Þjóðviljinn - 12.09.1965, Síða 6

Þjóðviljinn - 12.09.1965, Síða 6
(j stöA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 12. september 1965 n Fyrr í sumar birti Þjóð- viljinn viðtal við útlendan mann að nafni Morris R. Spi- vack, en hann hefur dvalizt hér á landi nokkra undanfarna mánuði o.gr kynnzt fjölda manna, Á það var bent í fyrr- nefndri viðtalsgrein að Spivack væri ekki aðeins óvenju víð- förull maður, heldur hefði hann einnig fengizt við sitt hvað um daga sína: lögfræði, jnyndlist, mannfræði, forn- ininjafræði og fleira. n Á dögunum Ieit Morris R. Spivack inn til okkar hér á ritstjórn Þjóðviljans og þá kom ER ORKA ATÓMSINS MEIRI EN EINSTEIN TALDI HANA VERA? í Ijós að áhugamál hans eru ekki einungis bundin við svið Iista eða húmanískra fræða, heldur hefur hann einnig íhug- að gátur hinna æðstu raunvís- inda. Þannig skýrði hann frá því að hann hefði nýlokið við að semja ritgerð um orkumynd- an þeirra fyrirbæra himin- geimsins, sem nefnd hafa ver- ið „quasars“ á ensku máli cn orðhagir menn hér á landi vilja kalla „báIþokur“ á ís- lenzku. 1 ritgerð þessari setur Spivack fram mjög nýstárlega tilgátu sem hann mótnði fyrst fyrir 5 árum. — Annars seg- Morris R. Spivack É=mc3 ist Spivack vera búinn að velta fyrir sér margvíslegum tor- ráðnum gátum himingeimsins síðustu tvo áratugina, og fyrstu ritgcrðina um þau efni hafi hann sent frá sér í New York árið 1946 undir enska heitinu „Vital Correlations". Tilgátuna sem fyrr var vikið að setti hlann fyrst fram í ritgerð sem hann lauk við í Cambridge I ársbyrjun 1960. Þjóðviljinn fékk Morris R. Spivack til að semja stutfan úrdrátt úr ritgerð þeírri sem hann lauk við hér í Revkiavik í síðasta mánuði, svohljóðandi: Morris R.\Spivack setur fram tilgátu sína um „bál- þokur" himingeimsins og orkumyndun þeirra Ráðgáturnar eru margar í himingeimnum Fyrirbæri þau, sem nýlega hafa verið uppgötvuð langt úti í hiTningeimnum, bálþokur þær hinar miklu, er nefndar hafa verið „quasars“ á ensku máli, virðast senda frá sér útvarps- öldur miklu öflugri en svara myndi Einsteins-lögmálinu E=mc2. Sumir stjamfræðingar telja, að þessi umframorka svari til margföldunarstuðuls- ins ÍO20. Ég tel líklegt, að um- framorkan svari nákvasmlega til stuðulsins 9.1020, en það er tvíveldi ljóshraðans í cm á sekúndu. NASA (National Aeronautics and Space Administration i Bandaríkjunum) er kunnugt um það, að undirritaður hef' ur undanfarin fimm ár haldið fram þeirri tilgátu, að E=mcJ. Hann telur, að gangur orku- breytinganna í bálþokunum sé sem hér segir: 1. Við hitastig um og yfir 1028 eftir Kelvínsmælikerfi klofna Ijóseindir í ósýnilegar and-ljóseindir í rúm-tíma-sviö- inu, og losnar þar með úr læð- ingi orka, sem er svo mikil, að heildarorkan verður E=mc3. 2. En rúm-tíma-sviðið er eigi aðeins eyðandi, heldur og skapandi. Þess vegna gerist það einnig, að í sviði þessu myndast ljóseindir úr and- Ijóseindum við hið sama hita- stig, jafnframt því að tiltekið orkumagn er bundið, svo að sýndarorkan kemst allt upp i E=mc4. Hinsvegar er ljóst, að orkumagnið E=mc3 er nægi- legt, en jafnframt nauðsynlegt til að skýra þau fyrírbæri, sem athuganir á bálþokum hafa leitt í Ijós. Undirritaður telur, að ný- sköpun ljóseinda í rúm-tíma- sviðinu geti átt sér svörun annarsstaðar I alheiminum, er ljóseindir eyðist þar, svo að heildarefnismagn hins athugan- lega hluta heimsins varðveitist óbreytt. Þetta væri auðvelt að sanna með því að prófa þá viðbótarkenningu undirritaðs, «£. ~ /m. c3 % S'LG&IUS A£<DMAM tfP/VACK (iS'■UvrvWLhtfa Ceríaia. oljaots, csXLaí nuaoaru teva ieoa Sinco'íorea ia íar epaca whick oppcaa to Xjo scoaing otrt raíio eiBcala of s straastli far ia eicoso of tha Eiastcia eiuations Boma eoomologista toliore emooso to to t/ s Xaetor cf'10 • X toliovo tho oicooo enorey io protatOy .ty s faotor of eiaotly 9 * lo20, »tioh io tho enuoro of tho volooity of 3ight ia oentimaters por oooona. 5ho MSK 1o awaro that tho outhos hao Sor tho luut Siva yonro teea eSvocatiae hio thoory that B=j:03. Ho toliovoa tho rcaotioa ia tho nuanora io so SOUnm X* At a tomporaturo of xo2s öoBreoo Kolvia eni ahovo photoaa ere oplit into.invioiblo oati-ptotono ot tho opaeo-tima Sioia nitU s xolonoo o£ eaargy Vhleh triass tho total eaerey avaMstlo up to E=Wi3» 2. But tho opoco-tSao Sield lo toth croativo ona floírtraotivo# Œhoraforej e* tto como tomperotureo ptoteno V7ili to oreatoa ty tho onacc-Jimo Sieia Srom ontl-ptotone XTith o eoatrltuUoa of Maains onorgy» tringins ths cppKrent onnrBy avoiXatlo up to E'áKX4'. Eoyavor, it viU bo cXoar that s value 3 et E=xa wiix he nuffioloat ea boXJ, so aocoooary to erplata tho otoorvea data ia auasars. 55W auttor telioveo that tho oreatloa tj tho Bpace-timo Sieia ef virgio ítotonsraay bo taloacoa oloontora in tho toivoroo ty tho aootruotioa of ptotOLSj thuo maiataialng the totaX maso of tto etoorvatlo uslvorse st s eonstants Slsure. Zroof is cosy ty tostiag tto' arthor’a conoomitaat ttoory ttot tto Xight rcoching as fron sU. otars Xosco enersy to tto crpaco-timo fieXd ty interforoaoe ia jroportioa to aistoaco. Ey preaictioa io a rca-nMft of the spootrum, öuc to ttoo cauee, ef XE.75 MXomstexs par eóconS por nl.rH.on ycara* SU£hta StAa eaa easlXy to moasured for the vorioua catoiorioa of stars. Œhio ixouXS rcSuco tto roS-shiSt of tho Xight Srom tto Olstoat salaiiee, flue to aotuai recoaoion, hjr eiaotty onc-tolf. fijzl'f fiJAV/íí" JUuu W( 5 Spivack dró meginefni greinar sinnar um bálþokur himingeims- ins og orkumyndun þeirra saman f þenna úrdrátt, sem mynd- in er af. sem á við um alfar stjörnuf himingeimsins, að ljósið, ér- til vor berst frá þeim, týni orku út í rúm-tíma-sviðið fyrír á- hrif ölduvíxla (interferens), og sé orkumissirinn í réttu hlut- falli við vegalengdina, sem ljósið fer. Ég hef sagt fyrir um roðnun (e. red-shift) Ijóss- ins af þessum ástæðum og tal- ið, að hún svari til breytingar hraðans um 18,75 km á sek- úndu á miljón ára ferð þess. Þetta er auðvelt að mæla um mismunandi tegundir stjarna. Af þessu leiðir, að sú roðn- un ljóssins frá fjarlægum þyr- ilþokum, .sem stafar af hraða þeirra brott frá oss, nemur ekki nema helmingi þess. sem talið hefur verið. Með öðrum orðum, þokur þessar væra an fjarlægjast oss á hraða, er yk- ist einungis um 10,71 km á sekúndu á miljón árum, og ættu að ná til endimarka al- heimsins á 14 miljörðum ái'a með hálfum Ijóshraða '(á grundvellinum; radius = 8 miliarðar ijósára). Eftir þessu ætti heimur vor að fara heila sveiflu á 28 miljörðum ára fremur en 82 miljörðum, eins og Allen Sand- gate telur. Morris R. Spivack 9. ágúst 1965. Aths.: Orðið ;,and-Ijóseind' er haft til bráðabirgða, og m‘" bi-syta því síðar, ef þurfa þykir. □ Fyrr í suraar biríum við einn sunnudag- inn til tilbreytingar smásögu eftir erlendan höfund. Margir lesenda höfðu gaman af þeirri sögu og þessvegna höfum við gripið aðra smásögu eftir ókunnan útlendan höfund til birtingar í þessu sunnudagsblaði. Það var komið langt fram á haust. Og samt var svo sum- arlegt, glaðasólskin um allan þennan mikla skóg, sem ekki sást út yfir. Enginn vindblær hafði andað síðustu vikuna. Og það var dauðakyrrð í skógin- um, og fuglunum þótti hann vera eins og þykkt mislitt teppi yfir að sjá, en sandgráir götu- slóðarnir buguðust milli lund- anna eins og tröll hefðu teikn- að þá. í suðurhomi skógarins vora þrjú stór göt í teppið. Á meðan bjart var mátti sjá þar glytta í tvær eða þrjár græn- brúnar skógartjamir, spegil- sléttar, í dularfullu hálfrökkr- inu, en að næturlagi breyttusi þær í seigfljótandi digul við kalt tunglsljósið. Þarna vai raunar byggt ból. Langt burtu, við norðurenda skögarins, voru nokkur hús í þyrpingu. Þó að þau væru úr timbri, hafði hið stærsta af þessum hvítu hús- um gafl og mjóan turn, sem minnti snöggvast á ævintýra- hús frá bemsku manns. En í rauninni var þetta ekki ann- að en gististaður, sem naut virðingar allra, og allt sum- arið hafði verið fullt þarna af gestum, sem borguðu vel fyrir sig, eins og þeir höfðu gert undanfarin sumur, sem ein- hvemveginn virtust ekki vera liðin, þó að þau væru það. Þegar svona langt var liðið á haust, var venjan að loka hótelinu, og hætta, en veðrið var svo gott, öllum fannst vera sumar, og gestirnir töluðu ekk- ert um að fara. Það mátti heita að gestur væri í hverju her- bergi, og hver hjó út af fyrir sig og naut einverunnar. Flest- ir höfðu verið þar oft, en jafn- vel allra síðustu dagana höfðu komið nýir gestir. Og var nú tæp vika síðan arkitektinn hafði komið þang- að með frúna sína. ÖHum leizt vel á þessi hjón, þau voru hlédræg og prúð, og þó að þau yrtu varla á neinn, skiptu sér ekki af neinum, var ekki um annað talað þarna á hót- elinu. Hann var hár vexti og útitekinn, og að líkindum um fertugt, en öllum kom saman um að hann sýndist vera yngri. Hún var nokkru yngri, Ijós- hærð og fríð, grannleit og grannvaxin. Hún var íhugul og dreymandi, jafnvel að hún minnti á svefngengil stundum. Einhver hafði séð hana brósa, oftast var hún döpur f bragði, en öllum þótti henni fara það vel. Eins og áður er sagt töluðu bau lítið við fólkið. Þau sátu til borðs hjá gamla ofurstan- um og konu hans, og þau þögðu sjaldan. „Yndislegar manneskiur", sagði gamli of- urstinn, ef hann var spurður um þau, „já, ljómandi fólk, það sný ég ekki aftur með“. Einu sinni höfðu þau fengizt til að fara í bridge við ofursta- hjónin, og voru þau nánast upp með sér af þvílíkri sæmd. Þar fyrir utan vissi enginn neitt um þau. Dagar komu og .liðu og ekkert gerðist sem í frásögur væri færandi. Eftir morgunverð hurfu þau arki- tekthjónin inn í skóginn, og voru þá ætíð klædd eins og þau ætluðu sér að fara langt. Þau komu heim um hádegis- bilið, og hvíldu sig nokkra stund á legustólum úti í garði eftir matinn, lögðu svo aftur af stað inn, í þennan veglitia og villugjama skóg. Þarmættu þau aldrei neinum, því hitt fólkið fór aldrei neitt, annað hvort fyrir elli sakir eða af leti, nema eitthvað fleira hafi komið til. Flestum virtist nægja að vita af skóginum, því hve stór hann væri, en samt kom öllum saman um að gaman væri hvað þessi fal- legu hjón kynnu vel að meta dásemdir náttúrunnar og sam- veruna, svo mörg ár sem þau annars hefðu verið gift. Það var víst á föstudags- kvöldið, sem það gerðist, að hjónin komu heldur seinna úr siðdegisgöngunni en venja þeirra var. Já, föstudagur hlýt- ur það að hafa verið, þó að erfitt sé raunar að þekkja sundur daga sem allir eru eins, allir jafn sólríkir og lognkyrrir og heiðbjartir. Ofurstinn og frú hans voru setzt að hádegis- verðarborðinu, og það var frú- in, lítil kona vel í holdum, sem bar aila daga langflesta þá skartgripi, sem hún átti, og það þó hún hefði á fótum hvíta strigaskó, sem varð fyrri til að koma auga á þau, þegar þau komu utan úr skóginum. Síðan vissi enginn hvað af þeim varð, þvi að þau urðu að fara norður fyrir húsið tii þess að geta gengið inn um að- aldyrnar. Ofurstahjónin héldu að þau myndu koma að borðinu en mundu þó þurfa að hafa fata- skipti og snyrta sig lítið eitt áður uppi í herbergi sínu, sem var á annarri hæð. Stuttu seinna kom þjónninn til þeirra og tilkynnti þeim að hjónin mundu ekki kcmia, frúin væri eitthvað lasin, líklega með höfuðverk, og þau myndu mat- ast uppi. Ofurstinn talaði um það hve hörmulegt væri að frúin skyldi ekki fá að njóta þessara daga ótrufluð af leið- inlegum lasleika — og var ekki laust við að konu hans þætti miður, ekki meiri sam- úð sem hann hafði sýnt henni sjálfri þegar líkt stóð á fyrir henni. Það var engu líkara en að rökkrið kæmi miklu fyrr en daginn áður. Dagarnir voru raunar löngu farnir að styttast, enda liðið langt á haustið, en samt tóku allir eftir því hve fljótt dimmdi og kólnaði. Það var venja að fara snemma að hátta, og klukkan 10 sást eng- inn niðri, allir voru farnir upp að hátta. En ennþá logaði á grænu perunni hjá dyraverðinum við aðaidymar. Hann sat dottandi í stóli sínum, gömlum ruggu- stól við borðið. Þess vegna gat hann heldur ekki gert ér grein fyrir því síðar, hvað k.lukkan hefði verið þegar hann sá konu arkitektsins fara út. En hann mundi greinilega, að hann hafði séð hana ganga hægt niður stigann. Þó að Ijós- ið væri dauft þekkti hann hana glöggt. Hún var i sömu fötunum og áður um daginn. þegar hún fór í gönguna. Hún gekk Hkt og í svefni, svaraði engu, þegar hann ávarpaði hana, en hélt áfram hiklaust og hvarf út úr dyrunum, út i myrkrið fyrir utan. Hann hafði að vísu furðað sig á því að hún skyldi fara út svo seint, en ekki datt honum í hug að gera neitt veður út af því. Það var venja hans og skylda að tala fátt. Enda þótti honum sér ekki koma það við þó fólk vildi vera úti að nóthi til, hann vissi að borgarfólkið hefur sína siði. Og svo gleymdi hann sér aftur í stólnum. Það gekk mikið á þegarhann kom til sjálfs sín aftur. Arki- tektinn stóð yfir honum, þreif í hann og hristi og hrópaði hvað eftir annað! „Vaknið þér. maður. vaknið þér, heyrið þér það!“ Við þetta vaknaði dyra- vörðurinn ringlaður og undr- andi yfir því að sjá framan í arkitektinn svona náfölan og æstan sem hann var. „Svarið þér, maður, svarið þér fljótt, — hvenær fór kon- an mín út? Að lokum rankaði dyravörðurinn svo við sér að hann gat svarað þvf til að víst væri frúin farin út, en hve langt er síðan, ja, látum okk- ur sjá, það veit ég nú ekki fyrir víst, en ætli það sé ekki svo sem klukkutfmi. Arkitekt- inn barði hnúunum niður í borðið og æpti; ,,Þér verðið að hringja til lögi-eglunnar, — nú þegar — heyrið þér — konan mín er farin burt, það er eitt,- hvað voðalegt, sem hefur kom- ið fyrir hana, hún veit hvorki í þennan heim né annan, hún veit ekki hvar hún fer, — það verður að finna hana, hvað i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.