Þjóðviljinn - 04.09.1965, Síða 4
4 S*ÐA — ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 4. september 1965.
Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urixm. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 á mánuði.
Rannsókn
þjóðviljinn skýrði frá því fyrstur blaða, að nótf-
ina sem Þorbjöm strandaði hefði ekki tekizt
að ná sambandi við Slysavarnarfélag íslands. Þessi
furðulega staðreynd var síðan staðfest með vitna-
leiðslum í sjóprófum, og þar voru einnig færðar
sönnur á mjög alvarlegar skipulagsveilur í slysa-
varnarkerfinu á Reykjanesi. Sú hörmulega reynsla
sem þarna fékkst er ótvíræður vitnisburður um
það, að nauðsynlegt er að taka allt slysavarnar-
kerfið til endurskoðunar, gera stjómina ein’fald-
ari og öruggari, koma fyrir fullkomnum björg-
unarú'tbúnaði hvar sem hann kann að koma að
gagni og trygggja örugglega að björgunartæki
séu nothæf þegar á þeim þarf að halda. Það er
fráleitt fyrirkomulag að það geti verið vandkvæð-
um bundið að ná sambandi við Slysavamarfélag
íslands; sú stofnun þarf að vera jafn aðgengileg
og lögreglan eða brunaliðið, því ef slys ber að
höndum getur það ráðið úrslitum að björgunar-
menn komist á vettvang sem allra fyrst. Einnig
þarf að koma á öruggu boðunarkerfi til einstakra
slysavamardeilda, og á slíkt ekki að vera erfitt
með þeirri tækni sem nú er tiltæk.
Jjessi atriði og önnur voru mikið rædd eftir slys-
ið, og um þau getur naumast verið nokkur
ágreiningur. En því miður er það stundum hátt-
ur íslendinga að Iáta umtalið nægja en gleyma
athöfnunum. Því ítrekar Þjóðviljinn fyrri kröfu
sína um að framkvæmd verði gaumgæfileg rann-
sókn á öllu slysavarnarkerfinu í því skyni að
gera það virkara og öruggara. Færi vel á því að
hinn nýi sjávarútvegsmálaráðherra beitti sér fyr-
ir því að það verk verði unnið án tafar.
Frjálsíþróttir
Ábyrgðarieysi
Slyf á íslandi hafa löngum hlotizt af viðureígn
landsmanna við náttúruöflin, og þótt gætt sé
fyllstu varúðar og slysavarnir hafðar fullkomnar,
er hætt við að mönnum geti stundum veitt mið-
ur í þeirri viðureign. En þau slys fara mjög í
vöxt sem stafa af mannavöldum, af gálausri um-
gengni við vélar og 'tækni, — eða sinnuleysi.
Jþjóðviljinn greindi frá því í fyrradag að á mánu-
dag og þriðjudag í þessari viku hefðu verið
flutt um 200 tonn af sprengjum 'til hernámsliðs-
ins á vörubílum gegnum höfuðborgina á mesta
umferðar og annatíma. Var þessum farmi um-
■skipað í smábáta úr stóru skipi sem lá úti á höfn,
en bátarnir fluttu sprengjurnar til lands í vest-
ari höfninni og þar tóku vörubílarnir við. Með
þessu atferli var leidd mjög stórfelld hæt'ta yfir
höfuðborgina og íbúa hennar, og ætti að vera ó-
þarfi að lýsa því hvað af hefði hlotizt ef þessi
varningur hefði gegnt hlutverki sínu fyrr en til
var ætlazt, en slík slys hafa því miður gerzt marg-
sinnis erlendis í nánd við herstöðvar Bandaríkj-
anna. Sprengjuflutningar gegnum höfuðborgina
bera vott um glæpsamlegf ábyrgðarleysi, og þess
ber að krefjast að þegar í stað verði gerðar ráð-
stafanir sem tryggi það örugglega til frambúðar
að slíkir atburðir endurtaki sig ekki. — m.
Góður árangur á
Norðurlandsmóti
Norðurlandsmót j írjálsum
íþróttum var haldið að Laug-
u'm 21. og 22. ágúst 1965. Veð-
ur var ekki gott íyrri daginn
en gott þann seinni.
Úrslit urðu þessi; Fyrri dag-
ur:
100 m hlaup (með vindi)
Reynir Hjartarson, Þór 10,9
Ragnar Guðm.son UMSS 11,0
Höskuldur Þráinss. HSÞ 11,0
Sig V. Sigmundss. UMSE 11,3
400 m hlaup
Höskuldur Þráinss. HSÞ 55,9
Reynir Hjartars. Þór 58,2
Páll Dagbjartsson HSÞ 58,6
Ingvar Jónssoai HSÞ 58,6
1500 m hlaup
Baldvin Þóroddss. KA 4.30,9
Ármann Olgeirss. HSÞ 4.32,7
Marinó Eggertss. UNÞ 4.35,4
Vilhj. Björnss. UMSE 4.42,8
4x100 m boðhlaup
UMSE 51,2
HSÞ 51,3
Langstökk
Gestur Þorsteinss. UMSS 6,82
Sig, Friðriksson HSÞ 6,75
Ragnar Guðm.son UMSS 6,71 *■
Sig. V. Sigmundss. UMSE 6,30
Stangarstökk
Valgarð Sigurðsson KA 3,50
Sig. Friðriksson HSÞ 3,50
Ófeigur Baldursson HSÞ 3,10
Spjótkast
Ingi Ámason KA 45,51
Gestur. Þorsteinss. .UMSS 43,15
Guðm. Hallgrímss. HSÞ 42,27
Sig. V. Sigmundss. UMSE 32,13
Kúluvarp
Guðm. Hallgrímss. HSÞ 13,61
Ingi Árnason KA 12,89
Þór M. Valtýsson HSÞ 12,78
Páll Dagbjartss. HSÞ 12,09
K O N U R :
100 m hlaup (m. vindi)
Guðrún Benónýsd. HSÞ 13,1
Þorbjörg Aðalsteinsd. HSÞ 13,3
Ragna Pálsd. UMSE 13,5
Þorgerður Guðm.d. UMSE 13,6
Hástökk
Sigrún Saemundsd. HSÞ 1,35
Soffía Sævarsd. KA 1,30
Hafdís Helgad. UMSE 1,30
Sóley Kristjánsd. UMSE 1,25
Kringlukast
Sigrún Saemundsd. HSÞ 29,16
Bergljót Jónsd. UMSE 26,36
Þorgerður Guðm. UMSE 24,56
Síðari dagur:
200 m hlaup
Rejmir Hjartars. Þór 23,8
Ragnar Guðm.son UMSS 24,0
Höskuldur Þráinss. HSÞ 24,0
Sig V Sigmundss. UMSE 24,9
800 m hlaup
Baldvin Þóroddss. KA 2.07,3
Bergur Höskuldss.UMSE 2.10,1
Ólafur Ingimarss. UMSS 2.10,4
Vilhj Björnss,. UMSE 2.12,3
110 m grindahlaup
Reynir Hjartars. Þór 16.6
Sig Friðriksson HSÞ 18,4
Sig. V Sigmundss. UMSE 18,7
3000 m hlaup
Marinó Eggertss. UNÞ 9.37,8
Baldvin Þðroddss. KA 9.37,8
Ármann Olgeirss. HSÞ 10.02,5
Bergur Höskuldss. UMSE
10.12,4
Kringlukast Guðm. Hallgrímss. HSÞ 44,46
Ingi Árnason KA 42,01
Ak.met
Þór M. Valtýss. HSÞ 37,24
Páll Dagbjartsson HSÞ 36,42
Þrístökk Sig. Friðriksson HSÞ 13,69
Gestur Þorsteinss. UMSS 13,61
Sig. V. Sigmundss. UMSE 12,91
1000 m boðhlaup
A-sveit HSÞ 2.10,6
B-sveit UMSE 2.15,3
B-sveit HSÞ 2.15,7
K O N U R :
Langstökk
Þorg. Guðmundsd. UMSE 4,83
Þorbjörg Aðalsteinsd. HSÞ 4,67
Sigrún Saemundsd. HSÞ 4,57
Guðrún Benónýsd. HSÞ 4,47
Kúluvarp
Sóley Kristjánsd. UMSE 8,75
Gunnvör Björnsd. UMSE 8,49
Ragnh. Snorrad. UMSE 7,85
Sigrún Sæmundsd. HSÞ 7,53
4x100 m boðhlaup
A-sveit HSÞ 55,7
A-sveit UMSE 55,7
B-sveit HSÞ 59.0
B-sveit UMSE 66,0
sitt af hverju
★ Góður árangur náðist í
mörgum greinum á íþrótta-
móti stúdenta sem haldið var
í Budapest um síðustu helgi.
Helztu úrslit urðu þessi: 100
m hlaup: Iijima (Japan) 10.1.
Anderson (Bandar.) 10,1, Ger-
oma (Kanada) 10,2. Spjótkast:
Herrings (V-Þýzkal.) 79.26.
Rodighiero (ítalíu) 77.60. 400
m hlaup: Bello (Italíu) 46Æ.
van Herpen (Hollandi) 46,9.
800 m hlaup: Crothers (Kan-
ada) 1:47,7, German (Bandar)
1:47,8. Hástðkk: Skworzow
(Sovétr) 2.14. Czemik (Póll.)
2,07. Kringlukast: Hagípnd
(Svíþjóð) 57,86, Zemba
(Tékkósl.) 56,22. Tugþraut:
Toomey (Bandar.) 7566 stig,
Bakai (Ungv) 7443 st. 200 m
hlaup: Osolin (Sovétr.) 21,0.
Anderson (Bandar) 21,0, 400 m
grindahlaup: Frinolli (Italíu)
50,5, Poirier (Frakkl) 50.7.
Sleggjukast: Zsivotzky (Ungv)
67,74, Kondraschow (Sovétr)
65,76. Stangarstökk: Pennel
(Bandar.) 5,00, Blisnezojv
4,90. 5000 m hlaup: Sawafci
(Japan) 13:45,2. Philipp (V-
Þýzkalandi) 13:46,6.
★ H. Westerinen varð Finri-
landsmeistari í skák, hann var
V2 vinningi ofar en fyrrv,
Finnlandsmeistari J. Kanko
Alþjóðlegi meistarinn Börk
varð að hætta keppni végna
. veikinda.
utan úr heimi
Stig félaga:
1. HSÞ
2. UMSE
3. KA
4. Þór
104 stig
56 stig
32 stig
23 stig
Bikarkeppni KSÍ
Næsti leikur í bikarkeppni
KSÍ verður á Melavellinum á
morgun kl. 4, og keppa. þá KR-
b og Þróttur-a. Á mánudag kl.
18.30 keppa svo Fram-b og FH
á Melavellinum.
Haukar og Akurnesingar
keppa í Hafnarfirði í dag 1
bikarkeppni í 2. flokki. Leikur-
inn hefst kl. 4.
Flokkakeppni í golfi
við Grafarholt í dag
í dag, Iaugardaginn 4. sept.,
verður háð nýstárleg flokka-
keppni á velli Golfklúbbs R-
víkur við Grafarholt.
Leiknar verða 18 holur, og
keppendum raðað í flokka eft-
ir forgjöf, þannig að. 6 og
lægri verða í meistaraflpkki,
7—12 f fyrsta flokki og 13 og
hærri í öðrum flokki.
Veitt verða verðlaun fyrir
bezta árangur í hverjum fl.
án. forgjafar, og ennfremur
fyrir beztan heildarárangur í
keppninni með forgjöf. I for-
gjafarkeppninni verða þó tvær
verstu holur hvers keppanda
dregnar frá, áður en árangur
verður reiknaður út, 'og for-
gjöfin um leið lækkuð hlut-
fallslega.
Verðlaunin verða að þessu
sinni ýmsir nytsamir hlutir á-
letraðir til minja.
Golfklúbþur Reykjavíkur vill
vekja athygli á þvi, að öllum
kylfingum úr klúbbum innan
ISI er heimil þátttaka. . . ..
Keppnin hefst fcl. 14.00
stundvíslega, þar sem allir
keppendur munu hefja leik
samtímis ' fe-
AUKIN
ÞJONUSTA
í BANKÁSTRÆTI
TIL AÐ AUÐVELDA VID-
SKIPTAMÖNNUM GREIÐSLU
Á IÐGJÖLDUM HÖFUM VID
SAMIÐ VID SAMVINNUBANKA
ÍSLANDS H.F., BANKASTRÆTI
7 UM AD TAKA Á MÓTI HVERS
KONAR IDGJALDAGREIÐSL-
UM. VIÐSKIPTAMENN GETA
ÞVÍ FRAMVEGIS GREITT IÐ-
GJÖLD SfN Á AÐALSKRIF-
STOFUNNI f ÁRMÚLA 3 EÐA
HJÁ GJALDKERA SAMVINNU-
BANKA ÍSLANDS H.F.,2 HÆD.
SAMVINNUBANKINN
ENNFREMUR MUN FULLTRÚI OKKAR Á SAMA STAD TAKA VIÐ HVERS KONAR NYJUM
TRYGGINGUM OG LEIDBEINA UM NAUÐSYNLEGAR TRYGGINGAR'. *'
SAMVIN X U THYG GINGAIl
BANKASTRÆTI 7, SÍMl 20700
4
1