Þjóðviljinn - 02.06.1966, Page 4
I
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJlfíN — Fimmtudagur 2. júní 1966
Otgeíandi; ^amelningarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokk-
ufinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorva’dur J'',-annesson.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. LauSa-
soluverð kr. 5.00.
Fœr ekki staðizt
yíða um lönd lána ríkisbankar og* hliðstæðar pen-
ingastofnanir fé með mismunandi kjörum. Er
þá venjule'ga fylgt félagslegum sjónarmiðum; kjör-
in eru betri ef nota á fjármunina til framkvæmda
sem miklu máli eru taldar skipta fyrir þjóðfélag-
ið, til stofnframkvæmda í atvinnumálum; til
rekstrarþarfa útflutningsatvinnuveganna, og síðast
en ékki sízt til húsnæðismála. í nágrannalöndum
okkar eru húsnæðismálalán ódýrust og hagkvæm-
ust allra lána, veitt með lægstum vöxtum og til
mun lengri tíma en almennt tíðkast. Dýrust eru
hins vegar þau lán sem veitt eru í milliliðastarf-
semi og hvers kyris fjármálabrask. í þessum mis-
munandi lánakjörum birtist stefna stjórnarvald-
anna; þetta eru örlítil drög að áætlunarbúskap í
því skyni að ýta undir þarflegar framkvæmdir en
draga heldur úr þeim sem eru miður nytsamlegar.
gtefna íslenzkra stjórnarvalda hefur veríð mjög
á reiki á þessu sviði; oft hefur skort mjög á
það að stjómarvöldin gerðu sér ljóst að mikilvæg-
m stofnframkvæmdir og rekstur þeirra atvinnu-
greina sem skapa verðmæti ættu að hafa forrétt-
indi fram yfir kaupsýslu og milliliðabrask. Og til
skamms tíma var ekki til neitt húsnæðislánakerfi
sém órð væri á hafandi; fólk sém réðst í að komá
sér upp þaki yfir höfuðið varð einatt að sætta sig
við hin verstu kjör, ef því tókst að vinna það
kraftaverk að komast yfir lánsfé. Sá húsnæðis-
lánasjóður sem hefur verið að þróast og vaxa
seinasta áratuginn er í einu og öllu ávöxtur af
baráttu verklýðssamtakanna; í einum kjarasamn-
ingum af öðrum hefur aðstaða sjóðsins verið bætt
og verkafólk oft keypt þær uppbætur með tilslök-
unum á öðrum sviðum. Þar hefur alþingi götunnar
æ ofan í æ orðið að taka ráðin af íhaldssömum
og skilningstregum alþingismönnum við Austur-
völl.
j^ngum fær dulizt. að þessi þróun hefur blætt
stjórnarvöldunum í augum; það má bezt marka
af því að eina sjálfstæða framlag stjórnarflokk-
anna til þessara mála er sú ákvörðun að gera hús-
næðislánin vísitölubundin, ein allra lána í landinu.
.Haldi ver%ðbólguþróunin áfram í' samræmi við
stefnu ríkisstjórn,arinnar undanfarin sex ár mun
vísitölubindingin á skömmum tíma. eyðileggja
þau forréttindi sem ætlunin var að veita íbúða-
byggjendum og gera síðan hlutskipti þeirra verra
en allra annarra lántakenda. Eins og margsinnis
hefur verið rakið hér í blaðinu mun hliðstæð verð-
bólguþróun og verið hefur hér að undanförnu leiða
til þess að maður sem fær 280.000 kr. að láni með
vísitölukjörum verður að greiða rúmar tvær milj-
ónir króna aftur á 25 árum; jafnvel grófustu okr-
arar á Íslandi mundu blygðast sín fyrir þvílíkt
framferði, og er þeim þó ekki klígjugjarnt. Er ís-
land vafalaust eina land í veröldinni sem stefnir
að því að gera húsnæðislán öllum öðrum dýrari,
líkt og íbúðarbyggingar séu þjóðfélagslegur stór-
^læpur sem umfram allt verði að afstýra. Sú
;fna fær að sjálfsögðu ekki staðizt. — m.
íslandsmótið í knottspyrnu:
Valsmenn áttu meira í leiknum, en
KR-ingarnir hrepptu bæði stigin
Miðað við hinn illa íarna völl og mjúka, þar sem
knötturinn næstum situr íastur í linu slitlaginu,
verður ekki annað sagt en að leikurinn milli þess-
ara gömlu keppinauta KR og Vals hafi á margan
hátt verið skemmtilegur og margar tilraunir á báða
bóga gerðar til þess að leika góða knattspyrnu.
1 heild átti Valur meira i
leiknum, hvað sókn snérti, en
tækifæri KR voru opnari, Og
þetta eina mark hjálpuð-
ust báðir að við að skora, eða
með öðrum orðum: það var
sjálfsmark þannig að bakvörð-
ur ætlaði að verja á línu en
knötturinn ienti innan á stöng
og þaðan í markið; og þar við
sat.
Þó ekki væru skoruð fleiri
mörk en þetta, bauð leikur
þessi upp á mörg skemmtileg
og spennandi áugnablik, og
tilraunir til að sýna góða knatt-
spyrnu hvað snertir samleik, og
þó verður ekki annað sagt en
að völlurinn hafi gert sitt til
þess að skemma þær tilraunir.
Til að byrja með er leikur-
inn nokkuð ,iafn þar sem bæði
lið fá nokkur tækifæri til að
skora, en allar þær tilraunir
misheppnast. Þannig á Eyleifur
skot af stuttu færi en við
þröngar aðstæður, og fór knött-
urinn framhjá. Og litlu síðar
var það Hermann sem skaut en
Guðmundur varði. Á 17. mín er
Ingvar kominn vel innfyrir og
fær sendingu frá Hans og virð-
ist ekki eiga annað eftir en að
skjóta, en er aðeins of seinn
og skotið mistekst.
Nokkuð fram yfir miðjan
Íyrri hálfleik er leikurinn jafn,
þar sem bæði lið sækja og
verjast á víxl, en er iíða tekur
á hálfleikinn herða KR-ingar
sóknina og halda henni um
hríð, og eiga Valsmenn þá um
skeið í vök að verjast, þeim
tekst eljki verulega að ná sam-
an til að hrinda þessu „fargi‘‘
af sér.Á 32. mín sækja þeir
allfast og skaut Baldvin ská-
skoti sem stefndi í markið, en
Þorsteinn ætlaði að bjarga á
línu, en náði illa til knattarins,
svo að hann lenti innaná stöng
og hrökk þaðan í markið.
Á næstu mínútum virðist enn
sem mark Vals sé í bráðri
hættu, er Baldvin kemst einn
innfyrir og hefur ekki nema
Sigurð í rnarkinu til varnar,
en svo illa vill til að Baldvin
„týnit“ knettinum, ög auðvitað
voru vamarmenn Vals fundvís-
ir á harin og spörkuðu honum
burtu. Þar skall hurð nærri
hælum.
Undir lok hálfleiksins jafnast
leikurinn aftur. Nokkru fyrir
léikhlé varð Björn Júlíusson að
yfirgefa völlinn vegna méiðsla
á fæti, og tók Halldór stöðu
hans en Sigurjón Gíslason var
framvörður.
1 síðari hálfleik snerist þetta
við, því að Valsmenn byrjuðu
þegar með sókn og má segja
að hún hafi haldizt mikinn
hluta hálfleiksins. Þó gerði KR
allmörg lagleg áhlaup. Þeg-
ar á 5. mín. er Ingvar í all-
góðu færi, en er of seinn.
Valsmenn eru hvað eftir ann-
að við vítateig KR-inga en þeir^>
eru eitthvað ragir við að
skjóta, og þegar þeir eru loks
tilbúnir er l.ominn fótur fyrir
eða þeir eru búnir að missa af
tækifærinu.
Næsta opna færi á þó KR,
er Eyleifur hefur knöttinn eftir
hom á Val, en skotið er óná-
kvæmt og fer framhjá af stuttu
færi.
Síðasta verulega skemmtilega
skotið í leiknum átti Berg-
sveinn er hann skaut af 20 m
færi upp við stöng, en það
varð KR til happs að knöttur-
inn fór beint yfir höfuð Guð-
mundar í markinu sem lyfti
honum yfir þvérslána.
KR-Iiðið betra en síðast
þegar Iiðin kepptu
Það var áberandi hvað KR-
liðíð var virkara og hættu-
legra nú en í leik þessara liða
í Reykjavíkurmótinu. Sérstak-
lega var það hvað framlínan
náði betur saman og kunni á
því lag að greiða svolítfð úr
varnarþykkninu við vítateiginn,
og opna á þann hátt.
Vömin var líka virkari, og
munaði ef til vill mestu að nú
var Ellert kominn fyrst og
fremst til aðstoðar Ársæli mið-
framherja nýliðanum í þeirri
stöðu, sem greinilega hafði það
hlutverk eitt fyrst og fremst að
gæta Hermanns.
Með aðstoð Eyleifs og Sveins
tókst KR að vera mestu ráð-
andi um miðvöllinn og fengu
Valsmenn þar alltof litlu ráðið.
Skemmtilegustu leikmenn KR
voru Hörður Markan, Guð-
mundur í markinu og Einar ls-
feld. Guðmundur Haraldsson
gerði líka ýmislegt vel. 1 heild
Iék lið KR að þessu sinni með
toppgetu.
Þrátt fyrir það að Valur tap-
aði báðum stigunum var það
knattspyrnulega sterkara liðið,
þótt þeim tækist ekki að skora
að þessu sinni, en það verður
að skora fleiri mörk en dnd-
stæðingurinn, ef vinna á bæði
r
Utborgun bóta
almannatrygginganna í Gullbringu-
og Kjósarsýslu fer fram sem hér segir:
i
í Kjalarneshreppj; fimmtudaginn 2. júní kl. 2—4.
í Mosfellshreppi: föstudaginn 3. júní kl. 2—5.
í Seltjarnarneshreppi: mánud. 6. júní kl. 1—5.
f Grindavík: þriðjudaginn 7. júnf kl. 9—12.
í Njarðvíkurhr.: þriðjudaginn 7. júní kl. 1,30—5.
f Gerðahreppi: þriðjudaginn 7. júní kl. 2—4.
í Miðneshreppi: miðvikudaginn 8. júní kl. 2—4.
Á öðrum stöðum fara greiðslur fram eins og venju-
lega.
Sýslumaðurinn í Gullbringu-
og Kjósarsýslu.
stigin. Það sem fyrst og fremst
varð Val að falli að þessu sinni
er að þeir kunna ekki að nota
sér sína ágætu útherja. Næst-
um hvert áhlaup verður að fara
fram miðjuna í stað þéss að
losa um Hermann og Ingvar
þar með því að draga bakverð-
ina út og nota útherjana til að
opna þeim leiðina. En það var
ekki nóg með það að útherj-
amir þurftu einnig að fara
inná sém þýðir það að þeir
þétta vamarmúrinn þar og gera
Hermanni sérstaklega og Ingv-
ari erfiðara fyrir um allar at-
hafnir þar. Með því að nota
útherjana meir og rétt hefði
þessi leikur farið öðruvísi. í
þessu lá höfuðveila Valsliðsins
að þessu sinni.
Hermann naut sín ekki í
þessu þrönga umhverfi, en að-
eins vantaði herzlumuninrt á
að Ingvar féngi laun erfiðis
síns, og kemur þar nókkuð til
hve vamarmenn KR brútu óft
og leiðinlega á Ingvari.
Útherjarnir Bergsteinn og
Reynir voru of lítið notaðir.
Ámi Njálsson átti góðan
leik, og einnig Halldór sérstak-
lega í stöðu miðvarðar. Þór-
steinn greip oft vel inní en átti
í svolitlum erfiðleikum rttéð
Markan. Sigurður £ markittú
átti góðan leik.
Sem sagt skemmtilegur léik-
ur þar sém ívið betra liðið tap-
aði. Dómari var Magttús PéturS-
son.
Frímann.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunfi-
ar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, upp-
kveðnum 1. þ.m. vérða lögtök látin fara fram
fyrir ógoldnum fyrirframgreiðslum opinberra
gjalda samkvæmt gjaldheimtuseðli 1965, sem féllu
í gjalddaga 1. febrúar, 1. marz, 1. apríl, 1. maí og
1. júní 1966. Gjöldin eru þessi:
Tekjuskattur, eignaskattur, námsbókagjald, kirkju-
gjald, kirkjugarðsgjald, slysatryggingagjald at-
vinnurekenda samkvæmt 40. gr. almannatrygg-
ingalaga, lífeyristryggingagj'ald atvinnurekenda
samkvæmt 28. gr. sömu iaga, atvinnuleysis-
tryggiugagjald, alm.tryggingas'jóðsgjald, tekjuút-
svar, eignaútsvar, aðstöðugjald, sjúkrasíamlags-
gjald, iðnlánasjóðsgjald og launaskattur.
Lögtök tiL trygging^r .íyrirframgreiðslum fr-aman-.^-
greindra gjalda, ásamt dráttarvöxtum og kostn
aði verða hafin að 8 dögum liðnum frá birtingu
þessarar auglýsingar, verði tilskyldar greiðslur ekki
ínntar af hendi innan þess tíma.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 1. júní 1966.
Kr. Kristjánsson.
Gúmmívinnustofan h.f.
Skipholti 35 - Símar 31055 og 30688
ÁBYRGÐ Á HÚSGÖGNUM
þetWó06 merki j3^^£FRAMLEÍÐANbTf . NO.
husgögnum, sem
óbyrgðersfcírteim 1OSGAGNÁM0S
KcupiS
vönduS búsgögn
ELAGI REVKJAVIKU
HUSGAGNAMEISTARAFELAG REYKJAYIKUR
\