Þjóðviljinn - 10.09.1966, Blaðsíða 1
Laugardagur 10. september 1966
argangur
205. tölublað
HvaS gerlsf 1. okfóber n.kJ?
Samningar verkalýðs-
félaganna útrunnir
Samningar þeir sem almennu verkalýðsfé-
lögin gerðu við atvinnurekendur í sumar renna
út 1. október n.k. og flest iðnaðarmannafélög-
in hafa nú einnig sagt upp samningum sínum
frá og méð sama degi að telja. Má því búast
við að í haust dragi til allmikilla tíðinda í kaup-
gjaldsmálunum.
■
■
■
■
■
! HVAÐ SEGJA
/.
ÞEIR UM
TAKMÖRKUN
DÁTA-
SJÓNVARPSINS?
□ í gðer sneri Þjóðviljinn sér til 2ja manna,
annars úr TÖðum þeirra sem barizt haía íyrir
lókun hermannasjónvarpsins á Keflavíkurílug-
velli og hins úr flokki þeirra er ákafast hafa
barizt fyrir því að dátasjónvarpinu væri leyft
óhindrað að leggja undir sig íslenzk heimili.
Spurði blaðið þá um álit þeirra á þeirri ákvörð-
un sem nú hefur verið tekirn um að takmarka
útsendingar Keilavíkursjónvarpsins við flug-
völlinn og næsta nágrenni hans er starfsemi ís-
lenzka sjónvarpsins hefst. Fara svör þeirra hér
á eftir.
//
Viðunandi lausn "
Sigurður Líndal, hæstarétt-
arritari, er. einn þeirra manna
úr röðum borgaraflokkanna
sem hvað skeleggast hefur bar-
izt gegn þeirri þjóðarsmán að
leyfa erlendu stórveldi einok-
un á jafn áhrifaiíiiklu áróð-
urstæki og sjónvarp er.
Þjóðviljinn hafði í gær tal
af Sigurði og spurði hann um
álit hans á- þeirri ákvörðun að
takmarka hermannasjónvarp-
ið við Keflavíkurvöll ognæsta
nágrenni. „Ég tel þetta eftir
atvikum viðunandi lausn“.
sagði Sigurður. „Þetta mál
hefur annars skýi-t ýmislegt
og sýnt ýmsar veilur í við-
horfum manna til þjóðernjs-
mála. Ég er þeirx-ar skoðunar,
að það þyrfti að gera ein-
hverskonar úttekt á stefnu
• okkar í menningarmálum og
því sem lýtur að þjóðemis-
málum.
Óþarfi og út í hött
Vignir Guðmundsson blaða-
maður við Morgunblaðið á
sæti í stjóm félags þess sem
sjónvarpsáhugamenn mynd-
uðu með sér á sínum tíma til
verndar „hagsmunum“ sínum
og hefur hann jafnan verið
einn þeirra ákafasti forvígis-
maður.
I viðtali við Þjóðviljann i
gær kvað Vignir óíjköp lítið
um málið að segja á þessu
stigi. Forráðamenn félagsins
hefðu ekki komið saman síðan
ákvörðunin um takmörkun
Keflavíkursjónvarpsins var
tilkynnt, en hann sagðistgera
ráð fyrir að eitthvað yrði
gert af hálfu félagsins til þéss
að „fá það hindrað að sjón-
varpið (þ.e. Keflavíkursjón-
varpið) yrði takmarkað11. Ann-
ars finnst mér, sagði Vignir,
að það hafi verið, sé og verði
óþarfi 'og út í hött að tak-
marka sendingar Keflavíkur-
sjónvarpsins, enda skammt að
bíða þess að alheimssjónvarp
komist á, sem allir geta horft
á óhindrað. Mér finnst sjálf-
sagt, sagði hann að lokum, að
við fáum að njóta allra fjöl-
miðlunartækja án nokkurrar
takmörkunar, hvaðan sem
þau eru.
AÐ ÞVÍ ER Snorri Jónsson
framkvæmdastjóri Alþýðu-
sambands íslands sagði í
viðtalj við Þjóðviljann í
gær hafa enn ekki hafizt
neinar samningaviðræður
milli verkalýðsfélaganna
og samtaka atvinnurek-
enda en búast má við að
senn fari að draga að því
að þessir aðilar hefji und-
irbúnings viðræðu r.
SUMARFRÍ hafa dregið mjög
úr undirbúningi þessara
mála en forvígismenn
beggja aðila. verkalýðsfé-
laganna og atvinnurek-
enda eru nú sem óðast að
koma til starfa að aflokn-
um fríum og fer þá vænt-
anlega að komast meiri
skriður á allar aðgerðir.
INNAN verkalýðsfélaganna
mun þegar farið að ræða
samningamálin og vænt-
anlegar kröfur, a.m.k. inn-
an stjórna þeirra.
Hendrik Ottósson
lézt í gær
Héndrik Ottósson lézt í gær, 9.
september, á Landsspítalan-
um' eftir langvarandi heilsubrest.
Handrik var sonur Ottós N.
Þorlákssonar og konu hans Caro-
linu Siemsen. Hann var fæddur
8. október 1897'í Rvík. Stúdent
varð Hendrik frá Menntaskólan-
um £ Reykjavík 1918 og stundaöi
næstu árin nám í háskólagrein-
um varðandi málvísindi og lög-
Dyrfjöll og Stórurð j
í Eiríksdal
Starfsfólk skógræktarinnar
að Hallormsstað fór fyrir
skömmu í leiðangur að sækja
fornt steintré er fannst í
fyrrahaust undir fjallinu Súl-
um sem er rétt norðan við
Dyrfjöll.
Leiðangurinn fór upp frá
Hjaltastaðaþinghá eftir svo-
nefndum Eiríksdal inn að
Dyrfjöllum og er þarna mjög
sérkennilegt landslag og
hrikafagurt eins og meðfylgj-
andi myndir sýna sem teknar
voru í þessari ferð.
Á einum stað hafa lirunið
úr fjöllunum óhemjustór mó-
bergsbjörg og heitir þar Stór-
urð og ber hún sannarlega
nafn með réttu. Annars stað-
ar í dalnum eru sléttar grös-
ugar grundir og einnig er
þar fallegt jökullón.
Á stærri myndinni hér xð
ofan sjást Dyrfjöll, séð frá
Stórurð, og á þeirri minni
eitt móbergsbjargið í Stór-
urð og má ráða stærð þess
af hlutfalli þess við mann-
inn er uppi á því stendur. —
(Ljósm. sibl.).
Síldveiðin fyrra sólarhring:
91 skip með alls 8000 tn.
Hcndrik Ottobson
fræði. en vann árum saman að
málakennslu; í eigin málaskóla
í 16 ár.
Hendrik varð þjóðkunnur mað-
ur af starfi sínu í hreyfingu ís-
lenzkra sósíalista og af bókum
er hann skrifaði frá 1948, og
flestar eru minningabækur frá
yngri árum og æsku hans íVest-
urbænum. Hann flutti og fjölda
erinda í útvarp og skrifaði sæg
blaðagreina, og naut einnig þar
ritleikni sinnar og alhliða mennc-
unar. Hann var fréttamaður Rík-
isi'tvarpsins frá 1946 til dauða-
dags.
Gott veður var á síldarmið-
unurn fyrra sólarhring. Veiði-
svæðið var í Reyðarfjarðardýpi
32—60 mílur undan landi. Sam-
tals tilkynntu 91 skip afla, a-lls
8.005 lestir.
Dalatangi
Pétur Sigurðsson RE 80 lestir,
Ólafur Magnússon EA 80, Jón
Þórðarson BA 90, Ólafur bekkur
OF 85, Sæfaxi II NK 55, Sól-
fari AK 170, Gullver NS 160
Gullberg NS 100, Náttfari ÞH
50, Höfrungur II AK 35, Dag-
fari ÞH 150, Þráinn NK 135,
Guðbjartur Kristján IS 110, Haf-
rún IS 170, Sigurður Jónsson
SU 50, Ársæll Sigurðsson GK
100, Gullfaxi NK 70, Auðunn GK
90, Guðrún GK 100, Akraborg I
EA 50, Jörundur II RE 60, Ingi-
ber Ólafsson II GK 130, Seley SU
80, Súlan EA 120, Brimir KE 100,
íesleifur IV VE 120, Helga RE 70
Huginn II VE 100, Sigurður
Bjarnason EA 150, Helgi Flóvents-
son ÞH 50, Sigurbjörg OF 40,
Þorbjörn II GK 110, Bára SU 55,
Keflvíkingur KE 100, Margrét SI
100, Kópur VE 60, Skálaberg NS
75, Þorsteinn RE 100, Halkion VE
85, Sigurey EA 30, Glófaxi NK
25, Reykjaborg RE 300, Svanur
IS 25, Jón Kjartansson SU 130,
Skarðsvík SH 80, Hamravík KE
80, Búðaklettur GK 40, Guðbjörg
GK 80, Sólrún IS 80, Arnar RE
80, Bjarmi II EA 70, Arnames
GK 0, Reykjanes GK 70, Árni
GK 60, Reykjanes GK 70, Árni
Magnússon GK 60, Guðrún Guð-
Barði NK 160, Bjarmi EA 60,
Sigurvon RE 75, Vigri GK 130
Jón Finnsson GK 150, Guðbjörg
IS 145, Fróðaklettur GK 80,
Hannes Hafstein EA 85. Snæfugl
SU 60, Eldborg GK 90, Anna SI
60. Björg NK 170, Stapafell SH
30, Hólmanes SU 60, Björgúlfur
EA 50, Ásbjörn RE 120, Hafþór
RE 80, öm RE 160, Engey RE
•100, Viðey RE 50, Geirfugl GK
40, Dan IS 25, Þorleifur OF 35,
Gissur hvíti SF 20, Ltoftur Ba.ld-
vinsson EA 160, Húni II HU 80,
Einar Hálfdans IS 110, Framnes
IS 70, Fagriklettur GK 50, Berg-
um VE 90, Snæfell EA 130. Guð-
jón Sigurðsson VE 40, Hilmir II
IS 55, Freyfaxi KE 30, Björgvin
EA.
Nr. 25000 hlaut verSlaun
I gærkvöld kom 25 þúsund-
asti gesturinn á Iðnsýning-
una og var honum afhentur
hvíldarstóll frá Gamla
kompaníinu. Sá heppni var
Ólafur Jónsson, Bræðraborg-
arstíg 13.
Einnig var dregið í happ-
drætti sem efnt var til af
þeim aðilum sem sýna mat-
vælaiðnað. Vinningar í happ-
drættinu voru 70 talsins og
metnir samtals á 30—35 þús-
ind krónur.
Matvælaiðnaðurinn áfti daginn
í gær á Iðnsýningunni og var
í því tilefni efnt til happdrættis
með 70 vinningum. Happdrséttis-
miðarnir voru afhentir viðinn-
ganginn í gær og var síðan dreg-
ið um kl. 10,30 í gærkvöldi.
Einnig gaf Gamla kompaníið
gesti nr. 25000 hvíldarstói. sem
metinn er á 12 þúsund kr. Hlaut
Ólafur Jónsson, Bræ&aborgai’-
stíg 13, stólinn og var honum og
konu hans Lilju Sigurðardóttur
afhentur stóllinn í gærkvöld, en
þau komu á sýninguna um kl.
9,30.
Þá er það titf af Iðnsýning-
unni að tilefni af degi efnaiðn-
ariðnaðarins, sem er í dag verður
sett upp lítið gjósandi eldfjall.
A eldfjallið að tákna landsins
elztu og yngstu efnaframleiðslu,
að sögn forráðamanna Iðnsýn-
ingarinnar.
Á morgun, sunnudag, er dag-
ur steinefnaiðnaðarins.
I