Þjóðviljinn - 04.09.1965, Blaðsíða 5
Laugardagur 4. september 1965 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA Ej
FLUGFAR STRAX
FAR GREITT SÍDAR
TRYGGID FAR MEÐ
FYRIRVARA
ÞÆGILEGAR HRADFERÐIR
HEIMAN OG HEIM
LOFTLEIÐIS LANDA
AMILLI
Fyrlr tæpum 1000 árum fundu
íslendingar, fyrstir hvítra
manna, meginland Norður-
Ameríku. Fyrir um 100 árum
hófst fslenzkt landnám á ný í
Vesturheimi. Fyrir um 10 árum
hófu Loftleiðir fastar áætlun-
arferðir rnilli (slands og Banda-
rfkjanna. Þá hófst ný fslenzk
landnámssaga með kynnis- og
orlofsferðum fslendinga til
aevintýra-og sögustaða Banda-
rfkjanna.
Meðalflugtími hinna nýju
Rolls Royce 400 Loftleiða
milli New York og íslands er
6 klst. 35 mín.
f julímánuði árið 1885 komu
92 íslendingar til Winnipeg
eftir 25 daga ferð frá fslandi
og var það mettími þá.
Það kostar ekki nema 7613 kr.
(án söluskatts) að fara héðan
til New York og aftur heim,
ef ferðast er með 21 dags far-
gjaldakjörum Loftleiða. Það er
ekki dýrara að fljúga til New
York en margra stórborga
Evrópu
Það er ekki dýrara að dvélja
í Bandaríkjunum en ýmsum
Evrópulöndum.
Það kostar ekki nema 99 dali
að aka um gervöll Bandaríkin
með Greyhound og Continen-
tal Trailways langferðabílum
og má ferðast ótakmarkað í
99 daga.
Þrettán bandarísk flugfélög
bjóða sameiginlega ótakmark-
aðar flugferðir í 21 dag fyrir
aðeins 150 dali.
Bandaríkin eru f rauninni stór
og fjölbreytileg heimsálfa. Þar
má því finna sumarveðráttu
allan ársins hring.
Ef íslendingar vilja njóta lífs-
ins í nokkra daga í New York
og skoða t. d. heimssýning-
una, en halda síðan til Florida
og endurnærast þar á sólgulln-
um leikvangi auðmanna, þá
kostar hálfsmánaðar ferð
hingað og héðan ekki nema
tæpar 20 þús. kr.
■BBKk
Krefjast aðildar
að nefndum er á-
kveða álagningu
Eins og sagt var frá hér £
blaðinu í gær héldu matvöru-
og kjötkaupmenn í Reykjavík
og nágrenni fjölmennan fund
í fyrrakvöld til þess að ræða
verðlagsmál landbúnaðaraf-
urða. Var eftirfarandi ályktun
samþykkt einróma á fundin-
um:
„Fundur matvöru- og kjöt-
kaupmanna, haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu, fimmtudaginn 2.
sept. 1965 áréttar þær kröfur
smásöludreifingaraðila, að þeir
fái aðild að þeim -nefndum,
sem ákveða smásöluálagningu
hinna ýmsu vörutegunda á
hverjum tíma.
Jafnframt bendir fundurinn
á, að með sölustöðvun á kart-
öflum vilja kaupmenn og
kaupfélög leggja sérstaka á-
herzlu á, að álagning á land-
búnaðarvörum í heild er langt
fyrir neðan meðal verzlunar-
kostnað og það enda þótt
dreifing á landbúnaðarvörum
sé miklu kostnaðarmeiri en
flestra annarra vörutegunda.
Fundurinn felur nefnd
þeirri, sem starfað hefur í
málinu, í samráði við kaupíé-
lögin og stjórn fisksalafélags-
ins, að taka ákvörðun um það
hvort og hvenær skuli aflétta
sölustöðvun, á kartöflum í
verzlunum eða hvort. réttara
sé að taka upp víðtækari sölu-
stöðvun á þessu stigi málsins.“
Tvær nýjar bæk-
ur koutnar
út hiá AB
Út eru kqmnar tvær nýjar
bækur hjá Almenna bókafélag-
inu og eru það fyrstu bækur
félagsins á þessu hausti. Eru
það Njósnarinn sem kom inn úr
kuldanum og Kanada.
Njósnarinn sem kom inn úr
kuldanum er eftir brezka rit-
höfundinn John le Carré og
fjallar um njósnir og gagnnjósn-
ir á dögum kalda stríðsins. Þýð-
andi er Páll Skúlason en bók-
in er prentuð í Prentsmiðju
Jóns Helgasonar. Kanada er
12. bókin í bókaflokknum Lönd
og þjóðir. Hún er rituð af Brian
Moore en þýdd af Agli Jónas-
syni stardal. Lesmál bókarinnar
er sett í Odda h.í.
Stórgjöf til
Heimilissjóðs
Heimilissióðs
Heimilissjóði taugaveiklaðra
barna hefir bcrizt stórgjöf.
Hinn 27. ágústsl. afhentu hjón,
sem þó óska að nöfn þeirra
verði ekki nefnd í þessu sam-
bandi, Heimilissjóði að gjöf
kr. 100.000 (eitt hundrað þús-
und krónur). Gjöf þessari fylg-
ir það skilyrði eitt, að henni
verði varið í byggiagarkostnað
lækningaheimilis fyrir tauga-
veikluð börn.
Stjóm. Heimilissjóðs þakkar
þeim hjónunum þessa stór-
mannlegu gjöf.
Fjögur ár eru nú liðin síð-
an Barnaverndarfélag Beykja-
víkur stofnaði Heimilissjóð
laugaveiklaðra barna. Margir
hafa lagt því áformi lið með
stórum gjöfum og smáum, að
reist verði hið bráðasta hjúkr-
unar- og lækningaheimili
handa taugaveikluðum börnum,
þar sem illa farnir sjúklingar
gætu dvalizt, meðan þeir þarfn-
ist sérfræðilegrar meðferðar.
W eru í sjóði 85.000 krónur.
'lkki er mikið átak að námilj-
■mnni fyrir áramót, ef margir
’^ðu fram dálítinn skerf.
Gjaldkeri Heimilissjóðs er
séra Ingólfur Astmarsson bisk-
nnsritari
(Frá stjórn Heimilissjóðs).