Þjóðviljinn - 05.01.1966, Blaðsíða 8
0 SlÐA — ÞJÖDVIEJINN — Miðvíkudagur 5. janúar 1966.
• Talar um Kurt
Weill og Bert
Brecht í kvöld
• Við viijum vekja sérstaka
athygli á þeim dagskrárlið i
útvarpinu í kvöld. sem hefst
kl. 15. mín. yfir 10. Þar talar
Kristján Ámason um eitt
fraagasta verk þeinra félaga
K”r* Weill og Bertolts Brechts,
i;.»ccht
>,Uppgang og hrun Maha-
gonny-borgar“ og kynnir þætti
úr þvi. Lotte Lenya fer með
aðalhlutverkið í óperunni en
aðrir flytjendur eru Gisela
Litz, Sigmund Both. Horst
Gúnter, Peter Markwort o.fl.
ásamt kór og hljómsveit. Stj.
er Wilhelm Brúckner-Rúgge-
berg, sem er íslenzkum tónlist-
arunnendum að góðu kunnur
frá heimsókn sinni hingað fyr-
ir allmörgum árum, en þá
stjómaði hann tónleikum Sin-
' fóníusveitar Islands.
13.00 Við vinnuna.
' 14.40 Sigrún Guðjónsdóttir les
skáldsöguna Svört voru segl-
in.
15.00 Miðdegisútvarp. Templ-
arakórinn syngur. Philharm-
onia leikur þætti úr Þymi-
rós, eftir Tjaikowský. Kim
Borg syngur aríur úr Igor
fursta, eftir Borodin. K.
Sroubek og útvarpssveitin í
Prag leika Konsert-pólonesu
fyrir fiðlu og hljómsveit eft-
ir Fibich.
16.00 Síðdegisútvarp. B. Holly
R. Garcia. P. Paramillo, S.
O. Sandberg, E. Hauge, E.
Kaare, The Jordanaires o.fl.
leika og syngja.
18.00 Útvarpssaga barnanna:
Á krossgötum, eftir Aimée
Sommerfelt Þýðandi: Sigur-
laúg Björnsdóttir. Lesarl:
Guðjón Ingi Sigurðsson leik-
ari (1).
20.00 Daglegt mál.
20.05 Efst á baugi.
20.35 Raddir lækna: Snórri
Páll Snorrason talar um há-
an blóðþrýsting.
21.00 Lög unga fólkisins. Gerð-
ur Guðmundsdóttir kynnir.
22.15 Bertolt Breoht: Erindi og
ópera. Kristján Ámason
menntasikólakennari talar
um BreCht og kynnir síðan
óperuna Mahagonny, eftir
K. Weill við texta Brechts.
Flytjendur: L. Lenya, G.
Litz, S. Roth, H. Gúnter, P.
Markwort o.fl. ásamt kór og
hljómsveit. Stjómandi: W.
Brúchner-Rúggenberg.
23.55 Dagskrárlok.
Atta riddarar og
þrír stórriddarar
í fyrradag barst Þjóðviljan-
um eftirfarandi frétt frá orðu-
ritara:
Forseti íslands hefur
eftirfarandi menn ht
merkjum hinnar íslenzKU
fálkaorðu:
1. Elías Halldórsson, forstjóra,
Reykjavík, stórriddarakrossi,
fyrir störf í þágu sjávarút-
vegsins.
2. Jóhannes Nordal, bankastj.,
Reykjavík, stórriddarakrossi,
fyrir embættisstörf.
3. Svanbjörn Frímannss., banka
stjóra, Reykjavík, stórridd-
arakrossi, fyrir störf að
bankamálum.
4. Áma Árnason, kaupmann,
Reykjavík, riddarakrossi, fyr-
ir störf að slysavarnamálum.
5. Björn E. Árnason, endur-
skoðanda, Reykjavík, ridd-
arakrossi, fyrir margháttuð
opinber störf.
6. Guðmund Kr. Guðmundsson,
bónda Kvígindisfelli, Tálkna
firði, riddarakrossi, fyrir
búnaðar- og félagsmálastörf.
7. Jóhannes Jónsson, útgerðar-
mann, Gauksstöðum, Garði,
riddarakrossi, fyrir störf að
s j ávarútvegsmálum.
8. Jónu Guðmundsdóttur, íyrrv.
yfirhjúkrunarkonu, Reykja-
vík, fyrir hjúkrunarstörf.
9. Magnús J. Brynjólfsson, for-
stjóra, Reykjavík, riddara-
krossi, fyrir viðskipta- og fé-
lagsmálastörf.
10. Níels P. Sigurðsson, deild-
arstjóra, Reykjavík, riddara-
krossi, fyrir störf á vegum
utanríkisþjónustunnar.
11. Þórstein Bjamason, körfu-
gerðarmann, Reykjavík, ridd-
arakrossi, fyrir störf að mál-
efnum blindra.
• Margs er að
gæta
— Notaðu ekki lakkskó,
svo karlmennirnir sjái ekki
nærfötin þín endurspeglast í
þeim.
— Gættu þín á karlmönn-
um, sem standa fyrir neðan
stigann til þess að geta horft
upp til þín.
— Forðastu hvítan lit, hann
minnir á rúmföt.
— Settu púður í baðið, svo
líkami þinn speglist ekki í
vatninu.
( — Úrdráttur úr siðaregl-
um, sem stúlkum eru
kenndar í nokkrum kaþólsk-
um skólum Bandaríkjanna.)
AUGL ÝS/NG
um hækkun á sérstöku innflutningsgjaldi
af benzíni.
Samkvæmt lögum um breytingu á 85. gr. vegalag-
anna hækkar sérstakt innflutningsgjald af benzíni
úr kr. 2,77 í 3,67 af hverjum lítra frá og með 1.
þessa mánaðar.
Hækkunina ber að greiða af benzínbirgðum, sem
til eru í landinu nefndan dag. Þó skulu g'jaldfrjáls-
ir 300 lítrar hjá hverjum eiganda.
Fyrir því er hér með skorað á alla þá, sem áttu
birgðir af benzíni nefndan dag, að tilkynna lög-
reglustjórum, í Reykjavík tollstjóra, um birgðir sín-
ar þann dag, og skal tilkynningin hafa borizt fyr-
ir 12. þ.m.
Fjármálaráðuneytið,
4. janúar 1966.
• Brúðkaup
• Nýlega voru gefin saman í
hjónaband í Dómkirkjunni af
séra Óskari J. Þorlákssyni
ungfrú Guðrún Gyða Þórólfs-
dóttir og Loftar Páll Bjama-
son. Heimili þeirra er að
Stóragerði 10 Reykjavík.
(Hlustað á útvarp á 3. í jóhim).
Sýnist hafa sannazt nóg
saga af hvalfiskinum,
að hann gleypti, að hann spjó
aftur spámanninum.
Gamli Jónas gekk í lið
góðra afla megin.
Nafni hans úr kanans kvið
kemur heilaþveginn.
Habakúk.
• Ort á áramótum
(Ljósmyndastofa Þóris).
• Fyrir * skömmu voru gefin
saman í hjónaband í Dóm-
kirkjunni af séra Óskari J.
Þorlákssyni ungfrú Guðbjörg
Bryndís Sigfúsdóttir og Odd-
geir Júlíusson.
(Stúdíó Guðmundar)
• Nýlega voru gefin saman í
hjónaband í Kópavogskirkju af
séra Gunnari Ámasyni ungfrú®-
Hekla Gestsdóttir og Skúli fs-
leifsson.
Hugur manna heims iurv ból
hatar glæparíkin.
Kæra þau við kvalastól
kvenna- og barnalíkin.
Ben. frá Hofteigi.
Fiskimál
• Vísan um hval-
inn, kanann og
spámanninn
• Nýlega vom gefin saman í
hjónaband í Dómkirkjunni af
séra Óskari J. Þorlákssyni ung-
frú Guðbjörg R. Jónsdóttir og
Skúli Ólafsson Grenimel 40.
(Stúdió Guðmundar)
• Nýlega voru gefin saman í
hjónabcmd af séra Þorsteini
Bjömssyni ungfrú Ingveldur
Rósinkranz og Þór Ámason.
Heimili þeirra er að Grettis-
götu 44.
(Ljósmyndastofa Þóris).
(Ljósmyndastofa Þóris).
• Fyrir skömmu voru gefin
saman í hjónaþand í Neskirkju
af séra Frank M. Halldórsssyni
ungfrú Erla Hafdís Sigurðar-
dóttir og Sigurður Valur Magn-
ússon Mjósitræti 6.
(Stúdíó Guðmundar)
Framhald af 4. síðu.
til 12% af brúttó-aflaverð-
mæti skipsins. Talað hefur
verið jöfnum höndum um
þessar tvær leiðir til að létta
undir með norskri þorskútgerð
nú á næstu tímum og hafa
þessi skrif sífellt orðið hávær-
ari eftir því sem liðið hefur
á haustið. Þar sem ég veit að
allur fjöldinn ,af íslenzkum
útgerðar- og sjómönnum fylg-
ist lítið með hvað gerist í
þessum málum í næstu lönd-
um við okkur, svo sem Noregi,
þar sem margt er líkt á sviði
sjávarútvegs og hér, þá þykir
mér rét.t, að koma þessum frétt-
um á framfæri, þar sem uppi
er um það sterkur orðrómur,
að breyting muni brátt gerð á
stofnlánum norska fiskveiði-
flotans, sem muni gera rekst-
ur hans hagkvæmari í fram-
tíðinni.
Blaiaútgáfa Val
til mikils sóma
Valsmenn hafa fyrir mörg
undanfarin jól gefið út mynd-
arlegt hefti af félagsblaði sínn
VALSBLAÐINU. Fyrir síðustu
jól kom út nýtt, stórt hefti og
að vanda mjög fjölbreytt að
efni og vel úr garði gert.
I þessu hefti er m.a. birt
jólahugleiðing eftir séra Sig-
urð Hauk Guðjónsson Fjöldi
greina er um félagsstarfið á
liðnu óri og mörg viðtöl við
eldri og yngri félaga: Magnús
Bergsteinsson hinn gamalkunna
knattspymumann, Sigríði Sig-
urðardóttur fyrirliða landsliðs-
ins í handknattfleik og íþrótte-
mann ársins 1965, Sigurð Dags-
son, Geir Guðmundsson, Erlu
Magnúsdóttur, Stefán Sand-
holt, Óla B. Jónsson (en Óli
hefur nú tekið við þjálfun
meistaraflokks Vals í knatt-
spymu). Afmælisgreinar eru
um nokkra Valsmenn og minn-
ingargrein um séra Bjama
Jónsson. Þáttúrinn ,,Hver er
Valsmaðurinn?" fjallar að
þessu sinni um Svein Zoega.
Grein er um Puskas og sitt-
hvað fleira.
Ritstjórar þessa myndarlega
Valsblaðs eru Einar Bjömsson,
Frímann Helgason og Gunnar
Vagnsson.
NÁMSKEIÐ í JÚDÓ
Hið nýja félag judó-manna
hér, Judokwai, efnir til nám-
skeiðs fyrir byrjendur, og
stendur það til janúarfoka, en
þá er von á erlendum judo-
þjálfara til félagsins og er mið-
að við að þátttakendur í þessu
námskeiði hljóti nægan undir-
búning til þess að geta farið
í framhaldsæfingar til hans.
1 athugun er að efna til
keppni í byrjun febrúar og
síðan aftur í byrjun maí og
veita þá stig fyrir kunnáttu
og getu í judo. Stigveitingar
Judokwai eru viðurkenndar
hvar sem er í heimin.um, svo
að það er eftirsóknarvert fyrir
þá sem áhuga hafa á að hljóta
frama í judo að’ hlotnas.t stig
innan Judokwai.
Innritun í námskeiðið fer
fram að Langagerði 1, föstu-
dagxnn 7. jan. kl. 8 s.d. og
laugardaginn 8. jan. kl. 4 sd.
Þar fer einnig fram á sama
tíma innritun á „old boys æf-
ingar“. í Judokwai er lögð á-
herzla á það, að judo er ekki
fltti börn 104 ára
TEHERAN — Þrítug eiginkona
hins 104 ára gamla bónda Sou-
fis í íran ól manni sínum ný-
lega tvíbura. Þar með eignað-
ist Soufis áttunda og níunda
barn sitt eftir „aðeins sjö
hjónabönd“.
Soufi þessi býr með fjöl-
skyldu sinni í þorpinu Subj-
ehlu við Riz í Norðvestur-íran.
Öldungurinn lét svo um mælt
við blaðamenn, að hann hlakk-
aði til þess að eignast fleiri
böm áður én hann yrði 150
ára gamall. — Þess má raunar
geta, að elzti sonur Soufis er
81 árs að aldri.
aðeins fyrir keppnismenn, það
er raunveru'lega alhliða lík-
amsræktarkerfi fyrir unga
sem gamla. Það, sem nefnt er
hér „old boys æfingar" er að-
eins til þess að undirstrika, að
ekki er lögð áherzla á að búa
menn undir keppni í þeim
tímum, heldur verða léttari, en
þó alhliða æfingar til að auka
þol og mýkt, auk þess, sem
kennd verður sjálfsvöm..
Stjóm Judokwai vill minna
á, að í Judobókinnl eftir R.
Bowen og Hodkinson er mik-
inn fróðleik af finna um judo,
og mælir með að judomenn
kynni sér hana vel til þess að
efla sem bezt þekkingu sina
og árangur sinn í judo.
lá «,-v |
U törit. '/f ‘
S* í/I/fe
fl fl 0. fl u fl D J
n IrxríP
Einangrunargler
Framleiði einuogis úr úrvaJs
gleri. — 5 ára ábyrgðx
PantiS tímanlega.
Korkiðfan it.f.
Skúlagötu 57. — Siml 23200.
Verkstjóranámskeið
Næsta verkstjóranámskeið verður haldið sem hér
segir:
Fyrri hluti 7.—19. febrúar 1966
Síðari hluti 21. marz til 2. apríl 1966
Umsóknarfrestur er til 25. janúar n.k.
Allar upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá
Iðnaðarmálastofnun íslands, Skipholti 37.
Stjórn Verkstjórnarnámskeiðanna.
1
í