Þjóðviljinn - 21.10.1966, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 21.10.1966, Qupperneq 1
I Föstudagur 21. október 1966 — 31. árgangur — 239. tölublað. Tveir GySingar hljóta bék- menntaverðlaun Nóbels í ár Siða @ Ný stefna borgaryfirvalda? Borgarstjórnaríhaldið neitaði að augfýsa eftir lóðaumsóknum Mjög eftirsóttar og dýrmætar einbýlishúsalóðir afhentar þegjandi og hljóðalaust ■ Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gærkvöld snerust íhaldsfulltrúarnir allir sem einn gegn til- lögu minnihlutaflokkanna um að nokkrar tiltekn- ar og mjög eftirsóttar og dýrmætar byggingarlóð- ir í borginni yrðu auglýstar til umsóknar í stað þess að nokkrir „valinkunnir menn“ fengju þegj- andi og hljóðalaust umráð lóðanna, eins og lóða- nefnd hafði ákveðið. Hér var um að ræða fjórar einbýlishúsalóðir við Laugarás- veg og fimm við Sunnuveg. Lóð- imar voru þessar og þeir sem þasr hrepptu: Laugarásvegur 38: Jónas Jóns- son, Laugarásvegi 73. Laugarásv. 40: Rúnar Bjarnason, Hvassaleiti 28. Laugarásv. 42: Logi Einarsson, Flókagötu 56. Laugarásv. 44: Richard Theo- dórs, Sólheimum 28. Sunnuvegur 1: Agnar Kristjáns- son, Sólheimum 9. Sunnuvegur 3: Jóhann -G. Möll- er, Barmahlíð 32. Sunnuvegur 5: Þórður J. Hall- dórsson, Sigtúni 39. Sunnuvegur 7: Helgi Ólafsson, Langholtsvegi 85. Sunnuvegur 9: Þorsteinn Gís> son, Bugðulæk 4. Lóðanefnd hafði gengið frá þessari úthlutun á sínum tíma og ,sl. þriðjudag var ákvörðun nefndarinnar borin undir borg- arráð. Þar varð ágreiningur. Borgarráðsmaður Alþýðubanda- lagsins, Guðmundur Vigfússon, gerði það að tillögu sinni að lóðirnar við Laugarásveg og Sunnuveg yrðu auglýstar til um- sóknar. Þessi tillaga var felld af íhaldsfulltrúunum 3 í borg- arráði gegn atkvæðum flutnings- manns og Kristjáns Benedikts- sonar, borgarráðsmanns Fram- sóknar. Aumlegt yfirklór íhaldsins Á borgarstjórnarfundinum í gær hreyfði Guðmundur Vigfús- son þessu máli enn og flutti hann, ásamtKristjániBenedikts- syni, tillögu um að umræddar lóðir yrðu auglýstar til umsókn- ar með hæfilegum fresti. í framsöguræðu < sinni þenti Guðmundur á að borgaryfirvöld hefðu tekið þá reglu upp fyrir tveim til þremur árum, m.a. vegna þrýstings frá borgarfull- trúum minnihlutaflokkanna, að auglýsa þær byggingarlóðir sem borgin hefði til ráðstöfunar hverju sinni. Þetta er sjálfsögð regla að flestra áliti, sagði Guð- mundur, en nú virðist eiga að fara inn á nýjar brautir, þ.e. auglýsa ekki lóðirnar heldur út- hluta þeim völdum gæðingum sínum þegjandi og hljóðalaust. Forsvarsmaður íhaldsins, Birg- ir f. Gunnarsson, hafði í frammi hið aumasta yfirklór; kvaðst í- haldsmaðurinn samþykkur þeirri almennu reglu að auglýsa eftir lóðaumsóknum, en \ taldi hins- vegar ónauðsynlegt að auglýsa alla jafna „takmarkaða lóða- skika". Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddu 7 borgarfulltrúar minnihlutaflokkanna tillögu Guðmundar Vigfússonar og Kristjáns Benediktssonar at- kvaeði, en allir 8 íhaldsfulltrú- arnir voru á móti og staðfestu pukursúthlutun lóðanefndar. Klámmál á þrem Norðurlöndum HELSINKI 20/10 — Mál var í dag höfðað gegn • forleggjara, prentsmiðjueiganda, þýðanda og fjórum bóksölum fyrir að gefa út, prenta, þýða og selja klám- rit. Tvær bókanna voru gefnar út á íinnsku, hinar eru sænsku bækurnar Kárlek I-IV. í Kaupmannahöfn hefur verið úrskurðað að bókin „Venus i Indien“ skuli enn vera í banni, þótt dómari hafi sýknað útgef- anda af klámákærunni. Sýknu- dóminum hefur verið áfrýjað. í Osló hefur ákæruvaldið bannað bókina „Uten en trád“ og höfðað mál gegn forleggjaranum og höfundinum, Jens Björneboe. Þetta er fyrsta klámmálið í Nor- egi síðan Roðasteinn Agnars Mykle kom út. Stjórnarfrumvarpið um opinbera aðstoð við námsmenn ófullnægjandi Námslauna er þörf eigi að tryggja efnahagslegt menntunarjafnrétti Á þingfundi í gáer við um- raeðu um stjómarfrumvarp um námslán og námsstyrki lögðu Alþýðubandalagsþing- mennirnir Hagnar Arnalds og Einar Olgeirsson og Framsóknarþingmaðurinn Ingvar Gíslason áherzlu á brýna þörf þess að stórauka opinbera aðstoð við náms- menn í háskólum og öðrum framhaldsskólum. svo, tryggt yrði efnahagslegt jafnrétti til menntunar og séð yrði fyrir ört vaxandi þörf þjóðarinnar á menntun. Á fundi neðri deildar Alþing- is í gær var mest raett um stjórnarfrumvarp um námslán og námsstyrki og flutti mennta- málaráðherra Gylfi Þ. Gíslason, framsöguræðu og rakti heiztu breytingar frá núverandi löggjöf. Taldi ráðherrann það megin- breytinguna að Lánasjóður ís- lenzkra námsmanna yrði.núeinn | Alþýðubandalagsmenn flytja frumvarp á Alþingi um | ! i ! Verðlagsnefnd er hafi vald til að hindra verðhækkanir Þrír þingmenn Alþýðu- bandalagsins, Einar Olgeirs- son, Eðvarð Sigurðsson og Ás- mundur Sigurðsson, flýtja á Alþingi frumvarp um breyt- ingu á lögum um verðlagsmál. Efni laganna er í tveimur greinum og eru þær þannig: 1. gr. 1. grein laganna orðist svo: Með verðlagsákvarðanir fer sjö manna nefnd. verðlags- nefnd.' Skulu nefndarmenn kosnir hlutfallskosningu sameinuðu Alþingi, þegar lör þessi taka eildi og siðan eftir . hverjai alþingiskosningar Kosnir skulu og jafnmargir varamenn á sama hátt. Skal kosningin gilda út kjörtíma- bilið. Meiri hluti atkvæða ræður ákvörðunum verðlagsnefndar, nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum. » 2. gr. 1. niálsgr. 3. gr. laganna orðisí svo: , Verðlagsnefnd skal ákveða hámarksverð á vöru og verð- mæti, þ.á.m. hámark álagn- ingar umboðslauna og ann- arrar þóknunar, er máii skiptir um verðlag í landinu. Skal það regla verðlagsnefndar að beita þessu valdi til þess að koma sem mest í veg fyrir vöxt verð- bólgu og dýrtíðar og því að- eins sleppa því að ákveða há- marksverð á vissum sviðum, að samkomulag sé um slíkt í nefndinni. 3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Frumvarpinu' fylgir ýtarleg * 'reinargerð og verður hún birt einhvern næstu daga. og óskiptur, og úthlutaði stjórn sjóðsins öllum lánum og styrki- um, hvort sem um væri að ræða nám erlendis eða innanlands. Þá flytti frumvarpið þá stefnuyfir- lýsingu að stefnt skuli að því að opinber aðstoð við náms- menn samkvæmt lögunum nægi hverjum námsmanni til að standa straum af eðlilegum námskostn- aði, þegar eðlilegt tillit hefur verið tekið til aðstöðu hans M1 fjáröflunar. Tekið er upp það fyrirkorhulag á greiðslu náms- lána að þau skuli greiðast með jöfnum afborgunum á 15 árum, og vextir hækkaðir i 5%, en endurgreiðslur skulu ekki hefj- ast fyrr en fimm áruni eftir að námi lýkur. Þá er gert ráð fyr r lánum til kandidata og er það nýmæli. □ Óviðunandi Iausn. Ragnar Arnalds taidi virðing- arvert að reynt væri að koma lagi á þessi mál, en niðurstöður frumvarpsins væru ekki á þann veg að líklegt væri að stúdentar geti saett sig við. Ástandið f lána- og styrkjamálum námsmanna á Islandi hafi verið hneyksli og framlögin mjög ófullkomin. Menn hafi t.d. getað verið þrjú misseri í HáSkóia Islands án þess að eiga þess kost að fá námslán. Ragnar taldi þessi atriði fram máli sínu til stuðnings: □ Þó gert sé ráð fyrir þvi að framlag ríkisins til þessaramála hækki töluvert, verður mjög ó- verujeg hækkun til þpirra náms- manna sem fengið hafa lán og styrki áður. □ Enda þótt nýir stúdentahópar fái nú aðgang að lánum hækka lánin ekki nema í 46% af um- framþörf stúdenta, þess hlu+a framfærslukostnaðar sem þeir geta ekki unnið sér inn jáfn- framt náminu. □ Vextir námslánanna eru hækk- áðir í 5%, sem er alveg fráléit ráðstöfun. □ Ekkert tillit er tekið til þess hvort um fjölskyldumann er að ræða eða éinhleypan. □ Ekkert er gert til að bæta úr þörf nemenda Menntaskólanna, Framhald á 3. síðu. Kópavogsbúar Félag óháðra Kjósenda held- ur vetrarfagnað í Félagsheimili Kópavogs laugardaginn 22. októ- ber kl. 9 e.h. Miðapantanir í símum 41279 og 41794 og við innganginn. —r Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Bandarískir hermenn nauðga 16 ára stúlku Fjórir bandarískir hermenn af Keflavíkurflug- velli sitja nú í varðhaldi þar suðurfrá og eru á- kærðir um að hafa nauðgað 16 ára stúlku héðan úr Reykjavík. Átti sá atburður sér stað fyrir röskum mánuði en ekki hafðist upp á ódæðismönnunum fyrr en 7. október. Hafa þeir setið í gæzluvarðhaldi síðan en rannsókn málsins stendur enn yfir hjá lögreglustjóranum á Keflavíkurflugvelli. Er Þjóðviljinn átti tal við Björn Ingvarsson lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli í gær vildi hann fremnr fátt um málið segja á þessu stigi þar eð rannsókn þess vaeri hvergi nærri lokið en lét þó eftirfarandi upplýsingar í té. Atburður þessi átti sér stað aðfaranótt mánudagsins 19. sept- einber sl. Var stúlkan á gangi í miðbænum seint um kvöldið ásamt stöllu sinni er bifreið með fjórum hernámsliðum bar að og buðu herménnirnir stúlkunum upp í bílinn. Þáðu stúlkurnar boðið og var fyrst ekið um mið- bæinn en síðan vildu stúlkurnar fara heim til sín en i þess stað ókú hermennirnir með þær upp hjá Geithálsi. Þar fór önnur stúlkan úr bílnum og náði í bíl- far í bæinn aftur. Hin stúlkan varð eftir i bíln- um með hermönnunum og seg- ir hún að þeir hafi nauðgað sér. Var hún svo miður sín er hún kom heim til móður sinnar um nóttina að þær mæðgur fengu sig ekki til að skýra frá atburð- um og kæra til lögreglunnar fyrr en 5 dögum síðar eða 24. sept- ember. Hafði stúlkan ekki núm- erið á bílnum en eftir lýsingu hennar á mönnunum tókst þó um síðir að hafa á þeim öll- um og sitja þeir nú eins og áð- ur segir í varðhaldi og er rann- sókn málsins hvergi nærri lok- ið.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.