Þjóðviljinn - 05.01.1966, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 5. janúar 1966.
Dagbók
úr
Gríni-
fangeisi
Einn þekktasti málvísinda-
maður Norðmanna, Carl Mar-
strander, er nýlega látinn. Aí
þvi tilefni rifjaðist upp eftir-
farandi saga: Marstrander
var á hemámsárunum tek-
inn til fanga og sat á Gríni-
fangelsi. í fangeJsinu dundaði
Marstrander við það að halda
dagbðk, sem hann skrifaði á
klósettpappír og keltnesfcu.
Þjóðverjar komust óvart i
dagbókina, en skildu að sjálf-
sögðu ekki neitt í neinu, og
klósettrúllan var send til
dulmálsdeildarinnar í Beirlín.
Fangelsisyfirvöldin fengu svo
nofckru síðar eftirfarandi
svar: Þetta virðist einna helzt
vera skrifað á torskilinni,
keltneskri málýzku. Fangels-
isyfirvöldin ættu að hafa
samband við prófessor í Osló
að nafni Marstrander. . .!
Agnar, Jöku/I, Karí Ó. og
Þórarinn fengu styrkina
Á gamlársdag fóru fram í
Þjóðminjasafninu styrkveiting-
ar úr rithöfundasjóði Ríkisút-
Hug-
sjónabarátta
Svissnesfci alúmínhringur-
inn hefiur haft miklum og
fjölbreytilegum liðsafla á að-
skipa í samningum sínum við
íslenzk stjómarvöld. Koma
þar ekki aðeins við sögu for-
ustumenn sjálfs auðfélagsins,
heidur og alþjóðlegir fjár-
málamenn af ýmsu tagi,
þandarískix lögvitringar og
fulltrúar aiþjóðabankans f
Washington. En svo mjög
sem sérfræðingar þessir hafa
látið að sér kveða, eru þeir
þó allir eins og böm í sam-
anburði við íslenzkan áhuga-
mann, Eyjólf Konráð Jónsson
hæstaréttarlögmann, stjóm-
málaritstjóra Morgunblaðsins.
Hann hefur vaðið eld og
brennistein í þágu hringsins
allt frá því það kvisaðist í
upphafi að svissneska auðfé-
lagið kynni að vilja festa fé
sitt hér á landi og þiggja
meðgjöf með raforku. Hefur
Eyjólfur hagnýtt til fullnustu
þá aðstöðu sína að ráða yfir
víðlesnasta blaði landsins;
hann tók þar skilyrðislausa
afstöðu með hinu erlenda
auðfélagi, löngu áðuir en
nokfcuð var um það vitað
hvers kyns samningar stæðu
til boða; hann hefur andmælt
hverri einustu röksemd sem
fram hefur komið um aðgát
af Islendinga hálfu. Og þess-
ar skoðanir hafa ekki verið
fluttar f greinum sem Eyjólf-
ur hefur borið persónulega á-
byrgð á, heldur í nafnlausum
forustugreinum sem skrifaðar
hafa verið á ábyrgð mið-
stjómar Sjálfstæðisflokfcsins
— löngu áður en sú stjóm
hafði tekið nokkra afstöðu.
Svo ríkur er áhugi Eyjólfs að
hann lagði það á sig á síð-
asta ári að fara til Banda-
ríkjanna og setjast á skóla-
bekk í nokkra mánuði til
þess að afla sér aukinnar vit-
neskju um það hvemig auð-
fyrirtæki hreiðra um sig í
vanþróuðum löndum. Sumir
telja að þessi dugnaður Eyj-
ólfs Konráðs Jónssonar stafi
af þvi að hann sé launaður
umboðsmaður svissneska auð-
félagsins, en aðrir halda þvl
fram að jafn ósérhlífin at-
orka geti ekki sprottið af
öðru en brennandi hugsjón.
Báðar kenningamar geta ver-
ið réttair; hugsjónir sumra
manna eru dálítið einkenni-
legar.
Hæg
heimatökin
En hernaðaráætlun sviss-
nes'ka auðfélagsins er ekki
fólgin í áhlaupinu einu sam-
an undir forustu hins gunn-
reifa Morgunblaðsriddara;
það beitir einnig, þeirri
kænsku sem nefnd er tangar-
sókn. I samninganefnd ís-
lenzka ríkisins — þeirri sem
á að gæta hagsmuna hinna
innbomu — er að finna
ungan lögfræðing, Hjört
Torfason héraðsdómslög-
mann. Ekki sfcal dregið í efa
að hann sé greindujr maður
og gegn, en þó mun mörgum
finnast undariegt að nýliði
skyldi valinn til jafn vanda-
samra starfa en gengið fram
hjá fjölmörgum hálærðum
lögfræðingum og þaulreynd-
um samningamönnum. A
þessari ráðabreytni er naum-
ast til önnur skýring en sú
að Eyjólfúr Konráð Jónsson
og Hjörtur Torfason starf-
ræfcja lögfræðiskirifstofu sam-
an og hafa svarizt í mjög ná-
ið fóstbræðralag. Hinir raun-
vemlegu samningar eiga sér
trúlega stað á lögPræðiskrif-
stofunni á Tryggvagötu 8
milli Eyjólfg Konráðs Jóns-
sonar, hins gunnreifa fulltrúa
svissnesfca alúmínhringsins,
og Hjartar Torfasonar, hins
harðskeytta fulltrúa íslenzku
rikisstjómarinnar. Hefði
raunar verið meiri vinnuhag-
ræðing f því að viðurkenna
þá staðreynd þegar í upphafi,
í stað þess að vera að setja á
svið umfangsmikið og kostn-
aðarsamt samningakerfi með
stjómamefndum og bing-
mannanefndum, ferðalögum,
veizluhöldum, sfcýrslugjöfum
og umræðum á alþingi. En
einhverju verða menn að
fóma fyrir lýðræðið
— Austri.
varpsins og tónskáldasjóði Ríkis-
útvarpsins. Hlutn leikritahöfund-
arnir Jökull Jakobsson oK Agn-
ar Þórðarson 25 þúsund krónur
hvor úr rithöfundasjóðnum en
Þórarinn Jónsson og Karl Ó.
Runólfsson hlutu siimu upphæð
hvor um sig úr tónskáldasjóðn-
um.
Formaður rithöfundasjóðsins.
Kristján Eldjám þjóðminja-
vörðpr afhentj þeim Jöfcli og
Agnari verðlaunin og gat hann
þess að þetta væri í 10. sinn
sem úthlutað væri úr sjóðn-
um og hefðu alls 19 rithöfund-
ar hOotið styrki, allt ljóðskáld-
og skáldsagnahöfundar nema
þeir Jökull og Agnar.
Útvarpsstjóri, Vilhjálmur Þ.
Gíslason afhenti styrkina úr
Jökull Jakobsson
tópskáldasjóðnum en annað tón-
skáldið, Karl Ó. Runólfsson, var
ekki í bænum.
Meðal gesta við athöfn þessa
voru menntamálaráðh. Gylfi Þ.
Gíslason og Helgi Sæmundsson
formaður menntamálaráðs svo
Og formenn rithöfundasamtak-
anna.
Gúmmífatagerðin
Vopni 25 ára
Um þessi áramót voru liðin
25 ár síðan Gúmmífatagerðin
Vopni tók til starfa, en stofn-
andi fyrirtækisins og eigandi
frá upphafi er Sveinbjöm
Friðfinnsson.
Sveinbjöm hefur skýrt Þjóð-
viljanum svo frá starfsemi
fyrirtækisins:
— Verksmiðjan hóf starf-
semi sína með framleiðslu sjó-
fatnaðar úr gúmbomum dúk-
um, en hann þótti míkill kjör-
gripur borið saman við olíu-
boma klæðnaðinn. Fljótlega
var„ svo tekinn með alklæðn-
aður (jakki og buxur) handa
mönnum sem stunda útistörf
allskonar.
Þá tóku við plastbornu dúk-
amir bæði til land- og sjó-
klæðnaðar, það þótti léttara og
hagkvæmara.
Verksmiðjan hefur ávallt
lagt stund á að vanda bæði
efni og vinnu, aukið smám
saman vélakostinn, t.d. fengið
fullkomnustu rafsuðuvélar.
— Það má taka fram, sagði
Sveinbjöm ennfremur, að allir
dúkar eru fengnir frá Víking-
verksmiðjunum í Noregi; þeir
hafa reynzt langbeztir, hvað
snertir mýkt og slitþol.
Regnfataframleiðslan nær iil
allra, bæði til sjós og lands,
einnig bama og unglinga.
Ég vil nota tækifærið, sagði
Sveinbjöm Friðfinnsson að
lokum, að þakka öllum þeim
mikla fjölda, sem skipt hefur
við fyrirtækið og borið því
vel söguna.
AÐALFUNDUR FÉLAGS
ÍSL. MYNDUSTARMANNA
Aðalfundur Félags íslenzkra
myndlistarmanna var haldinn
hinn 6. des. sl. Sem að líkum
lætur var skálabyggingin á
Miklatúni efst á baugi og þótti
nú vænlegar horfa en fyrir ári.
þegar menn veltu vöngum yfir
einmana bílskrjóð í vonlitlu
happdrætti. Stjórnin taldi góð-
ar vonir til þess að hafizt yrði
handa jafnvel á næsta vori og
með Iögmálið í huga, að hálfn-
að sé verk þá hafið er, ríkti
bjartsýni á fundinum.
f stjórn voru endurkjömir
Sigurður Sigurðsson formaður.
Valtýr Pétursson gjaldkeri, en
í stað Harðar Ágústssonar. sem
baðst undan endurkjöri varð
Kjartan Guðjónsson ritari.
f sýningamefnd voru kosnir
málararnir Jóhannes Jóhannes-
son. Steinþór Sigurðsson, Eirík-
ur Smith, Si'gurður Sigurðsson
og Hafsteinn Austmann. og
myndhöggvararnir Sigurjón Ól-
afsson, Guðmundur Benedikts-
son og Magnús Á. Ámason.
Fulltrúar í Bandalagi ísl lista-
manna urðu: Magnús Á. Árna-
son. Kjartan Guðjónsson, Kristj-
án Davíðsson. Eiríkur Smith og
isjálfkjörinn Sigurður Sigurðs-
son formaður.
Talsvert fjör hefur verið í
sýningum utanlands og innan og
ÞRÍFÓTUR
Stór og góður þrífótur
óskast til kaups.
Þarf að vera nothæfur til
,,close up“-myndatöku.
Hringið í síma 2-08-05
sem fyrst.
sýningar framundan erlendis. M.
a. er í bígerð æskulýðs-,.bienn-
ale“ á vegum Norræna lista-
bandalagsins þar sem aldurs-
takmark verður 30 ár og sýn-
ingar á Norðurlöndum til skipt-
is.
Samþykkt var að bjóða þrem
nýjum mönnum að ganga í fé-
lagið og eru það málaramir
Hringur Jóhannesson, Sveinn
Snorri Friðriksson og mynd-
höggvarinn Jóhann Eyfells.
SKIPAUIGtKÐ KIKISINS
M.B. OTUR
fer til Rifshafnar, Ölafsvíkur,
Grundarfjarðar, Stykkishólms og
Flateyrar á fimmtudag.
Vörumóttaka á miðvitoudag.
Skinnjakkar
á stúlkur og drengi. .
HVÍTAR SKYRTUR, allar stærðir.
SKYRTUHNAPPAR os bindi o.m. fl.
Góðar vörur á góðu verði.
Verzlun Ó. L.
Traðarkotssundi 3 ímóti Þjððieikhúsinuy.
Hjúkrunarkonur óskast
Hjúkrunarkonur vantar að hinum ýmsu deildum Land-
spítalans. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Nánari upplýsingar veitir forstöðukona
Landspítalans í síma 24160 og á staðnum.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
HIOLBARÐAR
FRA , ,
SOVETRIK3UNUM
REYNSLAN
HEFUR
SANNAÐ
GÆÐIN
MARS TRADING €0. H.F.
KLAPPARSTÍG 20 SÍMI 17373
BLAÐDREIFING
Unglingar óskást til blaðburðar í eftir'tal-
in hverfi:
Hjarðarhaga — Skipholt — Kleppsveg —
Múlahverfi.
Sími 17-500.
KÓPAVOGUR:
Laust hverfi: — Digranesvegur.
Upplýsingar í síma 40-753.
ÞJÓÐVILJINN.
vlnsœlasfir skartgripir
jóhannes skólavörðustíg 7