Þjóðviljinn - 12.01.1966, Page 1
Miðvifcudagttr.il2. janúar 19&6 — 31. árgangur — 8. tökiblað.
Drnsku stúlkubarnið Tina fannst heil á
húfi i gær eftir fjögarra vikna leit
Bálför Shastri verður gerð / dag
SJÁ SÍÐU 3
Hernámsframkvœmdirnar i
Hvalfirði mjög stórfelldar
Sfœrsfi samningur sem Ísíentkir acSalverkfakar hafa gerf -
900 daga vinna fyrir 700-300 manns - 300-400 milj. kr. samningur
Björn Jónsson
Áðalfundur
Einingar
Aðalfundur Verkalýðsfélags-
ins Einingar á Akureyri var
haldinn sl. sunnudag. 1 stjórn
félagsins voru einróma kjörin
Björn Jónsson, formaðuir, Þór-
hallur Einarsson, varaformaður,
Rósberg G, Snædal, ritari, Vil-
borg Guðjónsdóttir, gjaldkeri og
meðstjórnendur Marta Jóhanns-
dóttir, Björgvin Einarsson og
Jón Asgeirsson.
Félagsmenn Einingar eru nú
660. Eignaaukning félagsins
varð 595 þús. krónur á síðast-
liðnu ári. Á þessum fundi var
kosin nefnd til þess að hraða
byggingu orlofsheimi'la á Norð-
urlandi á' vegum verkalýðsfélag-
anna.
Enn fá togararnir
gott verð erlendis
Tveir íslenzkir togarar seldu
afla sinn erlendis í gærmorgun.
Bv. Maí seldi í Grimsby 180,5
lestir fyrir 20.454 sterlingspund.
Er það ágætt verð. meðalverð á
hvert kg kr. 13,65. Þá seldi
Bjarni Ólafsson í Cuxhaven í
Vestur-Þýzkalandi 55 léstir fyrir
70.700 mörk.
■ Eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu gerðu íslenzkir aðalverk-
takar samning skömmu fyrir jól um hernámsframkvæmdir í Hvalfirði.
Er þetta stærsti samningur sem íslenzkir aðalverktakar hafa gert frá upp-
hafi vega, og mun heildarverðmætið-nema 300—400 miljónum króna. Gerður
hefur verið rammasamningur um allt verkið og gengið frá endanlegum
samningi um helming þess.
■ Áætlað er að verkið muni taka 900 vinnudaga og verður beitt hinum
stórvirkustu vinnuvélum. Verkafólk mun verða um 100 manns að meðal-
tali en getur komizt allt upp undir 300 manns þegar mest verður.
Herskip og kafbátar ekki síður en olíuskip
■ Eins og kunnugt er á að koma upp nýjum olíugeymum í Hvalfirði og
gera nýja bryggju. Verður hún gerð úr stálrúllum og steinsteypu, lengri
en sú sem verið hefur í notkun og með stærri haus. Þá verður komið fyrir
miklum múrningum í botni Hvalfjarðar, þar sem stór skip geta legið við
legufæri — herskip og kafbátar ekki síður en olíuskip.
Reynt að gera lítið úr öllu
■ Málsvarar hernámsflokkanna hafa alltaf talað um framkvæmdir í Hval-
firði sem eitthvert smáræði, t.d. var svo gert í hinni upphaflegu skýrslu
Guðmundar í. Guðmundssonar, fyrrveramii utanríkisráðherra, þegar hann
viðurkenndi að samningar um Hvalf j örð hefðu verið gerðir að alþingi forn-
spurðu. Þær staðreyndir sem hér hafa verið raktar sýna að framkvæmd-
imar verða þær mestu sem ráðizt hefur verið í síðan íslenzkir aðalverk-
takar tóku til starfa.
Hvar á að taka vinnuaflið?
■ Athyglisvert er að ætlunin er að r áðstafa 100—300 manns til þessara
hernámsframkvæmda á sama tíma og mörg hundruð manna þarf til virkj-
unarframkvæmdanna við Búrfell — o g jafnframt því sem fyrirhugað er
að mörg hundruð manna starfi á vegum svissneska alúmínhringsins við
Straum.
Tef/a á
Reykjavíkur-
mótinu 1966
Þrír erlendu skákmeistar-
anna sem þátt taka í Reykja-
víkurmótinu 1966. Talið frá
vinstri: Wade, alþjóðlegur
meistari frá Bretlandi, O'-
Kelly stórmeistari frá Belgíu
og Kieninger alþjóðlegur
meistari frá Vestur-Þýzka-
landi. Er myndin tekin í
blaðaviðtali er Skáksamband-
ið efndi til að Hótel Sögu í
gær. — (Ljósm. Þjóðv. 'A.K.).
Sjá frétt á síðu 12.
Ella Fitzgerald kemur til
Reykjavíkur / febrúar
Tuttugasta og fjórða febrúar kemur hingað til Iands hin heims-
þekkta söngkona EHa Fitzgerald ásamt Jimmy Jones tríói og
heldur hér tvenna hljómleika í Háskólabíói. Ella hefur hér viku-
dvöl á landinu og kemur til með að búa á Hótel Sögu.
Ella Fitzgerald er nú að leggja upp í söngferðalag um Evrópu
og kemur hingað frá London á heimleið til Bandaríkjanna.
Heyrzt hefur, að Ítalía og Spánn hafi haft hug á að fá söng-
konuna og hafi hún vísað þeim löndum á bug vegna íslandsferð-
arinnar.
Aðgöngumiðasala að tónleikunum í Háskólabíói hefst næstu
daga og kostar hver miði sennilega um kr. 400,oo og er þá haft
í huga miðaverð að tónleikum Louis Armstrongs á síðasta ári og
dans verðbólgunnar síðan.
Bókmenntaverðlaunum Norð-
urlandaráðs útblutað / dag
■ í dag verður úthlutað bókmenntaverðlaunum Norður-
landaráðs fyrir árið 1966 og fer úthlutunin fram á fundi
sem dómnefndin heldur hér í Reykjavík og hefst hann
kl. 10 f.h. Skipa dómnefndina tveir fulltrúar frá hverju
Norðurlandanna.
■ Fulltrúar íslands í dómnefndinni eru Helgi Sæmunds-
son formaður Menntamálaráðs og Steingrímur J. Þorsteins-
son prófessor. Erlend blöð hafa talið að norski rithöfund-
urinn Johan Borgen sé sigursiranglegastur í ár.
/