Þjóðviljinn - 28.09.1965, Page 8

Þjóðviljinn - 28.09.1965, Page 8
g SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — ÞrJðjudagur 28. september 19S5 • Frá náttúrunnar hendi • Nátthagi heitir þessi staður í útjaðri Berserkj ahrauns á Snæfellsnesi og var verið að smala þar saman fé og flytja burt á vörubíl í síðustu viku. Króin myndast þarna mjög skemmtilega frá náttúrunnar hendi, þvi að háar og langar hrauntungur liggja báðum megin við hana. (Ljósm. vh.). heyrt • Þeir gleymdust! • Er það satt, að forráðamenn Laugarásbíós hafi alveg gleymt að bjóða islenzku olympíuför- unum á boðssýninguna á kvik- myndinni um Olympíuleikana i Tokíó 1964 sl. föstudagskvöld? • Fótabúnaður guðs • Barnafossar í Borgarfirði þykja ærið merkilegir og fagrir. Sagt er að þeir dragi nafn af því, að tvö böm frá næsta bæ, hafi farið yfir steinboga við fossana og drukknað. Átti bá bóndinn að hafa brotið niður steinbogann. Fyrir stuttu var ferðafólk að skoða fcssana, sem oft ber við. Var þar móðir með tvö böm uui það bil fjögurra ára gömul og prílaði annar strákurinn mikið í klettunum, en móðirin var orðín ein taugahrúga af angist. Fór þá önnur ferðakona, að segja barninu söguna af bömunum sem drukknyðu. Þá spyr sá stutti: ..Drukknuðu bau þá?” „Já” segir konan. „Eru þau þá dauð?“ „Já, þau eru dáin”. — „Eru þau þá núna hjá guði“? — „Já þau eru hjá guði“. — „Var þá guð í gúmmí- stígvélum?" • Grín í guðspjöllunum • Séra Jakob varði á laugar- daginn doktorsritgerð sína um kímni og háð í Nýja testament- inu og þessvegna fannst okkur tilvalið að hafa fyrripartinn svona að þessu sinni: Að guðspjöllunum gaman or og grínið margt í þeim. Og nú er það ykkar að botna. Botnarnir eiga að koma í • laugardagsblaðinu, svo að við þnrfum helzt að fá þá fyrir fimmtudagskvöld. Síminn er eins og áður 17500, en þaö má líka senda bréf. • Vísa til JMP • Á laugardaginn sendi JMP vísu til Torfa Ólafs og nú hefur okkur borizt eftirfarandi; Svar til J.M.P. Bíttu á jaxlinn JMP, ég vil sjá þig glaða. Svona auðmýkt ætla ég sé oftast nær til skaða. • Enn um kjötið • I gær barst okkur eftirfar- andi vísa: Unnsteinn engum gefur grið grípur smyglsins polla. Jafnvel kjötíð fær ei frið í frystigeymslu Tolla. Séra Sigvaldi. • Losnar Odell? • I kvöld fæst úr því skorið hvort Odell losnar úr prísund þeirri, sem „konan í minkn- um“ hneppti hann í í síðasta þætti framhaldsleikritsins „Konan í þokunni“. Fjórði þáttur verður fluttur í kvöld. Framhaldsleikrit útvarpsins hafa náð geypilegum vinsæld- um meðal hlustenda og er nú stundum ekki fundafært í fé- lögum kvenna og unglinga á þriðjudögum vegna framhalds- leikrita. Þó munu fá eða engin framhaldsleikrit hai'a náð jafn- miklum og almennum vinsæld- um og leikrit Gunnars M. Magnúss þó að síðara leikritið um Bólu-Hjálmar hafi verið sýnu vinsælla og notið almenn- ari hylli. Annars er fátt eitt mark- vert í útvarpinu í kvöld, sem ástæða er til að vekja athygli hlustenda á, þó sjálfsagt sé að geta þess að klukkan 20.55 flytja kór og hljómsveit rúss- neska útvarpsins „Snædrottn- inguna", leikhústónlist opus 12 eftir Tjaikovský. Alexander Gauk stjórnar. 13.00 Við vinnuna. 15.00 Miðdegisútvarp: Erlingur Vigfússon syngur. Sigurveig Hjaltested syngur. Fílharm- oníusveitin í Berlín Ieikur slavneska dansa eftir Dvorák; von Karajan stj. M. Schech. I.'Seefried. R. Streich, Fisch- er-Dieskau, K. Böhme o.fl. syngja atriði úr Rósariddan- anum. eftir R. Strauss. East- man-Rochester hljómsveitin leikur lög eftir Weinberger. Liszt og Dinicu; F. Fennell stj. 16.30 Síðdegisútvarp: T. Rossi syngur nokkur lög. E. Ross og hljómsveit hans leika sömbu- syrpu. D. Carroll og hljóm- sveit hans leika ýmis lög. 17.00 Endurtekið tónlistarefni. 18.30 Harmonikulög. 20.00 Daglegt mál. 20.05 Þjóðlög frá Bretlandi: K. Ferrier syngur: P. Spurr leik- ** ur með á píanó. 20.15 Þriðjudagsleikritið: Kon- an í þokunni, eftir Lester Powell. Þýðandi: Þorsteinn ö. Stephensen. Leikstjóri: Helgi Skúlason. Fjórði þáttur. Leikendur: Rúrik Haraldsscfnr Sigríður Hagalín, Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Róbert Am- finnsson. fflvar R. Kvaran. Gísli Alfreðsson, Þorsteinn ö. Stenhensen, Jón Aðils. Bené- dikt Árnason. Ema Gísladótt- ir. Sigmundur örn Amgríms- son, Jónas Jónasson. 20.55 Snædrottningin. leikhús- tónlist op. 12 eft.ir Tjaikovský. kór og hljómsveit rússneska útvarpsins flytja. A. Gauk stjórnar. 21.30 Fólk og fyrirbæri. Æivar R Kvaran segir frá. 22.10 Kvöldsagan: Afbrýði efti- Frank O'Connor. Þýðandi Sigurlaug Björnsdóttir. Guð- jón Ingi Sigurðsson les (1) 22.30 Guðmundur Jónsson stj. þætti með misléttri músik. 23.20 Dagskrárlok. f FAVELUNNI - Þar sem ólíft er DAGBOK CAROLINU de JESUS Carolina Maria dc Jesus er svört kona sein á heima í Sao Paulo í Brasilíu. 1 þrettán ár af ævi sinni (hún er nú rúmlega fimmlug) átti hún heima í favelunni, fátækrahverfi Sao Paulo, ásamt börnum sínum þremur. Atvinna hennar var að safna nýtilegum hlutum úr sorpinu. og selja þá. Þetta var erfitt óskemmtilegt og lítift upp úr því aft hafa. Samt tókst hcnni aft halda lífinu í sér og bömunum öll þessi ár. Carolina hafði lært aft lesa og skrifa í æsku. Hverja stund, sem hún átti afgangs frá erfiði sínu, hafði hún til lestrar og skrifta. Hún orti Ijóft, samdi ævintýraleiki og sögur, drcymdi um aft vcrfta frægur rithöfundur (það varft hún!), en dagbækur sínar, sem nú hafa verið gefnar út í þúsundum ef ekki miljónum eintaka. ætlafti hún fyrst cngum manni aft sjá. Tilviljun réð þvi aft þær fund- ust hjá henni og voru birtar. Og má Iengi leita fyrr cn finna megi gagngerðari Iýsingu á vesöldinni í fátækrahverfum stórborganna í Brasilíu en í þessari bók einnar hinnar umkomulausustu í miljónamergft vesaling- anna í Suður-Ameríku. Brasilía er af náttúrunnar hendi hift mesta kostaland, og svo er megnið af Suður-Amer- iku. Sama er hvað talið er, málmar og annaft sem vinna má úr jörðu, jarðargróftur, — hvaðcina. Samt lifa þar (i S-Ameríku) a.m.k. 140 miljónir manna af 200 miljónum alls, í svo sárri ncyft, aft það getum við varla gert okkur í hugarlund. Erlendir auðhringir (bandariskir flestir) raka saman fé, og áhrif þcirra cru gcysileg. Flestar tilraunir til úr- bóta hafa hingað til runnið út í sandinn. Þjóðviljinn mun birta hér á siðunni næstu vikurnar frásögn Carolinu Mariu de Jesus eins og hún skráði hana í dagbækur sinar. 15. júlí, 1955. Afmælisdagur Veru dóttur minnar. Ég hefði þurít að kaupa handa henni skó, en matufinn er svo dýr, að við getum ekki leyft okkur þetta. Við megum engu eyða nema fyrir mat. Ég fann skó handa henni í ruslinu, þvoði þá. bætti og fékk henni þá. Ég átti ekki eitt cent til að kaupa brauð fyrir. svo ég þvoði þrjár flöskur og fór með bær til Amolds. Hann tók ”ið flöskunum og fékk mér brauð. Svo fór ég að selja pappírinn minn. Ég fékk 65 cruzeiros. Ég eyddi 20 cruzeiros fyrir kjöti. Ég fékk eitt kíló af fleski og eitt af sykri og ost fyrir sex cruzeiros. Þá voru aurarnir mínir þrótnir! Mér var illt í allan dag. Mér fannst ég vera með kvef, Ég fékk verk í br.ióstið þegar !»ið á kvöldið. Ég fór að hósta. Ég ákvað að fara ekki út að safna pappír. Ég leitaði að Joao :,yni mfnum. Hann var í Felisberío de Carvalho-stræti skammt *rá rriarkaðstorginu. Strætisvagn hafði ekið á dreng á gangstétt og fólk safnaðist að. Joao v'ar í hópnum miðjum. Ég stuggaði honum heim. Ég þvoði bömunum. hátt.aði bau- síðan þvoði ég sjálfri mér og fór f rúmið. Ég beið bangað til klukkan var 11 eft.ir ónefnd- um manni. Hann kom ekki. Ég tók aspirín og laeðist út af* eft- ur. Þegar ég vaknaði var sól komin á loft. Dóttir mfn Vera Eunice sagði við mig: „Sæktu vatn. mamma". — 16 júlí. — Ég fór á fæt- ur og hlýddi Veru Eunice. Ég fór og sótti vatnið. Ég bjó til kaffi. Ég sagði bömunum að ég ætti ekkert brauð, og að þau yrðu að drekka kaffið brauð- laust og borða með því kjöt og farinha1) Mér var illt og ég ákvað að lækna mig sjálf. Ég stakk tveim fingrum niður í kverkarnar tvisvar, seldi upp, og þóttist vita að ég hefði orð- ið fyrir göldrum. Óþægindin í maganum hjöðnuðu og ég fór til Senhor Manuel með nokkrar pjátursdósir að selja honum. Ég sel ,allt sem ég finn í ruslinu. Hann fékk mér 13 cruzeiros. Ég reyndi að gleyma því ekki að ég þurfti að kaupa brauð, sápu og mjólk handa Veru Eunice. Ekki mundu 13 cruzeir- os duga fyrir því. Ég fór heim- ef heimili skyldi kalla, þennan kofa, óróleg og uppgefin. Ég fór að hugsa um það hve erf- iða ævi ég ætti. Alltaf að bera pappir, þvo af bömunum, að rölta um götumar allan daginn. Samt vantar mig allt til alls. Vera á enga skó og hún vill ekki ganga berfætt. 1 tvö ár hefur mig vantað kjötkvörn. Og saumavél. Ég fór heim og eldaði morg- unmat handa. bræðrunum. Hrísgrjón, baunir og kjöt, og svo fór ég aftur að ná í panp- ír. Ég skildi börnin eftir, sagði þeim að leika sér í húsagarðin- um og fara ekki út á götuna. því þar eru þau ekki óhult fyr- ir þessum skelfilegu nágrönn- um mínum. Mér var illt og langaði til að mega leggja mig. En fátækir mega aldrei hvíla sig, sá munaður er þeim bann- aður. Ég var óróleg með sjálfri mér og fannst forlög mín 111. Ég safnaði pappfr í tvo poka. 1)Farinha: gróft hveitimjöl. Síðan fór ég aftur og náði f dá- lítið að brotajárni, pjáturdósir, og eldivið. Alla leiðina var ég að hugsa um hið sama, — þeg- ar ég kem inn í faveluna aftur verður nokkuð nýtt að frétta. Líklega hefur þessi Dona Rosa og þessi andskotans María Engill verið að misþyrma börn- unum mínum. En Vera Eunice svaf og bræðumir voru að leika sér úti. Ég hugsaði: klukkan er ekki nema 2. Kanski ég fari aftur, og það sleppi svo vel að ekkert komi fyrir. Joao sagði mér að vöruvagninn sem út- hlutar peningum væri kom- inn og væri að úthluta matvæl- um. Ég tók pokann minn og flýtti mér út. Þetta var Þá forustumaður Spiritist Center í Vergueiro Street 103. Ég náði í tvö kíló af hrís- grjónum, tvö af baunum, og tvö af makaróni. Ég var fegin. Vörubíllinn fór. Óróleikinn h'ð innra með mér dvínaði einnig. Ég neytti rósemi minnar of fór að lesa. Ég náði í vikublað og settist í grasið, og lét sólar- geislana verma mig á meðan. Ég skrifaði á miða og fékk syni mínum Joao og bað hann að fara með þetta til Senhor Arn- aldo til að kaupa tvo skammta af aspiríni og brguð. Svo setti ég vatn í kaffi yfir’ eldinn. Joao kom aftur og sagðist hafa týnt skömmtunum. Ég fór með honum til baka sömu leið. Við fundum þá ekki. Þegar ég kom heim var mikil ærusta v!ð dyrnar hjá mér. Börn og kon- ur sögðu að José Carlos hefði kastað steinum í hús þeirra. Þau heimtuðu að fá að refsa honum. 17. júlí. Dásamlegur dagur. Heiðríkur himinn og ekki ský- skaf á lofti. Sólskinið var heift. Ég fór á fætur kl. 6.30 og sótti vatn. Ég átti ekki nema eina sneið af brauði og 3 cru- zeiros . . . Ég skipti sneiðinni milli barnanna og setti baun- irnar. sem ég fékk i fvrradag írá Spiritist Center yfir eld. Svo fór ég að þvo þvott. Þegar ég kom aftur neðan frá ínni voru baunimar soðnar. Bömin báðu um brauð. Ég fékk Joao þessa þrjá cruzeiros til að kaupa brauð fyrir. 1 dag var það Nair Mathias sem byrjaði að áreita bömin mín. Silvia og hennar maður eru farin að fljúgast á á almannafæri. Hann slær hana og ég get ekki til þess vitað að börnin séu vitni að þessu. Þau heyra þetta voða- lega orðbragð. Æ, ef ég gaeti komizt héðan í einhvern skárri stað. Ég fór til Dona Floreia til þess að biðja hana um lauk. Ég fór til Dona Analia, og hún svaraði mér eins og ég bjóst við: — Ég á engan lauk! Ég fór að taka inn þvottinn. Dona Aparecida sagði við mig: — Ertu ólétt? — Nei, frú, svaraði ég. Ég bölvaði henni í hljóði. Ef ég er ólétt þá er það nokkuð sem hana varðar ekkj um. Ég þoli ekki þessar kerlingar i favelunni, þær em svo forvitn- ar. Tungan í þeim er eins og kjúklingafætur, sem þurfa að klóra í allt. Þær eru sem sé að þvætta það að ég sé ólétt! Sú sem ekki veit neitt til þess, það er ég sjálf! Um kvöldið fór ég út aðsafna pappír. Þegar ég fór framhjá knattspyi-nuvellinum sem kennd- ur er við Sao Paulo, voru á- horfendurnir að streyma út. Af þeim voru allir hvítir nema einn, hann var svartur. Sá svarti fór þegar í stað að á- reita mig: — Ertu nú að safna pappír, heillin? Gættu að hvar þú geng- ur, gæzkan! Mér var illt og mig langaði til að Ieggja mig, en áfram hélt ég samt. Ég mætti hóp af kunningjum og stanzaði til að tala við þá. Þegar ég var á leiðinni upp Tiradentes Avenue mætti ég nokkrum konum. Ein þeirra sagði við mig: — Er þér batnað i fótun- um? Eftir það að gerð var þessi aðgerð á fótunum á mér líður mér betur, lof sé guði. Ég_ gat meira að segja dansað á kjöt- kveðjuhátíðinni í fjaðrakjóln- um mínum. Það var José Torr- es Netto læknir sem gerði bessa aðgerð á mér. Þegar ég var spurð hvernig mér líkaði vdð Carlos Lacerda, svaraði ég eins og satt var: — Hann er bráðgáfaður, en hann hefur enga mennfcun. Hann er maður fátækrahverí- anna. Hann er góður til að spana til ósamlyndis, veKja deilur. Ein af konunum sagði að bað væri verst að kúlan sem litti höfuðsmanninn skyldi ekk) hitta Carlos Lacerda. — En röðin kemur að honum. vertu viss, sagði önnur. Margt fólk hafði safnazt sam- an umhverfis okkur og alhr horfðu á mig. Ég fór hjá mér af því að ég var að safna pappír og klædd í tötra. Ég vildi helzt ekki láta tefja mig þama, því ég þurfti að halda áfram. Ekki veitti af. Ann-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.