Þjóðviljinn - 05.01.1966, Side 3

Þjóðviljinn - 05.01.1966, Side 3
Johnson áætlar a5 verja miljörðum | dollara til stríðsins í Vietnam ■ ■ ■ ■ Mun biðja þingið um fimm miljarða dollara til stríðsins á þessu fjárhagsári og stórfellda hækkun fjárveitingarinnar á því næsta WASHINGTON 4/1 — Niðurstöðutölur fjárlagafrumvarps Johnsons forseta sem lagt verður fyrir fulltrúadeildina þegar þing kemur saman í næstu- viku munu vera 110 til 115 miljarðar dollara og má af því ráða að ætlunin sé að verja miljörðum dollara til stríðsins í Vietnam á næsta ári. Þessi áætlun gefur til kynna að Bandaríkjastjórn hafi þegar lagt á ráðin um stórfellda útfærslu stríðsins í Vietnam á þessu ári, hvað sem líður svo allri svonefndri „friðrasókn" hennar. Niðurstöðutölur á fjárlögum yfirstandandi fj árhagsárs voru tæpir 100 miljarðar dollara, svo að hér er um mikla hækkun að ræða, og vafalítið að veru- legur hluti hækkunarinnar er ætlaður til stríðsins í Vietnam, enda hefur spurzt að Johnson muni fara fram á að þingið sam- þykki aukafjárveitingu til stríðs- ins á yfirstandandi fjárhagsári sem lýkur 30. júní og muni hún nema fimm miljörðum dollara eða 215.000.000.000 króna. getið til að ætlunin sé að hann fari til Moskvu, en ekki fékkst það staðfest í Washington í dag. hafa f jóra daga á strönd Suð- j ur-Vietnams norður af Nha | Trang tæpa 400 km fyrir norð- j austan Saigon. Sveitir úr Saigon- ! hernum og suðurkóreskar her- sveitir hafa þar barizt gegn skæruliðum og beitt bæði eld- vörpum og eiturgasi til að svæla þá út úr jarðgöngum þeirra. Ásökun frá Peking Sén Ji, utanríkisráðherra Kína, segir í viðtali sem birtist í mál- gagni japanskra kommúnista, „Akahata“ í dag, að leiðtogar Sovétríkjanna hafi liðsinnt Bandaríkjamönnum til að senda herlið til Vietnams. — Hefðu Sovétríkin í raun- inni viljað aðstoða vietnömsku þjóðina, þá hefðu þau getað gert hvaða ráðstafanir sem væri til að draga vígtennurnar úr Bandaríkjamönnum. Það hafa sovézkir leiðtogar ekki gert. Heldur hafa þeir þvert á móti lagt sig alla fram til að auð- velda Bandaríkjamönnum að ein.beita herafla sínum gegn Vietnam, sagði Sén Ji. Þingið hefur áður tvívegis veitt s'líka aukafjárveitingu á þessu fjárhagsári. Bill Moyers, blaðafulltrúi for- setans, skýrði frá því í dag að í fjárlagafrumvarpinu væri gert ráð fyrir 7 miljarða dollara halla. Hann sagði að ekki yrði reynt að jafna þann halla með auknum sköttum, en vildi ekk- ert segja um hvemig farið yrði að því. Hafnað í Hanoi Stjóm Norður-Vietnams segir í yfirlýsingu sem birt var í dag að meðan Bandaríkin haldi á- ffam yfirgangi sínum gagnvart hinni vietnömsku þjóð, muni hún berjast fyrir sjálfstæði sínu. 1 yfirlýsingunni segir að Bandaríkjastjórn hafi fyrir skömmu hafið svonefnda „frið- arsókn“ og jafnframt hafi ver- ið gert bráðabirgðahlé á loftár- ásunum til að sanna að hugur fylgdi máli. En staðreyndirnar sýni að í hvert sinn sem Banda- ríkjamenn búist til að herða stríðið tali þeir um frið. Lýst er sök á hendur Banda- ríkjamönnum fyrir að hafa hafn- að fjögurra atriða tillögum Norður-Vietnams um friðsam- lega lausn. Þessi fjögur atriði feli i sér pólitísk og hemaðarleg meginákvæði Genfarsamn.ing- anna frá 1954. Harriman til Moskvu? Sendiboðar Johnsons forseta sem eiga að ,,kynna stefnu Bandaríkjanna í Vietnam“ eru enn á þeysingi milli höfuðborga. Harriman aðstoðarutanríkisráð- herra kom í dag til Kaíró og ræddi við Nasser forseta. Hann hefur áður verið í Póflandi, Jú- góslavíu, Indlandi. Pakistan og Iran og mun eiga að fara til enn eins lands. Þess- hefur verið Ein af hörðum orustum Victnamstríðsins hefur staðið undanfarið á óshólmum Mekongfljóts, rétt við landamæri Kambodja og skammt austur af Saigon. Bandaríkjamcnn beittu þar allri manndráps- tækni sinni, stórskotaliði, napalmsprengjum og citurgasi og sögðust hafa unnið mikinn sigur, hafa fellt 111 skæruliða, handtekið sjö og aðra 502 sem grunm: léki á að væru skæruliðar. — Myndin sýnir Bandaríkjamenn sækja fram á þessum slóð um. Sovézk sendinefnd er á förum til Hanoi og verður Sélepin for- • maður hennar. 1 Washington er sagt að ætla megi að hléið á loftárásum á Norður-Vietnam muni standa fram yfir vietnömsku nýárshá- tíðina sem stendur dagana 20.— 24. janúar. Þjóðfrelsisfylkingin í Suður-Vietnam hefur boðizt til að gera vopnahlé þá daga. Eiturgas cnn í Saigon var í dag skýrt frá hörðum bardögum sem staðið Leiðtogar verkfallsmanna í New York settir í fangelsi .......................... ■ ■ Bandarikin brennimerkt \ á ráðstefnunni í Havana í NEW YGRK 4/1 — Michael Quill, leiðtogi 35.000 starfsmanna við almenningsfarartæki New York borgar sem hófu verkfall á nýársdag, var í dag tekinn höndum ásamt fjórum sam- starfsmönnum sínum. Engar horfur eru á lausn verkfallsins og fyrirsjáanlegt algert öng- þveiti i umferð Sitórborgarinnar. Hæstiréttur New York fyrir- skipaði fangelsun Quills og fé- laga fyrir að hafa óhlýðnazt þeim fyrírmælum réttarins að aflýsa verkfaliinu sem úrskurð- að hafði verið ólögilegt. Quill hafði svarað þeim úrskurði með bví að fyrr færi hann í fang- elsi en hann aflýsti verkfallinju. Verkfallsins var tekið að gæta fyrir alvöru í dag, en við það hafa stöðvazt állir stræ'tisvagn- ar og neðanjarðarlestir sem milj- ónir borgarbúa nota til að aka til vinnu sinnar og frá. í dag urðu færri en í gæi við þeim tilmælum Lindsays borg- arstjóra að skilja bíla sína eftir heima en fá heldur far með ná- grönnum. Það tókst að afstýra algeru öngþveiti í umferðinni í dag en það er fyrirsjáanlegt ef verkfallið heldur áfram. 1 kvöld bairst sú frétt að hálf- um öðrum tíma eftir að Quill var handtekinn hafi hann veikzt skyndilega og verið fluttur í Framhald á 9. síðu. HAVANA 4/1 — 1 heiftþrung- inni ræðu sem Dorticos, forseti Kúbu, flutti þegar hann í gær setti ráðstefnu þjóða rómönsku Ameríku, Afríku og Asíu brennimerkti hann Bandaríkin sem höfuðfjanda friðar og fram- fara í heiminum. • Um 500 fulltrúar sitja ráð- stefnuna frá þjóðfrelsishreyfing- um í tæplega 100 löndum, ríkis- stjórnum, andstöðuflokkum og byltingarhreyfingum, allt eftir því hvernig þjóðfrélsissinnum hefur vegnað í starfi sínu. Fulltrúa Vietnams fagnað Setningarræðu Dorticos var vel fagnað, en fögnuður fulltrúa varð þó enn meiri þegar full- trúar Þjóðfrelsisfylkingar Suð- ur-Vietnams voru hylltir. Furðulítill ágrciningur Fréttaritari ,,l’Unitá“ í Havana segir að furðulítill ágreiningur hafi verið uití hverjir skyldu fá sæti á ráðstefnunni, þegar haft er í huga hve margvísleg þau sarrjtök eru sem að henni standa þótt öll vilji stefna að sama marki. Hann nefnir nokkur dæmi þess að nefndir sem mætt- ar voru til ráðstefnunnar frá rómönsku Ameríku fengu ekki sæti á henni og réð því und- irbúningsnefndin. Þannig var vís- að frá fulltrúum frá Perú sem eru í andstöðu við byltingar- hreyfinguna þar og telja sig fylgja sjónarmiðum Kínverja. Einnig fulltrúi örlítils klofnings- hóps frá Chi'le sem kennir sig við Spartakus. Þá voru einnig útilokaðir full- trúar skæruliðahreyfingar þeirr- ar í Guatemala sem er undir stjóm Jon Sosa. Fulltrúar Guatemala eru frá Byltingar- hemum (FAT), en að honum standa ýms öfl, kommúnistar, stúdentar og jafnvel lýðræðis- sinnaðir liðsforingjar. Annars eru nefndimar frá rómönsku Ameríku skipaðar fulltrúum allra hinna margvís- legu afla sem vinna gegn heims- valdastefnunni og nýlenduarð- ráninu. Nefndin frá Argentínu er þannig skipuð bæði komm- únistum, perónistum og ..vinstri- kommúnistum“ sem sagt hafa skilið við flokkinn, en berjast þó við hlið hans. Miðvikudagur 5. janúar 1966 — ÞJÖÐVXLJINN — SlÐA J ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Brezkir menntamenn um Vietnamstriðið Á Þorláksmessu birtist á heilli síðu í brezka blað- inu „The Times“ ávarp vegna stríðsins í Vietnam. Ávarpið er mjög á sömu leið og önnur sem mennta- menn í mörgum löndum hafa birt að undanförnu. Það fer hér á eftir: „Þungan kvíða hefur sett að okkur við fréttir um frekari útfærslu hernaðar Bandaríkjanna í Vietnam og að verið sé að undirbúa loft- árásir á Hanoi og Haiphong og umhverfi þeirra. Við lesum með skelfingu að Dean Rusk utanríkisráðherra hafi nýlega sagzt ekki sjá neinar líkur á málamiðlun í Suður-Vietnam. Við óttumst að ríkisstjóm Bandaríkjanna kunnj nú þegar að hafa ákveðið að eina hugs- anlega lausnin í Vietnam sé hemaðarleg. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur gert opinskátt að á tímabilinu frá því í desember 1964 til maí 1965 hafi því borizt tilboð frá Norður-Vietnam um að hefja samningaviðræð- ur; að frumkvæðið í maí hafi komið í kjölfar fimm daga hlésins á loftárásum á Norður- Vietnam, og að öllum frumkvæðum hafi ver- ið hafnað vegna þess að sett hafi verið óað- gengileg skilyrði: Við vonum að fréttir þess efnis að ríkisstjórn Bandaríkjanna hafj litlu sinnt nýlegu frumkvæði af ítalskri hálfu reyn- ist ekki á rökum reistar. Það er einlæg sann- færing okkar að reyni Bandaríkin að finna lausn í Vietnam aðeins á vígvöllunum og með langvarandi hörmungum, bæði fyrir Vietnama og Bandaríkjamenn, muni það spilla hverjum sigri sem kynni að vinnast og vekja beizkju og tortryggni sem endast muni heilan manns- aldur. Þess vegna vonum við að ríkisstjórn Banda- ríkjanna muni sýna vilja sinn til friðsamlegr- ar lausnar með því að fallast á eftirfarandi til- lögur: 1) Hætt sé loftárásum á Norður-Viet- nam, 2) viðurkennt sé að Þjóðfrelsisfylking- in sé réttmætur samningsaðili, 3) fallizt sé á að ákvæði Genfarsamninganna frá 1954 séu lagalegur, siðrænn og hagnýtur grundvöllur þess friðar sem um verður samið“. Benjamin Britten Graham Greene Undir þetta ávarp rita þrjátíu og átta menn og konur, öll þjóðkunn í Bretlandi og mörg um ailan heim. Nöfnin eru birt í stafrófsröð og skulu hér nokkur nefnd: A. J. Ayer, prófessor í heimspeki í Oxford, C. M. Bowra, rektor Wadham College í Oxford, Sidney Brenner, líffræöingur við ríkisrannsökna- stofnunina í Cambridge, tónskáldið Benjamin Britten, lei'k- stjórinn Peter Brook, förstjóri Royal Shakespeare Theatre, vísindamaðurinn og nóbelsverðlaunahafinn Boyd Orr lávarð- ur, G. M. Carstairs, prófessor í Edinbarg, myndhöggvarinn Hugh Casson, listfræðingurinn Kenneth Clark, C. A. Coulson, stærðfræðiprófessor í Oxford, E. R. Dodds, prófessor í grísk- um bókmenntum í Oxford, William Empson, prófessor í ensk- um bókmenntum í Sheffield, söngvarinn Geraint Evans, rit- höfundurinn Graham Greene, myndhöggvarinn Barbara Hep- worth, sa gnf ræðingurinn Christopher Hill, visindamaðurinn Francis Huxley, Paul Johnson, ritstjóri ,,New Statesman“, biskupar ensku kirkjunnar í Llandaff (Wales), Southwark og Woolwich (London), leikarinn Michael Redgrave, fyrrverandi erkibiskup kaþólskra í Bombay, jesúítinn T. D. Roberts, mál- arinn Graham Sutherland.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.