Þjóðviljinn - 04.04.1965, Síða 9
Sunnudagur 4. apríl 1965
ÞJÖÐVILJINN
Auglýsið / ÞJÓÐ VILJANUM
Hentar við íslenzkar aðstæður
TRABANT hefur unnið fjölmörg gull- og silf-
urverðlaun í þolkeyrslu við erfiða staðhætti,
m.a. í Finnlandi, Suður-Ameríku, Póllandi og
víðar.
I Finnlandi var TRABANT ekið meira en 7 þús-
und km. í frosti og sn'jóþyngslum, á 7 dögum,
án þess að vélin væri stöðvuð.
Pantið T R A B A N T tímanlega
oóeins kr 87.500~
Söluumboð
BlLASALA GUÐMUNDAB
Berqþóruaötu 3 — Sími 19032 - 20070
EINKAUMBOÐ
INGVAR HELGASON
TRYGGVAGÖTU 10 SÍMI T9655 V'”
Járnhsusinn
Framhald af 3. síðu.
pólitískan áhuga og skammir.
Og írskan er miklu útbreidd-
ari en maður hefði haldið, og
það er stefnt að því að landið
verði að minnsta kosti „tví-
mælt”, að menn hafi yfirleitt
bæði ensku og írsku á valdi
sínu. Þegar við sáum það leik-
rit á írsku sem áður var
minnzt á, heyrðist aðeins írska
töluð í hléinu. 1 samkvæmi
með rithöfundum voru viðmæl-
endur mínir alltaf öðru hvoru
að hlaupa yfir í írsku, sem ég
skildi auðvitað ékki — hún er
þeim svona töm. Margir — t.d.
MacAnna, láta börn sín ganga
á skóla þar sem öll kennsla fer
fram á írsku. Og það er einmitt
sú uppvaxandi kynslóð sem
mun ráða úrslitum um örlög
gelískunnar . . A. B.
Erindi um sijórn-
fræði og íslenzk
stjórnmál
f dag verða flutt 9. og 10.
erindið í erindaflokki Félags-
málastofnunarinnar um stjórn-
fræði og íslenzk stjómmál. Kl.
4 ræðir Emil Jónsson ráðherra,
formaður Alþýðuflokksins um
sögu flokksins og stefnu. Þá
flytur Hannes Jónsson félags-
fræðingur erindi er nefnist Fé-
lagsleg viðhorf og hlutverk rík-
isins. Erindin eru flutt í kvik-
myndasal Austurbæjarskólans.
STANGVEIÐI
Framhald af 2. síðu.
-ICSA) o.fl. Meðan mótið stend-
ur yfir, munu þátttakendur gista
á Keflavíkurflugvelli og hafa
þar samastað.
Þátttökugjaldi hefur venð
mjög i hóf stillt, en það er á-
kveðið kr. 3000,00 og er inni-
falið i því gisting og máltíðir
allar, bátsleiga og beita. Er bú-
izt við mikilli þátttöku í þessu
sjós.tangaveiðimóti, bæði héðan
áð heiman og eins erlendis frá.
Ferðaskrifstofan Saga veitir
allar nánari upplýsingar um
mótið og tekur á móti þátttöku-
tilkynningum.
Ray Bliss er nú
orðinn formaður
— endanlegur ósigur Goldwaters
WASHINGTON 2/4 — Ray
Bliss tók í gær við formanns-
stöðu í Repúblikanaflokknum
bandaríska. Með þessum manna-
skiptum missir Barry Goldwat-
er, öldungadeildarmaður frá
Arizona og frambjóðandi flokks-
ins við forsetakosningarnar,
endanlega yfirráð sín yfir
flokknum. Bliss tók við af Dean
Burch, en hann var útnefndur
í starfið af Goldwater, þegar
Goldwater hafði tryggt sér for-
setaframboðið á flokksþinginu í
Kalifomíu.
Ray Bliss er kunnur sem góð-
ur skipuleggjandi og þarf á þeim
eiginleikum að halda í ríkum
mæli þáí éð flokkurinn stend-
ur nú frammi fyrir gífurlegum
vandamálum; brýnasta verkefn-
ið er að koma aftur á einingu
innan flokksins, en þar hefur
hver höndin verið upp á móti
annarri frá því Goldwater tap-
aði forsetakosningunum.
Englendingar hætta
endanlega við TSR
LONDON 2/4 — Endanlegur
dauðadómur yfir dýrustu flug-
vélasmíði Englendinga liingað
til — sprengjuþotunni TSR —
verður kveðinn upp um helg-
ina, segir í frétt frá NTB. Rík-
isstjórnin mun hafa ákveðið að
hætta við fyrirtækið, sem hing-
að til hefur kostað 250 miljónir
sterlingspunda eða eitthvað im
30 miljarða íslenzkra króna.
Vinnan við könnunar- og
sprengjuflugvélina TSR — Tac-
tical Strike and Reconnaissance
— hefur staðið í sjö ár og vél-
in átti að verða bezta og mest
alhliða herflugvél heims. Með-
al annars átti vélin með sérstök-
um sjónvarpsmyndavélum að
geta komizt hjá því að ratsjá
hugsanlegra óvina kæmi auga á
vélina. Hraði flugvélarinnar átti
að vera 2.140 km á klukkustund
eða ca 1,5 sinnum meiri en
hraði hljóðsins.
Ætlunin yar, að brezki flug-
herinn skyldi fá til umráðá 150
flugvélar af þessari gerð, heiid-
arkostnaður hefði orðið um 90
miljarðar íslenzkra króna .eða
600 _ miljónir á hverja flugvél.
— í staðinn á nú að öllum lík-
indum að kaupa bandarískar
vélar af gerðinni R-lll, en þær
eru um helmingi ódýrari.
TSR hefur raunverulega ver-
ið dauðadæmt fyrirtæki frá því
Verkamannaflokkurinn tók við,
vöidum og lengi hefur verið vit-
að að fyrirhugað væri að leggja
þessa áætlun á hilluna.
lénncmar ræða
minkarækt
Á morgun, mánudag, heldur
Málfundafélag iðnnema í. Rvík
almennan málfund á meðal iðn-
nema um minkarækt. Fundur-
inn hefst kl. 8.30 í Iðnskólan-
um. Framsögu flytur Sigurður
Ágúst Jensson húsasmíðanemi.
Eftir framsöguerindið verða al-
mennar umræður og ættu sem
flestir að taka þátt í þeim til
þess að öðlast félagslega
reynslu. Þetta er þriðji fundur
félagsinS' á þrem mánuðum- -og
hafa hinir tveir verið mjög
skemmtilegir.
YOR OG SUMARSKÓFATNAÐUR
FRÁ FRAKKLANDI \
Karlmannaskór og sandalar ^ Barnaskór og sandalar fyrir telpur og drengi. JŒMUR í BOÐIRNAR í FYRRAMÁLIÐ
Skóbúð Austurbæjar Laugavegi 100. Kjörgarður Skódeild,
Stúdentaóeiðir
enn í Lissabon
LISSABON 2/4 — Vopnaðir
iögreglumenn með stálhjálma
gættu í alla nótt kaffistofu
stúdentanna við háskólann í
Lissabon eftir að um það bil
200 stúdentar höfðu verið hand-
teknir fyrr um kvöídið. Óeirð-
irnar og handtökurnar voru 'af-
leiðing af deilu, sem upp kom
milli stúdenta og háskólarekt-
ors. Hinir handteknu voru færð-
ir til lögreglustöðvarinnar og
yfirheyrðir, en síðan látnir laus-
ir. Umsátrinu um kaffistofuna
var aflétt snemma í morgun.
Talsmaður lögreglunnar skýrði
svo frá, að það værí háskóla-
rektor sem beðið hefði um lög-
regluvernd. Stúdentár höfðu
annars á fundi, sem háldinn
var í gær, ákveðið að bevgja
sig fyrir þeirri ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að banna að halda
hátíðlegan hinn svonefnda
„Stúdentadag”. Er þetta í fjórða
sinn í röð, sem þau hátíðahöld
eru bönnuð, þar eð þau eru að
áliti stjórnarinnar liður í „und-
irróðursstarfsemi kommúhista“
eins og það er orðað.
HLUTAVELTA HLUTA VELTA HLUTAVELTA
í USTAMANNASKÁL ANUM
Kl. 1 3.30 (kl. hálf tvö) í dag byrjar KR-hluta-
veltan í Listamannaskálanum. — Fjöldi
glæsilegra vinninga. — Engin núll — Hvert
númer er vinningur. —
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
# SKELLINAÐRA
# M AT ARSTELL
# BEÁTLESHLJÓMPLÖTUR
# HOSGÖGN
# OG MARGT MARGT FLEIRA.
--------------_____ SIDA §
Borgarstjórn
F'ramhald af 1. síðu.
hæfi“ eins og borgarfulltrúinn
velferðarnefndar, en „slíkt at-
komst svo smekklega að orði,
væri hið ámælisverðasta. Alfreð
benti íhaldsmanninum þá á að
tillaga sín gæti ekki verið Sam-
in upp úr álitsgerð velferðar-
nefndarinnar, því að hana hefði
hann ekki séð, enda ekki vitað
fyrr en Þórir Kr. skýrði frá
því á fundinum að hún hefði
lokið störfum. Hinsvegar sagðist
Alfreð fúslega játa áð;síh tillaga
væri á engan hátt frumleg, hún
væri byggð á samþykkt .borgar-
stjórnarinnar í þessum málum
fyrir um það bil 2 árum og
flutt nú til þess að leggja á-
herzlu á nauðsyn framkyæmda
í málinu.
íhaldsfulltrúarnir 9 í borg-'
arstjórninni reyndust rökheldir1
nú eins og ofta'st. áður og:
greiddu allir atkvæði með 'frá-
vísunartillögu Þóris gegn at-
kvæðum briggja borgarfulltrúa r
Alþýðubandalagsins. Framsókn- ■
armennirnir tveir í borgarstjóm
og kratinn sátu hjá.
Stóriðjan
-Framhald af 12. síðu
smávirkjanaleiðina. Þá sagði
Björn, að hæpið mætti telj-
ast að íslenzkt atvinnulíf
þyldi að mikill fjöldi vefka-
fólks færi í vinnu hjá er-
lendu fyrirtæki. ' *
Páll Kolka, lséknir, tók til
máls og sagði að Stúdenta-
félagsfundir væru leiðinlegir
og lýsti því næst þeirti skoð-
un sinni að fráleitt væri að
óttast erlent fjármagn inn í
landið.
Sveinn Benediktssoii sagði,
að dragbítar hefðu ■ alltaf
staðið á móti því að farið
yrði út í framkvæmdir eins
og hitaveituna, vatnsveituna
og Sogsvirkjun. Það ætti
ekki að hlusta á þessa drag-
bíta lengur, sagði Sveinn,
heldur tgka uþp þráðinn þar
sepi Einar Benediktfson hefði
sléppt honum.
Valur Lárusson sagðist -
standa með Eyjólfi Kouráð,
og' Einari Ben. . .
Áð lokum töluðu frum-
mælertdur á ný og svöruðu
ýmsum atriðurp sem . fram
komu í máli ræðumanha, en
síðan var fundi slitið um kL
hálf eitt.
TIL SÖLU
Einbýlishús. Tvíbýlis-
hús og íbúðír af ýmsum
stærðum f Reykjavik,
Kópavogj og nágrenni.
FASTEIGNASALAN
Hús & eignir
BANKASTRÆTI 6 —
SÍMI 16637.
BónumbHa
Látið okkur bóna óg
hreinsa bifreiðina.
Opið alla virka daga
kl. 8—19.
BÓNSTÖÐIN
Tryggvagötu 22
Sími 17522.
S í M I
2 4 113
Sendibílastöðin
Borþartúni 21