Þjóðviljinn - 26.10.1966, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 26. október 1966 — 31. árgangur— 244. tölublað.
. r .
( y ■
iaiiir
Sáralítil síldveiði vikuna sem leið vegna brælu
Heildarsíklveiðin í sumar er
nú orðin 523.953 lestir
■ Samkvæmt skýrslu Fiskifélags íslands nam síldar-
aflinn fyrir Austurlandi í síðustu viku aðeins 4206 lestum
enda var bræla lengst af nema einn dag. í vikulokin var
heildaraflinn á vertíðinni orðinn 523.953 lestir en var á
sama tíma í fyrra 393.674 lestir.
Eftir verkunaraðferðum hefur
síldaraflinn í sumar skipzt
þannig: í salt 55.777 lestir eða
382.032 uppsaltaðar tunnur (í
fyrra 57.840 lestir eða 396.166
tunnur), í frystingu 2.454
(2.573), í
(333.261).
brseðslu 465.722
lestir
lestir
Frystíhús Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. — Myndin er tekin skömmu eftir að það tók til starfa.^
Um síðustu helgi höfðu alls
20 síldveiðiskip fengið um _eða
yfir 5500 lestir og var Gísli Árni
langhæstur með rösklega 9 þús.
lestir og Jón Kjartansson næst-
ur með rösklega 8 þús. lestir.
Annars lítur listinn yfir 29 afla-
hæstu síldveiðiskipin í sumar
þannig út:
Gísli Árni RE 9152
Jón Kjartansson SU 8120
Jón Garðar GK ' 7110
Lómur KE 6589
Sigurður Bjarnason EA 6363
Dagfari ÞH 6277
Þórður Jónasson EA 6201
Helga Guðmundsdóttir BA 6109
Ingiber Ólafsson II. GK 5911
Ólafur Magnússon EA 5878
Ásbjörn RE 5865
Jörundur II. RE 5762
Seley SU 5716
Hannes Hafstein EA 5628
Snæfell EA 5626
Barði NK 5593
Reykjaborg RE 5579
Heimir SU 5568
Bjartur NK 5531
Óskar Halldórsson RE 5494
Einróma álit borgarafundarins i HafnarfirÓi
Stefna ríkisstjórnarinnar er að
drepa niður allan sjávarútveg
Q Verkalýðsfélögin í Hafnarfirði boðuðu til al-
menns borgarafundar í Bæjarbíói í fyrrakvöld
um lokun bæjarútgerðarinnar og atvinnuástand-
ið í bænum. Fundurinn var einn hinn fjölmenn-
asti sem haldinn hefur verið í Hafnarfirði, miklar
umræður urðu og stóð fundurinn til kl. 1.30 um
nóttina.
□ Á þessum fjölmenua borgara-
fundi voru samþykktar ein-
róma tillögur sem fela í sér
auuars vegar þann dóm að
fyrir stefnu ríkisstjórnarinn-
ar sé sjávarútvegurinn a.ð
hrynja í rúst svo að leiði til
atvinnuleysis í bænum, og
hins vegar mótmæli gegn
þeirri ákvörðun meirihluta
bæjarstjórnar, Sjálfstæðis-
flokksins og Félags óháðra
borgara, að leggja bæjarút-
gerðina niður. Auk þess var
á fundinum felld tillaga, sem
forystumenn óháðra létu
flytja, að stofnað verði al-
menningshlutafélag um rekst-
ur bæjarútgerðarinnar.
□ Málflutningur fulltrúa Al-
þýðubandalagsins á fundinum
og fulltrúa fundarboðenda,
Hermanns Guðmundssonar,
formanns Vkmf. Hlífar, fékk
hinar beztu undirtektir fúnd-
armanna, og þær samþykktir
sem gerðar voru nær einróma
staðfestu fylgi Hafnfirðinga
við stefnu þeirra.
Eins og áður hefur verið sagt
frá í Þjóðviljanum var það eitt
fyrsta verk hins nýja meirihluta
í bæjarstjórn Hafnarfjarðar,
sem myndaður er af Sjálfstæð-
isflokknum og Félagi óháðra
Er þetta í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar?
Allt upp í 300% hækkun á
uuglýsinguverði útvarpsins
Eine og kunnugt er hefur
tilkynningatímum útvarpsins
verið breytt og ennfremur
hefur verið tekin upp ný
vefðflokkun á tilkynningum-
Til þess að lesendur Þjóðvilj-
ans mættu átta sig betur á
hinu nýja fyrirkomulagi
hringdi blaðið í auglýsinga-
stofu útvarpsins og fékk nán-
airi upplýsingar um þessi
mál.
Tilkynningalestur er nu
fimm einnum á dag. Frá kl.
9.30 til 10.00 á morgnana, eftir
lestur hádegisfrétta eins og
venjulega, eftir lestur miðdeg-
isfrétta klukkan 1500, milli
klukkan 18 og 19 og ennfrem-
ur frá klukkan 19-20 til 19.30.
Verðflokkun tilkynninganna
verður í framtíðinni þannig,
að í morgutímanum og mið-
degistímanum verða greiddar
15 krónur fyrir nvert orð. I
hádegistímanum og tímanum
fyrir kvöldfréftir klukkan
19.00 20 krónur fyrir orðið, en
í tímanum eftir kvöldfréttir
kostar orðið 40 krónur.
Frá þessari flokkun eru þó
ýmsar undantekningar og af-
brigði og allt er þetta heldur
£ hækkunaráttina- Þannig
kostuðu almennajr verzlunar-
auglýsingar áður 16 krónur
orðið og tilkynningar um
fundi og mannfagnaði 12 kr.
Báðir þessir flokkar eru nú
á 15, 20 og upp í 40 krónur
eftir því á hvaða tíma lesið
er. Hinsvegar kosta bein fund-
arboð, tilkynningar um vinnu
og ráðmngar og tapað —
fundið 15 krónur orðið í 20
króna tímanum. Dánartilkynn-
ingar og messutilkynningar
kosta 10 krónur orðið, en til-
kynningar um pólitíska fundi
með skemmtiatriðum 15 kr. '
20 króna tímanum. Ef hins-
vegar oólitískt félag tilkynnir
skemmtifund (án* ræðuhalds),
kostar orðið 20 krónur í þeim
tíma, annars’ eins og tíminn
segir fyrir um.
Hér er vissulega um athygl-
isvert nýmæli að ræða- T. d.
varð sá er þetta skrifar vitni
að því, að auglýsingatíminn í
gærrporgun entist Jóni Múla í
tæpar 5 mínútur og í fyrra-
kvöld £ „lúxustimanum" voru
einkum lesnar tilkynningair
frá auglýsingaskrifstofu út-
varpsins-
Og auðvitað er aHt upp í
tæplega 300% hækkun á aug-
Iýsingatexta útvarpsins (sbr.
fundi og mannfagnaði, sem
hækka úr 12 krónum orðið i
allt að 40 krðnur), í beinu
samræmi við þá áskorun og
yfirlýsingu Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, að nú
megi ekkert hækka. hvorki
kaup eða verðlag!
borgara, að samþykkja á fundi
bæjarstjórnar að föstu starfs-
fólki. bæjarútgerðarinnar verði
sagt upp, en það þýðir að sjálf-
sögðu að starfsemi hennar verði
lögð niður. Af þessu tilefni og
því að annað stærsta fisk-
vinnslufyrirtæki í bænum hefur
sagt upp öllu föstu starfsfólki,
svo að atvinna í þessari undir-
stöðugrein atvinnulífsins í Hafn.
arfirði hefur verulega dregizt
saman, boðuðu þrjú verkalýðs-
félög í Hafnarfirði til almenns
borgarafundar í stærsta sam-
komusal bæjarins í fyrrakvöld.
Gunnar Guðmundsson setti
fundinn fyrir hönd fundarboð-
enda og skipaði Ólaf Þ. Krist-
jánsson fundarstjóra. Var húsið
þá fullskipað langt út úr dyrum,
en hátölurum hafði verið komið
fyrir, svo að fólk gat fylgzt með
,því úti á götu sem fram fór á
fundinum. Frummælendur á
fundinum voru Hermann Guð-
mundsson form. Vkmf. Hlífar
og Sigurrós Sveinsdóttir form.
Vkvf. Framtíðarinnar, en form.
Sjómannafélags Hafnarfjarðar,
Kristján Jónsson, gat ekki mætt
á fundinum þar sem hann var
bundinn við störf sín á sjónum.
Hermann Guðmundsson sagði
að til þessa fundar væri boðað
á örlagastundu og minnti á að
26 ár væru liðin síðan síðast
hefði verið boðað til almenns
borgarafundar í Hafnarfirði og
þá að tilhlutan verkalýðsfélag-
anna eins og nú. Menn skyldu
gera sér grein fyrir því að þau
mál sem hér væru til umræðu
væru pólitísk mál eins og allt
samlíf manna væri í raun og
veru. Þótt mönnum hefðu lengi
verið ljósir erfiðleikar í rekstri
bæjarútgerðarinnar hefðu flest.
um brugðið í bíún er þeir fréttu
um samþykkt meirihluta bæjar-
stjórnar 11. okt. s.l. um að segja
upp starfsfólki bæjarútgerðar-
innar. Hafi menn ekki þá strax
gert sér Ijóst hvað um var að
ræða þá hefði auglýsing frá
bæjarstjórn í dagblögunum sl.
laugardag tekið af öll tvímæli
um að hér ætti meira og verra
að gera en bæta rekstur bæjar-
, Framhald á 7. síðu.
Borodin strengjakvartettinn
heldur hér tvenna tónleika
Tónlistarfélagið byrjar nú
vetrarstarfsemi sfna með tvenn-
um tónleikum, þeim fyrri n. k.
föstudaigskvöld klukkan 7.15 og
n. k. laugardag klukkan 3 sfðd-
f Austurbæjarbfói, þá leikur
„Borodin*1 strengjakvartettinn frá
Moskvu, en þeim seinni n. k.
mánudags og þriðjudagskvöld,
einnig í Austurbæjarbíói þá leik-
ur ameríski píanóleikarinn Shura
Cherkassky, sem hér er fjölda
manns að góðu kunnur síðan
hann var hér fyrir réttum tólf
árum og hélt hér þrenna tón-
leika fyrir Tónlistarfélagið og
lék einnig með Sinfóníusveit-
inni.
Ályktanir borg-
arafundarins:
Uppsögnum
mótmœlt
Almennur borgarafundur,
haldinn 24. okt. 1966, mót-
mælir þeirri ákvörðun
meirihluta bæjarstjómar,
að segja upp starfsfólki
Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar.
Skorar íundurinn á
meirihluta bæjarstjórnar
að endurskoða þessa af-
stöðu sína, 0g,4- stað þess
að loka, leigja eða selja
Bæjarútgerðina einkaaðil-
um, þá vinna að eflingu
hennar og færa rekstur
hennar í nýtízku horf, þar
sem það eitt er í samræmi
við hagsmuni hafnfirzkrar
alþýðu og þar með bæjar-
félagsins í heilcL
Uggvœnleg
þróun
atvinnumála
V
Almennur borgarafund-
ur, haldinn í Hafnarfirði
24. okt. 1966, telur þróim
þá, sem nú á sér stað í at-
vinnumálum bæjarins,
vera mjög uggvænlega og
að hún hljóti að leiða til
atvinnuleysis, ef eigi verði
brugðið skjótlega við af
hálfu bæjaryfirvalda og
ríkisvalds, með aðgerðum,
sem m.a. feli í sér eftir-
farandi ráðstafanir:
1. Útgerð togbáta og
smærri togara verði
stóraukin og þeim skip-
tíhi leyft að veiða, til
hráefnisöflunar fyrir
frystihúsin og fisk-
vinnslu, innan fiskveiði-
lögsögu á vissum tíl-
teknum svæðum og á
vissum tímum.
2. Flutt verði síld tíl bæj-
arins af veiðisvaeðum
til niðursuðu, frysting-
ar og söltunar.
3. Að athugaðar verði, af
þar til kjöriimi nefnd,
hverjar séu hinar raun-
verulegu ástæður fyrir
rc!;stursstöðvun Norður-
stjörnunnar h.f., og því
fyrirtæki veitt aðstoð til
reksturs síns, leiði at-
hugun í ljós að slíks sé
þörf.
4. Að bætt verði úr láns-
fjárskorti útgerðarinnar,
fiskiðnaðarins og annars
atvinnureksturs.
Vinnuslys við
Búrfellsvirkjun
Það slys varð við Búrfells-
virkjun rétt eftir kl. 11 í gær-
morgun að danskur trésmiður
varð fyrir grjótkasti og meidd-
ist á höfði og öxl. Þetta gerðist
í flutningagöngum úr aðalgöng-
unum og var maðurinn þar við
vinnu þegar grjótið hrundi.
Hann liggur nú á sjúkrahúsinu
á Selfossi.
Telpan kom fram
Eftir fyrri kvöldfréttir út-
varpsins i gær var auglýst eftir
6 ára telpu. sem ekki hafði sézt
síðan um hádegi. Kom telpan
fram strax eftir að auglýst var
og hafði verið í heimsókn.