður geisað næstum látlaust í landi þess. Um miljón manna hefur látið lífið í Suður-Víet- nam á þessu tímabili í bar- dögum við Japani og Frakka. f innan.landsófriði en þó fyrst og fremst fyrir bandarískum múgdrápstækjum. Hlutverk Bandaríkjamanna f Suður-Ví- etnam má marka af atburði sem gerðist fáa kílómetra frá bandarísku flugstöðinni Dan- ang. Áhöfn bandariskrar sprengjuflugvélar þóttist sjú fána Þjóðfrelsisfylkingarinnar blakta yfir sveitaþorpi. Napalm- sprengjum var dembt yfir húsaþyrpinguna með þeim af- stjórnarinnar er ekki einu sinni fær um að halda vörð um þýðingarmestu her- og stjórnarstöðvar Bandaríkja- manna. Það sýndi sig við Pleiku, þegar skæruliðar með þungar sprengiefnisbyrðar komust gegnum margfaldan varðhring Suður-Víetnamhers inn í miðja herskálaþyrpingu Bandaríkjamanna. Sama sagan hefur gerzt við margar aðrar herstöðvar. Bandarískir her- menn hafa gripið til þess ráðs að leigja herskáa fjallabúa Lil að gæta sín á nóttunni og greiða þeim fyrir úr eigin vasa. Loks var svo komið um þær mundir sem loftárásimar hóf- ust á Norður-Víetnam að Surmudagur 4. apríf 198ð T---------5T-P"--------------------- Skæruliðar með 12.7 millimetra vélbyssu sem þeir hafa tekið herfangi af Bandaríkjamönnum og bcita nú gegn þyrlum þeirra. bandaríska herstjómin hafðl það fram að nokkur þúsund landgönguliðum úr Bandaríkja- her yrði falin gæzla Danang, nyrzta flugvallar sem banda- rísku sprengjuflugvélamar hafa afnot af. egar loftárásirnar á Norður- Víetnam voru hafnar, héldu ráðunautar Johnsons því fram að „innan tveggja mán- aða yrði baráttukjarkur komm- únista farinn að réna,“ segir New York Times á mánudag- inn. Raunin hefur orðið þver- öfug. Uppúr síðustu áramótum kom stjómin í Hanoi á fram- færi f París og aðalstöövum SÞ skilaboðum á þá leið að hún væri fús að slyöja við- leitni de Gaulle og U Þants að koma á samningaviðrasðum til að binda crndi á ófriðinn. Nú kveðst hún enga möguleika sjá á samningaviðræðum meðan Bandaríkjamenn halda uppi loftárásum á land hennar. Stjóra Kxna og forusta Þjóð- frelsisfylkingarinnar f Suður- Víetnam taka enn ósveigjan- legri afstöðu og segja að samningar séu því aðeins mögulegir að Bandaríkjamenn verði fyrst með öllu á brott frá Suður-Vfetnam. Mergurinn málsins er að loftárásirnar á Norður-Víetnam koma ekki hið minnsta við skæruherinn sem Bandaríkjamenn eiga í höggi við, og stjóm Þjóðfrelsishers- ins hefur sýnt að hún mótar sína eigin stefnu en fer ekki eftir fyrirmælum frá Hanoi. Lofthernaður Bandaríkjamanna getur með engu móti náð yf- irlýstum tilgangi sínum og er því annað tveggja óráðsfálm eða tilraun til að efha til stór- styrjaldar í Suðaustur-Asíu. Fylgi sveitaalþýðunnar við skæruherinn stafar af því að hann er hold af hennar holdi. Á yfirráðasvæðum Þjóðfrelsis- fylkingarinnar krefja embætt- ismenn hennar lægri skatta en umboðsmenn Saigonstjómar- innar gerðu, og þar á ofan er afnumin greiðsla á leigu til landsdrottna, sem frá fomu fari hafa lifað í munaði í borg- unum á vænum skerf af upp- skeru landseta sinna. Inæsta mánuði fer regntím- inn í hönd í Vietnam. Þá komast flugvélar Bandaríkja- manna ekki á loft dögum sam- an, og á liðnum árum hafa skæruliðar fært út kvíamar í skjóli steypiregns sem bæði. hlífir þeim við loftárásum og gerir vegi ófæra fallbyssu- vögnum stjómarhersins. Banda- ríkjamenn í Suöur-Vietnain“Öft- ast það nú mest að um regn- tímann takist skæruhernum að ná á sitt vald belti yfir landið þvert sem einangri Bandaríkja- her í norðurhlutanum frá birgðastöðvum í suðri. Við þær aðstæður gæti flugstöðin í Danang, sem þrjú þúsund bandarískir landgönguliðar gæta, hæglega orðið nýtt Di- enbienphu. Kominn er upp kvittur í Saigon um að skæru- liðar séu að umkringja banda- rísku herstöðvamar stórskota- liði og séu fílar notaðir til að draga fallstykkin á vettvang. M. T. Ó. Erindi Taylors sendiheira til Washington var að leggja fyrir Johnson tillögur umharð- ari loftárásir á Norður-Víet- nam og aukna þátttöku banda- rísks hers í borgarastyrjöldinni í suðurhluta landsins. Ur því að árásir flugvéla á herstöðvar, hergagnabúr og loftvamákerfi Norður-Víetnam kom fyrir ekki, vill Taylor fela banda- ríska flughernum að ráðast á brýr, jarðgöng og járnbrautar- stöðvar. Næsta skrefið væri svo loftárásir á verksmiðjur og stórborgir. Jafnframt loftsókn í norðri vill Taylor fá til Suð- ur-Víetnam að minnsta kosti 20.000 bandaríska hermenn í viðbót við þá 27.000 sem fyrir eru til að taka beinan þátt f baráttunni við skænuliða. Verði loftárásirnar færðar norður eft- ir landinu, líður brátt að því að orustuflugvélar á flugvöll- um við Hanoi komast í færi við bandarísku sprengjuflug- vélamar. I árásum á sam- gönguleiðir við kínversku landamærin má búast við á- tökum við kínverska flugher- inn. Ráðagerðir Taylors „fela því í sér að hætta sé á stríði við Kína,“ segir James Reston ( New York Times. ITiyrri skýringin virðist lík- A legri hvað Johnson snertir, því að hann er allt í einu far- inn að heita Norður-Víetnam gulli og grænum skógum jafn- framt því sem hann lætur halda uppi loftárásum á land- ið. Hann hefur lýst því yfir að Bandaríkjastjóm sé fyrir sitt leyti fús til að hverfa aft- ur til Genfarsamningsins frá 1954 um skipan mála í Víet- nam, en það Var einmitt Bandaríkjastjóm sem ónýtti þann samning með því að her- sitja Suður-Víetnam og koma í veg fyrir sameiningu lands- hlutanna með kosningum. Nú segist Johnson fús til að kalla bandarískt lið burt frá Suður- Víetnam að því tilskildu að Genfarsamningurinn taki gildi á ný. Jafnframt gefur hann fyrirheit um bandarísk fjár- framlög til sameiginlegrar framkvæmdaáætlunar allra ríkja Suðaustur-Asíu. Allt er þetta heldur óljóst og loðið, en sýnir samt að þeir aðilar eru til i Bandaríkjastjóm sem gera sér Ijóst að hernaður einn saman hrekkur skammt til að vinna bug á þjóðfélagsbylting- unni sem ber uppi Þjóðfrelsis- fylkinguna í Suður-Víetnam. MALBIKUN H.F. Verkamenn óskast strax. — Mikil vinna. MALBIKUN H/F. sími 23276. Handsaumaðir kínverskir Borðdúka r 4, 6, ogl2 manna, nýkomnir. Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.