Þjóðviljinn - 04.09.1965, Side 12
Skeiðarárhlaup að hefjast og
vænta má hlaups í Súlu líka
Laugardagur 4. september 1965 — 30. árgangur — 198. tölublað.
□ Allar líkur virðast nú benda til þess að
Skeiðarárhlaup sé hafið og er dalbotn Grímsvatna
þegar tekinn að síga. Má búast við því að áin haldi
áfram að vaxa í allt að tíu daga enn eða þar til
GrímsvöÆn hafa tæmzt, en þá réna lilaupin í
Skeiðará jafnan skyndilega. — Þá má og innan
skamms vænta þlaups í Súlu.
Guðmundur Kjartansson jarð-
fræðingur flaug austur yfir
Grímsvötn í gær ásamt Magnúsi
Jóhannssyni og konu hans Hönnu
í flugvél frá Flugsýn. Átti Þjóð-
viljinn tal við Guðmund í gær-
kvöld og fékk hjá honum eftir-
farandi upplýsingar um förina.
Flugvélin flaug beint austur
yfir Grímsvötn og var skyggni
þar sæmilegt en þoka yfir norð-
anverðum Vatnajökli. Dalbotn-
inn í Grímsvötnum er allur ein
jökulslétta og er hann farinn
að síga. Sáust greinilega all-
miklar sprungur með hlíðunum
að sunnan og vestan og sagði
Magnús sem er gjörkunnugur á
þessum slóðum að þær væru
nýjar. Mun sigið þegar nema
mörgum mannhæðum.
Frá Grímsvötnum flugu þau
að upptökum Skeiðarár. Var áin
i foráttu vexti og fer vaxandi.
Talsverð jakahrönn var í ánni,
sagði Guðmundur, en þó er hún
ekki farin að brjóta jökulrönd-
ina eins og hún gerir venju-
lega í stórhlaupum. Megna fýlu
íagði upp af ánni og hún var
ákaflega gruggug að sjá.
Sagði Guðmundur að allar
likux bentu til þess að þetta
væri vaxandi hlaup og að
Grímsvötn myndu tæmast í
botn, en Skeiðará er venju-
legj lengi að vaxa í hlaup-
um, jafnvel allt að hálfum
mánuði cn fjarar þá aftur
mjög skyndilega.
Jökulfýlu hefur lagt af Skeið-
ará í upp undir hálfan mánuð,
sagði Guðmundur, en greinileg-
ur vöxtur kom ekki í ána fyrr
en fyrir 3—4 dögum. þannig að
Framhald á 3. síðu.
ítfa skip með
rúm 6 þús. mál
Veður fór batnandi á síldar-
miðunum fyrir Austfjörðum í
fyrrinótt, en í gærmorgun var
kominn kaldi í Reyðarfjarðar-
dýpi. Við Jan Mayen var veðr-
ið orðið gott í gærmorgun, og
skip þau, sem legið höfðu þar
í vari, á leið á miðin um 100
mílur suður af eynni.
Alls tilkynntu sl. sólarhring
8 skip um afla, samtals 6135
mál og tunnur.
Raufarhöfn:
Jón Kjartansson SU 1485 mál.
Dalatangi:
Vigri GK
Gullver NS
Bára SU
Jón á Stapa SH
Reykjaborg RE
Sigurfari SF
Eldey KE
Afdrifarík mis-
tök við tengingu
— Suðvesturland rafmagnslaust í hálftíma
í gærkvöld kl. 20.33 fór
rafmagn á öllu svæði Sogs-
virkjunarinnar. Var raf-
magnslaust fram til um kl.
9, er lokið hafði verið við
viðgerð á vél í virkjuninni.
Bilunin stafaði af mistökum
við tengingu á vélum, en
breyta átti álagi á þeim.
Urðu mistökin svona afdrifa-
rík, að rafmagnslaust varð
á þéttbýlasta svæði landsins,
Reykjavík, Hafnarf., Kópa-
vogi, Keflavík, Selfossi, Vest-
mannaeyjum, Akranesi og
svo sveitunum umhverfis.
Er viðgerð var lokið við
virkjunina var tekið til við
að koma hinum einstöku'
hverfum í samband innan
rafveitnanna. En það tekur
nokkurn tíma að koma raf-
magni á aftur, ef straumur-
inn hefur rofnað- Var kom-
ið rafmagn í öll hverfi í
Reykjavík kl. 21.44.
ILASátlSEiS
Kaupendur Þjóðviljans eru beðnir að sýna þolin-
mæði næstu daga meðan verið er að fá útburðar-
fólk víðsvegar um bæinn. Einnig eru þeir, sem
vita af börnum eða fullorðnum er vildu bera blað-
ið til kaupenda vinsainlegast beðnir að láta af-
greiðslu blaðsins vita. — Síminn er 17-500. — Sér-
staklega vantar í þessi hverfi:
Reykjavíkurveg — Mela — Framnesveg —
— Miklubraut — Skúlagötu — Safamýri —
Múlahverfi — Höfðahverfi — Sigtún —
Teiga — Heiðargerði.
Sími
17 500
Myndin er tekin í Góðtemplarahúsinu. — Sitjandi frá vinstri: Sune Persson, Henry Sörman og
Arvid Johnsen, Standandi frá vinstri: Sigurður Gunnarsson erindreki, Sveinbjörn Óskarsson for-
maður SBS, Árelíus Níelsson formaður ÍUT, Ólafur Þ. Kristjánsson, stórtemplar, Indriði Indriða-
son þingtemplar, Kristján Guðmundsson formaður áfengisvarnanefndar og Ólafur Jónsson um-
, ‘ dæmistemplar.
Norrænir ungtempiarar halda
hér afmælismót næsta sumar
Sumarið 1966 verður haldið
hér á landi fjölmennt mót norr-
ænna ungtemplara, en jafnframt
verðuT haldið hátiðlegt 50 ára
afmæli Norræna ungtemplara-
sambandsins. Mótið mun verða
dagana 3.-13. júlí. Starfar fjöl
nienn undirbúningsnefnd hér á
.egum íslenzkra ungtemplara i
ambandi við mót þetta.
Að undanförnu hafa dvalizt
hér í fjóra daga þrír forustu-
menn Norræna ungtemplarasam-
bandsins, þeir Henry- Sörman,
mrmaður þess, Sune Persson, frá
Svíþjóð og Arvid Johnsen frá
Noregi til skrafs og ráðagerða
við framkvæmdanefnd mótsins,
en hún er skipuð 13 manns úr
röðum íslenzkra ungtemplara og
IOGT. Formaður nefndarinnar
er séra Árelíus Nielsson.
Henry Sörman kom fram á
Framhald á 9. síðu.
Svart- Ingi R. Jóhannsson.
fM „
vm:
li I
im tm íi
mm w « p m
m<ð;|1
1 IWí 8P1 jggf iffs
py tfgg IP
"vm ' yftx&í
.wt m m m
REYKJA
VÍK
GEGN
Svart: Júlíus Bogason og
Jón Ingimarsson.
a b c d e
e h
AKUREYRl:
Hvitt Halldór lónsson og
Gunn’aognr Guðmundsson.
32. Re4—f6f
EYRI
abcdet’gh
REYK.TA VÍK:
Hvítt: Guðm. Sigurjónsson.
22...Hf8—c8
Byrjað að sprengja
Stráka-jarðgöngin
Tuttugu manna vinnuflokkur
vinnur nú á tveim vöktum við
gröft jarðganganna á Strákaveg-
inum. Verktaki er Efrafall h.f.
eu aðalverkstjóri Sigfús Thorar-
ensen. Verkamennimir ei-u allir
frá Siglufirði en sænskur maður
stjómar sprengingunum.
Jarðgöngin eiga að verða 860
metra löng og mun gerð þeirra
taka alllangan tíma. Eins og áður
segir er unnið á tveim 10 tíma
vöktum og eru gerðar 2—3
sprengingar á sólarhring og
lengjast göngin um nokkra metra
við hverja sprengingu.
Enn hefur ekki verið tekin 4-
kvörðun um það hvort lögð verð-
ui ejnföld eða tvöföld akbraut
um göngin en áætlaður kostnað-
ur við einfalda akbraut er 18
miljónir króna en 22 miljónir við
tvöfalda akbraut. Er b’úið að
leggja veg að göngunum beggja
megin frá.
Innbrot í BSÍ
í fyrrinótt var framið innbrot
i Bifreiðastöð íslands og stolið
þaðan 2000 krónum j peningum
Þjófurinn var ófundinn þegar
haft var samband við lögregl-
una í gærdag.
Rannsókn
smyglmáls-
ins er lokiS
Rannsókn er nú lokið i
smyglmáli skipverja á
Langjökli. Rannsóknardóm-
arinn, Jóhann Níelsson,
vísaði málinu til yfirsaka-
dómara í gærmorgun og
mun hann kyn&a sér það
yfir helgina og síðan taka
ákvörðun um frekari fram-
vindu þess.
Enn eru 10 menn í
gæzluvarðhaldi vegna
smyglsins. —- Myndin er
tekin er smyglvíninu var
skipað upp úr Langjökli á
sínum tíma.
♦
4