Þjóðviljinn - 28.01.1966, Síða 4
r
4 StBA — ÞJÓÐVTLJINN — FSstudagur 28. janúar 1966.
CTtgefandi: Sameinirjgarflokkur alþýöu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Siguröur Cuömundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Siguröur V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19.
Síml' 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 95.00 á mánuði.
Auglýsingástjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Bæjarútgerðír
yerkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði hefur fylgí
þeiri venju undanfarin ár að fjalla almennt
um atvinnumál kaupstaðarins á fyrsta fundi sínum
á nýju ári, og bjóða á hann bæjarstjórn og bæjar-
stjóra. Hlífarfundurinn sem haldinn var 23. þ.m.
ræddi ýtarlega þessi mál og samþykkti í fundarlok
einróma tillögur frá stjórn félagsins. Segir m.a. að
„framtíð byggðarlagsins krefjist hraðari þróunar í
atvinnumálum Hafnfirðinga, bæði varðandi bætt
skilyrði til aukins sjávarútvegs og nýtingar afla
þess sem á land berst. Fagnað var aukningu báta-
flotans og nýrri niðursuðuverksmiðju. Hins vegar
víttu Hlífarverkamennirnir aðgerðarleysi í hafnar-
málum og töldu að samdráttur í rekstri bæjarút-
gerðarinnar skaði Hafnarfjörð. Og meðal þeirra til-
lagna sem félagið samþykkti um bætt atvinnulíf á
staðnum var „að bæjarútgerðin verði aukin meo
kaupum og rekstri skuttogara af hæfilegri stærð
og allur rekstur bæjarútgerðarinnar færður í ný-
tízku horf."
gjamþykkt hinna hafnfirzku verkamanna um þetta
efni verður Morgunblaðinu tilefni heiftarlegrar
árásar á bæjarútgerðir almennt, og hefur blaðið
allt á hornum sér. Því er haldið fram að „þau bæj-
arfélög sem aldrei létu glepjast til þess að setja
á stofn bæjarútgerðir" séu nú „mun betur sett en
hin sem réðust í þann rekstur." Sala hafnfirzku
togaranna úr landi er talið sérstakt afrek enda þótt'
þær sölur hafi verið fyrir neðan allar hellur að
verðlagi og aðstæðum athuguðum. Morgunblaðið
notar tækifærið til árása á Bæjarútgerð Reykja-
víkur enda þótt flokkur þess hafi jafnan ráðið þar
öllu vegna meirihluta síns, og vitnað er til þess
í réttlætingarskyni að bæjarútgerð togara hafi ver-
ið lögð niður í Neskaupstað. Þar er raunar ólíku
saman að jafna. Norðfirðingar voru svo óheppnir
að missa báða nýsköpunartogara sína í sjóinn, og
fámennið á staðnum og stórfelld atvinnuleg upp-
bygging varð þess valdandi að erfitt reyndist að
manna togarana. Þessi skilyrði eru öll önnur í fjöl-
mennum stöðum eins og Reykjavík, Hafnar-
firði og Akureyri, enda hafa bæjarútgerðirnar á
öllum þessum stöðum verið drjúgur þáttur í at-
vinnulífi og reynzt stórvirk tæki til öflunar dýr-
mæts hráefnis fyrir fiskvinnslustöðvar í landi. Og
þess má minnast að .í stríðslokin var ekki hærra
risið á einkarekstrinum í togaraútgerð en svo, að
bæjarútgerðirnar urðu að koma til svo endurnýjun
togaraflotans gæti gerzt á þann hátt sem varð.
|?ulltrúar Alþýðubandalagsins í útgerðarráði og
borgarstjórn Reykjavíkur hafa hvað eftir annað
flutt um það tillögur og borið fram kröfur um end-
urnýjun bæjarútgerðartogaranna, nýtízku skip og
bættan rekstur. Þar er tvímælalaust um hagsmuna-
mál borgarbúa að ræða. Og skyldu verkamennirnir
í Hlíf ekki vera dómbærari um það en Morgun-
blaðið hvað’atvinnulífi Hafnfirðinga er hollt? — s.
Flug með kjarnasprengjur
mun nú bunnuð yfír Spáni
MADRID 26/1 — Enn hafa Bandaríkjamenn ekki viljað
staðfesta að fundizt hafi tvær vetnissprengjur á botni Mið-
jarðarhafs sem sleppt hafi verið úr bandarískri sprengju-
flugvéJ sem fórst yfir Suðaustur-Spáni á mánudaginn í síð-
ustu viku. Bandaríski flugherinn hefur ekki einu sinni
fengizt til að viðurkenna að kjarnasprengjur hafi verið
með flugvélinni.
Þetta hefur þó verið játað óbeinlínis þar sem haft var
eftir góðum heimildum í Madríd í dag að bandarískum
flugfélum myndi bannað að taka eldsneyti í lofti yfir
Spáni framvegis og í Washington var frá því skýrt að
bandarískum flugvélum myndi ekki framar leyft að fljúga
með kjarnasprengjur yfir spænsku landi.
A thugasemdir um
biíreiðatryggingar
Frá tryggingafélaginu Hag-
tryggingu hf. hefur Þjóðviljan-
um borizt eftirfarandi athuga-
semd um bifreiðatryggingar:
Vegna yfirlýsinga, sem birzt
hafa í blöðum og útvarpi frá
bifreiðatryggingafélögum, um
breytingar á hinu hefðbundna
bónuskerfi. vill Hagtrygging
h.f. taka fram eftirfarandi:
- 1. Svo“ sem kunnugt er, hóf
Hagtrygging starfsemi sína í
apríl s.l. með nýju iðgjaldafyr-
irkomulagi, sem var frábrugðið
því. er tíðkazt hafði hér á
landi.
2. Þetta er ekki bónuskerfi.
og á ýmsan hátt frábrugðið
hinu nýja formi á bónuskerf-
inu, sem flest hinna eldri
tryggingafélaga hafa nú ákveð-
ið að taka upp.
3. Kerfi Hagtryggingar er
fjölflokkakerfi með mjög
breiðu bili á iðgjaldasviðinu.
4. 1 kerfi þessu geta góðir
og gætnir ökumenn með hag-
stæðum ökuferli komizt í lága
iðgjaldaflokka strax.
5. Færsla milli flokka er
verulega frábrugðin því. sem
tíðkast í bónus’kerfinu.
6. Minniháttar tjón valda
ekki færslu milli flokka, nema
þá því aðeins, að um mikla
vankunnáttu í akstri hafi verið
að ræða, eða vanþekkingu á
umf erðarreglum.
Viss tjón. sem ökumaður get-
ur ekki komið í veg fyrir,
þrátt fyrir fulia aðgæzlu og
rétta hegðun í akstri, valda
ekki færslu milli flokka. Undir
þetta heyra í flestum tilfell-
um rúðubrot.
7. Fullnaðarrannsókn á tjóna-
tíðni Hagtryggingar er enn
ekki lokið, en tjónatíðnin er
greinilega lægri en hjá hin-
um tryggingafélögunum eftir
þeim upplýsingum, sem þirzt
hafa opinberlega.
Á síðastliðnu ári var Hag-
trygging með iðgjöld fyrir góða
ökumenn, sem voru allt að
50% lægri en iðgjöld annarra
tryggingafélaga.
Mestu lækkanir, sem önnur
tryggingafélög bjóða góðum
ökumönnum, svara því nokk-
um veginn til þeirra iðgjalda,
sem Hagtrygging hafði á s.l.
ári.
8. Þar sem iðgjaldakerfi
Hagtryggingar hefur bæði
reynzt vinsælt meðal bifreiða-
eigenda og einnig traustur
rekstrargrundvöllur fyrir fyrir-
tækið, verða að • þessu sinni
eingöngu gerðar smávægilegar
breytingar á kerfinu.
Þessar breytingar munu þó
miða að breikkun á iðgjalda-
bilinu, þannig að hinum beztu
ökumönnum með hagstæðan
ökuferil eru nú boðin betri
kjör en áður. Hinsvegar mega
þeir, sem títt valda tjónum,
búast við því að tryggingar
verði kostnaðarsamari fyrir þá
en áður.
9. Við þessar breytingar á
iðgjaldakerfinu er höfð hlið-
sjón af þeirri reynslu á tjóna-
tíðni, sem félagið hefur fengið,
og sömuleiðis tekið tillit til
þeirra verðhækkana, sem urðu
á síðari hluta ársins 1965.
Þessum verðhækkunum er fyr-
irhugað að mæta að nokkru
leyti með aukinni rekstrarhag-
kvæmni, og hindra þannig að
þær komi fram í iðgjöldum.
10. Félagið hefur athugað þá
nýbreytni, sem eitt af trygg-
ingafélögunum hefur tekið upp,
að bjóða hinum tryggðu við-
bótarökumanns-tryggingu og
sérstaka farþegatryggingu. Mál
þetta er í athugun. og verður
skýrt frá níðurstöðum þess áð-
ur en tryggingatímabilinu lýk-
ur.
Hagtryggingar h.f.
Sýningur hefjust brátt á
„Tíu litlir negrustrákur"
I byrjun næstu viku verður
frumsýnt spennandi sakamála-
leikrit í Félagsheimili Kópavogs.
Er hér um að ræðó. leikritið
TÍU LITLIR NEGRASTRAK-
AR, eftir hina víðfrægu skáld-
konu Agöthu Christie.
Leikfélag Kópavogs sýnir
leikritið, en þýðinguna gerði
Leif Gundel látinn
KHÖFN 26/1 — Leif Gundel,
einn af ritstjórum ,,Land og
Folk“ sem starfað hafði við
blaðið frá 1945, lézt í gær-
kvöld. Á stríðsárunum var
Gundel þulur í dönsku deild
brezka útvarpsins.
Hildur Kalman. Þrátt fyrir
nafnið eru leikendur ellefu
talsins. Með þrjú veigamestu
hlutverkin fara þau Magnús B.
Kristinsson, Helga Harðardótt-
ir og Sigurður Grétar Guð-
mundsson.
Aðrir leikendur eru: Guðrún
Þór, Auður Jónsdóttir, Ámi
Kárason, Theodór Halldórsson,
Björn Magnúson, Pétur Sveins-
son, Leifur ívarsson og að ó-
gleymdum formanni Leikfélags
Kópavogs, Guðmundi Gíslasyni.
Enn hefur ekki verið ékveð-
ið nákvæmlega hvenær frum-
sýningin verður, en hún fer
fram í næstu viku, eins og áð-
ur segir.
Leikstjóm hefur Klemenz
Jónsson annazt.
Auglýsing
um gjalddaga fyrirframgreiðslu
opinbérra gjalda 1966
Samkvæmt reglugerö um sameiginlega inn-;
heimtu opinberra gjalda nr. 95/1962, ber hverj-
um gjaldanda í Reykjavík að greiða á fimm
gjalddögum frá febrúar til júní, fyrirfram upp i:
opinber gjöld, fjárhæð sem svarar helmingj-.
þeirra gjalda, er á hann voru lögö síöast liöiö ár:.
Gjöldin eru þessi: , i
Tekjuskattur, Eignarskattur, Námsbókagjald;
Kirkjugjald, Lífeyristryggingagjald, Slysatrygg-
ingagjald, IÖnlánasjóðsgjald, Alm.tryggingasjóÖs-
gjald, Tekjuútsvar, Eignarútsvar, Aöstööugjald.
Atvinnuleysistryggingagj ald, Kirkj ugarðsgj ald, /
Launaskattur, Sjúkrasamlagsgjald.
Fjárhæð fyrirframgreiöslu var tilgreind á gjáld/l
heimtuseðli, er gjaldendum var sendur aö lok-
inni álagningu 1965 og verða gjaldseölar vegna/
fyrirframgreiðslu því ekki sendir út nú.
Fyrsti gjalddagi fyrirframgreiðslu er 1. febrúar •'
n.k. , ’
Kaupgreiöendum ber að halda eftir opinberum
gjöldum af latmum starfsmanna og verður lögð
rík áherzla á aö full skil séu gerð reglulega.
GJALDHEIMTUSTJ ÓRINN
Tilboð óskust
í kranabifreið (Wrecker) er verður sýnd a> :
Grensásvegi 9 næstu daga kl. 10 — 11 árdegís V
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri föstudag- f
inn 28. þ.m. kl. 11 árdegis. > ý
Sölunefnd varnarliðseigna
TILKWNING
frá Félagi íslenzkra
bifreiðaeigenda
Athygli félagsmanna skal vakin á því, að þeir
sem ætla aö skipta um ábyrgðartryggingu hinn
1. maí 1966, skulu hafa sagt upp gildandi trygg-,
ingu fyrir 1. febr. n.k.
SKRIFSTOFAN, BOLHOLTI 4, í; v
Símar 33614 og 38355. i
Blaðadreifing
Unglingar óskast til blaðburðar í eítirtal’
hverfi: Vj
Óðinsgöfu — Laufásveg — Hverfisgötu Ííí**
— Sklpholt — Múlahverfi — Sogamýri.
ÞJÖÐVILJINN
sími 17-500.
•-V; /’
Pökkunurstúlkur
óskast í frystihús. — Fæði og húsnæði.
FROST H.F.
Hafnarfirði. — Sími 50565.