Þjóðviljinn - 21.10.1966, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 21.10.1966, Qupperneq 4
4 slÐA — ÞJÚÐVILJINN — Föstudagur 21. október 1866. OtgeÆandi: Sameiningarflokkur aiþ.vöu — Sósialistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb) Magnús Ejartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson. Simi 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa- söluverð kr. 7.00. Hverju er um uð kennu? TTvöss og markviss ádeiluræða, byggð með næg- um staðreyndum og skýrum rökum, vekur allt- af athygli í útvarpsumræðum, og svo er með ræð- una sem fulltrúi Alþýðubandalagsins, Geir Gunn- arsson, flutti við 1. umræðu fjárlaganna. Morgun- blaðið virðist hafa orðið vart við þetta og telur ræðuna svo snjalla að hún hefði getað verið eftir eiiin bezta ræðumann þingsins undanfarandi þrjá- tíu ár, Einar Olgeirsson. Og mega báðir una vel samanburðinum. * T einum kafla ræðunnar minntist Geir á áróður ríkisstjórnarinnar varðandi verðfall á nokkrum útflutningsvörum íslendinga, en ráðherramir og blöð þeirra hafa reynt að láta líta svo út, að hinir víðtæku erfiðleikar heilla atvinnugreina væru ein- ungis þessu verðfalli að kenna. ,Geir Gunn- arsson minnti á í ræðu sinni, að undanfarin ár hef- ur verð á útfluttum sjávarafurðum farið hækkandi með ári hverju, og „lækkun nú frá þeim hæsta verðtoppi sem náðst hefur þýðir ekki það, að verð- ið sé 'ekki eftir sem áður hærra en svarar til þess hlutar, sem verkafólk hefur fengið af þjóðartekj- unúm.‘ Auk þess kemur hér á móti meira aflamagn á síldveiðum en nokkru sinni fyrr“. Og Geir rakti það hver hækkun hefur orðið á helztu sjávaraf- urðum undanfarandi ár. Árin 1963—1965 hækkaði verð á eftirtöldum útflutningsvörum sem hér seg- ir: Saltfiskur óverkaður 31,4%, skreið 9,5%, fryst síld 20,2%, fryst fiskflök 21,5%, þorskalýsi hreinsað 26,6%, þorskalýsi óhreinsað 90,5%, saltsíld 11,4%, síldarlýsi 118,8%, fiskimjöl 5,2% og síldarmjöl 10,6%. Þetta væru *hækkanir síðustu ára og þrátt fyrir einhverja lækkun síðari hluta árs 1966 verði meðalverð á þessu ári fremur hærra eh lægra en meðalverð 1965 og varðandi þjóðartekjumar bætist þar á ofan að aflamagn á síldveiðum hefur stór- aukizt. /^eir Gunnarsson dró af þessum staðreyndum og ^ öðrum er hann rakti þá ályktun, að þau kreppu- einkénni, sem tekin væru að marka atvinnulífið yrðu ekki kennd óhagstæðum ytri aðstæðum né heldur því að verkafólk hafi fengið of mikið í sinn hlut. Þar væri stjómarstefnan sjálf að verki, verð- lækkanir á hokkrum afurðum yrðu hvorki notaðar til að kenna þeim um ófamaðinn né til þess að halda fyrir verkamönnum réttmætum hluta þeirra af þjóðartekjunum. Og hann taldi það ekki sam- rýmast neinni skynsemi að gera nú kröfu til launa- fólks að það afsali sér rétti til hærri kaupmáttar tímakaups, samtímis því að ríkisstjórnin leggur fram fjárlagafrumvarp sem gerir ráð fyrir auk- inni skattheimtu sem nemur 850 miljónum króna á einu ári, og þverneita þannig að hverfa frá þeirri verðbólgustefnu sem sé að koma framleiðsluat- vinnuvegunum í þrot. Slík fjárlög eru bein túlkun á þeirri stefnu sem í reynd er stefna ríkisstjórn- ar íhaldsins og Alþýðuflokksins, að allt megi hækka nema kaupið, þó ráðlegt þyki að tala fagur- lega um „stöðvun" vegna þess að samningar við verkalýðshreyfinguna standa yfir og ekki er nema hálft ár til kosninga. — s. Hverjar yrðu afleiðingarnar, ef hætt yrði ræktun deyfilyfjagras * □ í umræðum um eitur- lyfjavandamálið hefur þeirri hugmynd oft verið hreyft að láta efnafræðiiega samsett lyf koma í stað deyfilyfja sem unn- in eru úr jurtum. Með því móti mundi t.d. lögleg ræktun ópí- ums ekki verða möguleg, og tækifærin til ólöglegrar rækt- unar, sölu og „rýmunar" í lyfjaiðnaðinum mundu verða miklu færri en nú er. □ Enda þótt farið sé að framleiða í æ rikara mæli lyf unnin úr gerviefnum, er vanda- málið ekki eins einfalt og virð- ast má við fyrstu sýn, segir í nýbirtri skýrslu sem skrif- stofa Sameinuðu þjóðanna hef- ur samið og lögð verður fram á fundi eiturlyfjanefndarinnar í desember. Skilyrðið er, að deyfilyf unn- in úr gerviefnum, jafnvel þó þau séu einnig vanamyndandi, verði jafngóð eða betri en hin. Þetta hefur enn ekki gerzt, segir i skýrslunni, heldur eru hin nýju lyf þvert á móti enn- þá hættulegri að því er snert- ir vanamyndun. Af þeim 89 eiturefnum, sem nú eru undir alþjóðlegu eftir- liti, eru 60 unnin úr gerviefn- um. Fræðilegir möguleikar á að framleiða fleiri slík lyf eru „svo til ótæmandi“. Auðvelt er að hafa eftirlit með slíkum lyfj- um, enda koma þau Ktið við sögu í ólöglegri eiturlyfja- verzlun- En / einungis fá þeirra eru ,til sölu og notuð til lækn- inga. Þekktust þeirra eru pethidin, methadon, normet- hadon og dextromoramid. Eitt sem mælt hefur með lyfjum unnum úr gerviefnum' er hið hagstæða verðlag á hrá- efnunum. En hér verður líka að taka með í reikninginn kostnaðinn við rannsóknir og framleiðslu, og er mikið vafa- mál hvort framleiðsluverð verð- ur mismunandi á hinum ýmsu tegundum. Vandamálið, hvort stefna beri að því að hafa eingöngu á boðstólum deyfilyf unnin úr gerviefnum, er þannig bæði flókið og yfirgripsmikið, og er nauðsynlegt að kanna það gaumgæfilega, segir í skýrsl- unni. Afleiðingarnar fyrir þá sem rækta jurtirnar Annað veigamikið vandamál í þessu , sambandi er, hvaða afleiðingar það muni hafa fyr- ir lönd, sem rækta jurtir til deyfilyfjagerðar, verði ræktun þeirra bönnuð. Að því er varðar ópíum verða Indland og Tyrkland harðast úti, þó önnur lönd eigi hér líka hlut að máli. Eft- ir því sem löglég framleiðsla ópíums hefur verið takmörkuð (úr 1171 tonni árið 1963 niður í 940 tonn árið 1964) hafa þessi lönd dregið úr framleiðslu sinni og minnkað ræktunar- svæðin. Það er ekki sérlega arðvæn- legt að rækta ópíum til lög- legrar sölu. í skýrslunni segir að kiló af ópíum með 12 pró- sent morfín-innihaldi kosti 11 dollara (473 ísl. kr.). Sú staðreynd að umrædd lönd eru þegar f arin að -rækta 5- aðrar jurtir á tilteknum svæð- 1 um, og að tiltölulega fámennii- hópar fást við ræktunina (77.747 í Indlandi og 160.671 j í Tyrklandi), bendir til þess. j að löndin mundu án verulegra j vandkvæða geta lagt niður ópi- um-rækt, ef þau hlytu alþjóð-1 lega aðstoð. Hins vegar er j lögð á það áherzla í skýrsl- unni, að ópíum-verzlunin sé til- tölulega þýðingarmikil fyrir út- flutningslöndin vegna öflunar erlends gjaldeyris. Tæknihjálp, sem koma á í staðinn fyrir ópium-ræktun, hefur verið veitt Burma, Af- ganistan, íran og verður veitt ákveðnum svæðum í Thaílandi. f fran hefur verið tekin upp ræktun á sykurrófum og baðm- ull, sem veitir fyrrverandi ópíum-ræktendum viðunandi arð. Kóka-jurtin er álitleg tekju- lind þeim sem rækta hana, og ræktunarlandið er um það bil 190w000 hektarar í Perú og Bólivíu. Perú hefur undirrit- að Eiturlyfjasáttmálann frá 1961 og lofað að afnema óhæf- una á 25 árum. Ríkisstjórnin hefur einnig skipað nefnd sem á að finna viðeigandi úrræði fyrir þá sem snúa sér frá kóka- ræktun. Bólivía er líka farin að fá áhuga á málinu. Cannabis (indverski hampur- inn, sem hasjisj er unnið úr) vex villtur Dg dreifist auðveld- lega. Svo að segja um heim allan er hann ræktaður ólög- lega, segir í skýrslunni. Hamp- urinn er mest notaður í iðn- aði- 1 Indlandi og Pakistan er „hartsið" notað til lækninga. Líbanon, Marokkó, Suður- Afríka og Brasilía eru meðal þeirra landa þar sem mest kveður að ólöglegri ræktun jurtarinnar. Marokkó og Líban- on hafa fengið alþjóðlega að- stoð til að rækta aðnar jurtir en cannabis. 1 Libanon er verr ið að gera tilraunir með sól- fylgjur. Fæst eining? Þriðja mikilsverða atriðið i þessu sambandi er spurningin, hvaða afstöðu lönd eins og t.d. Sovétríkin, Kína, Norður-Kór- ea og Norður-Víetnam muni taka. Þau framleiða öll ópíum eða lyf sem unnin eru úr ópí- um. Árið 1964 voru Sovétríkin annar mesti ópíum-framleið- andi heims með 20 af hundraði heildarframleiðslunnar, en Ind- land framleiddi 69 af hundraði og Tyrkland 9 af hundraði alls ópíums í heiminum. í skýrslunni er vísað til til- lögu, sem lögð var fyrir eitur- lyfjanefnd Sameinuðu þjóð- anna síðast þegar hún kom saman og var þess efnis, að framkvæmdastjóri samtakanna sendi fyrirspurn til aðildarríkj- anna um ópíum-framleiðslu þeirra. f skýrslunni er gengið lengra og lagt til, að íyrir- spurnin taki líka til annarra eiturlyfja og lyfja úr gervi- efnum, jafnframt því sem mál- in verði enn betur skýrð með fyrirspum frá Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnuninni (WHO.). (Frá S.Þ.). Biskupur gegn frjálslyndri skýrslu um kynferðismul LONDON 17/10 — Biskupar ensku biskupakirkjunnar hafa mótmælt harðlega skýrslu kirkjunefndar einnar, sem mæl- ir með auknu frelsi í kynferðis- málum fyrir ógift fólk- Skýrslan „Kynferðismál og siðferði“ var birt 1 London á sunnudag. Var hún tekin sam- an af þrettán manna nefnd, skipaðri af brezka kirkjuráð- imi. Þar segir að ekki sé hægt að gefa neinar ófrávíkjanlegar reglur um kynlíf fyrir hjóna- band né heldur um framhjá- tökur. Hinsvegar beri að veita fólki þann skilning á kynferð- ismálum að það geti sjálft tek- ið ákvarðanir. Þá er í skýrsl- unni' lýst stuðningi við fræðslu um notkun getnaðarvama óg að fóstureyðingar verði leyfilegri nú er. Eldfim landamærí Arabískir hermdarverkamenn hafa haft sig mjög í frammi i ísrael að undanförnu. í fyrri viku sprengdu þeir í Ioft upp íbúðarhús í Jerúsalem og særðust þá fimm manns og um svipað leyti drápu þeir fjóra ísraelska hermenn í jeppabifreið skammt frá Iandamær- um Sýrlands. ísraelsmenn telja, að þessar aðgerðir séu óhugsandi án stuðnings sýrlenzka hersins, en Sýrlandsstjórn hefur nú um skeið tekið að sér það hlutverk að hafa forystu meðal Araba i. hatursáróðri gegn ísrael. Sumir ísraelsmenn telja að Sýrlandsstjórn geri þetta einkum til að skapa sér traust innanlands og vilji fara varlega í sakirnar, en aðrir vilja gjalda í sömu mynt samkvæmt boðorðinu auga fyrir auga, tönn íyrir tönn. ... — Myndin er af aðvörunarskilti á landamærum Sýrlands og ísraels. Nokkrur úbendingur til hás- byggjehdu og háskuupendu Meistarasamband byggingar- manna í Reykjavík hefur beðið Þjóðviljann að koma á framfæri eftirfarandi ábendingu til hús- byggjenda og húskajupenda: „Að gefnu tilefni skal byggj- endum og kaupendum að hús- um i smíðum bent á, að meist- arar, sem áritað hafa teikn- ingar af húsum eða tekið að sér framkvæmd á fagvinnu við byggingar bera ábyrgð hver f sinni faggrein. Er því eigend- um óheimilt að framkvæma eða láta framkvæma þau störf, nema í samráði við viðkomandi meistara.‘‘ Tilefni þessarar ábendingar er að þess eru þvi miður alltof mörg dæmi, að húsbyggjandi virðist ekki gena sér nægilega ljóst, hve nauðsynlegt er, að meistarar hafi umsjón með öllu því sem snertir byggingu húss- ins- Þetta hefur haft þær af- leiðingar að oft og tíðum koma fram ýmsir verkgallar, sem meistarinn af þessum orsökum getur ekki ráðið við, en er þó talinn bera ábyrgð á, ef út af ber. Þegar meistari áritar hús- teikningar, sem samþykktar haía verið af viðkbmandi bygg- ingaryfirvöldum, tekur hann- á sig þá ábyrgð, að húsið sé byggt eftir þessum teikningum og að hlítt sé fyrirmælum byggingasamþykkta í einu og öllu. Hjá málarameisturum og veggfóðrarameisturum er þessi áritunarskylda þó ekki fyrir hendi, en engu að síður bera þeir sömu ábyrgð, þegar þeir hafa tekið að sér framkvæmd verks- Að framansögðu er ljóst að ábyrgð meistaranna um fram- kvæmd áritunarverka er mikil og vill Meistarasamband bygg- ingarmanna mjög eindregið brýna fyrir félögum sínum að sinna af alúð og vandvirkni þeim ábyrgðarmiklu störfum, sem áritunarskyldunni fylgja. Það vill stundum koma fyr- ir að deila rísi milli húsbyggj- enda og meistara. Það er þvf nauðsynlégt, að í upphafi geri þeir skýra skriflega samninga sín á milli, í þeim skal taka fram það helzta, sem í slíkum samningum þarf að standa s.s. skýrt afmörituð • verkáætlun, hvemig tryggingu fyrir henni skuli hagað o. fl., o. fl. Til eru tvennskonar form fyrir slíka samningsgerð, verk- samningur og verkbeiðni. Bæði þessi form fást á skrifstofu Meistarasambandsi ns. Þess skal að lokum getið, að Meistarasambandið r»un auka eftirlit í byggingum með þeim framkvæmdaliðum, sem hér hafa verið taldir og von- ar að það megi verða til hag- ræðis jafn fyrir húsbyggjend- ur og iðnmeistara.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.