Þjóðviljinn - 07.05.1965, Qupperneq 4
4 SÍ0A
ÞJÓÐVnjINN
Útgeíandi: SaxrveLningarflokfcur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartanason*
Sigurður Guðmxmdssan.
Fréttaritstjóri: Sigur&ur V. Friðþjófsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19.
Simi 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 á mánuði.
EHendir auðmagnsfjötrar
Með frarnkomu sinni undanfama daga hefur
ríkisstjóm íhaldsins og Alþýðuflokksins geng-
ið furðulangt í því að gera störf Alþingis og þing-
ræðið á íslandi að skrípaleik. Hinum örlagarík-
ustu málum er dengt inn í Alþingi þegar fáir dag-
ar eru til þingslita. Frumvarpið um Landsvirkjun
er alþingismönnum ætlað að afgreiða á einni viku
í því flaustri og ónæði sem jafnan einkennir síð-
ustu daga hvers þings. Alúmínverksmiðjumálinu
er fleygt á borð þingmanna sem „skýrslu“ frá rík-
isstjóminni og gert ráð fyrir að stjórnin haldi á-
fram og jafnvel ljúki samningum um það mikla
deilumál í sumar meðan Alþingi er hvergi nærri,
og síðar verði þinginu í haust stillt frammi fyrir
gerðum hlut: Ríkiss'tjórnin hafi þegar samið um að
afhenda hinum erlenda auðhring aðstöðu og fríð-
indi sem jafngilda miklum völdum og gróðafær-
um í íslenzku efnahagslífi; Alþingi megi drattast á
eftir og samþykkja breytingalaust það sem menn-
imir í ráðherrastólunum og „sérfræðingar“ þeirra
eru búnir að gera. Það er áreiðanlega ekki ofmælt
að með slíkri framkomu í garð þings og þjóðar er
gengið býsna langt í því að óvirða íslenzkt lýðræði,
og ekki er farið dult með að þessi sýning mála á
Alþingi sé einungis fyrir siðasakir, í innstu klíkum
stjórnarflokkanna sé það þegar afgreitt mál, að
þeir vilji og ætli að ofurselja hinum erlenda auð-
hring íslenzkar auðlindir. Vandamálið sem flokks-
foringjarnir glíma við, í hræsni sinni og skamm-
sýni, er einungis hvernig fjötri hins erlenda auð-
magns verði smeygt á íslendinga án þess að þjóð-
in rísi upp og segi við þessa flokka, sem þannig
bregðast trausti hennar og trúnaði: Hingað og ekki
lengra! ‘
^ðferðin til að koma vondum og hættulegum
málum í kring er orðin þrautréýnd; forystu-
mönnum þessara sömu flokka tókst að svíkja ís-
land inn í Atlanzhafsbandalagið með svipuðum að-
ferðum. Þeir hafa þjálfað sig í brigðum við mál-
stað þjóðarinnar með undanlátssemi stig af stigi
við erlendri ásælni allt frá stríðslokum. Og það á
að fara eins að í alúmínverksmiðjumálinu. Verði
það látið viðgangast og fái þessir flokkar að fara
lengur með völd á íslandi, mun haldið áfram á
þeirri braut að opna erlendum auðhringum leið
inn í íslenzkt efnahagslíf. Einmitt þessi ár og
áratugi berjast margar hinna nýfrjálsu þjóða
hetjubaráttu til þess að losa um tök erlendra auð-
hringa á auðlindum landanna, arfinn frá nýlendu-
kúgun og harðstjórn, og þrælatökunum er ekki
sleppt fyrr en í fulla hnefana. Islendingar geta
enn afstýrt því að duglaus ríkisstjórn, trúlaus á
land og þjóð, bindi komandi kynslóðum svo þunga
bagga. Það getur kostað miklu meiri baráttu síðar
að losa um fjötrana, þó verkalýðshreyfingin hljóti
að beita vaxandi tökum á stjórnmálum og efna-
hagslífi að því marki. Svo gæti þó farið að hið er-
lenda auðfélag yrði skamma stund fegið því tang-
arhaldi er það telur nú að nást muni á íslenzkum
auðlindum,.jafnvel þó svo færi að ríkisstjórn íhalds
og Alþýðuflokks tækist áform sín í bráð. —s.
r . - .
' !../•.;>* ’i
Föstudagur 7. maí 1965
ÍSLENZKUR FATNAÐUR 1965
Tuttugu og tvö fyrirtæki halda kaUpstefnu og sýningu á fram-
leiðsluvörum sínum í fataiðnaðinum í Lídó þessa dagana
■ Ejhs og frá hefur ver- -f(
ið skýrt í Þjóðviljanum
stendur yfir kaupstefna og
sýning á íslenzkum iðnaði í
L' 'ó um þessar mundir.
Þarna sýna 22 fyrirtæki
framleiðsluvörur sínar og
er sýningin í heild mjög
fjölbreytt og athyglisverð.
Tæp vika er nú frá opnun
sýningarinnar og hafa þeg-
ar mörg þúsund manns lagt
leið sína í Lídó til að skoða
og kaupa framleiðsluvörur
hinna ýmsu fyrirtækja og
láta sannfærast um ágæti
innlendrar framleiðslu.
■ Blaðamaður og Ijós-
myndari Þjóðviljans gengu
um sýninguna í gær og hér
á síðunni eru myndir frá
nokkrum sýningardeildum.
Það eru 22 fatnaðarframleið-
endur, sem sýna framleiðslu
sína þama í Lídó. Hver sýn-
andi hefur sinn sýningarbás,
en frá básunum er mjög smekk-
lega gengið við báða langveggi
salarins, svo og á miðju gólfi.
Kjartan Guðjónsson hefur
haft yfirumsjón með uppsetn-
ingu sýnihgarinnar og hann er
jafnframt framkvæmdastjóri
hennar.
Á vinstri hönd, þegar inn
er komið verður fyrst fyrir
auga sýningaTgestsins bás
Fata hf., en síðan rekur hvert
fyrirtækið annað: Max hf.,
Vinnufatagerð Islands hf.,
Andrés Andrésson hf., Kólibrí-
föt h.f., Elgur h.f., og Prjóna-
stofa önnu Þórðardóttur' hf.
Við hinn vegginn eru svo sýn-
ingarbásar Prjónastofunnar Ið-
unn hf., fatagerðar L. H. Mull-
er, Barnafatagerðarinnar sf., og
Klæðagerðarinnar Skikkju,
Model Magasin, Sokkaverksm.
Evu hf., Sportvers hf., Prjóna-
stofunnar Peysunnar, Skjól-
fatagerðarinnar hf. og SAVA.
Á miðju gólfi eru loks sýning-
ardeildir Vinnufatagerðar ís-
lánds hf., Dúks hf., Fatagerð-
arinnar Burkna hf. og Lady
hf.
Fatnaður á sýningunni er
margvíslegur: Prjónafatnaður,
bamafatnaður, lífstykkjavör-
ur, skyrtur, kvenfatnaður,
karlmannaföt, vinnufatnaður,
sportfatnaður, karlmanna-
írakkar, sjóklæði, úlpur, við-
leguútbúnaður, vettlingar, háls-
bindi, nærfatnaður, sokkar og
margt fleira; með öðrum orð-
um: sýningin vitnar um fjöl-
breytni mikla í íslenzkum fata-
iðnaði.
Vinnufatagerft Islands h.f. er stærsti sýnandinn á kaupstefnunni og vörusýninguiini í Lídó. Sýning-
arbásar fyrirtækisins þar eru tveir og er myndin af öðrum þeirra, þar sem sýndur er hverskonar
vinnufatnaftur, sportf atnaður-og ferðaföt.
LADY h.f. sýnir nærfatnað kvenpa og lífstykkja-vörur svonefndae.
Það cr ckki miklu hrúgað í sýnjngarbásana, en smekklega frá
flestum gcngið eiras og t.d. þessum bás FATA h.f.
Andrés Andrésson h.f. hefur Iöngrm verið eitt stærsta fyrir-
tækið hér á landi á svið. karlmannafatagerðar.