Þjóðviljinn - 28.09.1965, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 28.09.1965, Qupperneq 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVHJrNM — Þtíðjuáa&u 28. septembec 1965 urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Sigurdur Guðmundssan. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson. Ritstjóm, aígreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavðrðust. 19. Sími 17-500 (5 linur). Askriftarverð kr. 90.00 á mánuði. Að kaupaþotu j^jylega skýrði einn af kaupsýslumönnum höfuð- borgarinnar, Albert Guðmundsson, svo frá að hann hefði beðið ríkisstjórn íslands að gera fyrir sína hönd loftferðasamning við ríkisstjóm Stóra- bretlands. Kvaðst Albert hafa í hyggju að hefja flugsamgöngur milli Reykjavíkur og Lundúna, og ef hann fengi nauðsynleg leyfi kvaðst hann ætla að kaupá þotu til loftflutninganna. Hann lé't' þess sérstaklega getið að ekki sæi hann ástæðu til þess að stofna hlutafélag af svo litlu tilefni, held- ur myndi hann snara út kaupverðinu sjálfur og eiga þotuna einn, enda kostaði þvílíkur gripur ekki nema 150 til 200 miljónir króna. jþessi ágæti fjármálamaður, sem falar um þo'tu- kaup á jafn sjálfsagðan hátt og aðrir tala um að kaupa sér í nefið, greiðir á þessu ári fyrir sig og fyrirtæki sín kr. 4.108 í eignarútsvar og kr. 2.095 í eignarskatt. Samkvæmt framtali hafa hreinar eignir hans og fyrirtæka hans því aðeins numið um það bil hálfri miljón króna um síðusfu árámót — því .fer þannig fjarri að hann eigi íbúð-. ina sína. Ekki virðast tekjur hans heldur hafa stúndað neitt frjálst þotuflug í háloftunufilt hann greiðir svipuð opinber gjöld fyrir sig og fjármála- stofnanir sínar og vel launaðúr embættismaður af heimilishaldi sínu einu saman, til dæmis for- sætisráðherra lándsins. Er það vissulega eitt af undrum fjármálalífsins hvemig maður með því- líkan' efnahag fer að því að spara sér fyrir heilli þotu einn og ós'tuddur. gn undur af þvílíku tagi eru raunar alkunn fyr- irbæri á íslandi. Hérlendir kaupsýslumenn eiga margir hverjir völ á tvennskonar persónu- leika, líkt og frá er greint í sögunni um dr. Jekyll og mr. Hyde. Frammi fyrir skattayfirvöldunum birtast þeir einatt sem aðþrengt lágtekjufólk og jafnvel nauðleitarmenn sem ekkert.geta lagt 'til almenningsþarfa þegar brýnustu lífsnauðsynjum hefur verið fullnægt. Á opinberun^ vettvangi stunda þeir hins vegar hin stórfelldustu umsvif, fyrirtækjum þeirra virðast allar leiðir færar, og þegar um er að ræða persónulegan munað verður þeim aldrei féskylft. Leiti menn samhengis milli örbirgðar þessara manna og afreka þeirra verður það naumast fundið nema með aðstoð krafta- verkasagna á borð við þá þegar fimm brauð og tveir fiskar dugðu til að metta fimm þúsundir mann og tólf karfir fullar gengu af, en að sjálf- sögðu fjalla kraftaverkasögur nútímans um þot- ur. Raunar birtir Alþýðublaðið í fyrradag einnig aðrar skýringar á fyrirbærinu þegar það ræðir um „hvílíkt óréttlæti viðgengst, þegar stórefnað- ir lúxusmenn sleppa nálega alveg við opinber gjöld en þrælar hins opinbera greiða þriðju hverja krónu aftur í ríkiskassann“. En jafnt ólistrænt níð um viðreisnarstefnuna verður auðvitað ekki +ekið trúanlegt — allra sízt af ráðherrum Al- þýðuflokksins, sem nú fjalla um þotuleyfið. — m. 237 nazistadómarar dæmdu tékkneska borgara til dauða fyrir engar sakir cia hreina smámuni. Margár þessara dómara sitja í æðstu stöðum i stjórnkerfinu í Vestur-Þýzkalandi eða hafa feng- ið rífleg eftirlaun Njósnahringir nazistanna eru enn í fullum gangi Eftir að þriðja riki nazism- ans hrundi j rústir smygluðu leynisamtölc allmörgum stríðs- glæpamönnum úr landi, aðal- lega til Spánar og Suður-Ame- ríku. í dag blómgast tilsvar- andi smygl í Vestur-Berlín. Þessj útvarðstöð hins „frjálsa heims“ er nú orðin miðstöð njósna og skemmdarverka, sem beint er gegn- Austur- Þýzkalandi, DDR. Landamæra Austur-Þýzka- lands er vel gætt. Eigi að síft- ur hefur erindrekum aftur- .haldsins . tekjzt að smygla ‘út- sendurum ; sínum inn í landið. Blöð heimsvaldasinnanna segja, -að þessir útsendarar ;séu „húgsjónamenn“ og hug- rakkir baráttumenn gegn kommúnismanum; menn sem hættu lífi sínu til þess að bjarga þýzkum bræðrum sín- um. í Austur-Þýzkalandi ganga þeir hinsvegar undir glæpa- mannsnáfní og það meg réttu. Fjórir þessara „hugsjóna- manna“ voru gripnir og dregn- ir fyrir rétt í Austur-Berlín í ágúst. Við réttarhöldin kom ýmis- legt athyglisvert í ljós. Einn hinna ákærðu, þrítugur verka- maður að nafni Gunther Mucke, hafði haldið frá Vest- ur-Þýzkalandi inn í Vestur- Berlín árig 1963, og hafði lát- ið glepjast af sólskinssögum Bonnstjórparinnar um stað- inn. Framan af gekk honum flest í haginn og hann vann sem byggingaverkamaður.. Þar kom þó, að hann meiddist illa á hendi og var sagt upp vinnu. Honum tókst ekki að fá ann- an starfa, lagðist í drykkju- skap og sökk sífellt dýpra í eymd og volæði. Dag einn hitti hann í bjórkjallara einn af útsendurum eins skemmd- arverkahringsins. Sá bauð Múcke 300 mörk ef hann vildi gera sér ;,greiða“. Allt og sumt sem farið var fram á var að sögn njósnarans, að Múcke skildi vegabréf sitt eftir og færi inn f Austur-Berlín með skjöl og afhenti þau öðrum njósnara Síðan átti Múcke að fara til austur-þýzku lögregl- unnar og segjast hafa týnt vegabréfi sínu. Lögreglan myndi þá rannsaka mál hans, komast að því, að hann hefði sagt rétt til nafns, og senda hann heilan á húfi til Vestur- Berlínar. Múcke féllst á þetta og var látinn undirskrifa skjal, þar sem hann kvaðst fara þessa ferð af frjálsum vilja og af „hugsjónaástæðum“, vegna þess að hann vildi gera sitt ‘ til þess að verja „frelsið". Hinir njósnararnir þrír, sem við þetta tækifæri komu fyrir rétt, höfðu verið ráðnir til starfans á svipaðan hátt. Þeir höfðu verið atvinnulausir og illa farnir og létu glepjast af tilhugsuninni um auðfengið fé. Enginn þessara manna fékk þá lúsarupphæð. sem þeim var lofað fyrir njósnirnar, heldur fengu þeir aðeins smávægilega fyrirframgreiðslu. Yfirboðar- ar þeirra voru ekki að stofna sér í fjárhagslega hættu. Það var aldrei að viía nema mönn- unum mistækist. Bflaðið „Stuttgart Zeitung“ segir, að yfirmenn þessara njósnahringa hafj góðar tekj- ur án þess að leggja sjálfa sig í nokkra hættu. „Þeir senda menn sína út í eldinn, og gera ráð fyrir því að einhverjir ná- ist. Þegar njósnurum mistekst, eru nöfn þeirra einfaldlega strikuð út af listanum . . .“ Það kom fram við þessi rétt- arhöld, að yfirmönnum njósnahringanna var greitt milli 3.000 og 4.000 mörk fyr- ir hvern mann, sem smyglað er yfir landamærin. Þessir herrar krefjast fyrirfram- greiðslli og fá hana. Hverjir eru svo þessir menn? Nafn eins þeirra kom fram við réttarhöldin. Sá heitir Herbert Steinborn. fyrrverandi SS-liðs- foringi sem varð njósnarj' eftir stríðið, til skiptis í þjónustu Englands, Frakklands og Vest- ur-Þýzkalands. Oftast eru þessir menn verndaðir af vest- ur-þýzku lögreglunni. í þetta skipti voru þeir þó óheppnir. Dómstóllinn í Aust- ur-Berlín sem fjallaði um mál áðumefndra fjögurra njósnara, komst að þeirri niðurstöðu, að þeir hefðu að nokkru leyti verið ginntir. Rétturinn kvað því upp skilorðsbundinn dóm og mennimir voru sendir aft- ur til Vestur-Berlínar. Það sem á eftir fór, er væg- ast ’sagt furðulegt. Blaðamenn frá vestur-þýzka æsifréttablað- inu „Bild“ náþu í fjórmenn- ingana, lofuðu hverjum þeirra 250 mörkum og héldu þeim konunglega veizlu, meðan skráð var frásögnin af „ævin- týrum“ þeirra. Að sjálfsögðu var frásögn blaðsins full af andkommún- istískum áróðri. En staðreynd- ir málsins lágu ljósar fyrir, og Vestur-Þjóðverjar neyddust til þess að endurskoða kenningu sína um „hugsjónastárf“ njósn- aranna. Til þess að reyna að snúa sig út úr óþægilegri að- stöðu, héldu vestur-þýzk blöð því fram, 'að „vissir óverðugir aðilar“ hefðu í einstaka tilfell- um misnotað „frelsisþrána“ og gert að féþúfu. Njósnaramir höfðu nú við orð að höfða mál á hendur þeim er þá höfðu ginnt til njósna. Lögreglan í Vestur- Berlín kvaðst mundu rannsaka starfsemi njósnahringanna. En svo var gripið fram í gang málsins, og nokkrum dögum síðar var það tilkynnt, að njósnaramir hefðu nú alveg hætt við að fara í mál, enda væri þeim ekki einu sinni kunnugt um nöfnin á yfirboð- urum sínum. . 4 Þess má svo að lokum geta, að blaðið „Stuttgart Zeitung“ sem mjög hafðí vakið athygli á þessu máli, er nú hætt að komá út, af fjárhagsástæðum. Stórfyrirtæki hættu nefnilega að auglýsa í blaðinu. Það ge.t- ur að sjálfsögðu v^rið tilvilj- un. En hver veit? ,(New Times“). Frá velmektardögum Hitlers og þýzku nazistanna. „Foringinn ' sjálfur gengur þama í broddi fylkingar SS-manna framhjá haka- krossfánaröð. Qfte£oi S A L T CEREBOS í HANDHÆGU BLÁU bÓSUNUM HEIMSÞEKKT GÆÐAVARA Messrs. Kristján Ó. Skagfjörð Limited Post Box 41X. REYKJAVÍK, Iceland f t 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.