Þjóðviljinn - 04.09.1965, Qupperneq 1
Laugardagur 4. september 1965 — 30. árgangur — 198. tölublað.
Skipuð framkvæmdanefnd
byggingaráætlunarinnar
Gert í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar#
ASB hefur boðað verkfall
frá og með 10. september
ffirmenn semja; samningafundir hjá byggingarmönnum og rafvirkjum
Q Nokkur hreyíing virðist nú komin á kjaramálin aítur, en um hríð
lágu allir samningafundir niðri. Náðst hefur samkomulag við málm- og skipa-
smiði, loksins hefur verið boðaður fundur með sambandi byggingarmanna
og Dagsbrún hefur unnið að gerð sérsamninga.
Q ASB hefur hins vegar boðað vinnustöðvun frá og með 10. þ.m. í
brauðbúðum, en félagið hafði áður náð samkomulagi við Mjólkursamsöluna.
Afgreiðslustúlkur í brauðbúð-
um hafa nú boðað vinnustöðv-
un frá og með 10. september
næstkomandi, hafi samningar
ekki tekizt, við Bakarameistara-
félag Reykjavíkur og Alþýðu-
brauðgerðina fyrir þann tíma.
Samningafundir hafa legið
niðri um hríð hjá ASB og bak-
arameisturum, en félagið hefur
fyrir nokkru náð samkomulagi
við Mjólkursamsöluna. Bakarar
vilja hins vegar ekki koma til
móts ,við afgreiðslustúlkur á
svipuðum grundvelli og hefur
ASB neyðst til að grípa til
verkfallsboðunar. Verkfallið
mun ná til um þriðja hluta fé-
lagskvenna í ASB.
Loks fundur
Mjög langt er nú umliðið síð-
an sáttasemjari hefur boðað
samning^fund með byggingar-
mönnum. Samkvæmt lögum má
ekki líða lengri tími en hálfur
mánuður á milli funda eftir að
kjaradeilur eru komnar til sáttu-
semjara. Fundur hefur nú loks
verið boðaður eftir mjög langt
hlé. Verður fundurinn haidinn
kl. 5 á mánudaginn.
Dagsbrún hefur nú undanfar-
ið unnið að sérsamningum fyrir
félagsmenn sína. Snerta þeir vél-
stjóra í frysthúsum og áburðar-
verksmiðjunni. Sömuleiðis standa
yfir sérsamningar við sildar-
verksmiðjurnar og stjórnendur
þungavinnuyéla eiga einnig í
samkomulagsumleitunum við
atvinnurekendur sína.
Yfirmenn semja
I gærmorgun voru undirritaðir
samningar milli yfirmanna a
kaupskipum. Hófst þessi síðasti
fundur kl. 9 í fyrrakvöld. Sam-
komulag þetta er á svipuðum
grundvelli og þeir kjarasamn-
ingar, sem gerðir háfa verið
fyrr í sumar. Að þessum samn-
ingum yfirmanna standa félag
stýrimanna, vélstjóra, loftskeyta-
manna og bryta. Ósamið er við
j matsveina, en skipstjórar hafa
enn ekki sagt upp samningum.
Framhald á 9. síðu.
í gær barst Þjóðviljanum eftirfarandi fréttatil-
kynning frá félagsmálaráðuneytinu um skipun
nefndar til að hafa yfirumsjón með framkvæmdum
byggingaáætlunar þeirrar er ríkisstjórnin gaf fyr-
irheit um í sambandi við lausn kjaradeilu verka-
lýðsfélaganna í sumar.
f samræmi við yfirlýsingu
ríkisstjómarinnar um húsnæð-
ismál, sem gefin var í sam-
bandi við lausn kjaradeilu
verkalýðsfél. á þessu sumri hafa
eftirtaldir menn verið tilnefnd-
ir í nefnd, sem annast skal yf-
irumsjón með framkvæmd þeirr-
ar byggingaráætlunár, sem um
ræðir í yfirlýsingunni:
1. Af húsnæðismálastjórn:
Jón Þorsteinsson, lögfræðing-
ur, Sióragerði 1, Reykjavík og
Ingólfur Finnbogason, húsa-
smíðameistari, Mávahlíð 4. Rvík.
Til vara- Ragnar Emilsson, arki-
tekt, Háaleitisvegi 26, Reykja-
vík og Ragnar Lárusson, for-
stöðumaður, Brekkustíg 12, Rvík,
2. Af Reykjavikurborg;
Gísli Halldórsson, borgarráðs-
maður og til vara Sveinn Ragn-
arsson, félagsmálastjóri.
3. Af Alýðusambandi fslands:
Guðmund J. Guðmundsson,
varaformaður Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar og til vara
Hannibal Valdimarsson, forseti
Alþýðusambands íslands.
4. Af Fulltrúaráði verkalýðsfé-
laganna í Reykjavík:
Óskar Hallgrímsson, Skeiðar-
vogi 35, Reykjavík og til vara,
Guðjón Sigurðsson, Grímshaga
| 8, Reykjavík Formaður nefnd-
arinnar er Jón Þorsteinsson.
Annarri eld-
flauginni loks
skotið í ;eær-
23.30
....................-'.tx
★ Loks í gærkvöld voru aðstæð-
ur hentugar til að skjóta á loft
annarri könnunareldflaug Frakk-
anna af Skógarsandi. Höfðu
frönsku vísindamennirnir verið
níu kvöld tilbúnir til að skjóta,
en veður leyföi ekki fyrr en í
gærkvöld.
★ Eldflauginni var skotið kl.
23.30 og var véður mjög gott
eystra. Er blaðið hafði samband
við Emil Eyjólfsson, túlk Frakk-
anna, um tólfleytið, sagði hann
að búast mætti við að niður-
stöður kæmu í meginatriðum í
ljós á morgun af þessum rann-
sóknum Frakkanna. Emil sagði
að fátt fólk hefði verið statt
cystra, er skotið var, því enginn
hafði búizt við að úr eldflauga-
skotinu yrði þetta kvöld.
Fokker Friendship-flugvél Flugfélags íslands á Reykjavikurflugvelli. — Ljósm. A.K.
Lífsnau&syn er a& setja varanlegt
slitlag á flugvellina úti á landi
segir flugmálastjóri í viðtali við Þjóðviljann
Fcrstjóri Evrépu-
Hr Peter Smithers, forstjóri
Evrópuráðsins, kemur til 'Rvík-
ur laugardaginn 4. september
1965 og mun dvelja hér á landi
til föstudags 19. september
Mun forstjórinn eiga hér við-
-æður við ráðherra, alþingis-
menn og embættismenn. Hann
tók við starfj forstjóra Evrópu-
ráðsin« 1964, en var áður að-
;'0'*arutanrikisráðherra Bret-
lands
(Frá utanríkisráðuneytinu).
■ í viðtali við Þjóðvilj-
ann í gær sagði flugmála-
stjóri, Agnar Kofoed-Han-
sen, að lífsnauðsyn væri að
setja sem fyrst varanlegt
slitlag á helztu flugvellina
úti á landi, því að annars
væru horfur á að Flugfélag-
ið yrði að hætta við notkun
Fokker Friendship flugvél-
arinnar vegna skemmda sem
hún yrði fyrir á flugvöllun-
um af grjótkasti. Hins veg-
ar sagði hann að ekkert fé
væri fyrir hendi til þessara
nauðsynlegu framkvæmda
og fjárveitingavaldið virtist
ekki hafa skilning á nauð-
syn þeirra.
Flugmálastjóri sagði að það
væru einkum flugvellirnir á
Akureyri, Egilsstöðum, fsafirði
og Vestmannaeyjum sem hér
væri um að ræða. Til tals hefði
komið um Akureyrarflugvöll að
malhika hann og væri það mál
nú í athugun. Er Akureyrarbær
nýverið búinn að festa kaup á
fullkomnum malbikunarvélum
og væri hægt að hefja malbik-
un flugvallarins næsta vor, ef
fé væri fyrir hendi. Hefur verið
áætlað að malbikun flugbraut-
arinnar þar myndi kosta um 10
miljón krónur, en brautin er
1500 metra löng. Sagði Agnar
að það væri ekki aðeins vegna
innanlandsflugsins sem nauðsyn-
legt væri að malbika flugvöll-
inn á Akureyri eða setja annað
varanlegt slitlag á hann.
Vegna þessara ummæla flug-
málastjóra snéri Þjóðviljinn sér
einnig til forstjóra Flugfélags-
ins, Amar Johnson, og leitaöi
álits hans á þessu máli. Sagði
örn að það væri Flugféldginu
að sjálfsögðu mjög mikið áhuga-
mál að varanlegt slitlag yrði
sett á helztu flugvellina úti á
landi. Sagði hann að talsvert
miklar skemmdir hefðu þegar
orðið á Fokker Friendship flug-
vélinni vegna grjótkasts á mal-
arvöllunum og þyrfti hún mjög
nákvæmt eftirlit og mikið við-
hald af þeim sökum, þótt ekki
væri beint hætta á að hún eyði-
legðist.
Fylkíngin
Skálaferð
á morgun
■ Hinn árlegi knattspyrnu-
leikur milli framkvæmda-
nefndar ÆF og stjórnar
ÆFR fer fram á morgun,
sunnudag, við Skíðaskál-
ann í Sauðadölum. Sem
kunnugt er, er þetta einn
af stærstu íþróttavið-
burðum ársins, a.m.k. í
augum Fylkingarfélaga
og eru menn eindregið
hvattir til að fjölmenna,
■ ÆFR sér fyrir ferðum
uppeftir. Verður lagt af
stað frá Tjarnargötu 20
kl, 2 á morgun. Komið
verður í bæinn aftur ann-
að kvöld.
■ Allar upplýsingar er að
fá i síma 1-75-13. og á
skrifetofu Æskulýðsfylk-
ingarinnar i Tjarnargötu
20.
Daglegir vi&ræ&ufundir a&ila um
kjaramál opinberra starfs
Þjóðviljinn leitaði í gær upp-
lýsinga hjá Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja um gang
samningaviðræðna um kjaramál
opinberra starfsmanna, en sam-
kvæmt settum reglum átti sátta-
semjari ríkisins að fá kjara-
deiluna til meðferðar nú um sl.
mánaðamót, ef samningar hefðu
ekki tekizt fyrir þann tíma.
Blaðið fékk þær upplýs'ingar
að nær daglegir viðræðufundir
hefðu verið haldnir með deilu-
aðilum sl. hálfan mánuð og væri
viðræðunum enn haldið áfram | semjara fer deilan til úrskurð-
að ósk beggja aðila og hefði ! ar kjaradóms lögum samkvæm!
sáttasemjari því enn ekki skor- og hefur hann tvo mánuði ti'
izt í málið. stefnu til þess að kveða upr
Hafi samningar hins vegar úrskurð sinn en hann á aí
ekki tekizt fyrir næstu mán- liggja fyrir 1. desember n.k,
aðamót fyrir milligöngu sátta- i síðasta lagi.