Þjóðviljinn - 26.10.1966, Qupperneq 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVTLJIOTí — Midvíkudagur 26. oktúber 1-966.
H andknattl eikur
Verður nýja höllin ekki sú lyfti-
stöng, sem búizt hafði verið við?
Eins og getið var i 'fréttum
blaðsins í gær, hófst meist-
aramót Rvikur í handknattleik
í íþróttahöllinni i Laugardal á
sunnudagskvöldið var. Fóru
þá fram þrir leikir í meistara-
flokki karla: Ármann vann
Þrótt 13:10, Fram vann ÍR 23:13
og KR vann Val 16:13.
Formaður Handknattleiksráðs
Reykjavíkur, Jón Magniisson,
hafði búið sig undir að flytja
ávarp við setningu Rvfkurmóts-
ins. Þegar til kom vorni þó
engir magnarar fyrir hendi f
fþróttahöllinni og af þeim sök-
um horfið frá dllum ræðuhöld-
um, enda hefðu aðeins sárafáir x
heyrt til ræðumanns.
Ávarpið serrt 'aldrei var flutt,
fer hér á eftir:
Góðir handknattleiksmenn og
handknattleiksunnendur._
í kvöld hefst hér í íþrótta-
höllinni í Laugardal 21. meist-
aramót Reykjavíkur f hand-
knattleik. Eru þetta merk tíma-
mót í sögu handknattleiks á
Islandi, þvf að þetta er fyrsta
handknattleiksmótið, sem fram
fer hér í íþróttahöllinni.
Þess má einnig geta, að á
þessu nýhafna starfsári verður
HKRR 25 ára og HSÍ 10 ára.
Það mun hafa verið von hand-
......................i---------$>
Gagnrýni á Líú
Sjaosji forseta
l PEK-ING .24/10 — Fest hafa
verið upp spjöld ,í einúm há-
skólánum í Peking þar sem lát-
,in er í Ijós gagnrýni á Líú
Sjaosji forseta og hann m.a.
kallaður „endurskoðunarsinni“.
Gagnrýnin er þó sögð hófsam-
legar orðuð en tíðkazt hefur i
Kína að undanförnu.
knattleiksunnenda að með til-
komu Iþróttahallarinnar mundi
verða hægt að flytja hand-
knattleiksmót flestra flokka i
þetta glæsilega hús. En í Rvík-
urmótinu ttiunu aðeins leika hér
meistaraflokkar karla og kvenna
og 2. fl. karla og 3. fl. karla
að hluta. Aðrir flokkar munu
leika á Hálogalandi sem áður.
Útlit er ekki fyrir það, sem
stenduf, að hægt verði að leika
hér í fleiri flokkum en munu
leika hér í Reykjavíkurmótinu
og jafnvel vafasamt að hægt
verði að láta alla þessa flokka
leika hér í íslandsmótinu.
Ástæða þessa er sú, að lág-
marksleiga fyrir hvert keppn-
iskvöld, er svo há, að ekki er
útlit fyrir annað en mótin verði
rekin með tapi, ef ekki fæst
úr þessu bætt.
Það hefur sýnt sig að þá daga
og kvöld, sem yngri flokkamir
leika er fátt áhorfenda, og ef
svo verður áfram, getur farið
svo að ekki verði hægt að láta
þá leika hér vegna þess m:kla
kostnaðar, sem af því leiðir.
Ef ekki verður hægt að láta
yngri flokkana leika hér, er ég
hræddur um að tilkoma Iþrótta-
hallarinnar verði ekki sú lyfti-
stöng fyrir íslenzkan handknatt-
leik, sem búizt var við.
Ef íslenzkir handknattlei-ks-
menn hefðu ekki fjölmennt til
vinnu í íþróttahöllinni sl. vet-
ur hefði ekki verið hægt að
hefja keppni hér svo snemma
sem gert var. Aftur fyrir nokkr-
um dögum voru handknattleiks-
menn að störfam við að koma
búningsklefum Iþróttahallar-
innar í þókkalegt ástand. Mun
HKRR stefna að því, að sem
flestir flokkar geti fengið tæki-
færi til keppni i íþróttahöllinni
og vonast til að hlutaðeigandi
aðilar muni aðstoða við það
eftir föngum.
Að
falsa guðs steðja
Á mánudaginn hækkuðu
brauð í verði í verzlunum,
en sama dag var mjólkin
lækkuð með niðúrgreiðslum
úr ríkissjóði. Sumum kann
að ganga erfiðlega að átta
sig á því hvers vegna ríkis-
stjórnin snýr sér að mjólk-
inrti þegar brauðið hækkar;
hefði ekki verið eðlilegra að
borga niður sjálfa verðhækk-
unina á brauði? Ástæðan er
sú að mjólk hefur meiri á-
hrif á vísitöluna en brauð:
það er ódýrara fyrir ríkis-
sióð að greiða niður mjólk
en brauð. Og önn stjórnar-
valdanna er ekki við það
bundin að halda verðbólg-
unni í skefjum. heldur aðeins
vísitölunni.
Þegar viðréísnarstjórnin tók
við völdum var það eitt helzta
stefnumál hennar að binda
endi á styrki, uppbætur og
niðurgreiðslur, og voru flutt-
ar um það efni margar raéð-
ur og skrifaðar ótölulegar
greinar — síðast var þessi
hugsjón auglýst fyrr á þessu
ári þegar það var talið spak-
leg stjórnarráðstöfun að
lækka niðurgreiðslur sem
svaraði fjórum vísitölustig-
um. En nú eru það bjarg-
ráð ríkisstjórnarinnar að
auka niðurgreiðslumar svo til
vikulega. Þegar húsmóðir
kaupir mjólkurhyrnu á kr.
6.70 greiðir ríkissjóður kr.
6.70 á móti; með hverju
smjörkílói greiðir ríkissjóður
kr. 121,86; með ostkílói 25
kr. Fúlgur þær sem í þetta
fara nema hundruðum milj-
óna króna; aðeins sú aukning
á niðurgreiðslum sem komið
hefur til framkvæmda á
minna en einum mánuði
jafngildir 174,1 miljón króna
á ári.
Og hvaðan er þetta fé tek-
ið? Það er að sjálfsögðu tek-
ið af neytendum, fyrst og
fremst með söluskatti. Þann-
ig eru menn í sífellu að borga
sjálfum sér neyzlustyrki.
Þetta er bjargráð karlsins
sem vildi hvíla hestinn sinn;
hann. leysti af honum bagga,
batt þá á bakið á sjálfum
sér, settist síðan á hrossið og
sagði: Hesturinn ber ekki það
sem ég ber.
Að sjálfsögðu hafa slíkar
tilfærslur engin raunveruleg
áhrif á verðbólguþróunina;
þær beinast aðeins að verð-
bólgumælinum — vísitölunni.
Þetta er samskonar iðja og ef
raunvísirídamaður tryggði sér
þá útkomu af mælingu sem
honum væri að skapi með því
að lerígja eða stytta metrann
að eigin geðþótta. — Austri.
Sýna í Laugaraalshöllinni
Fimleikaflokkurinn frá Ollerup í Danmörku hefur sýningu fyrir
almenning í kvöld, miðvikudaginn 26. október kl. 8,15 í íþrótta-
höllinni í Laugardal. Annað kvöld á sama tíma hefur flokkur-
inn sýningu fyrir skólanemendur á sama stað. — Á myndinni
sjást tveir piltar úr leikfimiflokknum sýna æfingar á hestum.
Aukin sé kennsla
i glimu i skolum
Ársþing Glímusambands ís-
lands var haldið í Reykjavík
sl. sunnudag, , og var sett af
formanni sambandsins, Kjart-
ani Bergmann Guftjónssyni.
1 upphafi fundarirts minntist
formaður þriggja kunnra glímu-
manna, þeirrá Helga Hjörvars,
Eggerts Kristjánssonar og Er-
lings Pálssonar.
Þingforsetar voru kjörnir
Guðjón Einarsson, varaforseti
Iþróttasambands Islands, og
Sigurðar Ingason, en ritarar
Sigurður Sigurjónsson ogValdi-
mar Óskarsson.
Formaður gaf skýrslu um
starfsemi sambandsins á s. 1.
starfsári, en hún var mjögfjöl-
bætt og mörg mál i athugun
til eflingar glfmuíþróttinni f
landinu.
Ýmis mál voru tekin til um-
ræðu og afgreidd á glímuþing-
inu. Meðal annars var sam-
þykkt mérki fyrir Glímusam-<S>-
bandið.
Rætt var um reglugerð fyrir
Íslandsglímuna og Grettisbelt-
ið, sem stjóm Glímusambands-
ins hafði lagt fyrir glímuþing-
ið., Var reglugerðinni að lok-
inni umræðu vísað til stjómar
Glímusambandsins til nánari
athugunar og staðfestingar.
Samþykkt var tillaga um að
skora á héraðasamböndin, að
þau beiti sér fyrir því aðkoma
á sveitaglímu í sínu héraði eða
milii héraða.
Samþykkt var tillaga um að
stjórn Glímusambandsins vinni
að aukirmi glímukennsiu í
skólum, og þá sérstaklega með
tilliti til héraðsskólanna,
Kosin var milliþinganefnd til
að endurskoða glímulögin. Þess-
ir menn skipa nefndina: Þor-
steinn Einarsson, formaður,
Hafsteinn Þorvaldsson, Ólafur
H. Óskarsson, Sigtryggur Sig-
urðsson, Sigurður Sigurjónsson.
1 glímudómstól voru þessir
menn kjömir: Sigurður Inga-
son, Ólafur H. Óskarsson, Sig-
urður Sigurjónsson.
Stjöm Glímusambandsins var
öll endurkjörin, en hana skipa
þessir menn: Kjartan Bergmann
Guðjónsson, Rvík, formaður.
Meðstjómendur: «Sigurður Er-
lendsson, Vatnsleysu, Biskups-
tungum, Sigtryggur Sigurðsson,
Reykjavík, Ólafur H. Óskarss.,
Rvík, Sigurður Geirdal, Kópa-
vogi. Til vara: Sigurður Inga-
son, Rvík, Valdimar Óskarsson,
Rvfk, Elías Amason, Rvfk.
Hestaeigendur
Þann 23. okt. sl. var ekið á
rauð-jarpskjóttan hest á
Reykjanesbraut. Mark: stig
eða illa gerður biti framan
hægra.
Kigandi hestsins tali við lög-
regluna í Hafnarfirði.
Ráðstefna
Herferðar
gegn
hungri
Fræðslunámskeið og ráðstefna HGH hefst í Þjóð-
lejkhúskjallaranum kl. 1.30 laugardaginn 29. okt.
Sigurður Guðmundsson setur ráðstefnuna.
Gísli Gunnarsson flytur erindi um sögu van-
þróaðra ríkja .Pétur Einarsson flytur erindi um
atvinnuvegi í vanþróuðum ríkjum.
Kaffihlé og umræður um ofangreind erindi.
Björgvin Guðmundsson flytur erindi um utan-
ríkisverzlun v-ríkja. Ragnar Kjartansson flyt-
ur erindi um alþjóðlega aðstoð.
Sunnudaginn 30. okt. heldur róðstefnan áfram kl. 2.
Andri ísaksson flytur erindi um félagsmál
vanþróaðra ríkja. Sigurður Guðmundsson ræð-
ir afstöðu íslendinga og starf HGH á íslandi.
Kaffihlé og umræður um erindi.
Eftir kaffihlé verða almennar umræður um
starf HGH á íslandi. — Ráðstefnunni slitið
klukkan 6,30.
Þátttakendur eru beðnir að staðfesta þátttöku sina
sem fyrst og verður skrifstofa HGH opin frá 10
til 12 og 5 til 7 þessa viku. Sími 14053. Áhugafólk
er velkomið á ráðstefnuna meðan húsrúm leyfir.
Vita- og hafnamálastjórmn
Hafnnrbygging í
Straumsvik
Bygging hafnargarðs með bryggju; í Straumsvík,
verður boðin út þann 28. okt 1966. Utboðstími er til
7. janúar 1967.
Verkið er í aðalatriðum 220 metra hafnargarður til
losunar á alumina, byggður úr hringlaga steinkerj-
um með grjótgarði öðrum megin.
í verkinu felst dýpkun: 30.000 rúmmetra, brimvarn-
argrjót: 40.000 rúmmetrar, steinsteypa: 11.000 rúm-
metrar og annað það, sem verkinu viðvíkur.
Útboðsgögn varðandi verkið verða afhent frá 28,
október 1966 gegn 3.000,00 króna skilatryggingu,
hjá Vita- og hafnarmálastjóminni, Seljavegi 32, og
„Christiani & Nielsen A/S, Consulting Engineers",
Vester Farimagsgade 41,' Kaupmannahöfn.
Tilkynning um útboð
Útboðslýsing á einangrum í háspennulínui Búr-
fellsvirkjunar verður afhent væntanlegum bjóð-
endum að kostnaðarlausu á skrifstofu Landsvirkj-
unar eftir 31. okt n.k.
Tilboða verður óskað í 29 þúsund postulínshengi-
einangra og það gert að skilyrði að hver bjóðandi
sendi með tilboði sínu fullnægjandi upplýsingar
um tæknilega og fjárhagslega hæfni sína til að
standa til fullnustu við samninga.
Tekið .verður við innsigluðum tilboðum í skrif-
stofu Landsvirkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykja-
vík fram til kl. 14,00 þann 13. des. 1966.
/
Reykjavfk, 25. 10. 1966
LANDSVIRKJUN.
\ Kuldajakkar og úlpur
í öllum stærðum. Góðar vörur — Gott verð.
* Verzlunin O. L.
, Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu). i