Þjóðviljinn - 15.10.1966, Side 3
Laugardagur 15. október 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3
Lokið ráðstefnu í París um Vietnam
Allir flokkar Frakklands á
móti stríði Bandaríkjanna
Formenn gaullista, miðflokks, sósíalista, kommúnista,
Baumel, Lecanuet, Mitterrand og Rochet á einu máli
PARÍS 14/10 — Lokið er í París ráðstefnu þar sem fjallað
var um stríðið í Vietnam og var í lok hennar samþykkt
einróma ályktun þar sem stríð Bandaríkjamanna er for-
dæmt og þess krafizt að komið verði á friði í samræmi
við ákvæði Genfarsamninganna frá 1954. Þessi samþykkt
hefur vakið sérstaka athygli vegna þess að á ráðstefnunni
voru leiðtogar allra helztu stjórnmálasamtaka Frakklands.
Til ráðstefnu þessarar var boð-
að 1 af kunnum lögmönnum og
hafa áður verið haldnar níu
slíkar ráðstefnur lögmanna og
stjórnmálamanna sem fjallað
hafa um ýms helztu vandamál
samtíðarinnar.
Á þessari tíundu ráðstefnu var
alger einhugur um að Banda-
ríkjamenn ættu að bindá enda á
árásarstríð sitt gegn Norður-Vi-
etnam, flytja burt herlið sitt frá
Vietnam, leggja niður herstöðv-
ar sínar þar og viðurkenna
sfamningsrétt Þjóðfrelsisfylking-
arinnar, sem ræðúr yfir mikl-
um hluta Suður-Vietnams.
Á ráðstefnunni voru meðal
annarra Baumel, formaður UNR,
flokks gaullista, Waldeck Rochet,
formaður kommúnista, Lecanuet,
formaður bandalags miðflokk-
anna og Mitterrand, formaður
Lýðræðisbandalags sósíalista.
AHir helztu stjórnmálaflokk-
ar Frakklands, kommúnistar,
gaullistar, róttækir, kaþólskir
og sósíaldemókratar hafa þann-
Anknar loftár-
ásir á N-Vietnam
SAIGON 14/10 — Bandaríkja-
menn og leppstjórnin í Suður-
Vietnam lýstu því yfir í dag,
að þau teldu sig ekki lengur
bundin fyrri ákvörðunum um að
hætta loftárásum á, hlutlausa
beltið milli Norður- og Suður-
Vietnam.
Sú ástæða er tilfærð, að Norð-
ur-Vietnammenn hafi stóraukið
herflutninga suður á bóginn um
þetta belti, einkum um austur-
hluta þess.
f dag gerðu bandarískar flug-
vélar 173 árásir á hlutlausa
beltið og á NorðurVietnam, og
hafa þær ekki orðið fleiri í ann-
an tima.
ig í fyrsta sinn sameinazt um
að fordæma hernað Bandaríkja-
manna í Vietnam, en skoðana-
kannanir hafa leitt í ljós að yf-
irgnæfandi meirihluti Frakka
telur Bandaríkin eiga sök á
stríðinu þar.
Ályktun
í fyrri hluta ályktunarinnar
sem ráðstefnan samþykkti er
lögð áherzla á þessi atriði:
1) — Meginatriði alþjóðarétt-
ar, sem fengið hafa staðfestingu
í sáttmála Sameinuðu þjóðanna,
krefjast þess að hætt sé þegar
í stað og skilyrðislaust hernað-
arárásinni á Norður-Vietnam.
2) — Ákvæði Genfarsamning-
anna um sjálfstæði og óskoruð
landsréttindi vietnömsku þjóð-
arinnar skuldbinda Bandaríkin
til að flytja allt herlið sitt frá
Vietnam og leggja niður þær
herstöðvar sem þau hafa komið
sér þar upp.
3) — Þar sem það eru fyrst
og . fremst þjóðfrelsisherinn og
heriið undir stjórn Bandaríkj-
anna sem eigast við verður
enginn samningur um vopna-
hlé gerður nema með aðild Þjóð-
frelsisiylkingarinnar. Þar sem
Þjóðfrelsisfylkingin sem stjórn-
ar andspyrnu þjóðarinnar hefur
fHull yfirráð yfir miklum hluta
bæði larids og þjóðar í Suður-
vietnam, væri sérhver pólitísk
lausn sem virti þessa staðreynd
að vettugi óraunhæf.
Framtiðarlausn
Síðar í ályktuninni er enn
vitnað til Genfarsamninganna
varðandi skipan mála í Vietnam
í framtíðinni og þessi atriði tek-
in fram sérstaklega:
a) — Meðan Vietnam er skipt
í tvo hluta, verður samsteypu-
stjórn að fara með völd í Suður-
Vietnam sem kæmi á laggirnar
stofnunum lýðræðisins.
Stríðið í Bandaríkjunum
b) — Sameining landshlutanna
á að fara fram á lýðræðislegan
hátt samkvæmt samkomulagi
stjórnanna í norðri og suðri.
c) — Öllum ríkjum verði
bannað að hafa herstöðvar í
Vietnam og að innlima landið í
hernaðarbandalög.
d) — Eftirlit með samningun-
um hafi alþjóðleg nefnd sem
skipuð verði af þeim ríkjum sem
aðild áttu að Genfarráðstefn-
unni.
Kirkjurnar gegn
lan Smith
SALLISBÚRY 14/10 — Kristin
trúfélög í Ródesíu hafa neitað að
efna til sérstakra þakkarguð-
þjónusta á eins árs afmæli
(/sjálfstæðisyfirlýsingar‘‘ minni-
hlutastjómar Ian Smiths- Kirkjur
landsins hafa þar með í fyrsta
sinn lýst andstöðu sinni vi8
stjórnarvöldin.
Ekki tókst að fá brezka Rínarherinn niðurgreiddan
Stjórn Wilsons fylgir fram
kaupbindingarlögum afhörku
LONDON 14/10 — Stjóm WilsoHs ætlar að fylgja fast
fram kaupbindingarstefnu sinni og býst nú til atlögu gegn
|>eim fyrirtækjum sem dirfast að láta starfsfólk sitt fá
bónusgreiðslur. Samtímis hefur sparnaðarstefna stjórnar-
innar beðið þann hnekk að Vestur-Þjóðverjar hafa neitað
að verða við þeirri kröfu að taka að sér mestallan kostn-
aðinn af brezka Rínarhernum.
Stjórnin hefur til að mynda
ákveðið að koma í veg fyrir
launauppbót til 25 þúsund prent-
ara sem nemur tveim shilling-
um á viku (um tólf krónum
íslenzkum). Þá vill Ray Gunth-
er verkamálaráðherra og stöðva
áform um launahækkun hjá 120
starfsmönnum við raftækjagerð
eina, hún átti að nema einu
pundi á viku. Þó höfðu viðkom-
andi fyrirtæki tekið ákvörðun
um þessar launauppbætur áður
en kaupbindingarlög stjórnarinn-
ar voru samþykkt.
Þá hefur Gunther og áhyggj-
ur af því, að verktakafyrirtæki
eitt í Norður-Englandi hafi á-
kveðið að greiða 600 starfsmönn-
um sem svarar tveim milj. ísl.
króna í bónus. Hefur fyrirtæk-
inu verið hótað lokun ef það
frestar ekki þessum greiðslum
í sex mánuði.
Brot á kaupbindingarlögunum
varða allt að 500 punda sekt-
um eða- fangelsun.
Rínarher
Brezk sendinefnd, sem hefur
rætt við vesturþýzk yfirvöld um
þá kröfu Breta að V-Þýzkaland
beri mestallan gjaldeyriskostnað
af dvöl brezks hers í Rínarlönd-
um, fór bónleið til búðar. Seg-
ir frá þessu í yfirlýsingu um
viðræðurnar sem var gefin út
í dag. Bretar höfðu farið fram
á 78 miljónir punda en þýzkir
vildu ekki fara upp fyrir 32
miljónir.
Búizt er við því, að þessi
málalok verði til þess að fækk-
að verði verulega í brezka Rín-
arhernum en hann telur nú 60
þús. manns.
Deila israe/s og Sýrlands
rædd í Öryggirráði SÞ
NEW YORK 14/10 — öryggis-
ráðið tók til meðferðar i dag
kæru fsraelsstjómajr þess efnis,
að Sýrland efni til vopnaðra að-
gerða á ísraelsku landi.
Sprengjutilræði hafa verið
framin í Israel að undanfömu og
nú síðaít um helgina er sprengja
særði , þrjá ísraelska hermenn
Gestaboð úti í geimnum í ár?
Sovézkir undirbúa nýjan
áfanga í geimrannsóknum
MOSKVU 14/10 — Sovézkir vísindamenn vinna nú að und-
irbúningi nýs geimskots sem verður fólgið í því að senda
mjög stóra geimrannsóknastöð méð nokkra geimfara inn-
anborðs á braut umhverfis jörðu. Það er haft eftir áreið-
anlegum heimildum að tilraun þessi verði gerð áður en
árinu lýkur.
Ef þessar fréttir reynast sann-
ar fá Sovétríkin með þessu móti
möguleika á að taka aftur for-
ystu í geimrannsóknum, sem nú
er talin í höndum Bandaríkja-
manna. Það eru nítján mánuðir
síðan sovézkir sendu síðast
mannað geimfar á loft — var
það þegar Leonof gekk sig út
úr geimskipinu Voskhod-2. Síð-
an hafa Bandaríkjamenn gert
margar flóknar og langvinnar
tilraunir.
Samkvæmt heimildum í
Moskvu er talið að nú vilji Sov-
étríkin stíga nýtt skref og skjóta
upp langlífri geimstöð, sem gæti
tekið á móti „gestum" frá jörðu.
Sovétmenn hafa að undanförnu
verið að gera tilraunir með nýj-
ar og öflugar eldflaugar, sem
skotið hefur verið til Kyrrahafs,
og er talið líklegt, að þeir vinni
að smíði eldflaugar sem geti sett
á loft gervihnött þyngri miklu
en áður hafa tíðkazt — með var-
færnu orðalagi hefur verið talað
um 50P lesta hnetti. Þyngstu
gerfihnettir sovétmanna til þessa
eru Prótón-gervihnettirnir, sem
vega tólf lestir.
Þrjár líklegar orsakir eru
Stjórnarkreppa í Hollandi
..iyndin er frá kynþáttaóeirðunum í San Francisco fyrir skömmu.
flokkarnir þrír taki upp stjórn-
arsamstarf.
HAAG 14/10 — Lokið er fimmt-
án mánaða valdatíð samsteypu-
stjórnar kaþólskra og sósíalista
í Hollandi. Féll stjórnin í nótt
— hláut 62 atkvæði gegn 75 —
eftir þriggja daga maraþonum-
ræður um fjárlagafrumvarpið
fyrir næsta ár. Forsætisráðherra
var Joseph Cals.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
komu.mjög á óvart og hafa vald-
ið nokkrum ugg í bækistöðvum
Efnahagsbandalagsins.
Á íúndinum í nótt bar
Norbert Scmélzer, úr Kaþ-
ólska þjóðflokknum, fram til-
lögu sem var samþykkt með 75
atkv. og skoðaði stjórnin það
sem vantraust á fjárlög sin.
Ekki er talið ólíklegt að Júlí-
ana drottning biðji Scmelzer að
mynda nýja stjórn — en hann
er því fylgjandi að kristilegu ' hvað af skriðdrekum-
taldar fyrir því, að Sovétríkin
hafa ekki stundað mannaðar
geimferðir síðan í marz 1965. 1)
Af sparnaðarástæðum. 2) Af því
að áróðursgildi geimferða er tal-
ið minna en áður. 3) Þau hafi
ákveðið að einbeita sér að nýjum
sigri í geimvísindum se. . gæti
sætt verulegum tíðindum.
skammt frá landamærum Sýr-
lands.
Sýrlendingar segjast hinsvegar
ekki hafa í hyggju að halda aft-
ur af því sem þeir kalla byltingu
útlægra Áraba frá Palestínu.1
Sagði forsætisráðherra Sýrlands
í orðsendingu til allra erlendra
sendiráða í Damaskus, að Isra-
elsmenn ætluðu að notfæra sér
aðgerðir útlaganna sem tilefni til
árásar á Sýrland. Um leið ákærði
hann Hussein Jórdaníukonung
um að vera í vitorði með Israels-
mönnum.
Tuttugu og fimm bandarískir
Gyðingar úr Zionistasamtökunum
Brið trumpeldor réðust i dag á
skrifstofu sendinefndar Sýrla,nds
hjá Sam. þjóðunum, eyðiiogðu
skjöl og neituðu að yfirgefa stað-
inn fyrr en lögreglan skarst í
leikinn. Sögðust þeir með þessum
hætti mótmæla morðárásum Sýr-
lendinga í ísrael.
PARÍS 14/10 — Saksóknari hef-
ur krafizt þess að tveir þeirra
manna, sem bera helzt ábyrgð
á ráni og morði marokkóska
stjórnarandstöðuleiðtogans Ben
Barka verði dæmdir í tuttugu
ára fangelsi.
Stalín óttaðist
fall Moskvu
MOSKVU 14/10 — Georgí Zjúkof
marskálkur segir frá því í bók-
inni „Orustan um Moskvu“ sem
kemur út eftir nokkra daga, að
Stalín hafi um hríð óttast að
sovézkir herir gætu ekki varið
Moskvu-
Zjúkof segir að Stalín hafi
hringt .til sín og spurt: Eruð þér
sannfærður um að við getum
varið Moskvu. Ég spyr með
særðu hjarta og bið um hrein-
skilið álit yðar sem kommúnista.
Zjúkof kvaðst hafa sviarað að
það væri hægt. en til þess þyriti
a.m.k. tvo heri og allavega eitt-
NÝTT KLÁMRITA-
MÁL ÍN0REGI
Mikið fjaðrafok hefur orðið
í Noregi út af skáldsögu
er kom þar út ekki alls fyrir
löngu undir dulnefni og
nefndist „Þráðlaust". Á dög-
unum var bókin gerð upptæk
sem klámrit og útgefanda
stefnt fyrir rétt. Gaf höfund-
ur sig þá fram og reyndist
hann vera Jens Börneboe og
hófust yfirheyrslur í máli
þeirra beggja í gær.
Báðir neita að hafa brotið
ákvæði norskra laga um sölu
og dreifingu klámrita. Börne-
boe neitar því ekki að „djarf-
ar“ ástarlífslýsingar séu i
bókinni, en þær séu hégóm-
inn einn í samanburði við
innihald tímarita þeirra sem
seld eru skólakrökkum i
hverjum söluturni — sýndi
hann réttinum myndir úr rit-
um þessum af stúlkum í mjög
hæpnum stellingum máli sínu-
til sönnunar.
f bréfi til útgefandans sagði
höfundur m.a. að það væri
um feð gera „að drukkna ekki
i klámritabylgjunni heldur
berast á henni“. Hann gefur
þá skýringu fyrir rétti, að
tilgangur sinn með bókinni
hafi meðal annars verið sá,
að skopstæla klámritin, gera
klámritabylgjuna hlægilega.
En líklega hefði bókin ekki
orðið nægilega háðsk fyrst
„ekki einu sinni lögreglan
hefði komið auga á háðið“.
Dó
feómarinn var Börneboe
hinn erfiðasti og vildi
vita, hvort hann ætlaðist til
að þessi bók yrði tekin sem
kennslubók í sérkennilegu
ástarfari, og hvort hann héldi
virkilega að menn mættu
skrifa eins og þeim sýndist.
Börneboe var éiginlega ekki
frá því að það mættu menn.
Hinsvegar væri bókin ekki
kennslubók; gott væri ef hún
gæti haft nokkur áhrif á sið-
ferði kynlífsins i átt til hrein-
skilni og einlægni.
Talið er að þessir atburð-
ir muni mjög flýta fyrir því
að bókin komi út í Noregi og
Danmörku. Enn hefur ekki
verið formlega höfðað mál á
hendur höfundi og útgefarsda.