Þjóðviljinn - 05.01.1966, Síða 12
k
i
Hér er Halldór Bjarnason
„ Við fáum ekki
sjómenn á bátana
ii
Það er til lítils að setja yfirnefndir og skammta naumt
fiskverð. Það er lítil stjórnvizka og stefnir aðeins heil-
um atvinnuvegi í rúst. Eina vitið er að búa út efna-
hagslegan ramma fyrir eðlilegan rekstur á útgerð til
bolfiskveiða og þar má ekki gleyma hlut sjómannanna,
— annars hverfa þeir í land og við reynum að losa
okkur við fleytumar. Síðustu tvö árin hefur fiskverð
hækkað erlendis, en okkur hefur verið vikið til hlið-
ar við úthlutun á þessum ávinningi, — við erum alltaf
látnir mæta afgangi og horfir nú til vandræða með
að halda bátunum úti.
i
Við náðum tali a£ Halldóri
Bjarnasyni í gærdag um borð
i bát hans Jóni Bjarnasyni
við Grandagarð og spjölluð-
um við hann vítt og breitt
um útgerð á bolfiskveiðar.
Við bíðum spenntir eftir,
fiskverðinu þessa daga og er
| mikið í húfi, hvernig til tekst
™ um ákvörðun þessa fiskverðs,
— það er svo mikið í húfi,
að þarna er í rauninni verið
að gera út um útgerð mikils
fjölda af bátum.
Það er ekki mikil stjórn-
list að drepa niður undir-
stöðuatvinnuveg eins og þorsk
og ýsuveiðar og hefur hinn
efnahagslegi rammi kringum
þessa útgerð þróazt svo
hörmulega síðustu árin, að
þetta er orðið vonlaust að
halda þessum fleytum úti
nema stórfelld hagræðing
komi til og lagast ekki öðru
vísi en að hækka fiskverðið
að miklum mun í þetta sinn.
Bátar mínir fiskuöu sæmi-
lega á síðasta ári en kjör
sjómannanna voru hvergi ná-
lægt því að vera samkeppn-
isfaer við laun í landi og
útgerðarkostnaður hefur þotið
*
I
I
I
I
I
!
upp síðustu árin í verðbólg-
unni og hefur hvergi verið í
samræmi við þær fiskverðs-
hækkanir, sem fengizt hafa
seint og illa. — þó hefur
fiskverð erlendis hækkað
mikið síðustu tvö árin, en
við erum hafðir síðastir á
blaði við skiptin á slíkum
feng í þjóðarbúið.
Það er verið að reka beztu
sjómennina í land og okkur
gengur ákaflega illa að ráða
menn á bátana núna í ár.
Ég vissi af kollega mínum,
sem auglýsti eftir mönnum í
fyrradag á bát sinn og hafði
hann haft mikjnn viðbúnað
í auglýsingaheiminum og
settist svo niður við símann
og beið eftir upphringingum.
Síminn hreyfðist ekki allan
daginn og er ekki farinn að
hringja ennþá, — það vant-
ar ekki, að við auglýsum
eftir sjómönnum þessa daga,
en það er rýr eftirtekjan. I
morgun hitti kollegi minn
siðmar.n á götu og reyndi
að fala hann sem háseta í
vetur. Nei. — ég fer ekki á
sjóinn, — við erum hættir
að líta við sjónum, — ég
stunda núna íhlaupavinnu við
byggingar á i'andi, — við
sleppum þannig við skatt-
ana, — fáum mikiu betra
kaup við þessa vinnu og
borgum minni skatta, — það
er lóðið.
Og Halldór heldur áfram:
Fyrir nokkrum dögum
hringdi ég til Færeyja og átti
tal þar við færeyskan út-
gerðarmann og reyndi að
heyra í honum hljóðið, —
hvort færeyskir sjómenn
vildu koma til fslands og
ráða sig á íslenzku bátana.
Færeyski útgerðarmaðurinn
sagði mér, að sjómenn þar
hefðu gert það ákaflega gott
í haust við línuveiðar við
ísland, — þeir hefðu aflað
þetta 1600 til 2000 kitt í túr
og selt það á Bretflandsmark-
aði fyrir 9 þúsund pund, —
þeir hefðu lítinn hug að fara
til Islands eins og í pottinn
væri búið fyrir sjómenn þar
núna.
Það er til lítils að setja
yfimefndir og láta þær
skammta naumt til útgerðar
og sjómanna með lágu fisk-
verði, — útvegur leggst af
sjálfu sér niður með slíkum
ramma, — þar á ég við alla
báta, sem stunda bolfiskveið-
ar, — sjómennirnir leita í
land eftir hægari vinnu, sem
er betur borguð og útgerð-
armenn reyna hver um ann-
an þveran að losna við bát-
ana, — það er svart fram-
undan í þessum efnum.
Eina raunhæfa ieiðin er að
hækka fiskverðið og það að
stórum hluta núna.
Kanns.ki hefur Jónas Har-
alz lært eitthvað í Ghana.
Upphaf fundarins í Tasjkent
lofar géSi um árangur hans
Ayub Khan og Shasfri ræddust við einslega í gær og
sovézkir talsmenn segja fundinn þegar hafa heppnazt
TASKJENT 4/1 — Talið er að upphaf viðræðufunda leið-
toga Indlands og Pakistans, Shastris og Ayubs Khans, 1
Tasjkent í Sovétríkjunum lofi góðu um árangur af þeim
og sovézkir talsmenn sögðu í dag að þegar væri óh^it að
fullyrða að ráðstefnan hefði heppnazt.
Aðrir efast þó um að þeim j
Shastrj og Ayub muni takast
að jafnan þann mikla ágreining
sem er milli þeirra þá viku sem
viðræðunum í Tasjkent er ætl-
að að standa. eri viðurkennt er
að þegar hafi nokkuð unnizt við
það aö Shastri og Ayub hafa
ræðzt við undir fjögur auigu
og þegar ráðgert að þeir ræðist
oftar við einslega.
Á fundinum í lag lagði Shas-
tri til að Indverjar og Pakistan-
ar gerðu með sér griðasáttmála
sem byggðist á gagnkvæmri
virðingu fyrir landsréttindum
þeirra. Hann nefndi ekkj Kas-
mír beinlínis. en gaf í skyn að
lausn Kasmírdei'lunnar þyrfti
ekki að vera forsenda fyrir slík-
um griðasáttmála.
Þessi tillaga Shastris virðist
vera mjög svipuð tiilögu Ayubs
á allsherjarþingj sÞ um að rík-
in serndu um að halda frið
hvort við annað en í svarræð
sinni í dag sagði hann að var
anlegup friður fengist þv; að-
eins ag rutt væri úr vegj þeim
Framha’d á 9. síðu.
Desember-
mánuður
| óvenju kaldur
Svo sem kunnugt er hefur
Veðurstofan fólk við veðurat-
huganir á Hveravöllum í vetur.
og er það mikilvægur liður í
könnun á veðurfari hálendisins.
Meðalhitinn í desember rejmd-
ist -4-8,3°C, úrkoma í mánuð-
inum mældist 14 mm og bjart
sólskin var í 6 kltrkkustendir
og 12 mínútur Lægstur loft-
hiti í mannhæg mældist á 2.
dag jóla, -1-22,0°, en hæstur
hiti +4,7° þann 15. Meðalvind-
hraði í 10 mínútur komst hæst
í 52 hnúta, en það samsvarar
10 vindstigum.
Til samanburðar má geta
þess að í Reykjavík mældist
meðaihitj í desember -4-1,3°. en
á Akureyri -4-4,9°. Úrkoma í
Reykjavík var 41 mm, en á
Akureyri 33 mm. Sólskin mæld-
ist í Reykjavík 14% klukku-
stund.
Yfirleitt má seigja. að des-
ember hafj vérið mjög kaldur
og úrkomulítill um allt land.
Hefur ekki mælzt jafnkaldur
desembermánuður á Akureyri
frá 1917. en þá var meðalhit-
inn þar -4-5.4°. —
(Frá Veðurstofunni).
Þór liggur
enn ó
hliðinni
Varðskipig Þór liggur ennþá
á hliðinni í Slippnum og sögðu
starfsmenn þar í gærdag, að
sennilega kæmist skipig ekki á
flot fyrr en næsta föstudag eða
lauigardag. en þá verður stærsti
straumur og þá svo mikið flóð
að takast meai að ná varðskip-
inu á flot.
Starfsmennirnir í Slippnum
töldu. að dráttarvagninn undir
skipinu værj mikið skemmdur
og raunar kominn út af spor-
inu að hluta og kafari kannaði
eitthvað skemmdir í gærdag á
bakborðshlið og sýnist skipið
hafa orðið fyrir merkilega litl-
um spjöllum að því er séð varð
í gær.
!
\
I
I
I
Það slys varð um kl. átta í
gærkvöld, að 15 ára drengur,
Hendrik Th. Gunnlaugsson, til
heimilis í Stóragerði 22, varð
undir bifreið á mótum Háaleit-
isbrautar og Miklubrautar.
Hlaut Hendrik skurð á enmi
og var fluttur á Slysavarðstof-
una.
Raan nt í skurð
Um kl. hálísex í gær varð
það óhapp við mót Nýbýlavegs
og Hafnarfjarðarvegs þar
sem steypubíll var að draga
kranabíl, að taugin slitnaði og
bremsur kranabílsins biluðu og
rann hann út af vegin.um og
Oenti á hliðinni í skurði. Ekki
urðu slys á mönnum.
50 flöskur af
smyglvíni fundust
Selá
i
Er SELÁ kom himgað tál
Reykjavíkur milli jóla og mýárs
fundust í slkipimu 50 flösteur af
smygduðu áfengi af ýmsum teg-
undum. Hafa tvedr skipverjar
játað við yfiirheyTslur að beir
eigi vínið.
Bíllinn fór til
Raufarhafnar
Nýlega var dregið í happ-
drætti Krabbameinsfélags Rvík-
ur og var aðalvinningur Consul
Cortina bifreið og er vinnings-
-úmerið 14430.
Vinningshafi hefur þegar gef-
ið sig fram og reyndist hann
vera Ingimundur Amason á
Rauf arhöfe.
Miðvikudagur 5. janúar 1966 — 31. árgangur — 2. tölublað.
Frá fyrsta leik FH í nýju íþróttahöllinni í Laugardalnum. Þá
kepptu Hafnfirðingar við tékkneska liðið Karviná og varð jafn-
tefli. — Ljósm. Þjóðv. A.K.
Leikmenn fredens-
borgkoma ámorgun
Eins og áður hcfur verið sagt
frá í fréttum eiga ísl. handknatt-
leiksmeistarar, lið Fimleikafé-
Iags Hafnarfjarðar, að mæta
(norska Iiðinu Fredensborg í
Evrópubikarkeppninni i hand-
knattlcik mcistaraliða og heldur
síðan það liðið, sem sfgrar, á-
fram í keppnjnni. Samið hefur
verið um, að báðir Ieikirnir fari
fram hér á landi og koma Norð-
mennirnir til Reykjavíkur á
morgun.
Keppni F. H. og Fredensborg
verður háð í íþróttahöllinni í
Laugardal föstudagskvöld og
sunnudag. Forleikir verða leikn-
ir bæði skiptin og mun forleik-
urinn á föstudag hefjast telukk-
an 8.15 e.h., en á sunnudag tel.
4 e.h.
Dómari í báðum leikjunum
verður danskur, Poul Ovdal að
nafni, en markdómarar verða
Magnús Pétursson og Valur
Benediktsson. Fari svo að liðin
skilji jöfn eftir báða leikina,
er búizt við að samið veröi um
að leika úrslitalei'kinn á sunnu-
dags- eða mánudagskvöld, en
framkvæmdastjóri Í.B.R. hefur
lofað aðstoð við að koma leikn-
um á ef þörf fcrefur.
Norðmennimir koma hingað á
morgun með flugvél frá Flug-
félagi Islands og er komutími
áætlaður telutekan fjögur eftir
hádegi. Þeir dveljast hér í boði
F. H. og munu búa á Hótel
Sögu. Á laugardag munu þeir
Framhald á 9. síðu.
Dætt í stiga
Það slys varð í Oddfellow-
húsinu við Vonarstræti um kl.
sex í gær, að maður datt þar i
stiga, meiddist talsvert og varð
að flytja hann á Slysavarðstof-
una.
Fór í kappakstur
við slökkviliðið
tlm miðnætti í fyrrinótt hand-
tók lögreglan í Reykjavík ung-
an pilt, sem hafði farið I kapp-
akstur við slökkvillfðið er það
var á leið í brunakvaiðningu
suður í Kópavog. Ók pilturinn
hvað eftir annað fram úr
slökkviliðsbílnum og var nærri
því búinn að koma honum út
af veginum.
Kappaksturinn hófst á Hring-
braut, þar sem ökuþórinn fór
fram úr slökkviliðsþilnum þótt
hann væri með rauð ljós og
sírenumar á og æki á a.m.k.
80 km. hraða. Fór hann þá svo
nærri slökkviliðabflnum, að öku-
maður hans varð að aka upp
á gamgstétt tll að forða slysi.
Slökkviliðsbílinn fór íram úr
hinum á Miklatorgi, en hann
herti þá enn ferðina og fór aft-
ur fram úr á móts við Hlíð-
arenda við Reykjanesbraut.
Telja verður slíkan kappakst-
ur við slökkviliðs- og lögreglu-
bíla mjög ámælisvert brot á
umferðarlögunum og stórhættu-
legt athæfi, þar sem slíkt get-
ur bæði valdið stórslysi og eins
orðið til að tefja starfsmenn
slökkviliðs og lögreglu við mik-
ilvæg þjónustustörf sín í þágu
almennings. Því miður er þessi
leikur piltsins ekkert ^insdæmi.
Eldur í húsi
Soítalast.
I gær um kl. 2 var slökkvi-
liðið kvatt að húsinu Spítala-
stíg 4. Var talsverður eldur í
húsinu, en tókst fljótlega að
slökkva. Skemmdir urðu ekki
miklar.
»