Þjóðviljinn - 06.02.1966, Blaðsíða 1
Afneifun
númer
fv'ó!
k Því er ekki að leyna
að afsokunar- og jafrí-
vel afneitunartónn er
nú orðinn mestráðandi í
blöðum ríkisstjórnar-
innar. Nú síðast eru
þau í vandræðum með
Gunnar Thóroddsen sem
þau héldu vel geymdan
í mjúku embætti suður
við Eyrarsund!
★ Þjóðviljinn sagði í gær
frá afneitun Morgun-
blaðsins á Gunnari sem
væntanlegu forsetaefni
Sjálfstæðisflokksins. og
i gær þarf Alþýðu-
blaðið líka að hreinsa
sig af Gunnari. Það
birtir yfirlýsingu með
fyrirsögninni: „Ekkert
rætt við Alþýðuflokk-
inn um forsetakjör.“
•k 1 frétt hins danska
blaðs hafði verið sagt
að leitað hefði verið
hófanna hjá Alþýðu-
flokknum um stuðning
við forsetaframboð af
hálfu Gunnars Thórodd-
sens. Blaðið neitar því.
..Alþýðublaðið vill hér
með upplýsa að um-
mæli blaðsins varðandi
Alþýðuflokkinn eru úr
lausu lofti gripin. Eng-
ar viðræður hafa átt sér
stað við Alþýðuflokkinn
um framboð Gunnars
Thóroddsenis og málið
hefur ekki svo mikið
sem verið rætt í fram-
kvæmdastjóm eða mið-
stjórn flokksins, sem
mundu um slík mál
fjalla.“
★ Alþýðuflokksmenn eru
fámir að ympra á Emil
Jónssyni sem forseta-
ffambjóðanda og sumh-
segja að Bjami Ben.
mundi treysta honum
ekki síður en Gunnari
Thóroddsen í hiny virðu-
lega embætti, ' ef vel
tækist með kosninguna!
Frá störfuiti Framkvæmdanefndar byggingaráætlunar:
1200 nýjar fbúðir verða
reistar í Breiðhoítinu
Af samningum verkalýösfélaganna við ríkisstjórnina sl.
sumar náðist m.a. sá árangur, að ákveðið var að hið op-
inbera kæmi upp 1250 íbúðum á næstu 5 árum, eða 250
íbúðum á ári. í haust var í framhaldi af þessari ákvörð-
un stofnuð Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar og
hefur nefndinni nú verið úthlutað lóðum og landssvæði
undir 1200 íbúðir.
í viðtali við Þjóðviljann gaf
Gunnar Torfason, framkvæmda-
stjóri Framkvæmdanefndar
byggingaráætlunar eftirfarandi
upplýsingar um störf nefndar-
innar og áætlanir.
Lækkar byggingarkostnað
Nefndin var skipuð sl. haust,
en stutt er síðan hún tók til
starfa. Framkvæmdastjórinn var
ráðinn nú um áramótin og þá
um leið fékk hefndin húsnæði
fyrir starfsemi sína í skrifstofu-
byggingu við íþróttahöllina í
Laugardal. Um síðustu mánaða-
mót voru síðan ráðnir arkitekt-
ar og verkfræðingur. Hlutverk
nefndarinnar er að lækka bygg-
ingarkostnaðinn og koma fram
með nýjungar í tækni.
Árásarfíugvélar
skotnar niður
HONGKONG 5/2 — Kínverska
fréttastofan skýrir frá því að
norðurvietnamskar flugvélar
hafi í gær skotið niður tvær af
árásarflugvélum Bandaríkja-
manna. Þetta er í fyrsta sinn að
getið er um að norðurvietnamsk-
ar orustuþotur hafi lagt til at-
lögu við bandarískar flugvélar
eftir að loftárásirnar á Norður-
Vietnam hófust aftur.
Þeim árásum var haldið á-
fram enn í dag og var nú varp-
að sprengjum á skotmörk í
næsta nágrenni Hanoi.
Spilakvöldið hefst kl. 8,30
□
□
□
Spilakvöld Sósíalistafélags Reykjavíkur
verður í kvöld, sunnudag, í Tjarnargötu
20 og hefst kl. 8,30.
Sýndar verða nýjar, stuttar kvikmyndir.
Spilaverðlaun, — Veitingar.
Á borgarráðsfundi 28. janúar
sl. var samþykkt að.úthluta lóð-
um undir 1200 íbúðir, en af þeim
hefur Reykjavíkurborg 20% til
ráðstöfunar, meðfram til útrým-
ingar heilsuspillandi húsnæðis
og 80% íbúðanna eiga að seljast
efnalitlum meðlimum verkalýðs-
félaganna. Líta verkalýðsfélögin
svo á, að hér sé aðeins um upp-
haf að frekari framkvæmdum
að ræða.
Er reiknað með að 250 íbúð-
ir verði tilbúnar á ári og fara
þar af 200 íbúðir til láglaunaðra
meðlima verkalýðsfélaga og 50
til útrýmingar heilsuspillandi
húsnæðis. "
Engar reglur hafa verið sett-
ar um úthlutun íbúðanna og er
ekki enn ákveðið hvaða aðilar
sjá um hana.
Byggt í tveim áföngum
Byggt verður í tveim áföng-
um og hefur borgin þegar skipu-
lagt fyrsta áfangann, sem verð-
Framhald á 9. síðu.
TILBOOIN
OPNUÐ
Þessi mynd átti að koma með
fréttinni í blaðinu í gær um
opnun tilboða í Búrfells-
virkjun, en varð að bíða birt-
ingar vegna þrengsla í blað-
inu er orsökuðust af komu
tunglmyndarinnar.
Myndin er tekin í miðjum
upplestri á tilboðunum að
Hótel Sögu í fyrradag og má
greina við háborðið meðal
annars Eirík Briem, fram-
kvæmdastjóra Landsvirkjun-
arinnar og dr Jóhannes Nor-
dal, bankastjóra — lengst til
hægri má greina Gísla Sig-
urbjömsson ásamt fulltrúum
frá þýzka fyrirtækinu Heih-
tief og Strabag — Bau og þar
fyrir aftan við háborðið sit
ur Halldór Jónatansson, skrif-
stofustjóri Landsvirkjunar-
innar og dr. Gunnar Sigurðs-
son, yfirverkfræðingur er
opnuðu tilboðin og lásu þau
fyrir viðstadda.
— (Ljósm. Þjóðv. G.M.)
Tímir ekki að borga til verkalýðsfélagsins
LætUr Björn Pálsson skrá
skip sitt að Löngumýri?
Myndimar sem birtar voru í
gær höfðu verið teknar niður í
rannsóknarstöðinni Jodrell Bank
í Bretlandi, en síðdegis í dag
höfðú enn ekki verið birtar
myndir í Sovétríkjunum, en bú-
izt var við því að það yrði gert
síðar í dag.
Sovézku vísindamennirnir sem
annazt hafa móttöku myndanna
segjast vera ánægðir með árang-
urinn og hafi öll tækin unnið
eins og skyldi. Furðu gegnirhve
skýrar myndirnar séu þegar
þess er gætt að orka sendi-
stöðvarinnar í „Lúnu 9.“ er að-
eins einn þúsundasti af orku
sjónvarpsstöðva á landi og leiðin
sem radíóboðin verða að fara
er nærri því 400.000 km.
Verið er nú að kanna mynd-
irnar, einkum til þess að fá rétt-
an mælikvarða á stærð þeirra
hluta sem fram á þeim koma.
Myndirnar sem teknar voru nið-
ur í Jodrell Bank eru taldar
sýna atriði á yfirborði tungls-
ins í allt að mílu fjarlægð.
Gefinn var upp í dag nákvæm-
lega staðurinn þar sem „Lúna
9.“ lenti. Hann er sjö gráður,
átta mínýtur n.br. og 64 gráður
og 22 mín. v.l. Lendingarstaður-
inn er því um 100 km fyrir
austan giginn Cavalerious.
* Alleinkennilegt mál er nú ris-
ið á Skagaströnd og eru allar
horfur á því, að flaggskipið sé
á förum úr flota þeirra Skag-
strendinga, þar sem er Húni II,
— það er bátur Björns, alþingis-
manns á Löngumýri og vill
Björn láta skrásetja skipið að
Löngumýri og þá væntanlega í
skipaskráningabók Svínavatns-
hrepps.
Björn sér ofsjónum yfir gjaldi
til verkamannafélagsins þar á
staðnum, — er það eitt og hálft
prósent af kauptryggingu sbips-
hafnar og rennur til smíði fé-
lagsheimilis þar á staðnum.
★ Svona er Björn klókur eins
og grískur skipakóngur.
Þjóðviljinn átti tal í gærdag
við Þorfinn Bjarnason oddvita
á Skagaströnd og staðfesti hann,
að þessi rekistefna hefði verið
þarna á döfinni og hefði Björn
veifað þessari hótun yfir Skag-
strendingum — ekki vissi odd-
vitinn, hvort búið væri að skrá-
setja skipið að Löngumýri. Þetta
er gamla sagan, sagði oddvit-
inn, það er búið að lyfta mönn-
um til áhrifa, — þá fara þe;r að
derra sig og fjarlægjast fólkið.
Það verður nú erfitt um hafn-
arskilyrði þarna að Löngumýri,
— hérna langt uppi í sveit, —
kannski er þetta hin leiðin í
s j ávarútvegsmálum.
Svo er Björn búinn að selja
Húna til Keflavíkur, — það er
annar bátur og vorum við þó
liðlegir um fjármagn til þessa
báts hér á Skagaströnd, — ég
veit ekki betur en kaupfélagið
hafi lánað Birni hálfa miljón til
þeirra skipakaupa.
Svo tímir Björn ekki að sjá af
einu og hálfu prósenti af kaup-
tryggingu skipshafnar til verka-
lýðsfélagsins, — það verður þó
framlag til félagsheimilis hér á
staðnum. Björn er að verða eins
og grískur skipakóngur. Þar er
fyrirmyndin, sagði oddvitinn, —
alltaf að reyna að plata fólkið.
Þjóðviljinn átti tal við sýslu-
manninn á Blönduósi og spurð-
ist fyrir um breytingu á skipa-
skránni í sýslunni, — sýslumað-
ur kvað þetta ekki vera kom-
ið til framkvæmda ennþá, —
hann hefði þó heyrt, að þessu
hefði verið fleygt á Skagaströnd.
Þá hafði Þjóðviljinn símasam-
band við Björn á Löngumýri í
gærdag og situr hann ennþá að
búi sínu áðuy en þingvistin og
Hótel Borg tekur við eftir helgi.
Æ, — ég var að stríða þeim
þarna á Skagaströnd, sagði
Björn, — ekki vildi hann þó
ræða áætlanir sínar í þessum
efnum.
Kvikmynda-
sýning ÆFR
Kvikmyndasýning fyrir
börn fylkingarfélaga og
flokksmanna hefst kl. 2 í
dag í Tjarnargötu 20.
Félagar. Munið sunnu-
dagskaffið á eftir.
Johnson forsetí tíl Hawaii
á fund með Saigon-herrum
WASHINGTON 5/2 — Johnson
forséti fór í dag til Honolulu á
Hawaii þar sem hann mun ræða
við yfirmenn Bandaríkjanna í
Suður-Vietnam, Cabot Lodge,
sendiherra og Westmoreland
hershöfðingja, og ráðamenn Sai-
gonstjómarinnar, Thieu forseta
og Ky forsætisráðherra. Þetta
verður í fyrsta sinn sem hann
hittir þessar vietnömsku undir-
tyllur Bandaríkjanna.
Ágreiningur enn
Með Johnson í ferðinni vor :
þeir Rusk utanríkisráðherra, Mc-
George Bundy, sérstakur ráð-
gjafi forsetans og tveir aðrirráð-
herrar.
Stefna Bandaríkjanna í Viet-
nam er sögð hafa sætt harðri
gagnrýni á fundi utanríkismála-
nefndar öldungadeildarinnar f
gær, þótt meirihluti nefndar-
manna lýsti fylgi sínu við hana.
Fulbright, formaður nefndarinn-
ar, neitaði að segja nokkuð um
ferðalag forsetans til Honolulu.
— Ég veit ekki nóg um hvað
ræða á þar, sagði Fulbright og
staðfesti þannig að Johnson
forseti trúir ekki einum helzta
leiðtoga Bemókrata á þingi fyrír
áformum sínum.
Sunnudagur 6. íebrúar Í1966 — 31. árgangur — 30. tölublað
Sendingum frá „Lúnu
lauk síðdegis í gær
ýMOSKVU 5/2 — Tassfrétta-
stofan tilkynnti í dag a<S
síðasta sending frá „Lúnu
9.“ til jarðar myndi verða
kl. 15 að ísl. tíma. Hafði
tunglfarið þá sent fjölda
upplýsinga um aðstæður á
yfirborði tunglsins fyrir ut-
an sjónvarpsmyndir þær er
bárust í gær og vöktu al-
heimsathygli.