Þjóðviljinn - 12.09.1965, Side 12
—
Eitt aðalbyggingasvæðið í Reykjavík nú í
sumar er, auk Árbæjarhveríisins, í kring um
Kleppsveginn, bæði alveg innundir Klepps-
spítalanum, við Elliðavoginn og neðar. Með-
al þessara nýju bygginga eru fjögur stórhýsi
á vegum borgarinnar með samtals 123 íbúðum.
123 leiguíbúðir á
vegua borgarinn-
ar nær fullger&ar
Eitt af fjölbýlishúsunum í nýja hverfinu inn við Klepp.
Þarna erui að rísa margar myndarlegar byggingar.
Fjölbýlishúsin sem borgin er að láta byggja í Klepps-
holtínu eru nú nasr fullsmíðuð. Standa þrjú þeirra við
Kleppsveg, en eitt við Austurbrún. Er það þeirra hæst og
sést á myndinni efst hér á síðunni. Það er þegar uppsteypt
og er vinna innanhúss langt komin. Þetta er 13 hæða bygg-
ing með samtals 69 eins herbergis fbúðum. Hefur borgar-
stjóm samþykkt að íbúðir þessar verði leiguíbúðir, einkum
ætlaðar eldra fólki, öryrkjum og einstæðum mæðrum. En
margir eru um boðið og munu þegar miklu fleiri hafa
sótt uui íbúðirnar en í þaer geta komizt. Gert er ráð fyrir,
að þessar íbúðir verði tilbúnar fyrir áramót.
Áætlað kostnaðarverð er 35.100.000 kr. Húsið er teikn-
að af Kjartani Sveinssyni byggingatæknifræðingi, bygginga-
meistari er Sveinbjörn Sigurðsson.
Fyrsta blokkin til um mánaðamót
Sambýlishús borgarinnar við Kleppsveg 70—80 eru þrjár
þriggja hæða blokkir með tveim stigagöngum hvert. í hverju
þeirra eru 18 íbúðir eða alls 54. 1 húsunum eru tveggja.
Ibúðir fyrir eldri hjón, öryrkja og einstæðar mæður.
En það eru margir um boðið og hætt er við að
mörgum verði að synja.
þriggja og fjögurra herbergja íbúðir, jafnmargar af hverri
stærð. Húsið sem lengst er komið og stendur fremst á
myndinni hér að neðan, á að verða íbúðarhæft um næstu
mánaðamót, hin eitthvað síðar, en þó væntanlega á þessu
ári.
Árangur baráttu Alþýðu-
bandalagsins
Ákveðið er að íbúðir þessar verði Ieigðar fjölskyldum,
sem búa í heilsuspillandi húsnæði og er það árangur af
eindregnum kröfum og langri baráttu Alþýðubandalagsins í
borgarstjórn fyrir byggingu leiguhúsnæðis. Bar sú barátta fyrst
árangur er ákveðið var að leigja sambýlishús sem borgin
keypti í fyrra við Meistaravelli, en þar eru 48 leigufbúðir.
Áætlað verð húsanna þriggja við Kleppsveg er 44.040.000
krónur, svo að rúmmetrinn kemur til að kosta um 2600
kr„ en byggingakostnaður sambýlishúsa samkvæmt vísitölu
Hagstofu íslands er nú talinn eiga að vera 2077 kr. á rúm-
metrann. Munurinn er því 523 kr. á rúmmetra og virðast
húsin ætla að verða ískyggilega dýr, eins og oft áður hefur
viljað verða hjá borgaryfirvöldum Reykjavíkur. Er það sfzt
af öllu gæfulegt verði íbúðabyggingar borgarinnar hverju
sinni til að hækka almennt íbúðaverð i bænum.
Það skal þó tekið fram, að íbúðir þessar eru hinar
vönduðustu í alla staði. Húsin eru teiknuð af Sigurjóni
Sveinssyni og Kjartani Sigurðssyni arkitektum. Verktaki er
Einar Ágústsson byggingameistari.
Framkvæmdir við Elliðavog
Á öðrum stað í Kleppsholtinu, rétt innvið Klepp er að
rísa mikið hverfi og eru byggingar þar ekki á vegum borg-
arinnar, heldur byggingafélaga ýmissa, byggingasamvinnufé-
laga og einstaklinga. Þama er næstmesta byggingasvæðið í
Reykjavik í sumar, mest er byggt í Árbæjarhverfinu.
Það eru mismunandi stórar byggingar, sem verið er að
reisa þama niðri við Elliðavoginn, mest ber á fjölbýlis-
húsunum, enn sem komið er. Þarna eiga að koma tvær
átta hæða blokkir með 48 og 56 íbúðum og fjórar þriggja
hæða blokkir með 70 íbúðum. Þá verða þarna ein tíu rað-
hús með samtals 41 íbúð, fimmtán tvíbýlishús, sum reyndar
með fjómm íbúðum og tólf einbýlishús.
Arkitektar þessara bygginga em náttúrlega margir, en
stórhýsin eru teiknuð af Kjartani Sveinssyni, Ormari Þór
Guðmundssyni, Bimi Emilssyni, Aðalsteini Richter og Kjartani
Sigurðssyni.
Ekki eru enn allar götur komnar þarna í hverfinu, en
raflögn, vatnsleiðsla og frárennsli er allt komið. Nokkuð er
misjafnt hvenær áætlað er að hægt verði að flytja inn i
húsin, en talsvert af þeim á að verða tilbúið næsta sumar.
Cr þessum húsum verður hið fegursta útsýni að Esju og út á sundin. Þarna cru að verða tilbúnar 54 Ieiguíbúðir ti)
útrýmingar heilsuspillandi húsnæði. — Myndirnar tók Ari Kárason, ljósmyndari Þjóðviljans.
Sunrrudagur 12. september 1965 — 30. árgangur — 205. tölublað.
Komið gott veður á
síldarmiðunum í gær
VeSur var fremur óhagstætt í
fyrradag á síldarmiðunum hér
við land og við Jan Mayen, en
í fyrratovöld fór veður batnandi,
og var í gær komið gott veiði-
veður við Jan Mayen og einnig
á veiðisvæði 90-120 mílur NAaA
frá Langanesi. í Reyðarfjarðar-
dýpi var óhagstætt veiðiveður í
gærmorgun.
Skipin vom einkum að veiðum
við Jan Mayen og á fyrr-
greindu veiðisvæði 90-120 m£l-
ur NAaA frá Langanesi. Þá var
kunnugt um nokkur skip, sem
fengið höfðu veiði 50—60 mílur
NAaA frá Langanesi, og voru
þar allgóðar lóðningar, og síldin
talin góð til söltunar.
Sl. sólarhring tilkynntu 17
skip um afla, samtals 20.478 mál
og tunnur.
Tunnur
2220
2000
400
450
Mál
Sigurborg SI 250
Helga Guðmundsdóttir BA 1200
Jón Kjartansson SU
Helga RE
Víðir II GK
Þorleifur OF
Dalatangi
Sólrún IS
Raufarhöfn
Faxi GK
Hamravík KE
Fróðaklettur GK
Mál
Bjarmi II EA
Dagfari ÞH
Sigurpáll GK
Guðrún Guð.leifsdóttir IS
Héðinn ÞH
Óskar Halldórsson RE
Guðrún Þorkelsdóttir SU
Mál.
1450
1888
og tn.
1650
1700
Mál
1500
1000
1100
1650
950
500
550
Smyslof sfstur
á Kúbu
Að loknum 11 umferðum á
skákmótinu á Kúbu er Smyslof
frá Sovétríkjunum efstur með
8% vinning en næstir eru þeir
Fischer frá Bandaríkjunum og
Ivkov frá Júgóslavíu með 8
vinninga og biðskák.
V örusýning
MOSKVU 10/9 — A laugar-
dag verður opnuð mikil al-
þjóðleg vömsýning í Moskvu
og verða sýndar iðnaðarvör-
ur, landbúnaðarvörur og ým-
iskonar vömr aðrar. 1.800
fyrirtæki frá 20 þjóðlöndum
að Vestur-Berlín viðbættrí
taka þátt í sýningunni.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»
Rúmenar verja
ekkí titilinn
Samkvæmt fréttum frá Al-
þjóðahandknattleikssamband-
inu munu bikarhafamir í Ev-
rópukeppninni, Dynamo frá
Búkarest, ekki verja titil sinn
í næstu keppni. Sovétríkin og
Finnland verða heldur ekki
með í keppninni. Formaður
sambandsins, Emil Horle,
kveðst ekki vita ástæður þess
að Rúmenar ætla ekki að taka
þátt í keppninni.
19 lið hafa tilkynnt þátttöku
í keppninni og munu 6 þeirra
taka þátt í forkeppni eins og
sagt var frá í Þjóðviíjanum og
keppa þar saman Belgía —
Austurríki, Ungverjaland —
Búlgaría, Holland — Portúgal.
Þrjú þesara liða komast í að-
alkeppnina en dregið verður
um leiki þar hinn 17. nóvem-
ber. Fyrr fáurn við ekki að
vita hverjum íslandsmeistar-
arnir FH mæta í 1. umferð.
Albýðubandalagsmenn í
Vesfurlandskjördœmi
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í Þjóðviljanum var dregið
í Happdrætti Vestlendings, kjör-
dæmisblaðs Alþýðubandalagsins
í Vesturlandskjördæmi, 25. ág.
sl. Útdrátturinn fór fram ; skrif-
stofu bæjarfógetans á Akra-
nesi. Upp komu þessi númer:
215: 5 manna tjald
79: svefnpoki
1: bakpoki
481: veiðistöng með hjólj
185: vindsæng
295: kosangastæki
27 — 39 —- 268 og
337: vöruúttekt fyrir kr. 575
hver vinniugur.
Vinninganna skal vitja tíl
Brynjólfs Vilhjálmssonar, Prest.
húsabraut 21, Akranesi, eða i
sima 1201.
Happdrættisnefndin þakkar
öllum stuðningsmönnum fyrir
stuðning þeirra við blaðið.
BLADSKÁK
Svart: Ingi R. Jóhannsson.
Svart: Júlíus Bogason
og Jón Inghnarsson.
co 1» ■ co iKltléil
ill 4 M B ■ <1 ?ff ns W $ B pp i
05 SBHSLBI H 05 tm m mtm
cn ■ JR li'l H ffl CJI mim m m
W\ W. § m $ w
co m m m n co
to B ■ R «9 to &m ss si m
)-* m m m m m m m m
abcdefgh
AKUREYRI:
Hvítt: Halldór Jónsson og
Gunnlaugur Guðmundsson.
25...f7—f6
a b c d e i g h
REYKJAVlK:
Hvítt: Guðm. Sigurjónsson.
26. Bb3xf7
*